Haukur - 30.05.1900, Page 5

Haukur - 30.05.1900, Page 5
III. 4—6. HAUKUR. i7 »Rjettið mjer hönd yðar til merkis um það, og þá, raegið þjer treysta Thomasi Brusel sem einlægum og góðum vini. Og nú skal jeg segja yður það, að jeg er innilega glaður yflr því, að hafa náð í annan eins samverkamann og þjer eruð*. »Nú, það er þá bezt, að við semjum frið með okkur«, mælti Power brosandi. »En þjer verðið að muna eftir því, að við höfum ekki nokkurn skapaðan hlut til að halda okkur að. Þjer haflð víst sjeð likið ?« »Já, jeg hefl sjeð það«. «Þjer haflð tekið eftir þesum tveimur voðalegu skurðum á hálsinum, og sömuleiðis eftir því, að stykki hafði verið skorið úr handleggnum?« »Já, jeg tók eftir því«. »Þjer haflð heyrt, hvernig morðinginn heflr komizt út um gluggann?« » Já«. »Mín skoðun er sú, að morðið sje ekki framið af kvennmanni, heldur af karlmanni«, Þótt púðurkúla hefði sprungið inni í herberginu, þá hefði mönnum ekki orðið meira hverft við það, heldur en við þessi orð Powers. Gadd lögreglustjóri starði á hann, eins og hann hjeldi að hann væri ekki með öllu viti, og leynilögreglumaðurinn frá Lundúnum blístraði til merkis um það, að hann væri alveg forviða. »En hamingjan hjálpi okkur, maður«, mælti lög- reglustjórinn, þegar þeir höfðu áttað sig dálítið. »Hvað eruð þjer að segja, hr. Power? Frú Gregory sá sjálf, að það var kvennmaður«. »Frú Gregory sá kvennmannsfötin«, svaraði Power, »en frú Gregory sá ekki andlit hennar, og heyrði ekki rödd hennar. Getur verið, að mjer skjátlist, en jeg vil samt sem áður biðja ykkur að athuga það, semjegsegi. Hvað sáum við? Við sáum stúlku með tvö sár á hálsinum, svo einhlít til bana, og svo lag- lega skorin, að það var því líkast, sem læknir hefði veitt henni þau. Myndi kvennmaður hafa nóg áræði og næga handastjórn til þessa? Jeg efast stórlega um það. Myndi hún því næst hafa kjark til þess, að dvelja inni hjá stúlku þeirri, sem hún haf'ði myrt, meðan hún ransakaði munina í herberginu og þvoði sjer um hendurnar? Jeg efast einnig um það. Og svo heflr hún skorið stykki úr volgu líkinu, og að lokum farið út um gluggann til þess að villa okkur. Haldið þið í raun og veru, að nokkur kvennmaður geti hafa gert þetta?« »Ekki þori jeg að fortaka það. Jeg hefl þekkt konur, sem i raun og veru var hægt að trúa til hvers sem vera skyldi«, svaraði Brusel. »Getur verið«, mælti Power, »en bíðið þið dálítið við. Jeg byggi ekki skoðun mína eingöngu á þessu. Hver er svo þessi kvennmaður? Frú Gregory gat ekki sagt neitt annað um hana en það, að hún hefði verið hávaxinn og þeldökk, og að hún hefði farið UPP stigann, án þess að mæla nokkurt orð«. »Það sýnir að eins, að hún hefir ekki verið neinn viðvaningur«, mælti lögreglustjórinn. »Hún varkom- m þangað í þeim tilgangi, að fremja morð, og kærði sig þess vegna ekki um, að láta neinn sjá framan í sig eða heyra málróm sinn«. »Við skulum láta Power vera þessarar skoðunar, þangað til frekari upplýsingar fást á málinu*, mælti Brusel. Power hafði nú látið þetta álit sitt f ljós, og var honum því hughægra en áður. »Munið þjer eftir þvi, að jeg fjekk yður pappírs- snepil, rifrildi af brjefl, sem hafði verið skrifað á frakknesku?* spurði hann og sneri sjer að Gadd lögreglustjóra. »Já«, svaraði lögreglustjórinn. »Jeg geymi það hjerna i vasabókinni minni*. »Gott. Jeg sagði yður það ekki þá þegar, vegna þess að jeg áleit þess ekki þörf, en jeg þekkti hönd- ina á miðanum*. »Það haflð þjer þó skollann ekki gert?« mælti Gadd, og tók pappírssnepilinn úr vasa sínum. »Maður sá, sem hefir skrifað þessi orð, er einn af fornkunningjum mínum«, sagði Power. »Jeg kynntist honum löngu áður en jeg gaf mig í þjónustu lögreglunnar. Hann þekkti stúlku þá, sem myrt var, og hann er einmitt staddur hjer 1 bænum nú sem stendur. Jeg hefl sjálfur sjeð hann. Og svo sannar- lega, sem jeg stend hjerna, er það hann — jafnvel þótt við getum ekki sannað það enn þá — sem heflr klætt sig f kvennmannsföt, og framið morðið í Rob- Roy-Villa«. 8. kafli. Gadd lögreglustjóri og Brusel leynilögreglumaður hoppuðu upp úr sætum sínum. »Þetta vissi jeg allt af!« mælti Brusel. »Jeg sá þetta á andlitinu á yður, að þjer vissuð eitthvað meira um málið, heldur en þjer höfðuð látið í ljósi. Hjer höfum hiö fengið nokkuð til að halda okkur að«. Power yfirlögregluþjónn fór nú að verða hálf- hræddur um það, að hann hefði sagt of mikið. »En þið verðið að muna eftir þvl, sem jeg hefl sagt«, mælti hann, »að jeg get alls ekkert sannað. Jeg þekkti höndina á þessum brjefsnepli, og í gær sá jeg af einberri tilviljun mann þann, sem heflr skrifað þessi orð«, »Hvað heitir maðurinn?* spurðu þeir Gadd og Brusel báðir í senn. »Hann heitir Saint Alba«, svaraði Robert Power. »Saint Alba! Saint Alba!« mælti Brusel forviða. »Þessi Saint Alba er einn af helztu auðmönnum Lundúnaborgar. Hvar hafið þjer kynnzt honum? Einhverjum óhugðarskugga brá fyrir á andliti Powers. »Jeg áttiheima í Woolchester fyrir nokkrum árum, og þar kynntist jeg honum dálítið. Hann var enginn auðmaður þá, og jeg hafði meira að segja ástæðu til að ætla, að hann væri mjög svo fátækur«. »Hvernig eigum við að botna i öllu þessu?« spurði Brusel. »Fyrir alla muni segið okkur allt eins og er — allt sem þjer vitið, og svo skulum við sjá, hvort við getum ekki komizt að einhverri niður- stöðu«. »Jeg hefl nú hugsað mjer það svona«, mælti Power. »Við vitum það, að þessi unga stúlka hafði komið hingað til bæjarins til þess, að hitta einhvern sem hún þekkti. Hún var frakknesk, og Saint Alba heflr sagt mjer, að hann hafl átt heima f Frakklandi. Það er nú ein ástæðan. Því næst vitum við, að brjef það, sem stúlkan fjekk, var hjerna úr bænum; það getum við ráðið af þvf, á hvaða tíma dags það kom. Enn fremur vitum við, að morðinginn hlýtur að hafa þekkt húsið, áður en hann kom þangað til þess að fremja morðið, og vitað, að hann gat komizt út um

x

Haukur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.