Haukur - 01.01.1911, Side 7

Haukur - 01.01.1911, Side 7
HAUKUR. ann, sá jeg, að Drebber lá í hnipri í einu horn- inu, og svaf úr sjer vimuna. Jeg þreif í hand- legginn á honum og hristi hann. »Nú eruin við komnir á staðinn — nú verðið þjer að fara út«, niælti jeg. »Gott, vinur minn«, svaraði hann. Jeg ímynda mjer að hann hafi lialdið, að við værum komnir til gistihúss þess, sem hann hafði nefnt mjer, því að hann kom mótmælalaust út úr vagninum, og fylgdi mjer heim að húsinu. Jeg varð að ganga við hliðina á honum og styðja hann öðru hvoru, því að hann var töluvert ölv- aður enn þá. I3egar við komum að dyrunum, lauk jeg þeim upp með lykli þeim, er jeg halði látið gera mjer, og ljet Drebber fara á undan nijer inn í fremsta herbergið, og jeg get fullvissað ykkur um það, að Ferrier og Lucy liðu á undan okkur alla leið. »Hjer er ljóta bölvað myrkrið«, mælti hann, og slagaði til og frá um gólfið. »Við fáum bráðum ljós«, svaraði jeg og kveikti á vaxkerti, sevn jeg hafði teldð með mjer. — »Nú, nú! Enoch Drebber«, mælti jeg því næst, sneri mjer að honum og hjelt ljósinu rjett við andlitið á mjer — »hver er jeg?« Hann starði á mig döprum, drykkju-þrútnum auguin, en svo sá jeg allt í cinu skelfinguna af- málaða í þeim, andlitið afskræmdist eins og af krampateygjum, og það var auðsjeð á öllu, að hann hafði þekkt mig. Hann skjögraði aftur á bak, andlítið varð öskugrátt, svitadropar þöktu allt i einu enni hans, og hann nötraði allur eins og strá í stórviðri. I’egar jeg sá þetta, hallaði jeg mjer upp að hurðinni, og hló hátt og lengi. Jeg hafði ætíð þótzt vita það, að hefndin mundi vera ánægjuleg, en aldrei hafði jeg savnt gert mjer vonir um, að hún veitti mjer eins hjartanlega ánægju, eins og jeg fann að nú gagntók mig. »Helvízkur hundurinn þinn!« mælti jeg. »Jeg hefi elt þig alla leið frá Utlia til Pjetursborgar, og orðið að fara mjög krókótt, og allt af hefir þú sloppið úr greipum mjer. En nú er llakk þitt loksins á enda, því að annað hvort skalt þú eða jeg verða hjer eftir, og aldrei sjá dagsins ljós framar«. Hann hörfaði enn þá lengra frá mjer, þegar jeg sagði þetta, og það var auðsjeð á svip hans, að hann hjelt að jeg væri vitstola, og það var jeg auðvitað líka þá í svipinn. Slagæðarnar börðust á gagnaugunum á mjer, eins og verið væri að hamra með sleggju, og jcg held helzt, að jeg hefði fengið eitthvert flog, ef jeg liefði ekki allt í einu fengið blóðnasir. Blóðið fossaði úr nefinu á mjer, og við það hægði mjer rnikið. »Manstu nú eftir garnla ágætismanninum, lion- um John Ferrier? Og manstu eftir ungu, saklausu og glaðlyndu stúlkunni, henni Lucy, sem þú (hapst?« öskraði jeg, um leið og jeg iæsti dyrun- Um og hjelt lyklinum upp að augunum á honum. ^Refsingin helir verið nokkuð lengi á leiðinni, en uú hefir hún að lokum náð þjer«. Jeg sá, hvernig ragmennið skalf og nötraði, Uieðan jeg mælti þetta. Hann hefði víst fcginn -■ 61 - viljað biðja sjer griða, og verið fús til að lofa mjer hverju, sem vera vildi, til þess að þyrma lífi sínu; en hann vissi auðvitað, að slíkt var ekki til neins. »Ætlarðu að myrða mig?« stamaði hann út úr sjer. »Hjer getur ekki verið að tala um neitt morð«, svaraði jeg. »Hverjum myndi detta í hug að kalla það morð, þó að óður hundur væri drepinn? Hvaða vægð sýndir þú veslings Lucy minni, sem jeg elskaði heitara en mína eigin sál, þegar þú dróst hana burt frá líki föður síns, er þið höfðuð myrt fyrir augunuin á henni, og fórst með hana með þjer þvernauðuga í helvítis svívirðilega kvenna- búrið ykkar?« »Það var ekki jeg, sem drap föður hennar, pað var Stangerson«, stamaði hann út úr sjer. »En það varst þú, sem kramdir lífið úr sak- lausri stúlkunni«, grenjaði jeg, og rak öskjurnar með pillunuin í upp undir nefið á honum. »Nú látum við alvitran og rjettlátan guð dæma á milli okkar — veldu sjálfur aðra hvora pilluna og gleyptu hana. Það er líf í annari þeirra, en dauði í hinni. Jeg skal sjálfur gleypa þá pilluna, sem þú skilur eftir. Við skulnm nú sjá, hvort nokk- urt rjettlæti rikir og ræður gangi viðburðanna hjer á jörðunni, eða það er einber og blind til- viljun, sem hefn* okkur að leiksoppi«. Hann fór undan og bað grátandi um vægð. En jeg dró rýting minn úr slíðrum, og hjelt hon- um fasl að brjósti honum, unz hann hafði gert eins og jeg skipaði honum. Því næst gleyp>ti jeg sjálfur hina pilluna. Og svo stóðum við nokkrar sekúndur þegjandi, og störðum hvor á annan, og biðum þess að sjá, hvor okkar ætti að lifa og hvor að deyja. Jeg gleymi aldrei svipnum, sem kom á and- lit hans, þegar fyrstu verkjaílogin sögðu honum, að hann hefði gleypt eitruðu pillana. Jeg hló, þegar jeg sá það, og hjelt giftingarhringnum, sem jeg hafði tekið af fingrinum á henni Lucy, upp að augunum á honum. Það var þó ekki nema örstutt stund, sem jeg gat kvalið hann með því, því að eitrið var, eins og kennarinn hafði sagt, mjög bráðdrepandi. Hann skældist allur og af- skræmdist í framan, eins og af óþolandi kvölum, fálmaði með höndunum út í loftið, rambaði, rak upp skræk og fjell svo á grúfu á gólfið. Jeg sparkaði í hann, til þess að velta honum við, og lagði höndina á hjarta hans. Þar var engin lireyf- ing. Hann var dauður. Meðau á þessu stóð, hafði blóðið fossað jafnt og þjett úr nefinu á mjer; en jeg hafði ekki gefið því neinn gaum. Jeg get ekki gert grein fyrir því, hvernig mjer fór að hugkvæmast það, að skrifa á vegginn með blóðinu. Ef tif vill hefir það verið illgirnisleg gáskafull löngun til þess, að villa lög- reglunni sjónir, því að jeg var Ijettur í lund og rjeð mjer varla fyrir kæti. Mjer datt í hug at- burður, sem orðið hafði í New York, meðan jeg dvaldi þar. Þjóðverji einn fannst þar myrtur, og á vegginn uppi yfir líkinu liafði verið skrifað með blóði orði RACHE, er varð til þess, að blöðin komust að þeirri niðurstöðu, að eitthvert leyni- — 62 —

x

Haukur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.