Tíminn - 26.01.1918, Page 2

Tíminn - 26.01.1918, Page 2
14 T1M I N N ytyengi til iðnaðar. 1 aðflutningsbannslögunum er iðnaðarmönnum veitt heimild til þess að afla sér áfengis til iðnþarfa. Hefir sú heimild verið notuð sum- part á þann hátt að stærstu iðn- rekendur fá ómengaðan vínanda beint frá umsjónarmanni áfengis- kaupa, sumpart hefir hann og sýslumenn gefið út áfengisbækur sem heimila iðnaðarmönnum að fá í lyfjabúðum vissa pottatölu af ómenguðum spírítus. Um fyrri lið- inn eru engar skýrslur til, þótt svo eigi að vera, en um notkun áfeng- isbóka hafa fengist ábyggilegar upplýsingar og þær bera það ó- tvirætt með sér að megnasta mis- notkun hefir átt sér stað. Austurinn og eftirsóknin eftir ómenguðum vínanda »til iðnþarfa« hefir verið svo mikil að lyfsalinn i Reykjavík hefir tvisvar á síðastliðnu ári orð- ið að taka fyrir afhending áfengis »til iðnþarfa«, vegna fyrirsjáanlegs skorts á vínanda í nauðsynlegar lyQablöndur. Nú hefir farið fram rannsókn bæði á þvi sem notað hefir verið af ýmsum iðnrekendum og eins á hinu hvað mikið nota þurfi í hverri iðnaðargrein. Kemur þá i ljós að misnotkunin er þrenskonar: Fyrst og fremst hefir ómengaður vínandi verið látinn af hendi til notkunar í þeim iðnaðargreinum, sem alls ekki þurfa á honum að halda. í annan stað hefir sumum sem þurfa nokkuð verið veitt alveg óhæfilega mikið. í þriðja lagi hafa þeir menn fengið vínanda »til iðnþarfa« sem hættir eru iðninni, eða hafa það einungis að yfirvarpi að stunda hana. Tveir af merkustu bókbindurum bæjarins lýsa því t. d. yfir að þeir noti hvorugur ómengaðan vínanda við bókband. Annar telur slikt algeran óþarfa. Hinn síðar- nefndi hefir »aldrei vitað til þess að hreinsaður spíritus sé notaður til nokkurs hlutar við bókbandw. En hann mun vera lærðastur og víðförulastur islenzkra bókbindara. Engu að síður hafa sumar bók- bandsstofurnar fengið milli 10 og 20 potta af ómenguðum vínanda »til iðnþarfa« á hálfu öðru misseri. Mjög hið sama er um málarana að segja. Þrír helstu málarar í Reykjavík lýsa því yfir að þeir noti ekki hreinsaðan spíritus við iðn sina og áliti það algerlega ó- þarft. Sumir málarar hafa þó feng- ið það og einn hefir tekið út 61 pott af ómenguðum vínanda á hálfu öðru misseri. Ýmsar fleiri iðnaðargreinar mætti nefna sem vottað er um að ekki þurfi ómengaðan vínanda.^en ein- staklingar hafa þó fengið hann. þá er um aðra iðnaðarmenn t. d. gullsmiði, úrsmiði og ljósmynd- ara. Hefir það verið sannað með vottorðum hversu mikið þeir þurfi að nota, en aðrir sem sama stunda hafa notað mörgum sinnum meira jafnvel hundruðum sinnum meira. það þarf engar getur að leiða að því til hvers muni notaður allur þessi hreinsaði spíritus, sem út hefir verið látinn fram yfir þarfirnar til iðnaðarins. Og það er óhætt að fullyrða að mikið af hinni ólög- legu víndrykkju stafar af þessu. »Iðnaðarmannabrennivínið« svo- nefnda hefir verið ein versta tor- færan um að framkvæma aðflutn- ingsbannslögin. — Stjórnarráðið hefir nú tekið rækilega og drengilega í taumana til þess að hindra þessa óhæfu framvegis. Hefir það nýlega ritað öllum lögreglustjórum um málið og eru þessi aðalatriði bréfsins: að lögreglustjórar skuli þegar í stað skrifa öllum þeim í umdæm- inu sem afhenda vínanda eftir á- fengisbókum og leggja bann gegn því að þeir afhendi ómengaðan eða hálfmengaðan vínanda eftir áður útgefnum áfengisbókum, fyr en bækurnar eru sýndar þeim með nýrri áritun lögreglustjóra eða um- sjónarmanns áfengiskaupa um það hve mikið megi láta af hendi eftir bókunum, að lögreglustjórar geri það sem í þeirra valdi stendur til þess að iðnaðarmenn fái ekki meira en jeir þurfa til iðnrekstursins og muni stjórnarráðið veita upplýs- ingar, leiki vafi á hve mikið eigi að láta, að ýmsir iðaðarmenn t. d. bók- bindarar, málarar o. fl. þurfi alls ekki vínanda til iðnreksturs sam- kvæmt vottorðum helstu manna stéttarinnar, að ýmsir aðrir iðnaðarmenn eins og t. d. gullsmiðir, úrsmiðir og ljósmyndarar þurfi ekki nema mjög lítið samkvæmt fengnum upplýs- ingum og loks að stjórnarráðið vænti þess að lögreglustjórar kom ábyrgð á hend- ur þeim sem uppvísir verða að þvi að hafa misbrúkað áfengis- bækur auk þess sem þeir gera sitt itrasta til þess að áfengisbækur verði ekki misbrúkaðar framvegis til þess að afla áfengis til neyzlu. — Öllum bannmönnum er það mikið gleðiefni að stjórnin hefir á þennan hátt tekið í taumana. Almenningur getur nú mikið að því stutt að létta framkvæmdirnar og eftirlitið. Stig af stigi á þjóðin að þroskast til þess að geta hlýtl þeim lögum sem hún hefir sett sér. Þgtta bréf stjórnarráðsins er eitt af stóru sporunum i áttina til þess. Um slátt hefir Guðmundur pró- fessor Finnbogason ritað mjögfróð- lega ritgerð í Búnaðarritið og hefir hún verið sérprentuð. Getur hann þar um niðurstöður þær er hann hefir komist að í rannsóknum sín- um á slættinum. Ritgerðin er hvort- tveggja, bæði mjög skemtileg eins og alt frá hendi höfundarins og einkar góð til þess að vekja menn til umhugsunar og sjálfstæðrar rannsóknar um sláttulagið. Endurminningar Tryggva Gunnarssonar. Fá rak meðal annara verzlun á Akureyri Popp, er síðar var kaup- maður á Sauðárkróki. Eg vissi að hann átti tunnur, en hafði ekki fengið loforð fyrir lýsi. Eg fór til hans og fékk hjá honum loforð fyrir um 300 nýjum tunnum, en hét honum því að hann skyldi fá lýsi í 100 tunnur af þeim. Eg býð nú kaupmönnum þessar tunnur í skiftum fyrir tunnurnar sem lýsi bænda var í, en þeir neituðu þvi og kváðust lýsa mig þjóf, ef eg tæki nokkura af tunn- um þeirra. Þegar eg kom frá kaupmönnum hitti eg kunningja minn, Guðmund prentara. Segir hann mér að eg skuli vera var um mig, því að kaupmenn hafi sent mann fram að Espihóli eftir Eggert Briem sýslu- manni og ætli þeir að höfða saka- mál gegn mér. Eg læt ekki segja mér þetta tvisvar, heldur tek tafarlaust bytt- una og ræ yfir fjörðinn. Tek þar hest minn og ríð út að Laufási. Þar vakti eg upp síra Björn Hall- dórsson og segi honum hvernig komið er. Sáum við að hraðan myndi þurfa að hafa á, ef förin ætti ekki að teppast. Flýtti eg mér því út að Greni- vík þar sein skipið lá. Var þá svo langt komið að ferma það, að ein- ar 10 tunnur voru eftir í landi. Eg kallaði á skipsbátinn og fór út í skipið með tunnurnar og lét þegar búast til ferðar. Leið ekki á löngu áður eu skipið var komið undir segl og atkerum var lélt. Siglduin við nú fyrir góðum byr út að Hrólfsskeii. Það mátti ekki seinna vera að farið væri. Því að tveir sendimenn komu innan af Akureyri, um sama leyti morguns og skipið var við Hrólfssker og áttu þeir að leggja hald á skipið. Byrinn hélst ekki lengi. Við fengum langvinnan mótbyr og vor- um 15 daga vestur að Látrabjargi. Þá gekk veður til norðurs og sigldum við þaðan á einum sólar- hring til Revkjavíkur. Það þóttu meir en lítil tíðindi, er það fréttist um bæinn að kom- ið væri skip frá Norðurlandi á höfnina. Slíkt var nýlunda á þeim tímum. Mest furðaði kaupmennina, sem áttu að taka við vörunum. Þeir sögðust aldrei hafa búist við því að eg gæti fengið skip og vörur. Um þessar mundir stóð Reykja- vík tiltölulega framar í því en nú að við gátum lagt skipinu að bryggju sem Smith átti, og affermt það þar. Þegar tunnurnar komu upp á brj'ggjuna og eg fór að athuga þær, gat eg ekki betur séð en að þær væru misstórar. Eg vildi vita vissu mina hveriiig þessu væri háttað og fór til Árna Thorstein- sens, síðar landfógeta, sem þá var bæjarfógeti, og bað hann að mæla Bókamenn! Nýkomnar fræðibæknr, hið ágæta safn HJEMMETS UNIVERSITET: Verð Lexow: Stilfölelse og stilformer 2,00 Olden: Elektriciteten...........2,00 Wenle: De kulturlöses kultur 2,00 Morgenstierne: Engelsk parla- mentarisme...................2,00 Haug: Sosialökonomi for hver- mand.........................3,15 Hammer: De forenede staters historie.....................3,15 Löchen: Fantasien...............3,15 Og fleiri. Pantið þær áðnr en þær þrjóta! Bókaverzlun Ársæls Áransonar. 12 af tunnunum. Hann gerði það og eg fékk vottorð hjá hon- um, að þær taki frá 125—138 potta, i stað þess að þær áttu að réttu lagi að taka 120 potta. Við notkunina biluðu tunnurnar ein- att, brotnuðu í þeim stafir og því um líkt, einnig voru tunnur undan lýsi árlega sendar frá Kaupm.höfn og beykir látinn gera við þær á veturna. Var auðsjáanlega lítil ná- kvæmni höfð á því að þær væru jafnstórar, eftir sem áður, þegar stöfum var bætt í þær. Eg geymdi vandlega vottorð bæj- arfógeta og hugsaði að það gæti komið Tnér að góðu haldi síðar. Um þessar mundír var Fischer nýbyrjaður að verzla og langaði hann til að ná í eitthvað af þess- um viðskiftum. Elti hann á allar lundir ólar við mig, en eg sagði sem satt var, að eg væri bundinn annarsstaðar og gæti þvi ekki baft skifti við hann. »Þú heíir þó pen- inga til þess að kaupa fyrir« sagði Fischer. »Eg skal selja þér kram- vöru og þess háttar svo góðu verði, að það borgi sig fyrir þig að skifta við mig«. Það varð þá úr, að eg keypti at honum kramvöru fyrir 1100 ríkisdali, og sló hann af þeim 25°/o frá venjulegu útsöluverði. (Frh.) ððara farið. Engin skýring hefir borist Tím- anum á því hve fljótt koniakið gekk upp á apótekínu fyrir jólin. Var þó heitið rúmi í blaðinu væri eðlileg skýring til. Að hún kemur ekki virðist ekki geta stafað af öðru en að hún sé ekki til. Á öðrum stað hér í blaðinu er að því vikið, að settar eru nú strangar reglur til þess að hindra misnotkun á áfengi til iðnaðar. Á virkilega svo að fara að samskon- ar verði að gera um áfengi til lækn- inga ? Er læknastéttin íslenzka ekki það þroskaðri en iðnaðarmanna- stéttin, að hún geti sjálf bætt gall- ana, þvingað þá úr hópnum sem misnota, til þess að hætta því? Góður afli er nú sagður í Vest- mannaeyjum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.