Tíminn - 06.04.1918, Side 6

Tíminn - 06.04.1918, Side 6
70 TÍMINN vill öðrum þjóðum óholl a. m, k. íyrst í stað. Kínverjar eta krydd- aðar mýs og rottur; Þjóðverjar eta hundaket og hafa hrátjöru fyrir viðbit. Frakkar smyrja brauð sitt með gorkúlum og marílóm, Eng- lendingar eta ýms skordýr, viðlíka skemtileg og jötunuSa og brunn- klukkur. Grænlendingar eta garnir ungsela með skit og öllu saman. Skotar hella heitu vatni saman við haframjöl og eta svo þann hræring. Abessiníu-menn ela alt kjöt hrátt. Þá er það meltanlegra en getur verið óhollara, ef ormar eða bakt- eríur eru i því. Englendingar dæju liklega fyr úr hungri, en þeir legðu sér til munns saltað kjöt eða lágn- aðan íisk, en sveppa og bjölluteg- undir eta þeir af góðri lyst. Fað er eigi langt siðan íslend- ingar fóru að eta hrossakjöt, og enn eru margir sem eigi telja það mannamat. Það er þó auðmelt fæða. Skötu og steinbít telja marg- ir útlending^r óæti. Þetta eru þó hbllir og saðsamir fiskar, sein meltast vel. Hrognkelsi voru fyr á timum talin óæt. Það var fyrst um og eftir 1800, að íslendingar fóru að hirða þennan fisk; neyðin kom þeim til þess. Náhvalurinn var líka talin eitraður fiskur og íslend- ingum bannað með lögum að eta hann. En í harðindum um 1800, átu margir Dýrfirðingar heilan ná- lival og varð engum meint af lionum. En hvað er ætt og hvað er óætt manninum? — Ein þjóðin etur það sem önnur telur óætt. Villiþjóðir eta undantekningar lausf, hverl það dýr, láðs eða lagar, sem þeir ná í. Fyrir þeim er ail ætt, kjötkyns. Allir hvítir menn telja þó t. d. krókódíla og flestar slöngu tegundir óæti, o. m. fl. En villi- menn þrífast vel af þessu. — En eg er eigi viss um hvert nokkur villimaður þyrði eða gæti etið morkinn skyrhákarl, súrt skyr eða vel stæka skötu. Þetta eru þó mín- ir uppáhaldsréttir eins og margra annara íslendinga. Hver hefir nokkru sinni gefið mönnum reglur fyrir því hvað þeir skuli leggja sér til munns, úr jurta- eða dýraríkinu? Að minsta kosti hafa eigi allar þjóðir fengið sömu reglur því viðvíkjandi. Sumir segja að bragð og þefur fæðunnar segi til um heilnæmi hennar. Þetta er vitleysa. Sumt er etið og er holt, þótt eigi sé þefgott eða vel bragð golt. Mörg eitur eru bæði aðlað- andi á þef og bragð, en þó ban- eitruð. — Maðurinn er eigi dýr, þess vegna þefar hann eigi upp fóður sitt, eins og flest dýr gera. III. Næringargildi fæðntegunda. Gildi fæðunnar er metið eftir því hve vel hún brennur í líkamanum. Menn vita nú hve mikinn líkams- hita og líkamsorku eitthvert ákveð- ið fæðumagn framleiðir. Orku eða hitamagnið er talið í hitaeiningum. Ein hilaeining samsvarar þeim hita sem þarf lil þess að hita eitt kg. aí vatni um eitt hitastig. 1 gr. af lireinni 'feiti framl. 9,3 hitaein. —»-----kolvetnisefni .... 4,t —»— —»-----eggjahvituefni ... 4,1 —»— Vitaskuld er hér að eins átt við það úr fæðunni sem meltist. Verð- ur því að vita hve mikið úr hverri fæðutegund er ómeltanlegt. Hér um bil */s öllu dagfæði mannsins gengur til hitamyndunar í líkam- anum, en læplega x/3 til þess að byggja upp líkamann. Eg set liér töflu yfir hitagildi nokkurra fæðu- tegunda, ásamt verði þeirra eins og það almenl var metið hér syðra síðast liðið haust. Af töflunni sést hver þessara fæðutegunda er dýr- ust miðað við næringargildið. Þessi tafla þarf engrar skýringar við. Alment meta menn gildi fæð- unnar meira eftir IjúfTengi hennar en notagildi. Það þykir líka mörg- um fínna að ela eina fæðutegund en aðra. Heimskan og hégóminn setur sitt mark á flest. Það kalla fáfróðir oft kjarnafæðu, eða undir- stöðumat, sem er mjög tormelt. M a t v æ 1 i too *C3 O u > Hitaeiningar fyrir lcg Verð hita- eininga i auruni Hve margar hitaein. fást fyrir 1 eyrir Nýmjólk ... 0.50 650 0.0769 13 > Smjör 4,00 8000 0.05 20 Tólg 2.00 9000 0.0222 45 Rúgmjöl ... 0.00 3000 0.02 50 Dilkakjöt... 1.10 1900 0.0611 16.36 Kartöflur... 0.30 900 0.0333 30 Haframjöl.. 0.80 3800 0.022 47 Hrossakjöt. 0.60 1500 0.04 25 Lúöa 0.40 1200 0.0333 30 Fæðan dvelur þá Iengi í magan- um og fyllir hann lengi. Hafra- mjölsgraut kalla menn eigi undir- stöðumat, af því sú fæða er bæði fljótmelt og auðmelt. En á hafra- mjölsgraut og nýmjólk má þó lifa einvörðu vikum og mánuðum sam- an, þetta verður eigi sagt urn aðr- ar fæðutegundir. Og alt of hiikinn mun gera menn á landdýra kjöti og fiskakjöti.. Vöðvar allra dýra, feitilausir, eru líkir að næringar- gildi. Feitin i þeim gerir aðal muninn. Sá sem á nógan fisk, þarf ekki dilkakjöt til fæðu, ef hann á nóga feiti til að bæta upp fitu- leysi fiskakjötsins. En kjötið er vit- anlega misgott á bragðið. Fyrir því gangast menn um of. Tólg er belri til næringar en bezta smjör, en hún er eigi eins ljúfleng. Búa má til bezta smjör- líki með. því, að strokka eða þeyta brædda tólg í rjóma eða nýmjólk. Þá verður feitin mjúk og bragð- góð. Einnig með því, að strokka saman hrossafeiti og brædda tólg og rjóma eða góða njTmjólk. Það er vandfengið útlent "smjörlíki sem jafnast á við þessa feiti, En það er ef til vill fínna að eta útlent smjörliki! (Erh.) Sigurður Pórólfsson. ,Jjárhagsvoðimt“. Þó erlendar ríkisstjórnir og er- lendir fjármálamenn kunni nú að vera öllu síðri í þessum efnum heldur enn þessir sjálfkjörnu fjár- mála spekingar íslenzku, þá eru þeir þó ef til vill ekki svo mikið siðri, að full freklega sé á stað farið, þegar reynt er að stimpla þá sem fjárglæframenn sem ílutt hafa tillögur um að nokkrar brýnustu lífsnauðsynjar yrðu seldar eitthvað undir verði og almenningi yrði mögulegt að afla sér þeirra svo hann ekki liði nauð, því önnur hefir aldrei tilætlunin verið með þessum tillögum. Erlendis hefir vöruafsláttur verið veittur án þess fyrirsjáanleg neyð hafi komið til þess. Hefir það verið gert til að koma i veg fyrir þær skæðu verk- anir, sem afar hátt vöruverð hefir á atvinnuvegi og búnaðarháttu manna. Eg ætla mér ekki frekar, nema eg álíti að sérstakt tilefni verði til, að verja tillögur þær er eg bar fram einn eða með öðrum, um að landssjóður greiddi nokkurn hluta af verðhækkun lífsnauðsynja. Þeim er reynslu hafa af því að vera ef til vill einn eða í miklum minni hluta skilst það vonandi, að þær tillögur er bornar eru fram undir þess háttar kringumstæðum eru og hljóta að vera nokkuð á annan veg, heldur en ef maður væri þess viss að meiri hluti væri fyrir mál- inu í þeirri mynd er maður áliti skynsamlegast. Mjög margir, sem Svo framarlega sem hin vísinda- lega tortrygni er reist á verulegri óirú á, að hin nýja staðhæfing sé sönn — og engin önnur ástæða er réttmæt til mótspyrnu — svo fram- arlega sem andmælandinn hyggur í raun og veru, að nýjungarmaður- inn fari vifiur vegar og sé annað- hvort að blekkja aðra eða þá sjálf- an sig, þá getur vísindaleg íhald- semi verið afsakanleg og getur orð- ið til góðs. Hún krefst þá fleiri og betri "sannana, hún knýr menn til að rannsaka aðrar tilgátur og hún kann að geta bent á hugsanlegar veilur. Alt er þetta réttmætt og gagnlegt, ef því er samfara alvar- leg tilraun til að kynna sér málið. Svona hafa t. d. helztu forkólfarn- ir i Sálarrannsóknafélaginu verið; þeir hafa verið aðfinningasamir og mjög varkárir. Þeir vilja fara hægt og gætilega; íhaldsemi þeirra á meira eða minna skylt við var- færni dóinarans. Auðvitað getur þeim skjállast, þeir geta í fyrstu neitað því, sem þeir síðar neyðast til að viðurkenna; þeir geta ekki með öllu komist hjá ófullkomleik- um skeikulla manna. En þeir rejma ekki af áseltu ráði að letja menn leitarinnar, né heldur leggja þeir það í vana sinn, að leitast við að bæla niður óþægilegar sannreyndir. Efagirnin þeirra horfir ekki í fyrir- höfnina og heimtar vandvirkni. En til er auvirðileg og auðlærð neikvæð kreddufesta, sem þykist vera vísindaleg og ekki er til orðin fyrir eigin kynni af málinu, heldur reist á tómum hleypidómum. Þó að hún komi stundum fram hjá mönnum, sem annars eru vísinda- menn, þá er hún alls ekki efagirni vísindamannsins; hún er miklu sk^'ldari kreddufestu klerkanna, sein reyna að berjasl á móti ný- um sannreyndum með trúarsetning- um. Að svo miklu leyti sem slíkir hleypidómar styðjast við nokkur rök, er skjmsemisályktunin, sem þeir hvíla á, eitthvað á þessa leið, þótt það sé sjaldnast tekið fram: Visindin hafa nú með mikilli fyrirhöfn birt oss frumdrætti eða aðalskipulag alheimsins. Nokkur annarleg fyrirbrigði, sem fullyrt er að gerist, koma ekki heim við aðalskipulag náttúrunnar, eins og vér þekkjum hana. Fyrir því eru þau alls ekki veru- legar sannreyndir, heldur hjátrúar- kendar ímyndanir. Grunur minn er það, að báðar forsendur þessarar ályktunar séu rangar. Eg geri mér í hugarlund, að þær af hinum nj7ju sannreynd- um, sem beztar sönnur hafa verið færðar á, muni ekki koma eins illa heim við þau sannindi, sem þegar hafa hlotið fulla viðurkenn- ingu, eins og alment er álitið. Mörg fyrirbrigði, sem hvítir rnenn gela frætt áður einangraða villimenn um, koma miklu ver heim við fyrri þekking þess þjóðflokks en þessar sannreyndir við rétttrúnaðar-vís- indin. Og snúum dæminu við: ef brautryðjendur fara inn í ókannað land, þá er það engin gild ástæða gegn því, að sýnishornin, sem þeir korna heim með, séu ósvikin, að segja, að við fyrtu sjón virðist þau undarleg og ókunn. En hversu mikill efi sem á kann að leika um síðari forsenduna í ofangreindri skynsisályktun, þá ætti vissulega hift að vera vafalaust, að fyrri forsendan er röng. Það svið af alheiminum, sem vér þekkjum, er að vísu mikið; en hitt er þó vissulega meira, sem vér þekkjum ekki. Verksvið aflfræðirannsókn- anna, sem reknar hafa verið á leið- um Nevvtons, hefir hingað til ver- ið mikilfenglegt, en utan við það eru ómælisgeimar. Þangað fær jafnvel Newtons-fjarsjáin ekki náð; ef til vill verða þeir betur metnir með barnsaugum. Newton mundi siztur manna liafa borið á móti því; engum var það ljósara en honum, að skeljarnar í fjörunni marka að eins byrjunina á ótakmörkuðu út- hafi ófundins sannleikans. Frekar skal hér ekki vikið að háttsemi fáeinna vísindamanna, sem hafa lálið áhugann á sínu eigin ágæta verksviði deyfa sjón sína um stund og gert þá ófúsa á að skygnast inn á svæðin, sem utan við það eru. í þessari grein er það eins konar út- úrdúr. Vér verðum að snúa oss aft- ur að þeirri háttsemi sem, einkum auðkennir prestana. (Frh.) Haraldur Níelsson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.