Tíminn - 23.02.1939, Side 4
92
TÍMEVTV, fimmÉndasiim 23. fcS)riiar 1939
23. blað
|
Rafmagnsofnar
eru vöndnðnstu og smekklegustu
rafmagnsofnarnir á markaðnum.
Fást h}á öllum
helztu raftœkjaverzlunum
í Reykjavík og Hafnariírðí.
MOLAR
Ýmsar líkur virðast benda til
þess, að Franco telji það hyggi-
legt að endurreisa konungdœmið
á Spáni. Hinir sigruðu í borgara-
styrjöldínni myndu sœtta sig
betur við konungsstjórn en ó-
grlmuklœdda eínrœðisstjórn
Francos sjálfs.
Þótt konungdæmið yrði end-
urreist, myndi Alfonso fyrrver-
andi Spánarkonungur ekki koma
til valda aftur. Hann mun ekki
óska þess sjálfur, enda á hann
litlum vinsœldum að fagna með-
al þjóðarinnar. Nœst honum til
rlkis stendur þriðji sonur hans,
Don Juan Carlo.
Don Juan Carlo 20 ára gam-
all. Hann er sagður mjög efni-
legur maður og er eini sonur Al-
fonso, sem hefir verið heilsu-
hraustur. Hann er fríður sýnum
og vel vaxinn.
DonJuanCarlo hefir verið ein-
dregið fylgjandi Franco allt frá
byrjun styrjaldarinnar og hefir
hvað eftir annað boðið honum
þjónustu slna. Franco hefir þó
hafnað þjónustu hans með þeim
orðum, „að hann vildi ekki
stofna í hœttu þeim manni, sem
síðar gœti haft mikla þýðingu
fyrir Spán“.
Frá sjónarmiði Francos er þó
einn Ijóður á ráði Don Juans.
Hann er mikill aðdáandi Eng-
lendinga og fylgir enskum sið-
venjum út í yztu œsar. Fyrir
tveim árum giftist hann lika
franskri prinsessu. Þetta hvort
tveggja mun talsverður þyrnir í
augum Þjóðverja og ítala.
* * *
Enska stórblaðið „News Chro-
nicle“ hefir nýlega snúið sér til
sem flestra lesenda sinna og
spurt þá um, hvað stór hluti
þjóðarinnar fari í kirkju að stað-
aldri. Niðurstaðan af þessum at-
hugunum blaðsins varð sú, að
27% færu reglulega í kirkju, 41%
ekki nema við sérstök tœkifæri,
17% ekki nema til þess að ferm-
ast eða giftast og 15% fœru al-
drei í kirkju.
* * *
„News Chronicle“ notaði einn-
ig sama tœkifœri til að leggja
fyrir lesendur sína ýmsar spurn-
ingar viðkomandi heimilislífi.
M. a. var ein spurningin um það,
hvað hœfilegt vœri fyrir hjón að
eiga mörg börn. 37% sögðu að
börnin ættu að vera tvö, 28%
sögðu að þau œttu að vera þrjú,
20% sögðu að þau œttu að vera
fjögur og 15% svöruðu engu.
* * *
Nýlega fór fram atkvœða-
greiðsla meðal 50 þús. skóla-
drengja í Bandarikjunum um
það, hvaða persónur vœri mest
elskaðar í heiminum og hverjar
mest hataðar. í fyrri flokknum
hlutu Roosevelt og Guð flest
atkvœði. — Roosevelt þó nokkru
fleirí. — í hinum flokknum féllu
næstum öll atkvæðin á Hitler
og Mussolini.
* * *
Nýlega lézt i Gdynia l Pól-
andill8ára gömul Zigeunakona.
Hún hafði verið gift fimm sinn-
um og átti orðið um 400 afkom-
endur, sem langflestir voru á
lífi.
ÚR BÆMJM
HúsmæSrafræðsla
kaupfélagsins.
Næsti fundur verður í Gamla Bíó á
morgun kl. 4. Soffía Ingvarsdóttir
flvtur ávarp, Steingrímur Steinþórsson
búnaðarmálastjóri flytur erindi og loks
sýnd finnsk kvikmynd.
Vestfirðingamót
verður haldið að Hótel Borg i kvöld
og hefst með borðhaldi kl. 8.
Karlakór Reykjavíkur
heldur fyrsta samsöng sinn á þess-
um vetri fyrn styrktarfélaga kórsins 1
Gamla Bíó í kvöld. Hefst samgöngur-
inn kl. 7. Á sunnudaginn efnir kórinn
til opinbers samsöngs í Gamla Bíó.
Framsóknarskemmtun
verður að Hótel Bor'" á þriðjudags-
kvöldið. Hefst hún með Framsóknar-
vist og verður verðlaunum úthlutað.
Að því loknu dansað. Skemmtunin
verður auglýst síðar hér í blaðinu.
Reykhyltingafélagið
heldur fund í Sambandshúsinu í
kvöld. Fundurinn hefst kl. 9Ví.
Norðlendingamót
var haldið r.ð Hótel Borg á þriðju-
dagskvöldið. Hófst það með borðhaldi
klukkan 8. Björn L. Jónsson veður-
fræðingur setti hófið og stjómaði því.
Undir borðum fluttu ræður Sigurður
Sigurðsson fyrverandi búnaðarmála-
stjóri og talaði um grænlenzka kven-
fólkið, og Jónas Jónsson kennari frá
Torfalæk, er mæltl fyrir minni Norð-
urlands. — Á milli ræðanna var sungið.
Klukkan 11 var staðið upp frá borðum
og dansað til klukkan 4 um nóttina.
Um 330 manns sóttu Norðlendinga-
mótið að þessu sinni.
Hafnarf jarðardeilan.
fFramh. af 1. siðu)
rétt að vinnu og vita t. d. menn
utan af landi, sem stundað hafa
eyrarvinnu hér í bænum, að þeir
fá ekki að vinna, nema þeir
gangi fyrst í verkamannafélagið
Dagsbrún. Virðist ekkert óeðli-
legt við það, þó einhverjir for-
ráðamenn nýja félagsins hafi
ætlað sér að fylgja þessari al-
gengu reglu verkalýðssamtak-
anna, þó um hana megi hins-
vegar deila frá almennu sjónar-
miði.
Má því segja, að vitnaleiðslur
þessar hafi orðið Pétri Magnús-
syni til lítils hagnaðar í mál-
inu, nema hvað að það rifjar
upp hjá ýmsum, að mannlegra
væri honum að beina geiri sín-
um fyrst í aðrar áttir, ef hann
af einlægni vildi vinna gegn
atvinnukúgun vinnuveitenda.
Fylgi Hlifar í Hafnarfirði
viröist mjög fara rénandi, ef
dæma má eftir atkvæðagreiðslu,
sem fór fram innan félagsins
síðastliðinn laugardag. — Var
samþykkt með 211:11 atkv. að
halda vinnustöðvuninni áfram.
Blað kommúnista upplýsti fyr-
ir nokkru, að um 600 meðlimir
hefðu verið í Hlíf fyrir klofn-
inginn og virðist því ekki nema
réttur þriðjungur félagsmanna
vilja taka þátt í. samfylkingu
kommúnista og íhaldsmanna.
Togarinn Júní, sem ekki fékk
sig afgreiddan í Hafnarfirði
vegna vinnustöðvunar, fór til
Akraness á þriðjudaginn og var
afgreiddur þar. Var ufsinn tek-
in til bræðslu í síldarverksmiðj -
unni þar. Hafði Héðinn Valdi-
marsson ýmsar hótanir í frammi
við Akurnesinga, ef þeir af-
greiddu togarana, en þeir sinntu
þeim engu.
Breytlngar á
fátækralöggjöfiimi.
(Framh. af 1. síöu)
mála í landinu þurfi til þess að
grípa að ráðstafa mönnum af
bj argleysustað til þeirra staða,
sem veita sjálfsbjargaraðstöðu.
Rétt verður að telja, að þjóðfé-
lagið búi fólki, sem hefir óbjarg-
lega aðstöðu, búsetu og lífs-
bjargarskilyrði, þar sem þau eru
auðfengnust, og beini flutningi
þess þangað.
Drep ég á þetta allt sem dæmi
um stefnu tillagnanna.
Þá er einnig í þessu frumvarpi
tillaga um breytingu á grund-
velli fyrir útreikningi styrks úr
Jöfnunarsjóði bæjar- og sveit-
arfélaga. Er hún miðuð við það,
að stofnar þeir, sem reiknað er
með sem mælikvarða, verði, að
áhrifagildi, í betra samræmi við
raunverulegt gildi þeirra fyrir
bæja- og sveitafélögin, en þeir
eru nú.
Þarf alllangt mál til að gera
grein fyrir breytingartillögunni
í einstökum atriðum, og fer ég
því ekki út í það hér.
Þá samdi nefndin frumvarp
til laga um breytingu á lögum
„um afstöðu foreldra til óskil-
getinna barna.“ Er sú breyting
aðallega gerð til þess að fyrir-
byggja, að hægt sé að heimta
barnsmeðlög af því opinbera,
nema meðlagsþörf sé, því á-
stæðulaust er, að í þessum til-
fellum — frekar en öðrum, —
greiði bæjar- eða sveitarfélög
framfærslugjald til fólks, sem
getur vel séð sér og sínum far-
borða.
Loks vil ég nefna í sambandi
við framfærslulögin frumvarp,
sem nefndin samdi, til laga um
byggðarleyfi. Samkvæmt því má
atvinnumálaráðherra heimila
bæjar- eða sveitarstjórn um
stundarsakir að banna inn-
flutning fátæklinga, ef bærlnn
eða sveitin á við sérstaka at-
vinnuleysis- eða fátækraörðug-
leika að stríða.
í greinargerðinni segir meðal
annars: „Ástandið í landinu er
ítalskir
sjálfboðaliðar.
(Framh. af 1. siðu)
tillögu, að ítölsku sjálfboðalið-
arnir yxðu áfram á Spáni, sem
verkamenn, því Franco þurfi
hvort sem er erlent vinnuafl
til að reisa hið nýja ríki úr
rústum styrjaldarinnar. Hefir
jafnvel komið til orða, að fleiri
ítalir yrðu sendir til Spánar
undir því yfirskyni.
Að svo stöddu verður engu
spáð um það, hvernig þessum
reipdrætti stórveldanna muni
lykta. En það er talið víst, að
stjórnir Frakklands og Bret-
lands muni án tillits til þess
hvernig honum lýkur, viður-
kenna stjórn Francos, sem lög-
lega stjórn Spánar og það mjög
fljótlega. Vörn stjórnarhersins
á Miö-Spáni er talin vonlaus og
þessi viðurkeninng er talin
stuðla að þvi, að styrjöldinni
Ijúki sem fyrst.
þannig,að á suma staði flykkist
fólk, án þess að hafa þar heil-
brigð skilyrði til að lifa. Dæmi
þarf ekki að nefna, þau eru
deginum ljósari.
Leiðandi menn á þessum
stöðum verða vitanlega að
leggja fullt kapp á það að skapa
— eftir því sem unnt er —
heilbrigð skilyrði fyrir fólkið,
þar sem það er komið, og fá til
þess aðstoð þjóðfélagsins. En
reynslan er búin að sýna býsna
víða, að því meira sem gert er
til umbóta á staðnum, því örari
verður straumur fólksins þang-
að, svo hlutföllin milli atvinnu-
skilyrðanna og mannfjöldans
batna ekki heldur lakast og hin-
um ósjálfbjarga mönnum fjölg-
ar meir og meir.
Þetta er þjóðarvoði. Verður
því jafnhliða atvinnulífsum-
bótunum að finna ráð til þess
að beina fólksflutningunum
innan þjóðfélagsins til þeirra
staða, sem veita fólkinu sjálfs-
bjargaraðstöðu.
Telja mætti nærgöngula af-
skiptasemi við frjálsræði manns,
sem enn eru sjálfbjarga, að
skipa honum að flytja búferlum
á tiltekinn stað. Hitt er allt
annað, að banna honum að
flytja þangað, sem ekki er rúm
fyrir hann eða lífsskilyrði. Það
er sama og að banna manni að
fara í þann bátinn, sem of hlað-
inn er fyrir, og er ekki aðeins
gert til lífsbjargar honum sjálf-
um, heldur líka öllum þeim, sem
fyrir eru í bátnum. Tillögur þær,
sem í frumvarpinu felast, eru
grundvallaðar á réttlæti og
nauðsyn slíkra fyrirskipana.“
Er þessi tillaga um byggðar-
leyfislög allt önnur, en þær, sem
áður hafa komið fram.
Geta má þess, að mikill meiri-
hluti bæjastjóra og oddvita,
sem svöruðu fyrirspurnum at-
vinnumálaráðherra um þetta
efni í vetur, voru meðmæltir
löggjöf um byggðaleyfi.
í næsta blaði verður sagt frá
fleiri tillögum nefndarinnar.
Reykjavíkurannáll h.f.
Revyan
Fornar dygðir
model 1939
Sýning I kvöld kl. 8
og annað kvöld kl. 8 V2
258 Andreas Poltzer:
Það er allt og sumt, sem ég veit, Sir.
Whinstone fulltrúi var mjög hugsandi,
er hann fór burt úr húsinu við Belgrave
Square. Hann hringdi í næsta síma-
turni til dr. Whinsters, sem hann þekkti
persónulega. Læknirinn vildi ekki segja
neitt fyrst í stað. En þegar fulltrúinn
sat fast við sinn keip, sagði hann að
lokum:
— Eg hugsa, að ég megi segja við yður,
án þess að rjúfa þagnarskyldu mína, að
Kingsley lávarður hefir fengið „amne-
sie“ — það er að segja misst minnið.
Prófessor Doyle, sem kom með mér til
sjúklingsins, hefir staðfest það álit mitt.
En það merkilega er, að þessi minnis-
missir nær ekki til alls þess, sem liðið
er, eins og venjulegast er, heldur virðist
aðeins ná til þess sem gerzt hefir síðan
hann hvarf.
— Haldið þér ekki, dr. Whinster, að
Kingsley lávarður.... villi sjálfum sér
sýn? spurði Whinstone tortryggnislega.
Hann fékk fyrst ekki annað svar en
eins konar hljóð úr símanum, sem eins
vel gat verið hlátur eins og eitthvað
annað. Svo sagði læknirinn:
— Með öðrum orðum: að hann geri
sér þetta upp! Nei, þér skuluð ekki halda
það, herra Whinstone! Álit manna eins
og Doyle prófessors ætti að vera einhlítt
og óbrigðult.
Patricia 259
Fulltrúinn hafði nú samt sína skoðun
á þessu máli, en þótti hyggilegast að
fara ekki lengra út í þá sálma að svo
stöddu. Hann spurði:
— Herra læknir, eru nokkrar horfur á
að lávarðurinn fái minnið aftur?
— Já, það er hugsanlegur möguleiki,
en heldur ekki meira.
* * *
Patricia varð ekki lítið forviða, er hún
fékk bréf frá hinni alkunnu málaflutn-
ingsmannaskrifstofu Thorne, Threemon-
ton og Thomas. Hún var beðin að koma
til viðtals á skrifstofuna viðvíkjandi
mjög áríðandi málefni, sem allra fyrst.
Skrifstofur málaflutningsmannanna
voru í Lincoln Inn, nálægt skrifstofunni,
sem Patricia starfaði í. Húsbóndi hennar
gaf hana undir eins lausa, svo hún gæti
farið þangað.
Þau þrjú Th, sem þeir málaflutnings-
itnennirnir Thorne, Threemonton og Tho-
mas voru venjulega kallaðir, höfðu afar
mikið að starfa, og Patriciu leizt ekki á
blikuna, þegar hún sá allan hópinn, sem
beið eftir viðtali. Hún sagði til nafns síns
og settist á krókbekk og bjóst við að
verða að bíða lengi.
1 Henni til mikillar furðu, kom einn
\skrifarinn til hennar eftir stutta stund
og sagði:
— Viljið þér gera svo vel að koma með
LÍFGJÖFIN
laimð
(En Gangster betaler sin
Gæld).
Áhrifamikil og afarspenn-
andi amerísk kvikmynd.
Aðalhlutv. leika:
BARBARA STÁNWYCK
og
JOEL MC CREA.
Aukamynd:
SKRIPPER-SKRÆK
nýja Bíóitnmjvtinn^
H
ÉG LALG ÞVÍ
Frönsk stórmynd er gerist
í París. — Aðalhlutverkið
leikur fegursta leikkona
Evrópu
Danielle Darrieux.
Þetta er ein af þeim af-
burða góðu frönsku mynd-
um er allsstaðar hefir
hlotið feikna vinsældir og
mikið lof í blaðaummæl-
um.
— Börn fá ekki aðgang. —
Kynnist franskri kvik-
myndalist.
8
ja::t
Happdrætti
Háskóla íslands
Viixtur happdrœttisins irá ári til árs her vott
um vinsœldir þess.
1934 var greitt í vinninga kr. 476.525.00
1935 - — - - 651.575.00
1936 - — - - 745.650.00
1937 - — - - 748.525.00
1938 - — - - 777.725.00
Sumtals á 5 árum 3 miljjónir 400 þúsund hr.
Viimingar skiptast nokkurn veginn j a f n t á
hvert þ ú s u 11 d mimera, þaiinig, að um 2 0 0
vinningar að nteðaltali koma á hvert þúsund
mimera á árl. Er því mikil von hundin við að
vinna I happdrættinu, einkum af þvl, að vinn-
ingur getur komiö upp á sama mimer mörgum
sinnunt á ári.
Engfinn hefir ráð á að missa af
þeirri von að geta eignast stórfé
í happdrættinu
\
/
'n
Er mjúk sem rjómi og
hefir yndislegan rósailm.
Fæst í öllum verzlunum,
sem leggja áherslu á
vörugæði.
Auglýsing
Jörðin Miðhús, Bæjarhreppi, Strandasýslu,
er laus til kaups og áhúðar á vori komandi.
iVáiiari upplýsingar gefur eigandi og ábú-
andi jarðarinnar ÓLAFLR GLÐJÓNSSOIV.