Gelmir - 01.04.1954, Blaðsíða 1
GELKIR
l.blað Apríl 1954 1. árgangiu
Hleypt lieimadragannin,
Blað Ibað sem nú skýzt í heiminn, GELMIR, er stofnað af fjórurn mennt-
skœlingum. Cand. mag. Gísli Jónsson kennari hcfir góðfúslega tekizt á
hendur ábyrgð blaðsins. Kunnum við honum bezlu þakkir fyrir það.
Tilgangurinn með blaði þessu er sá að auka fjölbreytni í félagslífi skól-
ans og gefa nemendum aukinn kost á að koma hugarsmíðum sínum á
framfœri.
Það er sannfœring þeirra, sem að blaðinu standa, að tvö blöð eigi að
geta þrifizt innan veggja skólans. Enda reyndist svo fyrir nokkrum árum.
Það er því sízl œtlun okkar eða vilji að bregða á nokkurn hátt fœti fyrir
skólablaðið Muninn.
Blaðið hyggst ekki láta sér neitt innan skólans óviðkomandi. Þó mun
það af fremsta megni leitast við að halda sér utan við stjórnmálaerjur
skólanema.
Hefjum svo lesturinn.