Gelmir

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Gelmir - 01.04.1954, Qupperneq 5

Gelmir - 01.04.1954, Qupperneq 5
Karlinn ýtir frá landi og sezt síðan undir árar. Við heyrum gjálfrið af taktföstum áratogum gamalreynda ferjumannsins deyja út, er við stönd- um á fljótsbakkanum c-g horfum álengdar aftur í tímann á ferðalag þeirra afa og ömmu. II. Bifreiðin stanzar. „Hvern sjalfan þremilinn á það að þýða að bremsa svona snöggt, mannasni?“ verður mér að orði við félaga minn, sem ekur bifreiðinni og hafði hemlað svo óvænt, að ég rak ennið í rúðuna ,er fram veit. „Nú, við.vorum nærri farnir framhjá,'4 segir hann, „þetta er víst Hvammur.“ Kærulaus lygnir hann augunum líkt og kvikmyndastjarna, tekur útreyktan vindlinginn af neðri vörinni, opnar hurðina og hendir leifunum út. Rykið r.f veginum smýgur inn og blandast benzínloftinu, sem þar ríkir. Félagi minn, Jón, er framsóknarmaður og ekur vöruflutn- ingabifreið kaupfélagsins, en hana höfum við fengið til eigin afnota þennan sunnudag og ætlum að bregða okkur á dansleik í samkomuhúsinu að Stað í .... dal. — „Heyrðu lasm, eigum við ekki að líta inn á barinn og fá okkur kaffisopa?“ segir Jón. „Allright, ég er til, en á ekki cent,“ svara ég. „Ok, ég redda því,“ segir félagi minn aftur. Við stígum út úr bifreiðinni og göngum heim að gisli- og veitinga-húsinu Hvammi. Þetta er nýtízku þriggja hæða ljósgult steinhús með flötu þaki, þar sem fyrir er komið sólskýli ætluðu dvalargestum. Fyrir ofan malarflötinn, sem húsið stendur á, er hvammurinn, þar sem kræklótt og óþriflegt kjarr er að finna. Það þrífst ekki vegna ryksins, sem stöðugt leggur þangað upp af mölinni. Eini gróðurinn, sem þar blómgast, eru hófsóleyjar, er vaxa á bökkuin lindspíænu, sem þarna rennur og vökvar þær og laugar. Fjöldi fólks situr inni í veitingasal hússins. Annarlegar raddir berast okkur til eyrna, því að þarna sitja að borðum amerískir hermenn, mjög vel greiddir og rakaðir á gljáburstuðum skóm, þýzkir ferðalangar í græn- um ferðafötum og sænskir hvítasunnumenn í pokabuxum. Enskir efna- menn, sem þarna kallast laxveiðimenn, mæla veidda og glataða laxa með höndunum einum. Fulltrúar íslands eru ungir að árum, síjórtrandi ná- ungar, snöggklipptir og í heiðbláum fötum af erlendum toga spuunum, að auki bera þeir litauðug negrabindi. Við félagarnir teljumst til síðast- nefndra aðila og berum þess glöggt merki í öllum háttum. Kæruleysislega höllumst við fram á afgreiðsluborðið við enda salar- ins, krækjum fótunum aftur fyrir háa s'ólfæturna og sötrum ódýrt mola- kaffi. — Kaffið er greitt og við félagarnir göngum út, stígum upp í bif- reiðina og höldum áfram ferðinni. Áliðið er dags, umferðinni hefur linnt GELMIR 5 I

x

Gelmir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gelmir
https://timarit.is/publication/454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.