Morgunblaðið - 26.08.1959, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.08.1959, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 26. Sgusí 1959 MORCTINTil 4ÐÍÐ 19 Fyrirliði KR, María Guðmundsdóttir, tekur við bikarnum en t. h. er lið KR-inga, sem nú heldur tveim æðstu titlum í handknattleik kvenna. (Ljósm.: Ragnar Vignir). KR - stúlkurnar Islandsmeist- arar i útihandknattleik 7959 Unnu Ármann i jöfnum og spennandi leik í FYRRAKVÖLD lauk meistaramóti Islands í útihandþnattleik kvenna. I mótinu tóku þátt 4 liS, KR, Ármann, Valur og Víkingur — en eitt liðanna, Víkingur, var ekki skipað reglum samkvæmt (of margar 2. flokks stúlkur) og keppti því sem gestur. Úrslit urðu að KR-stúlkurnar sigruðu, unnu alla sína leiki og hlutu 6 stig. -----------------------9 — Gottu-förin Frh. af bls. 3. leit út fyrir að Heimaland kæm- ist ekki út. — Tókuð þið hvergi land fyrr en í Reykjavík? — Nei, sumir vildu fara inn á Vestfjörðum og síma þaðan en þá leit út fyrir versnandi veður aft- ur svo við vildum ekki tefja að óþörfu. Við höfðum fengið loft- skeyta-útbúnað og tækin reynd- ust öll vel nema senditækin. Við komum því öllum að óvörum þeg ar við sigldum inn í Reykjavíkur höfn að morgni þess 26.. — Hvernig báru' sauðnautin sig í sævolkinu? — En þau drápust fljótlega eftir komuna hingað? — Já, þau veiktust og drápust. Þegar við komum var ekkert ákveðið hvað gert yrði við sauð- nautakálfana og voru þeir fyrst látnir inn á Austurvöll. Síðar voru þeir fluttir austur að Gunn- arsholti og þar fengu þeir bráða pest og drápust allir um haustið nema ein kviga, sem var kölluð Sigga. Var hún höfð með naut- gripunum í Gunnarsholti um veturinn. Árið eftir voru svo keyptir sauðnautakálfar frá Noregi og fluttir að Gunnars- holti. En það fór á líka leið með þá. Þeir voru hafðir þar í girð- ingu, en haglendið hæfði þeim ekki og þeir drápust úr hungri á grænni jörðinni um hásumarið. Sigga drapst lika þetta sumar. — Hefði ekki verið hægt að láta þau lifa einhvers staðar annars staðar á landinu? — Þegar sauðnautin voru keypt frá Noregi fékk ég kunn- ingja minn til að kaupa tarf og kvígu sem ég kom fyrir hjá frænda mínum á Litlu-Drageyri j Skorradal. Var þeim gefið þar um veturinn og þau þrifust vel. Um vorið var þeim sleppt upp í Skarðsheiði og gengu þau þar við snjó-röndina fram eftir sumri. Þá týndist tarfurinn. Hann kom þó fram skömmu seinna en drapst rétt á eftir. Ásgeir dýralæknir sem rannsakaði hann að beiðni minni sagði að hann mundi hafa hrapað í fönn og lent í svelti en Á Úrslitaleikurinn Keppni í mótinu um bik- arinn var afarhörð milli Ár- manns og KR. Mátti í úr- Afturelding vann Skarphéðinn 3-1 24. ág. HÉRAÐSSAMBANDH) Skarp- héðiim og U. M. F. Afturelding háðu knattspyrnukappleik í gær á Varmárvelli í Mosfellssveit. — Var þetta liður í annarar deildar- keppni íslandsmótsins. Leikar fóru svo að Afturelding vann með 3 gegn 1. svo ekki þolað gróðurinn eftir sveltið. Kvígan var svo send austur að Gunnarsholti og drapst þar. —. — Hefur aldrei verið talað um að endurtaka þessa tilraun? — Það hafa ýmsir verið að tala um það við mig að gera nýja tilraun en nú er það ýms- um erfiðleikum bundið. Við höfðum danskan þegnrétt 1929 og gátum því veitt sauðnautin fyrirstöðulaust, en nú yrði að byrja á því að gera samninga við Dani um veiðileyfi. Nú væri að vísu auðveldara að flytja sauðnautin hingað til lands með flugvél, en það var annars furðu- legt hvað þau þoldu í sævolk- inu. Sauðnautin eru mjög hraustbyggð að eðlisfari, en næm fyrir sjúkdómum. Fróðir menn telja að það sé nauðsynlegt fyrir þau að fá Iaufgróður því í lauf- inu sé garfsýra, sem þau þurfi fyrir meltinguna. Norðmenn hafa flutt sauðnaut til Spitz- bergen og hefur gengið vel að ala þau upp þar og einnig hafa Ameríkumenn rannsakað vís- indalega eðli og lifnaðarháttu sauðnautanna. Þessar rannsókn- ir yrðum við að kynna okkuivef okkur dytti í hug að gera nýjar tilraunir um innflutning sauð- nauta, sagði Ársæll að lokum. J. H. A. slitaleiknum lengst af ekki á milli sjá. I hálfleik hafði Ár- mann yfir 6 gegn 4. En síðan jafnaðist leikurinn og um eitt skeið stóð 10:10. En á síðustu mínútum tókst KR að skora tvívegis og vann 12 gegn 10. Lið Ármanns hlaut 4 stig, Vals 2 stig og Víkings ekkert stig. Á Góður völlur Allir leikirnir fóru fram á svæði Ármanns við Sigtún. — Róma allir þátttakendur móts- ins hinn ágæta völl Ármenninga. KR-stúlkurnar eru nú hand- hafar beggja bikaranna — unnu í vetur meistaramótið í inni- handknattleik. — Utan úr heimi Framh. af bls. 10 ir um starfið í framtíðinni. Sam- einuðu þjóðirnar vænta þess að fá til flóttamannahjálparinnar fjárhæð, sem nemur rúmum 100 milljónum ísl. króna samkvæmt skráðu gengi, á yfirstandandi ári. Þessi fjárhæð verður greidd af mörgum ríkjum. Á næsta ári er hins vegar keppt að því að afla mun meira fjár, eða upphæð sem nemur um 274 milljónum ísl. kr. samkvæmt skráðu gengi. í ár hefur 41 ríki lagt fram fé til flóttamannahjálparinnar, 5 þeirra í fyrsta sinn. Hins vegar hafa 54 ríki tjáð sig fús að taka þátt í „flóttamannaárinu," sem Sameinuðu þjóðirnar hafa stofn- að til í því skyni að efla við- leitnina við að ráða fram úr vandamálum flóttamannanna. Þessi 54 ríki hafa til þessa skuld- bundið sig til að leggja fram fjárhæð, sem nemur um 50 millj. ísl. króna í reiðu fé og jafnvirði hennar í ýmiss konar vistum. Þegar Lindt lagði fram skýrslu sína kvað hann æskilegt, að komið yrði á réttlátari skipt- ingu byrðanna vegna umönnun- ar flóttamannanna, og hann lagði áherzlu á rétt flóttamanna til að hverfa heim aftur, ef þeir kysu það. Meðal ríkja, sem nýlega hafa gerzt þátttakendur í flótta- mannahjálpinni, er íran, og hef- ur þar í landi verið sett á fót stofnun til að safna fé til hjálp- arinnar um gervallt landið. 1 Átralíu hefur nýlega verið rýmkað um höftin á innflutningi flóttamanna, þannig að 50 fjöl- skyldur, sem áttu ættmenni í landinu, fá að að flytjast þang- að, þrátt fyrir það að heilsu sumra manna í þessum fjölskyld- um er ábótavant. Enska knaftspyrnan ÞRÁTT fyrir hitabylgju, sem gekk yfir England sl. laugardag mættu yfir milljón knattspyrnu- unnendur á fyrstu umferð ensku deildarkeppninnar. Eins og venju lega í byrjun keppnistímabils komu úrslit nokkurra leikja mjög á óvart. Mesta athygli vakti tap Arsenal á heimavelli fyrir sigurvegurunum í II. deild síð- asta keppnistímabil, Sheffield Wedn., 0:1. Mikla athygli vakti og hinn stóri sigur Tottenham yfir Newcastle, 5:1, en síðasta keppnistímabil átti Tottenham erfitt uppdráttar, þrátt fyrir marga mjög góða leikmenn. Það vekur alltaf athygli þegar Man- chester United tapar, en W.B.A. er gott lið svo ekki er hægt að segja að úrslitin hafi komið óvænt. Úrslit leikjanna urðu þessi: 1. deild: Arsenal — Sheffield W 0—1 Birmingham — Wolvefhampton 0—1 Blackbum — Fulham 4—0 Blackpool — Bolton 3—2 Chelsea — Preston 4—4 Everton — Luton 2—2 Leeds — Burnley 2—3 Manchester C — Nott. Forest 2—1 Newcastle — Tottenham 1—5 W. B. A. — Manchester U. 3—2 West Ham. — Leichester 3—0 2. deild: Brighton — Aston Villa 1—2 Bristol R. — Leyton Orient 2—2 Cardiff — Liverpool 3—2 Hull — Plymouth 3—1 Ipswich — Huddesfield 1—4 Middlesborough—Portsmouth 0—0 Rotherham — Charlton 3—3 Schunthoupe — Bristol C. 1—1 Sheffield U. — Derby 2—1. Stoke — Sunderland 3—1 Swansea — Lincoln 2—1 John Fantham tryggði Shef« field Wednesday sigurinn yfir Arsenal, með föstu skoti á 41. mínútu. — Tottenham vann stór- sigur yfir Newcastle og gátu mörkin orðið fleiri. Útherjinn, Cliff Jones, setti þrjú mörk Og Jonny Brooks tvö. Estham skor- aði fyrir . Newcastle. — Wolver- hampton sigraði Birmingham með marki er Bobby Mason skor- aði á 23. minútu. — Leikmenn Chelsea vorú ekki ánægðir með jafnteflið við Preston; fannst þeim ekki gott að leyfa Preston að jafna, því á 63. mínútu var staðan 4:1 Chelsea í vil. Jimmy Greoves setti þrjú mörk fyrir Chelsea og lék mjög vel. Bra- brook setti fjórða markið fyrir Chelsea. Fyrir Preston skoruðu Finney, Tommy Thompson, De- rek Mayers og Frank O’Farrell. — Harry Gregg bjargaði Man- chester United frá bursti og varði snilldarlega. Fyrir W.B.A. skor- uðu Burnside tvö og Fanlkes eitt. Viollet setti bæði mörkin fyrir Manchester United. ■— Jim Hey setti mark Nottingham Forest með þrumuskoti af 18 m .færi. — Fyrir Manchester City skoruðu Johnston og Fagan. — Ronnie Clayton, sem álitið er að verði fyrirliði enska landsliðsins, gætti Jonny Haynes mjög vel og er það órsök þess hve illa Ful- ham gekk í fyrsta leiknum í J deild. — Maðurinn minn BRYNJÓLFUR GUÐBRANDSSON Hlöðutúni, andaðist í Landsspítalanum 25 ágúst. Jónína G. Jónsdóttir. Systir okkar, BERGÞÖRA J. NÍBORG kaupakona lézt aðfaranótt 25. ágúst. Jarðarförin ákveðin síðar. Systkíni Útför INGIBJARGAR HALLDÓRSDÓTTUR sem lézt 20. þ.m. fer fram frá Fossvogskapellu fimmtu- daginn 27. þ.m. F.h vandamanna. Kristín Kristjánsdóttir, Katrín Kristjánsdóttr. Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, SIGRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR frá Neskaupstað verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 27. ágúst kl. 2 e.h. Athöfnin í kirkjunni verður útvarpað. Blóm og kransar afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Slysavarnafélagið. Hannes Ivarsson og börn Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og jarðarfön mannsins míns og föður okkar, KRISTJÁNS jósefssonar Þuríður Benidiktsdóttir, Hulda Kristjánsdóttir, Hilmar Kristjánsson. Útför, INGIBJARGAR HALLDÓRSDÓTTUR er lézt 20. þ.m. fer fram fimmtudaginn 27. þ.m. kl. 10,30 frá Fossvogskirkju. Blóm vinsamlega afþökkuð. Kristín Kristjánsdóttir, Katrín Kristjánsdóttir Þökkum hjartanlega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför systur okkar, INGVELDAR GlSLADÓTTUB Systkini hinnar látnu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.