Morgunblaðið - 13.04.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.04.1994, Blaðsíða 1
64 SIÐURB/C Kigaliað falla og stjórnin er flúin Kigali. Reuter, The Daily Telegraph. RÍKISSTJÓRNIN í Rúanda flýði öll frá höfuðborginni, Kigali, í gær en þá var búist við, að hún félli í hendur uppreisnarsveitum Tutsi- manna á hverri stundu. Talið er, að tugþúsundir manna hafi fallið í óöldinni í landinu síðan forseti landsins og forseti nágranna- ríkisins Búrúndis fórust þegar flug- vél þeirra var skotin niður í síðustu viku. Belgískir yfírmenn í eftirlits- sveitum Sameinuðu þjóðanna í land- inu segjast hafa séð þegar hermenn úr úrvalssveitum sjálfs forsetans hafí grandað vélinni en áður voru Tutsi-menn grunaðir um verknaðinn. Talið er, að ríkisstjórnin, 19 ráð- herrar, hafí flúið til bæjarins Gitar- ama, sem er í 40 km fjarlægð frá Kigali, en á sama tíma skoraði út- varpið á borgarbúa að beijast með stjómarhernum gegn uppreisnar- mönnum af Tutsi-ættbálknum, sem vom þá komnir að borgarhliðunum. Sjá „Höfum ekki...“ á bls. 24. --------».■»■ ■»..... Lög gegn ofbeldis- myndum Lundúnum. Reuter. MICHAEL Howard, innanríkis- ráðherra Bretlands, hyggst leggja fram frumvarp til laga sem kveð- ur á um hörð viðurlög við því að leigja börnum myndbönd með of- beldismyndir. Verði frumvarpið að lögum eiga myndbandaleigur yfír höfði sér fang- elsis- eða sektardóma leigi þær börn- um myndir sem eru bannaðar börn- um. Ennfremur er gert ráð fyrir strangari flokkun mynda. Noregur og ESB Samning- urinnfrá- genginn Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgfunblaðsins. GENGIÐ var frá samningnum um aðild Norðmanna að Evrópu- sambandinu í gær og texti samn- ingsins verður lagður fyrir Evr- ópuþingið í dag. Mikil óvissa var um samninginn fram á síðustu stundu vegna deilu um orðalag þeirrar greinar sem fjallar um áframhaldandi forræði Norðmanna yfir fiskimiðunum á verndarsvæðinu umhverfis Sval- barða. Aðalsamningamaður Norð- manna, Eivinn Berg, sendiherra hjá Evrópusambandinu, sagði að öll vandamálin hefðu verið leyst. Spán- verjar reyndu að tryggja sér fisk- veiðiheimildir við Svalbarða en að sögn Aftenposten héldu þeir þeirri kröfu ekki til streitu. Gro Harlem Brundtland, forsæt- isráðherra Noregs, sagði að þjóðar- atkvæðið um aðild Norðmanna að Evrópusambandinu færi að öllum líkindum fram 28. nóvember. Þing- ið ákveður dagsetninguna og Brundtland sagði að það yrði gert eftir nokkrar vikur. Borís Jeltsín mótmælir loftárásum NATO á Serba í Bosníu Segir hervald aðeins leiða til „eilífs stríðs“ Sögulegur GATT-fundur settur Reuter Fjögurra daga fundur ráðherra frá 125 ríkjum var settur í borginni Marrakesh í Marokkó í gær og ráðgert er að þeir undirriti nýjan GATT-samning um frjálsari heimsviðskipti á föstudag. Samningnum er ætlað að binda enda á „frumskógarlögmálið“ í heimsviðskiptunum og gert er ráð fyrir öflugri eftir- litsstofnun. Áætlað hefur verið að samningurinn verði til þess að heimsviðskiptin aukist um 235 millj- arða dala á ári innan áratugar. Krónprins Marokkó, Sidi Mohammed, setti fundinn og myndin er af líf- vörðum konungsins sem tóku þátt í setningarathöfn- inni. Madrid, Sarajevo. Reuter. BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, varaði í gær leiðtoga Vestur- landa við því að ef þeir reyndu að binda enda á stríðið í Bosníu Hjónaefni með sjö- tíu ára aldursmun Rómaborg. Reuter. 93 ÁRA gömul kona á Ítalíu hyggst giftast manni sem er nógu ungur til að vera barna- barnabarn hennar. Margherita Bazzani og Andrea Pezzoni, 24 ára, ætla að gifta sig í Tórínó á mánudag. Þau hafa verið í sambúð í tvö ár. „Ég vona að allir sem eru orðn- ir gamlir og einir finni einhvern eins og Andrea. Aldurinn skiptir ekki máli og ekki heldur fegurðin, finnið bara rétta manninn,“ sagði Bazzani. Gamla konan kvaðst hafa kynnst Pezzoni þegar hann var 14 ára og gisti á heimili hennar. Móðir hans var þá ráðskona Bazz- ani og hún réð hann síðar sem bílstjóra sinn. „Foreldrar hans höfðu yfirgefið hann og ég ætlaði að ættleiða hann en þar sem það tekur svo langan tíma og ég er orðin svo gömul var ég hrædd um að ég yrði dauð áður en ættleiðingin yrði að veruleika," sagði Bazzani. Pezzoni verður annar eigin- maður konunnar, sem er barnlaus og bjó í 50 ár aðskilin frá fyrri manninum, sem lést fyrir átta árum. „Ást okkar er platónsk en dýpri og fallegri en allt annað,“ sagði hún. með hervaldi myndi það leiða til „eiiífs stríðs“. Hersveitir Bosníu- stjórnar gerðu í gær sprengju- vörpuárásir á serbneskar stór- skotasveitir suðvestur af múslímaborginni Gorazde. „Ég er sannfærður um að leiða beri stríðið til lykta með samninga- viðræðum," sagði Jeltsín á blaða- mannafundi í Madrid þar sem hann er í opinberri heimsókn. „Vanda- málið verður ekki leyst með her- valdi. Slíkt leiðir til eilífs stríðs.“ Jeltsín hafði áður kvartað yfir því við Bill Clinton Bandaríkjafor- seta að hann skyldi ekki hafa verið hafður með í ráðum þegar ákveðið var að gera loftárásir á umsáturslið Serba í grennd við Gorazde á sunnudag. Þrátt fyrir það gerði Atlantshafsbandalagið, NATO, aðra árás á Serba daginn eftirj að beiðni fulltrúa framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Hafna Rússar friðarsamvinnu? Jeltsín kvaðst vona, að „þessi mjög svo harða og alvarlega yfirlýs- ing“ yrði til þess að afstaða leiðtoga Vesturlanda til stríðsins í Bosníu breyttist. Hann gaf einnig til kynna puTTuor [pítlíC dl-0 Sloíotiit e m Reuter Loftárásunum mótmælt í Pétursborg RÚSSAR mótmæla loftárásum Atlantshafsbandalagsins á stöðvar Serba í grennd við Gorazde f Bosníu við skrifstofu ræðismanns Banda- ríkjanna í Pétursborg í gær. að þróunin í Bosníu gæti haft áhrif á það hvort Rússar tækju þátt í áætlun NATO um „Samstarf í þágu friðar“. ívan Rybkín, forseti neðri deildar rússneska þingsins, sagði það óvið- unandi að NATO skyldi hafa gert árásirnar án samþykkis öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. „Árásirnar á stöðvar Bosníu-Serba gætu hindrað aðild Rússa að Samstarfí í þágu friðar,“ sagði hann. Rob Annink, talsmaður friðar- gæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í Sarajevo, sagði að hersveitir Bosn- íuhers hefðu gert sprengjuvörpu- árásir á Serba í grennd við Gorazde en þeir hefðu ekki skotið frá borg- inni sjálfri. Áður hafði Michael Rose, yfirmaður friðargæsluliðsins, gagnrýnt Bosníuher fyrir að gera árás frá borginni að tilefnislausu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.