Þjóðviljinn - 19.03.1985, Page 1

Þjóðviljinn - 19.03.1985, Page 1
mars 1985 þriðju- dagur 565 tölublað 50. árgangur VIÐHORF MANNUF ÍÞRÓTTIR HEIMURINN Húsnœðiskaupendur Gífurlegur aukaskattur 2,6 miljarða aukaskattur á húsnœðiskaupendur í tíð ríkisstjórnarinnar. Nemur 1390 miljónum í ár. Greiðslubyrðin hækkað minnst um þriðjung vegna raunvaxtahœkkunar ríkisstjórnarinnar. Nemur miljarði! Afborgun aflánifrá 1980 hækkar um 82 prósent vegna stjórnarstefnunnar. Ríkisstjórnin hefur með efnahagsstefnu sinni lagt aukaskatt á alla húsnæðis- kaupendur sem svarar til um 2,6 miljarða króna frá því hún tók við völdum. Einungis á þessu ári er áætlað að þessi aukaskattur nemi um 1390 miljónum króna. Þetta kem- ur fram í útreikningum samtaka áhuga- manna um úrbætur í húsnæðismálum. Einungis breytingar á raunvöxtum sem ríkisstjórnin hefur heimilað frá því hún tók við völdum valda því að í tíð hennar hafa húsnæðiskaupendur þurft að greiða auka- lega nær miljarð, eða um 910 miljónir króna, miðað við forsendur sem giltu fyrir upphaf stjórnarinnar. Á þessu ári einu saman er áætlað að raunvaxtabreytingar í tíð ríkisstjórnarinnar muni kosta húsnæð- iskaupendur að minnsta kosti um 580 milj- ónir króna.Þetta kemur framí fyrrnefnd- um útreikningum. Jafnframt hafa lán og áfborganir hækk- að gífurlega vegna hækkunar lánskjara- vísitölu umfram kauphækkanir, en fyrsta verk ríkisstjórnarinnar var einmitt að af- nema verðtryggingu launa með lögum en heimila áfram verðtryggingu lánanna. Misræmið milli launa og lánskjara hefur farið sívaxandi síðan og valdið æ þyngri greiðslubyrði. í útreikningum hópsins er tekið dæmi af miljón króna láni sem tekið er til 20 ára árið 1980. Einungis hækkun raunvaxta úr 2,5 prósent á tímabili núverandi ríkis- stjórnar hefur aukið greiðslubyrði lántak- enda um heilan þriðjung!! Raunvaxtahækkun í tíð stjórnarinnar og verðtrygging lánskjaravísitölunnar um- fram hækkun launa á tímabilinu veldur því að í ár er áætlað að afborgun af þessu láni verði hvorki meira né minna en 82 prósent hærri en miðað við þær forsendur sem ríktu áður en eyðingarstefna stjórnarinnar kom til. ös Sjá bls. 8 Kennarar, foreldrar, nemendur, stuðningsmenn, börn: troðfullt hús á fundi HlK á sunnudag. Mynd: -eik. Kennarar Öll spjót á ríkis- stjóminni Útifundur á Austur- velli í dag. Að minnsta kosti sjöhundruð á fundi HÍK sunnudag á Hótel Sögu; mjög góðar undirtcktir við undirskriftasöfnun sem lauk í gær; flótti aftur inní skólana ekki umtalsverður; sterk fjárhags- staða; útifundur á Austurvelli í dajg klukkan þrjú; kennarar í HIK halda ótrauðir áfram bar- áttu sinni. Við bíðum ekki dómsdags, . sagði Heimir Pálsson á fundinum á Sögu. Kennarar krefjast samn- inga eða vísrar tryggingar frá ríkisstjórninni um hagstæðan málflutning fyrir Kjaradómi, og munu ekki taka upp fyrri störf nema hljóðið í stjórnvöldum breytist verulega. Urslit ríkis- stjórnarfundar í dag eru talin geta skipt verulegu máli þarsem ljóst er af ummælum ráðherra síðustu daga að ekki er eining um stefn- una í kjaramálum kennara og annarra BHM-manna. Sjá bls. 3 og 20 Hafnarfjörður Verkafólk krefst svara Öllu starfsfólki BÚH sagt upp. Á þriðja hundrað manns atvinnulausir. Flís í rass Dansflokkur, sem var að sýna listir sinar í samkomusal Domus Medica um síðustu helgi, varð fyrir heidur óþægilegri reynslu. í dansatriði þurftu dansarar að renna sér eitthvað á rassinum eftir dansgólfinu. Pá vildi ekki betur til en svo að flestir fengu flísar í bossann, þar sem dansgólfið var eitthvað trosnað. Þurftu nokkrir dansaranna að leita læknisaðstoðar á slysavarð- stofu til að ná nálunum úr. -S.dór Fjögur verkalýðsfélög í Hafnar- firði sendu í gær bæjaryfir- völdum orðsendingu, þar sem kraflst er fundar ráðamanna með fyrrverandi starfsmönnum Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar og að verkafólkið fái skýringar á því hvort og þá hvenær það verði ráðið aftur til starfa hjá hinu nýja útgerðarfélagi Hafnfirðinga. Um sl. mánaðamót var öllu starfsfólki BÚH, um 180 manns, sagt upp störfum. Jafnframt sendi bæjarstjóri starfsmannafé- laginu bréf þar sem sagði að gengið yrði frá mannaráðningum til hins nýja fyrirtækis fyrir lok síðustu viku. Ekkert hefur ennþá heyrst frá bæjaryfirvöldum, yfir 200 manns eru á atvinnuleysis- skrá, enginn veit ennþá hvenær Útgerðarfélagið tekur til starfa og togarar fyrirtækisins hafa iengið bundnir við bryggju frá því fyrir sjómannaverkfall. Fyrrverandi starfsfólk BÚH ætlar að fjölmenna á fund bæjar- stjórnar síðdegis í dag og hlýða á svör bæjaryfirvalda. ->g-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.