Tíminn - 21.09.1963, Qupperneq 16
nllii SIímB rWÍB mI»i ■■iatt.ÍRH MB»■ HHBBt B.B ~iBb 1 'BBLBB«liMHLBHf Laugardagur 21 sept. 1963 202. tbl. 47. árg. Rifsberjamet í Flóanum Stjas—Vorsabæ, 20. sept. verði metuppskera á rifsi. argörðum. Kartöfluuppskera virð Á sama tíma og víðast er kvart Hér hefur verið mikil vætutíð ist vera sæmileg, og gulrófur og að undan lélegri uppskeru af rifs undanfarna daga og uppskeru- kálmeti er vel sprottið. berjarunnum, er fyrirsjáanlegt, störf í matjurtagörðum erfið Krækiber hafa ekki sézt að að sums staffar hér í Flóanum vegna bleytu, sérstaklega í mold þessu sinni,
10 ÁRA GATNAGERÐARÁÆTLUNIN KOMIN í STRAND ÞEGAR Á I. ÁRI ‘jT.
BORGARSTJORINN LOFAR
GANGSTÉTTUM í HLÍÐAR
4.
TK-Reylijavík, 20. sept.
Borgarráð hefur nú breytt veru
lega gatnagerffiaráætluninni og hef
ur verið horfið frá að malbika á
þessu ári allar götur í Hlíðum og
Túnum eins og ráðgert hefur ver
ið og jafnframt horfið f.á að
leggja gangstéttir á þeim götum
í Hlíðunum, sem nú er verið að
malbika. Er því Ijóst, að gatna-
gerðaráætlunin, sem samþykkt var
í borgarstjórn rétt fyrir síðustu
kosningar er komin í strand þegar
á fyrsta ári.
Einar Ágústsson, borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins, bar á fundi
borgarscjórnar í gær fram þá fyrir
spum til borgarstjóra, hvenær ráff
gert væri að fullgera þær götur,
sem nú hafa verið settar til hliðar
með þessari breytingu á gatna-
gerðaráætiuninni. Enn fremur
spurði Einar, hve miklu fjármagni
í heild myndi varið til gatnagerðar
á þessu ári. Einar sagffi, að hin
glæsilega gatnagerðaráætlun um
að fullgera allar götur í Reykjavík
a næstu 10 árum hefði vakið mikla
gleði borgarbúa og flestir munu
hafa tekið áætlunina alvarlega.
Vonbrigðin eru því sár, þegar á-
ætlunin fer i strand þegar á fyrsta
ári.
Meff þvi fráviki, sem gert hefur
verið á gatnagerðaráætlunni er
gengið íram hjá gamalbyggðum
íbúðagötum, sem búið er að bíða
Jengi meff að fullgera. Það fólk,
sem býr víð þessar götur hefur
reyndar áratugareynslu af því að
vaða aur 1 ökla, en þegar svona
róttækar breytingar eru gerðar
á gefnum loforðum er það lág-
markskrafa að þetta fólk fái að
vita, hvenær það megi eiga von á
fullgerðum götum.
Þá ræddi Einar um þá stórauknu
slysahætt.u, sem sú ákvörðun að
hætta við að hafa gangstéttir byði
heim. Skv gatnagerðaráætluninni
rsemur kostnaður við lagningu
gangstétta frá einn þriðja til helm
ings af heildarkostnaði við fullnai
srfrágang götu. Þarna væri því
verið að framkvæma aðeins hluta
af því verki sem gatnagerffaráætl-
unin gerði ráð fyrir. Óskaði Ein-
ar skýringar á því hverju þetta
sætti.
Pramh á t5. síðu.
BISKIJPSMESSA
í SKÁLHOLTI
Á sunnudaginn kemur, þ. 22. sept.
mun biskupinn yfir ísiandl, herra
Sigurbjörn Einarsson, messa í Skál
holtsdómkirkju.
Organisti verður Sigurður Ágústs-
son, bóndi í Birtingaholti, og stjórn
Framb a 15 síðu
270 í Barnamúsíkskóla
FB-Reykjavík, 20. sept.
Barnamúsíkskólinn er nú að
hefja 12. starfsár sitt, o.g stendur
'innritun yfir um þessar mundir.
Síðast Þðig ár voru 250 börn í
skólanum, en nú verður væntan.
lega hægt að bæta við 20 til 30
börnum. í skólanum geta börnin
vallff á milli 9 hljóðfæra ,auk
sem þeim er kenndur nótnalestur,
nótnaskrift, tónfræðl og ýmisleigt
fle'ira.
Barnamúskískólinn hefur frá
upphafi veriff starfræktur meg það
fyrir augum, að þar geti börnjn
fundið eithvað við sitt hæfi, og
börn hafa ekki verið valin í
ann eftr tónnæmi eða sérgáfu,
heldu fá allir inngöngu.
Skólinn hefst með forskóla í
tveimur deildum fyrir 6—7 ára
börn, en þó er þag ekki skilyrffi
fyrir því ,að böm geti haldið á-
fram námi, að þau hafi verið í for-
skólanum. í fyrri deild forskólans
er einnar stundar kennsla i viku,
þar sem 6 ára börn læra m.a. að
Kramhaio a 15 siðu
Þessir glaðlegu menn, Val-
garður Haraldsson kennari við
Barnaskólann á Akureyri (t.v.)
ag Guðmundur Magnússon,
skólastjóri Laugalækjarskól-
ans, eru nú í Bandaríkjunum
i vegum Fulbright-stofnunar-
innar, auk þriggja annarra
kennara. Þeir fóru utan 29.
ágúst og verða 1 Bandaríkjun
um í sex mánuði. Þar verða
þeir þrjá mánuði í háskóla og
kynna sér ýmis kennslumál,
an ferðast síðan um landið í
aðra þrjá mánuði. Frá því
1958 hafa 20 íslenzkir kennar
ar farið til Bandaríkjanna á
vegum Fulbright-stofnunarinn
ar í sambandi við svokallað
Teachers Development Pro-
gram. Auk þeirra Valgarðar
og Guðmundar eru nú í
Bandaríkjaferðinni Valgarð
Runólfson skólastjóri í Hvera
gerði; Kristján Sigtryggsson,
eftirlitskennari í reikningi í
Barnaskólum Reykjavíkur, og
Ingibjörg Stephensen talkenn-
ari.
Lofaður í Ameríku
FRUMSÝNING
GBReykjavík, 20. sept.
Rögnvaldur Sigurjónsson, pianó-
leikari er nú í tónlelkaferð f Ame-
ríku, hélt fyrstu tónleika sína í
Wfnnipeg I fyrradag, og keppast blöð
tn þar i borg um að lofa leik hans.
Hér er um boðsferð að ræða, og
eru það Þjóðræknisfélag íslendinga
í Vesturheimi og National Gallery
of Art í Washington D.C., sem standa
að boðinu. Næstu tónleikar Rögn-
valds verða vestur á Kyrrahafs-
strönd, fyrst í Vancouver B.C. og
því næst í Seattle í Washingtonríki.
Fí til vill fer hann til San Fransisco,
en lokatónleikar hans verða í tón-
leikasal listasafnsins National Gallery
of Art í Washington, þar sem
hélt tónleika 1945 og hlaut mikið lof
fvrir. Rögnvaldur er væntanlegur
heim úr tónleikaförinni 14. október.
GB Reykjavík, 20. sept.
Fyrsia frumsýning Þjóðleik-
hpssins á , þessu leikári verður
í kvcld og flutt hið fræga leik-
rit 'Gisl nn (The Hostage) eft-
ir írsKa leikskáldið Brendan
Behári Nokkuð langur aðdrag-
andi er að þessari sýningu
Þjóðleikhússins á leikriti þessu,
og hefur lengi staðið á þýðing-
unni, en fleiri en einn
gefizt upp viff hana. Loks
Jónas Árnason til við hana,
leiknúsfólkið keppist við að
lofa verk Jónasar. Leikstjóri
var laðinn frá Abbeyleikhúsinu
írska, Thomas McAnna, sem
Framh. a 15..síðu.