Morgunblaðið - 23.02.1957, Blaðsíða 1
44. árgangur
45. tbl. — Laugardagur 23. febrúar 1957.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Víðtœkar rannsáknir sýna:
imm. Heilbrigður líkami hefur mót-
stöðuafl gegn krabbameini
Lífstíðaríangar gefa sig fram
til vísindarannsókna
OANNSÓKNIR, sem nýlega voru gerðar í Bandaríkjunum
sýna svo ekki verður um villzt, að venjulegir heilbrigðir
menn hafa mjög sterkt mótspyrnuafl gegn krabbameini.
Þessar rannsóknir fóru þannig fram, að 53 lífstíðarfangar
í fangelsi í Bandaríkjunum fengu sprautur með aragrúa af
krabbameinsfrumum. Það sýndi sig að eftir skamman tíma
hafði líkami þeirra allra unnið bug á meininu.
Hefði þessari inngjöf verið sprautað í mann, sem þegar
hafði sjúkdóminn hefði meinsemdin breiðzt út um líkamann,
eftir sprauturnar.
Fangar í ríkisfangelsi Ohio-ríkis í Bandaríkjunum gáfu sig fram sem sjálfboðaliða við krabbameins-
rannsóknir. Á myndinni sést þar sem lifandi krabbameinsfrumum er dælt í handiegginn á einum fang-
anum.
Enn er talin von
+ WASHINGTON, 22. febr.
Eisenhower og Dulles sátu
lengi dags á fundi og ræddu
um Israelsmálið. — Eftir
fundinn gáfu þeir út
, sameiginlega ályktun, þar
sem þeir kveðast harma
það að ísraelsstjórn skyldi
ekki sjá sér fært að flytja
herlið sitt brott frá Gaza
og Akaba, þrátt fyrir lof-
orð Bandaríkjanna um að
beita sér fyrir vissum
tryggingum.
-fc Þeir kváðust samt fagna
því að Israelsmenn teldu
leiðina til samkomulags
ekki lokaða. Mun endan-
legt álit Bandaríkjamanna
í þessari deilu ekki verða
Flugstys í Kóreu
SEOUL, 22. febrúar — Bandarísk
herflutningaflugvél af gerðinni
Globemaster hrapaði í morgun,
er hún var að lenda við flugvöll-
inn suður af Seoul, höfuðborg
Kóreu. Hún kom niður á smá-
eyju í mynni Han-fljótsins. 150
manns voru í flugvélinni. Margir
þeirra brenndust, aðrir fengu
taugaáfall og nokkrir hlutu bein-
brot. 'Sérstaklega eru sumir illa
haldnir er brenndust. — Reuter.
lagt fram á fundum S. Þ.
fyrr en tóm hefur enn gef-
izt til að ræða við ísraels-
menn um nýjar leiðir til
samkomulags.
Abba Eban, sendiherra
Israels sem verið hefur í
Jerúsalem, er á leiðinni
vestur um haf og kvaðst
hann hafa meðferðis nýjar
tillögur í þessu alvarlega
deilumáli.
Allsherjarþingið tók enn
að ræða í gærkvöldi, hvort
beita skyldi ísraelsmenn
þvingunaraðgerðum. Ekki
er búizt við úrslitum í því
máli fyrr en eftir helgi.
Pólflugið á
sunnudag
iCAUPMANNAHÖFN, 22. febr.
— Verið er að leggja síðustu
hönd á undirbúning SAS-pól-
flugsins til Tokyo. Flugvélin
leggur af stað frá Kastrup-
flugvelli á hádegi á sunnudag.
Flugskáli á Kastrup hefur ver-
ið skreyttur og fá þar sæti 700
gestir, m.a. blaðamenn úr öll-
um heimshlutum. Ráðherrarn-
ir H. C. Hansen frá Dan-
mörku, Halvard Lange frá
Noregi og Östén Undén frá
Svíþjóð, munu ekki láta hjá
líða að flytja ræður við þetta
hátíðlega tækifæri, en allir
verða þeir með í fyrsta pól-
fluginu.
KENNA SÉR EKKI MEINS
Sloan-Kettering rannsóknastofn
unin gerði þessar athuganir. Hún
bað lífstiðarfanga í ríkisfangelsi
Ohio-ríkis að gefa sig fram sem
sj álfboðaliða. 150 gáfu sig fram,
en aðeins þurfti þriðjung þeirra.
Vísindamenn hafa síðan ver-
ið að sprauta krabbameins-
frumum inn í handlegg fang-
anna, oft um þremur millj.
sjúkrafruma í einu, en niður-
staðan alls staðar orðið sú
sama að krabbameinsfrumurn-
ar hafa horfið á um vikutíma,
stundum með nokkurri bólgu,
en stundum jafnvel án henn-
ar, og fangarnir kenna sér
einskis meins.
Þó þessum rannsóknum sé
ekki enn lokið, hafa þær þeg-
ar fært mönnum heim sanninn
um það, að venjulegur heil-
brigður maður hefur sterkt
SáSsfteCna Araba
um ftillögu
Eisenhowers
Rabat í Marokka, 22. febr.
Frá Reuter.
□ Saud konungur Arabíu hef-
ur boðað forystumenn allra
Arabaþjóðanna saman á fund í
Kairo til þess að ræða tilboð
Ið juf élagar!
KOSNINGASKRIFSTOFA B-listans, lista lýðræðissinna,
er í Verzlunarmanr.ahúsinu, Vonarstræti 4, III. hæð.
Skrifstofan verður opin meðan kjörfundur stendur yfir, þ. e.
frá kl. 1—9 e. h. í dag og frá kl. 9 í fyrramálið til kl. 5 e. h.
á morgun, en þá lýkur kosningu.
Símar skrifstofunnar verða: 8-2292 og 4906.
Allir lýðræðissinnar í Iðju, sem vilja vinna að sigri B-
listans, eru beðnir að mæta til starfa stundvíslega kl. 1 í dag
í Vonarstræti 4.
Eisenhowers um stuðning við
þjóðir nálægra Austurlanda.
□ Konungur skýrði fréttamönn
um frá þessari ákvörðun
sinni. Bætti hann því við, að eft-
ir viðræðurnar við Eisenhower
væri hann sannfærður um að
Eisenhower vildi Arabaþjóðunum
vel og að hann stefndi að því að
friður mætti ríkja í nálægum
Austurlöndum.
n Saud konungur endurtók hins
vegar að hann væri algerlega
andvígur Bagdad-bandalaginu.
Frá því væri einskis góðs að
vænta. Bæði hefðu Bretar átt upp
tökin að stofnun þess og svo
stefndi það að því að rjúfa ein-
ingu Arabaríkjanna. Kvað hann
samstarf Arabaþjóðanna verða
að ganga fyrir öilu öðru.
Hœkkar í tign!
LONDON, 22. febrúar — Elísabet
drottning ákvað í dag að gera
eiginmann sinn Filipus að prins.
Verður hann héðan í frá titlaður
sem konungleg hátign. Þessi
ákvörðun drottningarinnar er ein
stæð í sögu hrezka konungs-
dæmisins.
Þau Elísabet og Filippus höfðu
verið fjarvistum í fjóra mánuði
þar til þau hittust í Portugal. Er
það álit fréttaritara að þar hafi
orðið mikill fagnaðarfundur, eft-
ir svo langa fjarvist liafi þau
saknað hvors annars. —Reuter.
Hrteig niður
New York.
Einkaskeyti frá Reuter.
KRISHNA MENON, fulltrúi Ind.
lands hjá SÞ, féll niður meðvit-
undarlaus, er hann hafði haldið
ræðu í 2 klst. í Öryggisráðinu. —
Hann hefur Verið veikur síðan
hann hélt 7 klst. löngu ræðuna
um Kasmír-málið í byrjun febrú-
ar.
Eftir löngu ræðuna lagðist
Menon í sjúkrahús í New York,
en reis að nýju úr rekkju til að
halda aðra ræðu í Öryggisráðinu.
Hann fór á fætur gegn ráðum
læknis síns, dr. W. M. Hitzig.
Læknirinn segir að Menon þjá-
ist af sjúkdóm í gollurshúsinu,
sem valdi truflunum á blóðrás-
inni og of háum blóðþrýstingi,
einkum ef hann þarf að standa
lengi.
mótstöðuafl gegn krabbameini.
Má ætla að eftir þetta verði
rannsóknum beint meir en
áður að því, að "inna út hvert
þetta mótstöðuafl er, og
hvernig á því stendur að það
hverfur stundum. Einnig verð-
ur að rannsaka hvort sjúk-
dómurinn sé smitandi gagn-
vart þeim sem af einhverj-
um ástæðum hafa misst mót-
stöðuaflið.
REIÐUBÚNIR AÐ FÓRNA SÉR
Fangarnir í Ohio-fangelsinu
sögðu fréttamönnum svo frá, að
þeim hefði verið um og ó, eftir
að krabbameininu hafði verið
dælt í þá. Einn þeirra sagði: —
Þarna lágum við bara og vissum
að það var komið krabbamein í
okkur og við gátum ímyndað okk-
ur að það væri að breiðast út um
allan líkamann. Af ýmsum ástæð
um voru þeir þó reiðubúnir að
gefa sig fram sem sjálfboðaliða.
Einn, sem hafði verið dæmdur í
fangelsi fyrir manndráp sagði t.
d.: „Ég hafði tekið mannslíf og
mér fannst eina leiðin til að bæta
fyrir það, að fórna mínu eigin
lífi fyrir mannkynið“.
Skotið á Ngo
SAIGON, 22. febr. — Ngo Dinh
Diem, forseta Suður-Viet-Nam,
var sýnt banatilræði í morgun. —
Hann var viðstaddur vígslu á
nýju sjúkrahúsi í smábæ einum
í landinu.
Þá tók óþekktur maður í áhorf-
endahópnum upp skammbyssu og
hleypti skoti af í áttina til for-
setans. Skotið geigaði hins vegar
og hitti landbúnaðarráðherra S.-
Viet-nam, sem særðist hættu-
lega. — Reuter.