Morgunblaðið - 23.02.1957, Síða 6
6
MORGUNfílAÐlÐ
Laugardagur 23. febrúar 1957
Myndin er tekin á þingi Norðurlandaráðsins í Helsinki. Fulltrúum er raðað í salinn cftir stafrófsröð
og sjást hér í fremri röð, talið frá vinstri: Kjell Bondevik, Noregi; Sigurður Bjarnason; Bjarni
Benediktsson; Arvid Andersson, Svíþjóð; Nina Andersen, Danmörk. í aftari röð eru, talið frá
vinstri: Olavi Kajala, Finnlandi; Sigfrid Jonsson, Svíþjóð; Emil Jónsson; Hákon Johnsen, Noregi.
Hvers vegna er afli brezkra tog-
ara minni en íslenzkra og þýzkra?
Atkvæðagrei&sla við 2. umr. fjárlaga:
Hemonn á méti nyju vnrSskipi
— lugnr stjérnoriiða
til dreifbýlisins
IFYRRADAG fór fram í Sameinuðu þingi atkvæðagreiðsla að
lokinni annarri umræðu fjárlaga. Allar breytingatillögur
minnihluta fjárveitinganefndar voru felldar, þær, sem ekki voru
teknar afíur til þriðju umræðu, en allar breytingatillögur sem
nefndin stóð óskipt að hins vegar samþykkíar nema ein, sem
tekin var aftur til þriðju umræðu.
Fishing News rœðir alvarlegt vandamál
brezku togaraútgerðarinnar
BREZKA fiskveiðitímaritið Fishing News undrast það mjög hve
afli brezkra togara, sé að jafnaði miklu lakari, en afli ýmissa
annarra og það þótt samanburður sé gerður á togurum, sem verið
hafa að veiðum á sömu miðum og á sama tíma.
Það er einnig athyglisvert, segir blaðið að þegar dregur úr fisk-
löndunum vegna illviðris og aflabrests hjá brezkum togurum, þá
er eins og það séu alltaf íslenzku og þýzku togararnir sem hlaupa
undir bagga á brezka markaðnum og koma með mikinn og góðan
afla, sem brezku togurunum tókst ekki að fá.
SAMANBURÐUR
Þessi munur hefur verið sér-
staklega áberandi í janúar. Þann
2. janúar landaði íslenzki togar-
inn Marz um 1600 kittum, en sam-
dægurs kom enski togar. King
Sol af sömu miðum með aðeins
1200 kit.
Þann 5. janúar kom íslenzki
togarinn Jón Þorláksson og land-
aði 2700 kittum og samdægurs af
sömu miðum enski togarinn Stoke
City með um 1200 kit.
Tveimur dögum síðar landaði
þýzki togarinn Germania 3000
kittum frá Hvítahafinu en af
brezkum togurum var hæstur
Stockham með 1900 kit.
Þann 10. janúar landaði þýzki
togarinn Schutting 3000 kittum
frá Færeyjum. Samdægurs land-
aði enski togarinn Burfell 560
kittum af sömu miðum.
MIKIÐ VANDAMÁL
Þetta telur blaðið að sé að
verða hið mesta vandamál. Brezk
togaraútgerð sé að hætta að vera
samkeppnisfær. Reynir blaðið síð
an að leita nokkurra skýringa
á málinu.
Hvað við kemur afla þýzku
togaranna, segir blaðið þá hafa
þeir þann sið, að er þeir hafa
aflað 1500—2000 kitta, koma
þeir við á heimleiðinni á Rosen-
garten-bankanum og fylli sig í
skyndi með karfa. Brezku togara-
eigendurnir hafa engan áhuga á
karfaveiðum og það þótt mark-
aður hafi aukizt í Engl. fyrir
karfanum.
Varðandi þá skýrgreiningu
brezkra togaramanna, að afli
þeirra sé minni en útlendinganna,
af því að þeir leggi áherzlu á
fiskgæðin en ekki magnið, segir
Fishing News að þær röksemdir
fái ekki staðizt. Afli útlendu tog-
aranna sé engu lakari að gæðum.
HVERNIG ERU SKIPIN
MÖNNUÐ?
Þá skýrir það e.t.v. eitthvað í
þessu máli, að skv. samningum
milli togaraeigenda og sjómanna
má ekki vera nema 20 manna á-
höfn á enskum togurum sem
sækja á fjarlæg fiskimið. — Á
þýzkum togurum eru 25 menn og
á ísl. 32 menn. Þeir vinna í þrem-
ur vöktum og enginn meira en 12
klst. á sólarhring. Bæði geta
fleiri menn verið fljótari að
ganga frá fiskinum og svo hef-
ur það mikla þýðingu fyrir vinnu-
þrek þeirra að fá 12 klst. hvíld.
Ástandið á brezkum togurum
er mjög mismunandi eftir því
sem skipstjórinn vill vera láta,
en það er algengt, þegar togarinn
er á miðunum, að menn vinni
18 klst. á sólarhring og hafi 6
klst. hvíld.
Skólomófið
í handknattleik
HANDKNATTLEIKSMÓTI skól-
anna var fram haldið í gær og
urðu þá úrslit þessi:
4. flokkur:
Lindargsk. — Laugarnessk 9:6.
Réttarhsk. — Gagnfrsk V. 5:6.
Gangfrsk Vesturb. situr hjá.
Kvennaflokkur:
Verzlunarsk. — Kvennask. 1:2.
3. flokkur karla:
Landsprófsd., A-lið — Flens-
bbrg 4:7.
Verzlunarsk. — Gagnfræðask.
Verknáms 4:6.
Gagnfrsk. A — Gagnfrsk. V 6:7.
1. flokkur:
Háskólinn — Menntask. 16:13.
Iðnsk. í Rvík — Vélsk. 22:17.
Harðindaveðrátta
við Djnp
ÞÚFUM, 21. febr. — Marga und-
anfarna daga hefur verið sífelld
norðanátt og harðindaveð:-átta.
Nú í dag er bjart og gott veður
og vonast menn eftir uppstyttu
á óveðrinu. Snjór er ekki mikill
vestan Djúps, en komin nokkur
fönn á ströndina. Hagar eru enn
fyrir fénað þegar veður leyfir
útbeit. — P. P.
VEIÐARFÆRI OG AGI
Einnig bendir blaðið á það að
veiðarfæri þýzku togaranna séu
nokkuð léttari en tíðkast í Eng-
landi. Agi á þýzku skipunum er
mjög strangur og krafizt fullkom-
innar reglusemi. Líklega hafa
þýzku sjómennirnir betri æfingu
en þeir brezku.
BJÖRGUÐU MARKAÐINUM
Að lokum segir Fishing News:
— Þýzkir og íslenzkir togar-
ar hafa vissulega verið vel-
komnir með afla sinn til
brezkra hafna í janúarmánuði.
Það hefur komið fyrir oftar
en einu sinni að þeir hafa al-
gerlega bjargað fiskmarkaðin-
um í Grimsby. Ef þeir hefðu
ekki komið, hefði engan fisk
verið að fá.
FEL.L.D HÆKKUN TIL VEGA
Minnihlutinn lagði til að allar
fjárveitingar til nýbyggingar
vega í landinu yrðu hækkaðar
um 15%. Var engum vegum þar
mismunað en jafnt látið yfir alla
ganga. Stjórnarliðið felldi sem
fyrr segir þessar tillögur.
Ennfremur sameinaðist stjórn
arliðið um að fella till. minni-
hluta fjárveitinganefndar um
endurbygging þjóðvega, endur-
bygging gamalla brúa og til fjall-
vega.
Kom þannig fram í verki hin
margumtalaða umhyggja stjórn-
arliða fyrir strjálbýlinu.
HERMANN Á MÓTI
VARDSKIPI
Það vakti athygli að dóms-
málaráðherra, Hermann Jónas-
son greiddi atkvæði á móti til-
lögu um að nýr liður skyldi tek-
inn inn á fjárlög, en það var 2
millj. kr. framlag til smíði nýs
varðskips. Hafði hann þó lagt
þetta erindi fyrir fjárveitinga-
nefnd. Nafnakall var viðhaft um
tillögu þessa, en hún var felld
með 29 atkvæðum gegn 14, en
9 voru fjarverandi.
ÞINGMANNATILLÖGUR
FELLDAR.
Þá voru þær breytingatillögur
einstakra þingmanna, sem upp
voru bornar, felldar. Má þar
nefna tillögu Frá Magnúsi Jóns-
syni um að greiða helming á-
fallins kostnaðar við boranir eft-
ir heitu vatni í Ólafsfirði og till.
frá Jóni Pálmasyni um að hækka
fjárveitingu til hafnarinnar á
Skagarströnd úr 100 þús. kr. í
600 þús. kr.
BRÚIN Á NORÐURÁ
Viðhaft var nafnakall um til-
lögu frá minnihluta fjárveitinga-
nefndar um að fjárveiting sú
sem er í fjárlagafrumvarpinu til
Norðurárbrúar í Skagafirði verði
af henni tekin og féð veitt til brú-
ar á Hjaltadalsá. Með því að
byggja Norðurárbrú 4 km innar
í dalnum, heldur en frv. sam-
göngumálaráðherra hafði ákveð-
ið þvert ofan í tillögur vegamála-
stjóra og verkfræðinga, er nú þeg
ar til nægilegt fé til þess að
byggja brúna.
Þess vegna var lagt til að þetta
fé væri veitt til brúar á Hjalta-
dalsá. En það var sem fyrr seg-
ir fellt.
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
Á MÓTI STÚDENTUM
Felld var einnig till. minni-
hluta fjárveitinganefndar um
hækkað framlag til lánasjóðs
stúdenta um 100 þús. kr. og vek-
ur það athygli að menntamála-
ráðherra greiddi atkvæði gegn
tillögunni.
shrifar úr
daglega lifinu
]
f „eftirlitsför“
ÞAÐ ER alltaf fróðlegt að skoða
sig um í bókaverzlunum
bæjarins og sjá, hvað þær hafa
upp á að bjóða. Það hlýtur að
gefa nokkra mynd af andlegu
ástandi þeirra sem bækur lesa
hér á landi, en jafnframt sýnir
slík „eftirför" bókmenntasmekk
verzlunarstjóranna. Eg vil taka
það strax fram, að í öllum bóka-
verzlunum bæjarins eru á boð-
stólum ágætar bækur sem eiga
erindi við okkur öll. En svo er
hitt annað mál, að í þeim flest-
um úir og grúir af alls konar
bókarusli sem setur smánarblett
á aldagamla bókmenningu okk-
ar. Ekki vegna þess að bækurnar
séu vaxnar úr íslenzkum jarðvegi
heldur hins að þær eru hér til
sölu og keyptar af allstórum hópi
manna. Bækur þær sem hér er
átt við eru flestar bandarískar
að uppruna og sennilega keyptar
fyrir dýrmæta dollara. Þessar
vasabækur fjalla aðeins um
tvennt: morð og óeðlilegar kyn-
ástríður. Kápurnar eru venju-
lega prýddar magaberu kven-
fólki og skuggalegum náunga
með skammbyssu í hendi. Sumir
höfundar þessara bóka eru heims-
frægir, að því er sagt er, og „bók-
menntasérfræðingar" reka upp
stór aúgu, ef einhver er svo for-
hertur að kannast ekki við þá!
En það er nú svo, að sumir hafa
komizt hjá því hingað til að
blanda geði við höfunda bóka eins
og „The Venus Death“ og „Dead,
she was beautiful“. Báðar þessar
bækur (og þeirra líkar) tróna í
bókaverzlunum hér í bæ. Hverj-
um til góðs? Væri ekki nær að
nota þann gjaldeyri sem eytt er
í þær til þess að kaupa góðar
Norðurlandabækur sem sjást
varla hér á landi. Að vísu hefir
alltaf verið hægt að fá sígild
verk Norðurlandahöfunda, en
sama og ekkert verið flutt inn af
nýjustu bókunum. Þegar þær eru
til umræðu, eru flestir íslending-
ar, eins og álfar út úr hól. Sumir
eru kannski þeirrar skoðunar, að
það sé nóg að efna til norrænna
bókasýninga einu sinni á 10 ár-
um. En það er rangt. Frændur
okkar eiga prýðisgóðar bók-
menntir, a. m. k. geta þær keppt
við Venus og dauðann!
Kraftaverk —
VIÐ minntumst á bandarískar
glæpabækur hér að framan.
En menn mega ekki skilja það
svo, að frá því landi komi aðeins
lélegar bókmenntir. Bandaríkja-
menn eru þvert á móti að taka
að sér forystuhlutverk á bók-
menntasviðinu og útgáfa þeirra á
góðum bókum gengur kraftaverki
næst. Það er af sem áður var,
þegar Eliot, Pound og fleiri góð-
ir menn þurftu beinlínis að
hrökklast úr landi vegna lítils á-
huga Bandaríkjamanna á góðum
bókum. Þá var talað um, að bók-
menntalega séð væru Bandaríkin
hálfgerð eyðimörk. Nú er þar
gróðurríki mikið og bandarískar
bókmenntir og bókaútgáfa hafa
borið glæsilegri ávöxt en áður
þekktist. Sem betur fer höfum
við einnig notið góðs af því. Er
vonandi, að haldist í horfinu —
og við fáum Signet og Mentor um
leið og þær koma út. Þessi merki
tryggja yfirleitt góðar vasabæk-
ur — og ósjaldan hinar
beztu — en þar koma auðvitað
mörg önnur fyrirtæki til greina.
600 titlar
AÐ LOKUM langar mig að
minnast lítillega á bókaúr-
valið hjá Bókaverzlun Snæbjarn-
ar Jónssonar um þessar mundir.
Er það eitt hið glæsilegasta sem
hér hefur sézt. Verzlunin hefur
á boðstólum um 600 titla og eru
þar á meðal fjölmörg sígild verk.
Bækurnar kosta kr. 6,60 — kr.
13.20 og þykir það ekki mikill
peningur nú á dögum. Þó að Budd
enbrooks Th. Manns sé þarna að
vísu aðeins á ensku, má ætla, að
það þyki reyfarakaup að fá hana
fyrir kr. 13.20. Og svo er nú þess
lika að gæta, að það eru fæstir
sem lesa orðið þýzku hér á landi.
Þarna er því ágætt tækifæri að
slá þrjár flugur í einu höggi: að
kaupa góða bók á máli sem menn.
skilja — og það á aðeins nokkrar
krónur.