Morgunblaðið - 23.02.1957, Page 20
Veðrið
A-stinningskaldi, slydda eða
rigning öðru hvoru
Kenning Einsfeins
Sjá blaðsíðu 11.
45. tbl. — Laugardagur 23. febrúar 1957.
Stýrimann tekur út
af (Jranusi
IGÆRMORGUN barst útgerðarstjórn Júpiters h. f. hér í Reykja-
vík skeyti frá skipstjóranum á Úranusi þess efnis að annar
stýrimann hefði tekið út og hann týnst.
Maður þessi hét Þorsteinn Jó-
hannsson frá Siglufirði, mikill
dugnaðar- og reglunraður, sem
búinn var að vera hálft annað ár
á Úranusi og naut trausts yfir-
manna sinna á skipinu og eig-
enda þess.
Þorsteinn var sonur hjónanna
Jóhanns Jónssonar og Herdísar
Þorsteinsdóttur, sem búsett enu
á Siglufirði. Þorsteinn var þriðji
maður' í móðurkyn frá Þorsteini
Þorleifssyni í Kjörvogi á Strönd-
um, sem var á sinni tíð þjóð-
kunnur sjósóknari og formaður.
Þorsteinn stýrimaður var bróð-
ursonur Sigurjóns Jónssonar fyrr
um bankaútibússtjóra á Isafirði.
Auk þess sem mikill harmur
er kveðinn að foreldnum þessa
unga, dugandi sjómanns, lætur
hann eftir sig unnustu hér í
ÍBeykjavík, Önnu Árnadóttur.
Togarinn Úranus var, skömmu
áður en slysið varð, kominn út
af Vestfjörðiam eftir að hafa fylgt
togaranum Guðmundi Júní til
hafnar á Patreksfirði, en svo
mikill leki hafði komið að Guð-
mundi Júní að hann bað fylgdar
til hafnar.
Tæpl. 400 fl. af
áfengi teknar
Dettifossi
TOLLVERÐIR hafa gert mjög
ýtarlega leit að áfengi um borð
í De.ttifossi, sem liggur hér í
Reykjavíkurhöfn. Heita má að
frá því skipið kom, hafi tollverð-
ir verið þar að leita áfengis. í
gærkvöldi voru þeir búnir að
flytja í land úr skipinu tæplega
400 flöskur, og lítils háttar af
öðrum varningi.
r
Utvegsbankinn opnar
fyrsta útibú sitt í bænum
KVEIKT hefur verið á neon-
ljósaskilti: Útvegsbanki ís.
lands og öðru skilti yfir dyrum:
lands, og öðru skilti yfir dyrum:
sonar að Laugavegi 105. Skiltin
gefa til kynna að þar sé Útvegs-
bankinn nú að opna útibú. í dag
tekur það til starfa og veitir því
forstöðu Björn Hjartarson. Er
þetta fyrsta útibú Útvegsbankans
hér í bænum.
Bankastjórar bankans buðu
nokkrum gestum að skoða útibú-
ið í fyrradag, en þar eru ekki
mikil salarkynni, en afgreiðsla er
hin vistlegasta og verða þar rekin
öll venjuleg sparisjóðs- og
hlaupareikningsviðskipti.
Valtýr Blöndal, bankastjóri,
sagði við þetta tækifæri, að það
sé höfuðtilgangur bankans með
þessu útibúi að auka þjónustuna
við almenning og viðskiptavini
bankans.
Á síðari árum hefur sem kunn-
ugt er aukizt mjög verzlun, iðn-
aður og viðskipti í Austur-
bænum og það er ætlun Útvegs-
bankans með þessu að bæta fyrir-
greiðsluna við hið aukna við-
skiptalíf í þessum bæjarhluta.
Að sjálfsögðu er bankanum
mikið áhugamál, að sparisjóðs-
innlögin aukist, til eflingar lána.
starfsemi bankans, og leggur
hann því áherzlu á, að viðskiptin
geti orðið sem greiðust.
Hið nýja útibú verður opið dag-
lega frá kl. 10—12.30 og frá kl.
3.30—6.30. Á föstudögum verður
opið til kl. 7,30, en lokað kl.
12,30 á laugardögum.
Stórhýsi Sveins Egilssonar er
meðal stærri bygginga í bænum.
Var húsið múrhúðað í fyrrasum-
ar og var það mjög smekklega
gert, en þar átti Útvegsbank-
inn hlut að máii í sambandi við
útibúið. '
LISTI LVlRJESISSIHNH I IIJD
ER B-LESTI
Guðjón
Ingimundur Þorvaldur
Ingólfur
Jona
Ingibjörg
Steinn Ingi
Iðjufélagar!
Svarið árás kommúnista
í DAG og á morgun fer fram
kjör stjórnar og trúnaðarmanna
í Iðju, félagi verksmiðjufólks í
Reykjavík. Hafa kosningar þess-
ar vakið mikla athygli, enda vit-
að mál, að kommúnistar eru nú
í fyrsta sinni lafhræddir um að
missa völdin í þessu gamla vígi
sínu, sem þeir þráfaldlega hafa
notað í þágu flokks síns.
Tveir listar eru í kjöri, A-list-
inn, sem skipaður er kommún-
istum og B-listinn, borinn fram
af lýðræðissinnum og er hann
þannig skipaður:
Formaður:
Guðjón Sv. Sigurðsson,
Harpa hf.,
Varaformaður:
Ingimundur Erlendsson,
Skógerðin hf.
Ritari:
Þorvaldur Ólafsson,
Kassagerð Reykjavíkur.
Gjaldkeri:
Ingólfur Jónasson,
Meðstjórnendur:
O. Johnson & Kaaber.
Jóna Magnúsdóttir,
Andrés Andrésson hf.,
Ingibjörg Arnórsdóttir,
Svanur hf.,
Steinn Ingi Jóhannsson,
Feldur hf.
Varastjórn:
Björn Jónatansson,
Kassagerð Reykjavíkur,
Listkynning Morgunblaðsins
StuðliB að sigri B-lisfans
Búi Þorvaldsson,
Víkingur hf.
Svavar Guðnason,
Nýja Skóverksmiðjan.
KJÖRFUNDUR
Kosningin hefst kl. 1 í dag og
stendur til kl. 9 í kvöld. Kl. 9 í
fyrramálið hefst kjörfundur aft-
ur og stendur til kl. 5 e.h. og er
þá kosningu lokið. í blóra við
lög félagsins hafa kommúnistar
valið þennan óhagstæða kosninga
tíma, þar eð þeir treysta flokks-
vél Sósíalistaflokksins til að
smala liði þeirra á kjörstað hve-
nær sem er, enda þótt öðrum
Iðjufélögum komi það illa.
Kosið er að Þórsgötu 1 og verð-
ur þar jafnframt staðsett kosn-
ingamiðstöð fyrir kommúnista.
Aðra kosningabækistöð hafa þeir
að Tjarnargötu 20 og eftir skrif-
um „Dagsbrúnarmanns“ í Þjóð-
viljanum í fyrradag að dæma
verður sú þriðja á skrifstofu þess
félags.
VERKST J OR ALISTINN.
Listi sá sem kommúnistar hafa
borið fram gengur almennt með-
al iðnverkafólks undir nafninu
verkstjóralistinn, þar sem efstur
á honum er yfirverkstjórinn
Björn Bjarnason og einnig eru á
listanum fleiri menn úr þeirri
stétt. Er það furðuleg ósvífni, að
þessir menn skuli brigzla öðrum
um þjónkun við atvinnurekend-
ur, sem þeir sjálfir standa miklu
nær.
Minninprlafla um
skipverja Varðar
PATREKSFIRÐI, 22. febr. — 29.
jan. sl., var fest upp í Eyrar-
kirkju, minningartafla um skip-
verjana á togaranum Verði, sem
fórust með honum 29. janúar
1950. Fyrirtækið Ó. Jóhannesson
hf. gaf töflu þessa. — Karl.
Þetta er mynd af einu málverka Brynjólfs Þórðarsonar, sem verið hafa til sýnis í glugga Morgun-
blaðsins þes&a vikuna. Er það frá Þingvölium, málað 1931.
Hvað hafa kommúnistar
yert vii peninga Iðju?
VIÐ þá gagnrýni, sem að undanförnu hefur verið haldið
uppi á óstjórn kommúnista í Iðju, hefur m. a. komið í
ljós ,að fjármunum félagsins hafa þeir varið þannig, að
jafnvel úr þeirri átt bjuggust' menn varla við öðru eins.
Skal hér aðeins bent á fáein dæmi þessu til sönnunar, enda
erfitt um vik, þar sem gögn félagsins eru enn leyndarskjöl
kommúmsta.
1. Það er staðreynd, og jafnvel Björn Bjarnason játar
það umbúðalaust, að úr sjóði Iðju hafa kommúnistar
ausið þúsundum króna til kaupa á flokksbækistöð
kommúnista, Tjarnargötu 20.
2. Það er staðreynd að s.l. ár var kostnaður við skrifstoíu
Iðju á Þórsgötu 1 mikið á annað hundrað þúsund króna.
Svo gífurlegur er skrifstofukostnaðurinn, þótt vitað sé,
að öll starfsemi var þar í kaldakoli og eintóm óreioa
ríkjandi. Á það að heita kattarþvottur Björns Bjarna-
sonar að sparka nú starfsmanni félagsins, Halldóri
Péturssyni, úr stjórn eftir 15 ára starf?
3. Það er staðreynd, að Iðja á nú útistandandi mikið fé
tryggt með skuldabréfum. Hverjum hafa kommúnistar
lánað allt þetta fé og hvers vegna er ekki nokkur leið
að fá þá til að leggja skjölin á borðið og gera einhverja
grein fyrir þessari peningastarfsemi?
Iðjufélagar krefjast þess og eiga heimtingu á því að fá að
vita allt um þessi peningamál svo og önnur vafasöm atriði
varðandi stjórn félagsins. Kommúnistar munu liggja vand-
lega á allri vitneskju um óstjórn sína á Iðju, meðan þeir
halda völdum í féraginu. Eina ráðið til þess að hreinsa hið
grugguga andrúmsloft er því að veita þeim lausn í náð og
stuðla að sigri lýðræðissinna með því að kjósa B-listann.