Morgunblaðið - 29.05.1962, Page 13
friðjudagur 29. maí 1962
MORGVNBLAÐIÐ
13
Samandregið álit ýmissa
helztu sérfræðinga
NIKITA Krúsjefif hefur farið
frekar friðsamlega að öllu
síðastliðna mánuði, forðast
oísafengnar ihótanir og ófrið-
samlegar aðgerðir.
Kjarnorkutilraunir Banda-
ríkjanna virðast ekki hafa
raskað ró hans. í viðræðum
við vestræna menn hefur
hann verið sáttfús. Hersýning
in 1 Moskvu 1. maí var aðeins
náu mínútna löng, og á henni
var ekkert nýtt að sjá.
Hvað veldur? Skoðanakönn
un meðal Rússlandssérfræð-
inga í helztu hötfuðborgum
heims hefur leitt í ljós, að
flestir rekja rósemi hans til
þess, að hann sé önnum kaf-
inn við hættuleg vandamál
heima fyrir. Þessi vandamál
eru stjórnmálalegs, efnahags-
legs og félagslegs eðlis.
Nokkrir telja að hann sé
að leggja gildru fyrir Vestur
veldin, til að fá þau til að
koma með ótímabær friðartil-
er helzt að finna meðal eldri
kommúnista og í hernum.
Hvorugum tókst að ráða nið-
urlögum hins.
Þessi stjórnmálalegu vanda
mól eiga að miklu leyti rætur
sínar að rekja til spurningar-
innar miklu, sem svo ákaflega
er deilt um: hvernig bezt sé
að skipta náttúruauðlindum
landsins milli framleiðslu-
greinanna, Sovétríkin eiga
mikil náttúruauðæfi, en þau
eru ekki ótakmörkuð. Rússum
hefur aðeins tekizt að halda
áfram geimferðakapphlaup-
inu með því að nota þessar
auðlindir til annars en bæta
lífskjör almennings.
Sagt er, að Krúsjeff hafi
verið ljóst, allt frá því Rúss-
ar tóku fyrst forystuna í geim
ferðum, að þejm tækist að-
eins að halda henni um
skamma hríð. Bandaríkin
hafa miklu meiri iðnmætti og
auðæfum á að skipa.
Þungaiðnaður Sovétrikjanna
vex hratt, en framleiðsla
neyzluvarnings stenzt hvergi
nærri áætlun.
geimrannsóknir. Krúsjeff er
nýbúinn að játa tilboði frá
Kennedy um slíka samvinnu.
F.fnahagsleg klípa
Það er nú orðið lýðum
ljóst, að allar tilraunir til að
koma í veg fyrir viðreisn
Vestur-Evrópu, hafa farið út
um þúfur, þrátt fyrir mikla
viðleitni Stalíns, og síðar
Krúsjeffs, við að sundra Ev-
rópu og hindra samskipti við
Bandaríkin, bæði efnahags-
lega og hernaðarlega.
f hjarta Evrópu vex Sam-
eiginlega markaðnum fiskur
um hrygg utan um Vestur-
Þýzkaland, Frakkland og
ítalíu. Bretar hafa beðizt
inngöngu og margar smærri
þjóðir eru að þreifa fyrir
sér um inngöngu. Allar hót-
anir frá Moskvu nú myndu
senda „hlutlausu" löndin í
Evrópu beint inn í samsteyp
una.
Löndin, sem Krúsjeff von-
aði einu sinni að ná undir
kommúnismann, eru nú auð-
sælli en kommúnistaríkin í
Austur-Evrópu. í Vestur-Ev-
rópu stendur allt efnahags-
líf í blóma, en kommúnista-
ríkin í Austur-Evrópu staðna
í fátækt.
í mörgum höfuðborgum er
Hin dularfulia ró Krúsjeffs
boð. Þá gæti Krúsjeff, eins
og áður, heimtað tilslakanir og
gerzt síðan frekur og heimtað
meiri tilslakanir. En aðeins
mikill minnihluti er á þessari
skoðun.
Pólitísk allsherjarslagsmál
Hið nýafstaðna flokksþing
varð að allsherjarslagsmálum
á stjórmnólasviðinu. Krúsjeff
varð fyrir árásum þeirra, sem
eftir eru af hinum svokallaða
stalínistaarmi flokkssins. Þá
f vetur hefur verið mikið
kvartað um skort á matvæl-
um í ýmsum rússneskum borg
um. og þær hafa komizt fljótt
til æðstu manna. Krúsjeff er
afar viðkvæmur fyrir skoð-
unum flokksbræða sinna, Og
þeir sem hafa talað við hann
í seinni tíð, segja að hann hafi
þungar áhyggjur af landbún-
aðinum.
Rússneskir kommúnistar
verða að geta boðið bænd-
um betri kjör, meiri áburð
og vinnuvélar, ef þeir eiga
að fást til að framleiða
meira. En framleiðslugeta
iðnaðarins er nærri öll bund
in £ vígbúnaðar- og geim-
ferðakapphlaupunum. Til að
auka framleiðslu matvæla
og neyzluvarnings yrði að
taka verksmiðjur og menn
frá vopna- og geimfara-
smíði. Herinn er þeirri að-
ferð andvígur.
Ein leið til björgunar fyr-
ir Krúsjeff er að hefja sam-
vinnu við vestræn ríki um
talið að einbeittni Bandaríkja
manna í Berlínar-málinu eigi
sinn þátt í hinni nýju hóg-
værð Krúsjeffs. Hann hefur
sannfærzt um, að hann fær
ekki Berlín án stórstyrjald-
ar, sem hann vill forðast.
Vísindamenn, sem komið
hafa nýlega til Rússlands
hafa uppgötvað enn eina
ástæðu fyrir friðsemi Krús-
jeffs: Rússar flytja nefnilega
inn rafheila frá Vestur-Ev-
rópu til að vinna að fjar-
skiptum, skipulagningu og
stjórn auðlinda og mannafla.
Krúsjeff leggur mikla
áherzlu á þessa vinnu. Hann
hefur litla skólamenntun
fengið, en eigi að síður eru
40% af ráðgjöfum hans vís-
indamenn. Bæði Krúsjeff og
þessir ráðgjafar vita vel, að
Rússar eru háðir vestrænum
ríkjum í vísindalegum efn-
um, og vilja ekki einangra
landið.
Félagslegar breytingar
Krúsjeff er líka hrjáður af
félagslegum vandamálum:
Hinir ungu menn, sem út-
skrifast úr háskólum og
tækniskólum landsins, hafa
verið aldir upp í þeirri trú,
að þjóðfélagið myndi veita
þeim góð lífskjör. Og nú
krefjast þeir betra lífs. Þeir
hafa engan áhuga á heims-
byltingu gömlu bolsévik-
anna.
Einn af helztu Rússlands-
fræðingum Bandaríkjanna
segir:
„Krúsjeff hlýtur að vera
þroskaðri í dag en fyrir
nokkrum árum. Hann sér að
valdahlutföllin eru að verða
honum óhagstæð. Viðreisn Ev
rópu og Japans með hjálp
Bandaríkjanna hefur slegið
allar stoðir undan þeirri
kenningu marxista, að „auð-
valdsskipulagið sé komið á
fallanda fót“.
Krúsjeff hefur ekki heppn-
azt vel að ná fylgi í Asíu,
Afríku og nálægari Austur-
löndum. Kína klórar í bak-
dyrnar hjá honum, hungruð
og þungbúin. Rússland sjálft
er enn langt á eftir Banda-
ríkjunum í almennri iðnfram
leiðslu og enn lengra á eftir
í matvælaframleiðslu.
Verði engar meiriháttar
breytingar í Moskvu má bú-
ast við hiki og varúð þar. —
Krúsjeff er of sterkur til að
tefla veikt og of veikur til
að tefla til vinnings. — f
kommúnistaheiminum eru að
verki öfl, sem stuðla að
breytingum. Þessar stað-
reyndir liggja að baki frið-
semdar Krúsjeffs“.
Náttúruíræöifélagið
fer 3 fræðsluferðir
a uppstigningardag í Kapelluhraun
HIÐ íslenzka náttúrufræðifélag i son.
hefur ákveðið að efna tli þriggja Skoffuð jarfffræffifyrirbrigffi
Sinióníutónleikar
fræðsluferða í sumar, en þessar
ferðir félagsins þar sem til
leiðsagnair eru fróðir leið-1
beinendur hafa á undan-
iförnum sumrum notið mi'killa
vinsælda. Fyrsta ferðin verður
farin á uppstigningardag, 31.
maí. Er það síðdegisferð að upp
takagígum Kapelluhrauns og um
Undirhlíðar að Kaldá, einkum
til að skoða landslag og jarð-
myndanir. Verður lagt upp frá
Ðúnaðarfélagshúsinu x Lækjar-
götu kl. 2 og ekin Krýsuvíkur-
leið suður undir Vatnsskarð, en
píðan gengið um 8 km. leið að
Kaldárseli, þangað sem hópurinn
verður sóttur. Er mönnum ráð-
lagt að hafa með sér nesti og
drykk.
Gróður- og plöntuskoffun
Þann 1. júli verður farin síð-
degisferð til gróðurskoðunar og
plöntusöfnunar að Ástjörn við
Hafnarfjörð. Verður farið kl. 2
frá Búnaðarfélagshúsinu og geng
»ð frá Hvaleyrarholti kl. 2,30,
um 4—ð kim. leið. Meðal leið-
beinenda verða grasafræðingarn-
»r Eylþór Einarsson, Ingimar
Óskarssou og Ingólfur Davíðs-
í ágústmánuði verður farin
þriggja daga ferð austur urrjj
sveitir og vestur Landmannaleið.
Verður lagt upp 17. ágúst og ekið
austur £ Skaftártungu og gist ná-
lægt efstu bæjum. Á laugardag
verður ekið vestur Landmanna-
leið í Landmannalaugar og á
sunnudag til Reykjavíkur. Eink-
um verða skoðuð jarðfræðifyrir-
bæri, m. a. á undirlendinu: sand-
ar fornir og nýir (auravötn og
Skaftáreldahraun og að fjalla-
baki: Eldgjá, e. t. v. útsýni til
Lakagíga, líparitfjöll,, hrafn-
tinnuhraun og brennisteinshver-
ir. Meðal leiðbeinenda verða Guð
mundur Kjartansson og Eyþór
Einarsson. Þátttakendur sjá sér
sjálfir fyrir tjöldum og nesti.
Þátttaka £ síðdegisferðum
er öllum heimil og þarf ekkert
um hana að tilkynna fyrirfram.
En í þriggja daga ferðinni verð-
ur að takmarka þátttöku við
90—100 manns. Aðeins félags-
menn koma til greina. Þeir ganga
fyrir sem fyrstir gefa sig fram
og greiða 200,00 kr. upp í far-
gjaldið. Nánari upplýsingar um
ferðirnar eru í Náttúrugripasafn-
ÞAD VAR gamall kunningi reyk-
vískra tónleikagesta, Olav Kiel-
land, sem hélt á taktstokknum
ó tónleikum Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands í samkomuhúsi Há-
skólans fimmtudagskvöldið 17.
maí, og aðalviðfangseflnið var
ný sinfónía eftir hann. Hvort-
tveggja var fagnaðarefni hinum
mörgu vinum hans hér.
Sinfónían nr. 2 eftir Olav Kiel-
land, sem nú var flutt hér í
fyrsta skipti, er samin á árun-
um 1960—61 og var frumflutt í
Bergen í október s.l. undir stjórn
höfundarins. Hafði hann hlotið
verðlaun fyrir verkið. Sinfónían
er myndarlegt þróttmikið og á
köflum áhrifaríkt tónverk. Hún
byggist á fáum frumhugmynd-
um, og ber úrvinnsla þeirra
vinnubrögðum tónskáldsins gott
vitni, ekki sízt í hinum smærri
atriðum. En þrátt fyrir þær
myndbreytingar, sem í stefjun-
um verða, byggist framvinda
verksins í hinum stærri drátt-
um fremur á endurtekningu en
Sýslufundur í N-ís
ÍSAFIRÐI, 19. maí — Dagana
25. apríl til 1. maí var haldinn
sýslufundur í N-ísafjarðarsýslu.
Meðail samiþykkta var ein um
kr. 200 þús. hlutafjárkaup í vænt
anlegum nýjum djúpbát.
Samþyikkt var að afhenda ríik
issjóði eign sýslunnar í Reykja-
nesskólanum, sem orðinn er rí-k
isskóli. Til vegamála var veitt úr
sýsluvegasjóði 134 þús. Ýmsar
fleiri samþykktir voru gerðar,
sem ekki verða raktar hér. — PP
þróun og hreyfingu. Þetta er ef
til vill orsök þess, að sumir há-
punktar verksins verða ekki fylli
lega sannfærandi. Þeir verða
„dýnamískir" (styrkleikahá-
punktar), án þess að fundið
verði, að í þeim búi sú innri
spenna, sem gerir þá óumflýj-
anlega. Hægi þátturinn, með
sínu stutta, marg-endurtekna
passacagliu-stefi (sem sjálft fel-
ur í sér endurtekningu), verður
verst úti að þessu leyti. Þriðji
og síðasti þáttur verksins rís ef
til vill hæst, en einnig þar
slaknar stundum um of á spenn-
unni, einkum í hinum hæga milli
kafla. Hljómsveitarbúningur
verkins er — sem vænta mátti
— kunnáttusamlega og víða
glæsilegur, en sumstaðar e. t.
v. óþarflega íburðarmikill. —
Það var fróðlegt að skemmtilegt
að kynnast þessu verki Olavs
Kiellands.
Það sama verður því miður
ekki sagt með sannj um hin tvö
viðfangsefnin á þessum tónleik-
um. Pastoral-svíta, op. 19, eftir
sænska tónskáldið Lars-Erik
Larsson, er ákaflega aðgengilegt
verk og snyrtilegt að öllum frá-
gangi, en verður að teljast næsta
léttvægt og hversdagslegt. Berg-
ljót, kvæði Björnstjerne Björns-
sons með tónlií t eftir Grieg, sýn-
ist varla eiga erindi á efnisskrá
sinfóniskra tónleika, nema ef
vera skyldi af því, að tónleiká-
dagimn bar upp á þjóðhátíðar-
dag Norðmanna. Ef sú tilviljun
réði verkefnavalinu, hefði svít-
an eftir Larson hinsvegar átt
að víkja fyrir norsku verki. —
Guðbjörg Þorbjarnardóttir leik-
kona flutti kvæðið fallega og af
skilningi en sumum kann að
hafa þótt skorta nokkuð á skör-
ungsskap og tilþrif í meðferð
hennar á því.
Leikur hljómsveitarinnar í
öllum verkunum var með óvenju
legum glæsibrag. Kielland hafði
engu lakari tök á hljómsveit-
inni en hann hefur bezt haft áð-
ur, og heildarljómurinn var sam
felldari og kjarnmeiri en nokkru
sinni hefur verið í þessum nýja
sal Háskólans. Hljómsveitinni
var nú skipað þéttar og aftar á
sviðið en áður, og er það vafa-
laust til bóta, þótt sætaskipunin
að öðru leyti kunni að orka tvi-
mælis.
Jón Þórarinsson,
Kuldaveður í N-ís.
ÞÚFUM, 23. maí — Gróðri hef
ur farið lítið fram síðustu viku,
enda alltaf kulda veðrátta. Er
nú útlit fyrir mildara veður. —
Sauðburður er víðast byrjaður,
en ær yfirleitt hafðar á húsi enn
þá. Gengur sauðburður vel. —PP
New York, 25. maí (NTB).
Fulltrúar Norðurlandanna
á Allsherjarþingi SÞ munu
leggja fram ákveðnar tillögur
um að taka upp hagkvæmari
starfsaðferðir í samtökunum.
Sendinefndir Norðurlandanna
hafa birt samþykktir þær, er
gerðar voru á fundi utanríkis-
ráðhera ríkjanna í Reykjavík
í vikunni. Þar lýsa ráðherr-
arnir yfir stuðningi sínum við
SÞ, en mæla jafnframt með
nokkrum umbótum á skipu-
lagi samtakanna.