Morgunblaðið - 28.02.1963, Síða 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 28. feb’rúar 1963
Sat oft við gluggann
í veikindum sínum
Vakti grunsemdir rússnesku njósnaranna
RÚSSNESKI njósnarinn,
Kisilev, sem nú hefur ver-
ið vísað úr landi, hefur hú-
ið að Ránargötu 21. Eitt af
þeim verkefnum, sem hann
fól Ragnari Gunnarssyni,
var að afla sér upplýsinga
um fólkið, sem hýr á 3.
hæð hússins beint á móti,
Ránargötu 22, og síðar bað
hann Ragnar að afla sér
upplýsinga um fólkið á 1-
hæðinni.
Óttaðist Kisilev, að
fylgzt væri með ferðum
hans af fólkinu hinum meg
in götunnar.
Blaðamaður frá Mbl. fór í
gær og spjallaði við íbúana á
1. og 3. hæð hússins að Bánar-
götu 22, ef vera kynni að skýr
ing- fengist á tortryggni njósn-
arans.
Á 3. hæðinni húa ung hjón,
sem bæði eru kennarar. Hús-
bóndinn var ekki hcima, en
eiginkonan tók vel á móti
blaðamanninum.
— Hvaða skýringu getið
þér gefið á þessu atferli Rúss-
ans hinum megin götunnar,
frú?
— Mér finnst þetta hlægi-
legt. Ég hef ekki einu sinni
tekið eftir þeim hinum megin
og veit ekki hvemig þeir lita
út.
— Er nokkuð í glugganum,
sem getur vakið tortryggni
Rússanna um að fylgzt sé með
ferðum þeirra?
— Það get ég ekki skilið. 1
gluggakistunni er ekkert nem
kristalsvasi. Hann er varla
hættulegur. Utan við glugg-
ann er útvarpsloftnetið. Það
er ef til vill eitthvað dular-
fullt við það.
— Ragnar Gunnarsson kom
í heimsókn til ykkar, er það
ekki?
— Jú, hann kom á sunnu-
dagsmorgni. Ég var ekki
heima, en hann talaði við
manninn minn. Annars hefur
síminn varla þagnað í dag,
eftir að fréttin kom í blaðinu.
Kunningjarnir hafa verið að
hringja. Þeim finnst þetta
hlægilegt allt saman.
Hann Valtýr niðri á 1. hæð-
inni getur ef til vill gefið
ykkur nánari skýringu af
hverju tortryggni Rússanna
stafar.
Blaðamaðurinn fór niður og
barði að dyrum. Þar býr Val-
týr Magnússon.
— Hvers vegna heldur þú,
Valtýr, að Rússarnir hafi ver-
ið svo forvitnir um ykkar
hagi?
— Það er kannski einna
helzt, að ég hef verið veikur,
og verið heima í langan tima
vegna _ slyss, sem ég varð
fyrir Ég sit oft við gluggann
og horfi út á götuna og er
stundum á vappi þar. Rúss-
arnir hafa líklega haldið, að
ég hafi verið að fylgjast með
þeim.
— Er nokkur útbúnaður í
glugganum, sem hefur getað
hrætt þá?
— Nei, það er ekkert slikt.
Hins vegar vinnur konan mín
í danska sendiráðinu og kem-
ur stundum heim í bílum
merktum CD. Siíkir bílar
koma oft hér að húsinu. Mér
finnst liklegasta skýringin, að
CD bilamir hafi valdið gmn-
semdum Rússanna, sagði Val-
týr. ,
Iðjufélagar, látið ekki
sundra röðum ykkar
Kjósið B.-listann
STJÓRNARKJÖR fer fram í
Iðju, félagi verksmiðjufólks í
Reykjavík um næstu helgi. Kosið
verður í skrifstofu félagsins Skip
holti 19, og hefst kosningin kl. 10
ird. á laugardag og stendur til
fcL 7 sd. Á sunnudag verður kos-
ið frá 10 árd. tU kl. 10 síðd. og
lýkur þá kosningunni.
Að þessu sinni eru þrír listar
I kjöri í Iðju, B.-listi stjórnar og
trúnaðarráðs, sem studdur er af
lýðræðissinnum, og svo listi fram
sóknar, sem borinn er fram af
Einari Eysteinssyni, sem Þjóð-
viljinn sagði í gær, að heimtað
hefði formannssæti á sameigin-
legum lista kommúnista og fram-
sóknar og á því hafi samvinna
þessara flokka strandað.
Iðjufélagar, látið ekki þau
mái sundra röðum ykkar, sækið
fram Ul betri kjara undir fomstu
þeirra manna, sem um árabil
hafa farið með stjóm Iðju og
tekizt að reisa félagið úr þeirri
rúst, er það var í, er kommún-
istar misstu þar völdin.
B.-listi lýðræðissinna er þannig
skipaður:
Guðjón Sverrir Sigurðsson,
form. Harpa; Ingimundur Er-
lendsson, varaform., starfsmaður
Iðju; Jón Bjórnsson, ritari, VifU-
fell; Ingibjörg Amórsdóttir, gjald
keri, Svanur.
Meðstjórnendur: Jóna Magnús-
dóttir, Andrési; Guðmundur Jóns
son, Nýja skóverksmiðjan og
Steinn Ingi Jóhanness, Kassa-
gerðin.
Varastjóm: Runólfur Péturs-
son, ísaga; Klara Georgsdóttir,
Borgarþvottahúsið og Ingólfur
Jónsson, O. J. & Kaaber.
Hluti af forsíðu
Þjóðviljans í gær
.Wí,'.. 'Í U« 1Í»' - ■» 1K - » tawbud
í.ý.-'tÖ'XWðftÍð'-A
. fp
ifi tS i
cíóCo>í-.;' ■
gíjdH *f Ííeii'.' i
f:<ro vrþJ v<<r> í; . j
i | j.
■>:>!' ab é;>:oi£ • > • j J»
f í Tvttm *t<vrfðiw5Hrtum
" ; úr -4 v-
— Kommúnisfar
Framihald af bls. 1.
Kommúnistaflokknum. Eða
hvers konar stjórnmálaflokk-
ur er það eiginlega, sem
lætur það viðgangast, að
menn séu árum saman með-
limir hans beinlínis í þágu
helzta andstæðingaflokksins
— og það jafnvel þó að fo»-
manni flokksins hafi lengi
verið kunnugt um það! Hins
vegar era þessi ummæli Ein-
ars og viðbrögð „Þjóðvilj-
ans“ athyglisverð að öðru
leyti, því að þau hljóta að
vekja þá spumingu, hvort
það sé yfirlýst álit forystu
Kommúnistaflokksins, að
menn geti því aðeins talizt
dyggir flokksmenn, að þeir
séu reiðubúnir til að stunda
njósnir fyrir Sovétríkin.
Um leið og meirihluti ís-
lenzku þjóðarinnar þakkar
hið þjóðholla starf Ragnars
Gunnarssonar, þá fordæmir
hún framferði hinna sovézku
njósnara og ekki síður fram-
ferði þeirra „íslendinga“, sem
með afstöðu sinni gerast i
raun og veru málsvarar hinna
erlendu aðila. Sú afstaða
þeirra mun opna augu margra
sem til þessa hafa ekki viljaS
trúa öðru en það geti vel far-
ið saman að vera dyggur
kommúnisti og um leið góður
Islendingur.
Hluti af hagnaði DAS renni
í byggingarsjóö aldraös fólks
Starfrækt skuli Sieimilishjálp
handa öldruðu fólki
RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt
fram þrjú frumvörp á Alþingi,
sem fela m. a. í sér, að til árs-
loka 1974 skuli heimilt að starf-
rækja happdrætti dvalarheimilis
aldraðra sjómanna og renni 60%
ágóðans til þess. Þá skal ágóðinn
renna til byggingarsjóðs aldraðs
fólks og loks er heimilt að veita
styrk eða lán til annarra dvalar-
heimila aldraðs fólks.
Loks er gert ráð fyrir, að
ákvæði laga um heimilishjálp í
viðlögum gildi einnig um hjálp,
sem veitt kynni að vera öldruðu
fólki um lengri tima en lögin
gera annars ráð fyrir.
Hentugar íbúðir fyrir aldrað fólk
Hlutverk byggingarsjóðs fyrir
aldrað fólk er að stuðla með lán-
veitingum og styrkjum að því
að byggðar verði hentugar íbúðir
fyrir aldrað fólk. Tekjur sjóðs-
ins éru ágóði af happdrætti dval
arheimilis aldraðra sjómanna,
frjáls framlög eða aðrar tekjur,
sem til kunna að falla, og loks
vaxtatekjur. Stjórn sjóðsins ann-
ast Tryggingarstofnun ríkisins, en
fulltrúi stjórnar DAS skal eiga
tillögurétt um lánveitingar.
Styrki og lán úr sjóðnum má
veita gegn öruggum tryggingum,
sveitarfélögum eða aðilum, sem
sveitarstjórnir mæla með og tak-
ast á hendur að reisa íbúðir
handa öldruðu fólki og mega
nema allt að 50% byggingarkostn
aði. Þá getur tryggingaráð ákveð
ið, að hluti sjóðsins komi til út-
hlutunar á vegum húsnæðismála
stjórnar og skal því fé varið
til að lána einstaklingum yfir
67 ára' að aldri til kaupa á litlum
íbúðum, sem sérstaklega eru
gerðar við hæfi aldraðs fólks.
Frumvarp þetta er samið af
milliþinganefnd, sem kosin var
af Alþingi samkvæmt ályktun
þess frá 4. marz 1959. Því hefur
þó verið nokkuð breytt í samráði
við formann nefndarinnar, fri
Ragnhildi Helgadóttur alþingis-
mann og fleiri nefndarmenn.
Einvígi Friðriks og
Inga hefst á morgun
EINVÍGI þeirra Friðriks Ólafs
sonar og Inga R. Jólh'annssonar,
um heiðuirstitilinn „Skákmeistari
Reykjavíkur 1963“ hefst á rnorg-
un (föstudag) kil. 8 í Snorirasaln-
um að Laugavegi 18.
Áikveðið hefur verið, að skák-
meistararnir tefli fjórar einviíg-
isskiáikir.
Tveimuir sýninigartöflum verð
ur komið fyrir, og geta áhoarf-
Veðurstofustjóri
lætur af störf um
Samgöngumálanáðuneytið aug-
lýsir embætti veðurstofustjóra
laust til umsóknar frá 1. júlí
næstkomandi. Theresía Guð-
mundsson, sem veitt hefur Veð-
urstofunni forstöðu í 17 ár, lætur
þá af störfum. og fer á eftirlaun.
Brimnesmálið:
Ákveöið að höfða opinbert mál
Mbl. hefur borizt svohljóð-
andi fréttatilkynning frá
saksóknara ríkisins um
Brimnesmálið svokallaða:
AÐ lokinni athugun hins svo-
nefnda „Brimnesmáls“, um
útgerð togarans Brimnes NS-
14 á árunum 1959 og 1960, hef-
ur saksóknari ríkisins hinn
26. þ.m. höfðað opinbert mál
á hendur þeim Axel Krist-
jánssyni, framkvæmdastjóra,
Bæjarhvammi 2, og Sigurði
Lárusi Eiríkssyni, Flókagötu
1, báðum í Hafnarfirði, fyrir
óreglusemi og vanrækslu í
bókhaldi útgerðar togarans,
og ennfremur fyrir mlsnot-
kun á aðstöðu með f járreiðar
útgerðarinnar að því er varð-
ar kaup á skrúfu á skipið, en
togarinn var á þessum árum
gerður út í umboði fjármála-
ráðuneytisins og var Axel
forstjóri útgerðarinnar, en
Sigurður bókhaldari hennar.
endur fylgzt með gangi skákar-
innar j afnharðan og keppendur
hreyfa skákmennina á borði sínu
Á næstu hæð fyrir ofam, í sal-
arkynnum málarasveina, murnj
ýmsir faerusbu skákmenn borg-
arinnar skýra skáikimar á sýn-
imgairborðum. Geta áhorfenidur
þar rætt hverja skák og borið
fram fyrirspurnir um fram-
vimdiu hennar og lagt fram tiil—
löguT og ágizkanir um .naestu
leiki.
Fyrsta skákin verður teEld
fostuidagimn 1. marz, en önmur
sunmudagimn 3. marz Ikl. 2. Bið-
skákir (biskák) verður á
þriðjudiagimn 5. marz. Þriðja
akákin er ráðgerð föstudaginn 8-
marz tel. 8, en fari hún í bið^
verður hemni haldið áfram dag-
inn eftir, laugardag, kl. 2. Sú
fjórða og síðasta verður tefld
sunnudaginn 10. marz kl. 2.
Umlhiugsunarbími hvors kepp-
anda verður bvær klukkustumdie
á 36 leiikL Verði skákin ekki út-
kiljáð í 36 leikjum, fer hún I
bið.
— Hættan á ...
Framh. af bls. L
þar sem ritstjórnargrein „Alþýðu
dagblaðsins" var til sýnis annað
hvort sérprentuð eða í blaðinu
sjálfu. Ritstjórnargreininni hef-
ur einnig verið útvarpað í Pek-
ingútvarpinu nær stanzlaust fri
aðfaranótt miðvikudagsins, ann-
að hvort í heild eða útdrætti. —-
Alþýða manna í kommúnista-
ríkjunum hefur aldrei «ýnt á-
greiningnum innan þeirra ein«
mikinn áhuga og Kíaverjar
gerðu í dag.