Morgunblaðið - 23.01.1964, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 23.01.1964, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 23. jan. 1964 MORGUNRIADID 3 fróðleik. Eftir 8 daga eða svo kemur hver flokkur svo fram, og heldur fyrirlestur fyrir bekkinn um sitt efni og sýnir teikningar sínar og kort til skýringar. ' Og svo afhenda börnin kennaranum vinnu- bækur sínar, sem geymdar eru fram á vorsýninguna, þegar foreldrar þeirra geta fengið að sjá jfer. * — Mér finnst þetta meira þroskandi fyrirkomulag en lexíulærdómurinn, segir' Marinó Stefánsson. Þó hreyf- ing sé og suða í bekknum, eru allir í starfi og börnin verða að hugsa meira sjálf. Ég held að þetta sé framtíðarkennslu- aðferðin og muni geta ú.trýmt námsleiða. Flestum börnum þykir gaman að þessu og verða síður léið en ef þau eiga að sitja lengi og hlusta. — Að öðrum þræði er líka félagslegt uppeldi í því fólgið að læra að koma sér saman í flokkum. Það er í samræmi við okkar lýðræðisskipulag. Einhvern tíma verðum við að kenna börnunum það og æfa þau í því. Þó krakkamir í 11 ára E sitji ekki kyrr í sætum sínum er furðulega lítill ys og þys í stofunni. Þriggja manna hefnd ffá þeim hefur líka samið með kennaranum regl- ur, sem hanga uppi á vegg og þær reglur hafa verið sam- þykktar af bökknum. Þær hljóða svo: 1. Komast skal fljótt til verks og halda vel áfram. 2. Samtal ætti helzt ekki að vera, nema um námsefni og þá hljóðlega. 3. - Af þeim heimildabók- um, sem fátt er til af, ma hver ekki taka nema eina. 4. Ekki má fara með heim- ildabækur heim til sín nema með leyfi kennara. 5. Bókum og áhöldum -sem fengin eru að láni, ber að skila á sinn stað, í röð og röglu. 6. Leyfilegt er að ganga um stofuna, þegar þarf, en ekki má trufla aðra flokka, seni' eru að vinna og varast skai að hrista eða ryðja niður af borðum annarra. Þessar reglur eru sýnilega allvel haldnar í 11 ára bekk E. Þær mættu kannski koma upp á fleiri veggi, þar sem fullorðnir starfa saman. Fjórip nemendur vinna saman að einu verkefni. Hérna safna 4 telpur efni í verkefni sitt og skrifa í vinnubækur. í STÓRRI bjartri kennslu- stofu er heill hópur 11 ára barna önnum kafinn. Sum sitja við borð og líma mynd- ir í vinnubækur eða skrifa skýringar, önnur liggja í smáhópum á gólfinu kring- um kort og í einu horninu ' standa fjórir .piltar við líkan í kassa. Þetta er landafræði- tími hjá Marinó Stefánssyni kennara í Breiðagerðisskóla. Fjórir strákar sýna okkur líkanið sitt, sem er snilldar- vel gerð mynd af Rínardaln- um, fjöllin og dalurinn gerð úr sandi, blár þráðarspotti sýnir ána Ruhr, plastkubbar eru verksmiðjur og íbúðar- hús og bátar úr leir sigla á Rínarfljóti. Merkispjöld sýna nöfn á fjöllum, borgum og ám. — Við erum að læra um Þýzkaland, segja strákarnir. Fjögurra drengja flokkur ardalnum með fjöllum, ám, hjá drengjunum. CifARlr en si lesa úr 11 ára bekk E hefur i landafræðitíma búið til likan af Rm- verksmiðjum o. fl. Kennarinn, Marinó Stefánsson, skoðar verkið x þau lesa það heima og skýrir það fyrir þeim, og ryður þannig brautina. Þau hópa sig svo saman í flokka og kenn- arinn deilir niður verkefninu. Nú er tekið til starfa, börnin kynna sér viðfangsefnið. Þau fá til þliðsjónar vinnubækur um það, geta flett upp í göml um landafræðibókum og eru hvött til að viða að sér meiri r Þetta er miklu skemmtilegra en'að lesa um það í bókum. Rétt hjá þeim liggja fjórar telpur á magánum kringum kort af Bretlandi og teikna menn og dýr. — Við höfum veðráttuna í Bretlandi og landbúnaðinn, segja þær, og merkja komrækt og kartöflu- rækt inn á írland og sauð- fjárrækt á Skotland. — Við sýnum hvað eru mörg dýr á móti hverjum manni, segir ein til skýringar. — Og þarna er Golfstraumurinn. Hann kemur líka til íslands, segir önnur. Við eitt borðið sitja dreng- ir og líma myndir inn í vinnú b.ækur. — Við erum með borgirnar í Þýzkalandi, segja þeir, og bæta við til skýring- ar að þeir safni viðeigandi myndum úr bókum og bióð- um. — Lesið þið þá dagblöð- in? — Spyrjum við. — Já, já, en mest íþróttirnar og framhaldssöguna. Marinó Stefánsson, kenn- ari, hefur undanfarin ár, tek- ið upp þessa kennsluhætti í 10, 11 og 12 ára bekkjum sín- um, byrjaði á því 1957, og er eini kennarinn í Breiðagerðis skóla sem hefur þennan hátt á. Verklega kennslan stendur yfir í viku eða 10 daga í einu, í náttúrufræði- og landafræði tímum, og einnig eru notaðar vinnubækur í íslandssögu og biblíusögu, en þá lætur Marinó krakkana ekki vinna alveg jafn frjálst. Námsskráin mælir svo fyr- ir, að 11 ára börn skuli í landa fræði læra um Norðurlönd, Þýzkaland og Bretlandseyjar. í upphafi kynnir Marinó börn unum allt verkefnið, lætur Þessar fjórar stöllur liggja á gólfinu og teikna kort af Bret- lanði.. * (Ljósm. Sv. Þorm.) rn v Fiskveiðiráðstfcfnan í London 0 Alþýðublaðið ræðir í gær fisfc veiðiráðstefnuna í London og kemst þá m.a. að orði á þessa leið: „Athyglisvert er við þessa ráð _ stefnu, að Bretar telja nú löglegt að færa fiskveiðllögsögu út í 12 mílur, jafnvel þó ekki sé um að ræða svo sérstakar aðstæður sem eru við ísland. Þetta er staðfcst ing á hinum algera ósigri þeirra í deilunni við íslendinga undan farinn áratug. Hinsvegar vilja þeir enn afj slík útfærsla gerist með samkomnlagi við aðra en ekki einhliða. Eru þeir að skapa aðstöðu til útfærslu á sinni eig in fiskveiðilandhelgi og vilja fá um það samkomulag við megin- landsríkin, sem stunda veiðar við strendur Bretlands. Virðist það hafa tekizt. Stórveldi snúa sjaldan við blaði í utanríkisstefnu á einni nóttu. Samkomulagið milli Breta og meginlandsþjóðanna er stórt skref af þeirra hálfu í áttina til þeirrar afstöðu, sem íslendingar hafa byggt á undanfarin ár. Þessi viðburðir sýna, hversu skynsamlegt það var af ríkis- stjórninni að leysa deiluna um landhelgi okkar með samning- um eins og gert var. Hefði verið fylgt þeirri stefnu Framsóknar- manna og kommúnista að semja ekki við neinn, er hugsanlegt að brezki flotinn væri enn á verði um landhelgisbrjóta innan 12 mílnanna**. Jarðeldar og heilsufar Baldur Johnsen Iæknir ritar grein undir þessari fyrirsögn í nýjasta hefti „Fréttabléfs um heilbrigðismál“. Ræðir hann þar um áhrif eldgosa á heilsufar Is- lendinga. En þau hafa oft verið mikil og örlagarík á liðnum öld um. Kemst læknirinn að þeirri niðurstöðu að ekkert eldgos sem mönnum er kunnugt um hér á landi hafi valdið jafnmiklum skaða og Skaftáreldamir, en um þá segir svo í Ketilstaðaannál frá árinu 1783: „Vetur harður með miklum frostum og áfreðum fyrir norðan og austan, batnaði með Aprili. Á Suðurlandi upp komu jarðeld ar úr sjó fyrir sunnan Geirfugla sker, hvar þeir upp skutu einu stóru skeri eður eylandi, sem strax var kóngi markað, en sökk litlu þar eftir. Svo komu upp eldar úr jöklin nm fyrir norðan Mýrdal á Síðu með svo mikilli frekju að þar gjöreyddust 23 bæir, á hverra tveimur, sem voru Skál og Hólma sel, að stóru kirkjur, en Ásar í Skaftártungum var nær fallinn af jarðskjálftum, er fylgdu að venju þessum bruna ógnarlegir með eldingum og brennisteins- rigningu, samt byltingum, svo að Skaftá uppþornaði og upp kom hraungarður í farvegnum, hvers hún svo síðar, þá hún náði rennslinu, aftur vitjaði“. „Mikið magur og óþrifalegur“ Síðar í þessari lýsingu er frá því sagt, að af þessum jarðeld- um hafi leitt mikið öskudrif yfir landið, grös hafi sölnað og „bæði naut, hestar og sauðfé eigi á því þrifust, en kálfar og lömb, er þá á legg komust, urðu mjög skamm vinn sökum beinhnúta og gadd- jaxla —“ „Mikið magur og óþriflegur var á þessu hausti fénaður manna á íslandi".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.