Morgunblaðið - 23.01.1964, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.01.1964, Blaðsíða 6
6 MORGUN BLADIÐ Fimmtudagur 23. jan. 1964 Heimur batnandi fer „ALLT hefur breytzt til batnaðar.,“ sagði Málfríður Hansdóttir, þegar hún átti samtal við Stefán Jónsson, fréttamann í útvarpið á 100 ára afmæli sínu s.I. þriðju- dag. Margir voru undrandi yfir því að hlusta á gömlu konuna í útvarpinu þá um kvöldið, hversu ungleg og gáskafull rödd hennar var,- en undir niðri djúp og virðu- leg alvara. Það sem hefur ekki sízt vakið mikla at- hygli, var sú hreina og óflekk aða bjartsýni á framtíðina, sem fram kom af orðum þess arar 100 ára gömlu konu. — Morgunblaðið hefur af ýms- um verið beðið um að birta útvarpssamtalið við Mál- fríði Hansdóttur og er það gert með mikilli ánægju. — Hún setur ungu fólki gott fordæmi, hún treystir því fyr ir nýju landi, jafnframt því sem hún er ein af þeim ágætu fulltrúum gömlu kynslóðar- innar, sem æskan mætti taka sér til fyrirmyndar. Útvarpssamtalið við Mál- friði Hansdóttur fer hér á eftir: „í kvöld skulum við tala við gamla konu, fíngerða, grannvaxna, með svolitla slikju á augunum, þar sem hún stendur við herbengis- gluggann sinn, teinrétt undir hundrað ára byrði, Málfríði Hansdóttur að Narfeyri á Skógarströnd, sem varð eitt hundrað ára í dag. — Málfríður, hvar ert þú fædd? — Á Litla-Hrauni í Kol- beinsstaðahreppi. — Hverjir voru foreldnar þínir? — Hans Hjaltalín, hrepp- stjóri þeirra og Sigriður Sig- urðardóttir. Þau fiuttu svo þaðan að Jörfa, sama hrepp. Þá hef ég líkiega verið árs- gömul, eða um það bil. — Og þú manst vel eftir árunum á Jörfa? — O, ekki er það nú vel, því þá var ég ekki nema sex ára, þegar ég fór þaðan. — Þá missti ég móður mína. — Og faðir þinn? — Stóð uppi með níu böm. Heiðunshjónin í Brokey, Jón Hjaftalin og Hildur Vigfús- dóttir (þeir vom bræðrasyn- ir) buðu að taka eitt okkar systkinanna, af góðvild nátt- úrlega, því þá var bart í ári á þeim tíma, hann hefjir víst verið fátækur. Svo það varð úr að ég vaæ látin fara. Ég var nú ekki viljug að fara og faldi mig í vindauga, en það var náttúrlega gerð leit og ég fundin. Þá fór ég.til þess- ara heiðurshjóna, ég var hjá þeim eins og hjá beztu for- eldrum, það segi ég satt, þang að til ég varð 21 árs. Þá, eins og gerðist og gekk, fór mað- ur nú að hugsa til hjúskapar. Ég ólst upp með manmsefni mínu .... « — Ögmundi? — Já, Ögmundi Hjartar- syni. — Svo settuð þið saman bú? — 1 Hörðudal, já, Fremri- Vífilsdal í Hörðudal. Þar bjuggum við í 39 ár. — Og eignuðust hvað mörg börn? — Þrjú börn. . — Nú manst þú, Málfríð- ur, á þessum tíma, harða vet- ur? — Ójá, þeim man maður nú helzt eftir. Það vom marg- ir harðir vetur á því tíma- bili. — Hvaða afmælisdagur mundi nú hafa verið hvít- astur? — Árið áttatíu, ég held hann haifi verið talinn harð- astur, 1880. Þá var 36 stiga írost. — Hefur þú ennþá sjón, Málfríður? — Ekki til að lesa. Það em tvö ár síðan ég hætti að geta lesið. Áður gat ég lesið mér til gamans í blöðum og svo- leiðis. — En þú hefur ennþá sjón til þess að bera þig um? — Já, mikil lifandis ósköp, — Sálarlífið er svo heil-- brigt, 'ég man vel eftir mér þegar ég var á Jörfa, ég man ósköp vei eftir mörgu þar, það er nú líkast til. Ég held ég gæti þekkt aftur þúfuna, sem við lékum okkur mest. — Er langt síðan þú hef- ur komið þangað? — Að Jörfa? Aldrei síðan á ævinni. — Málfríður, nú manst þú náttúrlega tímana tvenna. — Finnst þér fólkið hafa breytzt á íslandi? — Já, að mörgu leyti, og til batnaðar. Menningin og menntunin hefur náttúrlega breytt fólkinu alvég. Þá var allt að kæfast, þá var ekkert nema vinnan, vinna, vinna til þess að geta haft ofan í sig og utan á. Allt befur breytzt til batnaðar nú á öldinni, það skiptist allt til batnaðar um aldamótin. Til að mynda með búskapinn, það var ekki lítið hvað þá batnaði margt, elleg- ar húsakynnin þá, mér finnst bara eins og þetta sé allur annar lj,eimur, það er ekkert annað orð til yfir það. Það er bara eins og maður sé kominn í annan heim. — Og enn heldur það áfram að batna? — Já, það heldur áfram. — Mlaður veit bara ekki hvar þetta endar. Ætli það haldi ekki áfram meðan heimur stendur." Málfríður Hansdóttir. ég get hlaupið hér um al.lt. Heilsan er sæmileg að öllu leyti nema, ja við getum kall- að það ellilasleika. Það er eins og við hugsuðum okkur vél sem gengur, það er eiins og allt slitni ef eitt stykkið bilar. — Þú hefur ennþá alveg óbilað minni? Fjárlög rædd í USA — breytingar bobabar Washington, 21. jan. — AP. JOHNSON, Bandaríkjafor- í setií lagði í dag fyrir banda- ríska þingið fjárlagafrum- /varp fyrir fjárhagsárið 1964 1— ’65. Gerir forsetinn þar ráð i fyrir útgjaldalækkun, að upp hæð 97.9 milljarða dala. Af frumvarpinu kemur fram, að gert er ráð fyrir lækkun til landvarna, og nem ur hún 1.3 milljarðl Hins vegar er gert ráð fyrir að 1 milljarður renni til starf- Isemi, er miðar að því að út- rýma fátækt í frumvarpinu er gert ráð fyrir tillögu Kennedys, fyrr- um íorseta, um skattalækk- un. Þó hún sé talin munu nema 11 milljörðum, verður greiðsluhalli fjárlaga, skv. frumvarpinu, 5 milljörðum minni en á núverandi fjár- hagsárL Pabbi í fjórða sinn Einn þeirra, sem hringdi í gær sagðist nýlega hafa orðið pabbi — og það í fjórða sinn. Var manninum að vonum mik ið niðri fyrir — og svo, að ég gleymdi að spyrja hvort það hefði verið strákur eða stelpa, hve margar merkur og svo framvegis. En auðvitað er það sjálfsögð kurteisi að spyrja um allar helztu staðreyndir í mál- inu, enda þótt það fari inn um annað eyrað og út um hitt hjá okkur karlmönnum. Konan fæddi sem sagt í byrj un vikunnar — og það munaði sáralitlu, að eiginmaðurinn þyrfti að taka á móti barninu. Þess vegna var hann enn svona æstur. Hann sagðist ekki vera menntaður til starfsins — og enda þótt hann gerði nú ýmis- legt, sem hann hefði ekki fag- lega kunnáttu til, þá treysti hann sér ekki til að taka á móti barni. Og ástæðan var sem sagt sú, að þegar hann hringdi í sjúkra liðið var enginn bíll á stöðinni. „Bíllinn er uppi við Brúar-« land“, sagði stöðin. „Við vit- um ekkert hvenær hann kem- ur“. Maðurinn varð auðvitað skelfdur og spurði hvað þetta ætti að þýða, hvort það væri aðeins einn bíll? Já, þeir voru ekki með fleiri þann dgginn. Taka oft á móti börnum En svo kom bíllinn loksins frá Bfúarlandi og konan fæddi á Fæðingardeildinni tíu mínút- um eftir að þangað kom. Þar skall hurð nærri hælum. En faðirinn sagðist varla trúa því að einungis einn bíll væri á stöðinni að staðaldri. Sagði hins vegar að gott væri að láta þetta koma fram, ef það gæti orðið einhverjum til viðvörun- ar — einhverjum eiginmann- inum, sem ekki væri leik- inn í að taka á móti börnum. Eg hringdi í slökkvistöðina, sem gegnir hinu tvíþætta hlut verki — að slökkva eld og flytja sængurkonur. Ingimund ur Guðmundsson kom í sím- ann og sagði, *ð tveir sjúkra- bílar væru að staðaldri á stöð inni, hægt væri að grípa til þess þriðja. En stöðin þyrfti fleiri bíla og fleiri starfsmenn, ef hún ætti að anna Öllum sín- um verkefnum svo vel færi. „Við erum í alls konar auka- snatti", sagði hann — „flytja sjúklinga milli sjúkrahúsa og því um líkt — og þess vegna kemur það fyrir, að við getum ekki sinnt öllu um leið og kall ið kemur. Margir okkar hafa orðið að taka á móti börnum á leiðinni til Fæðingardeildarinn ar. Eg er búinn að vera hér í 19 ár og hef tekið á móti barni a.m.k. sex sinnum". Þeim er ekki fisjað saman þarna á slökkvistöðinni. Loksins Velvakandi fær mikið af bréf um. öll eru þau yfirleitt kvört unarbréf. Menn kvarta yfir ölla milli himins og jarðar, ekkert er eins og það á að vera — og þess vegna kemur það óneit- anlega fyrir, að grunnt er á nöldrinu í Velvakanda. En nú brá svo við, að okkur barst bréf frá konu, sem furðaði sig á öllu þessu nöldri. Hún sagði, að sér virtist sem öllum liði ágætlega, enginn skortur virt- ist vera á neinu — og því í ó- sköpunum fólk væri alltaf að finna sér eitthvað til að kvarta yfir. Hér lifði fjöldinn eins og blóm í eggi, þrátt fyrir allt. Mér fannst í rauninni kom- inn tími til að fá eitt slíkt bréf. Huglækning Eftirfarandi bréf hefur okk- ur borizt: Bækur þær, er seinustu árin hafa komið út og skýra frá hug lækningum hér á landi, hafa selzt á augabragði, og sýnir það hve almennur áhugi er fyrir þessum málum. En í sambandt við það langar mig til að vekja athygli á bók, sem kom út 1951. Hún nefnist „Lækningin" og er eftir írú Ingveldi Gísladóttur. Þar segir hún frá undursam- legri lækningu dóttur sinnar, ellefu ára gamallar, sem hafði verið sjúk frá tveggja ára aldrL Bókin kom út á óhentugum tíma, var ekkert auglýst og „lagðist til hliðar" hjá bóksöl- um þegar nýjar bækur komu á markaðinn. Og hjá bóksölun- um mun hún liggja enn og eina hjá höfundi. Þeir, sem eiga bækur Ólafs Tryggvasonar og Margrétar frá öxnafelli, ættu að reyna að ná sér i þessa bók. — Á. Ó. ÞURRHIÖDUR ERli ENUINGARBEZTAR BRÆOURNIR ORMSSON hf. Vesturgötu 3. Simi 11467.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.