Morgunblaðið - 02.06.1965, Page 21
Miðvikudagur 2. Júnf 1965
MORGUNBLAniD
21
Ný pípugerð
Reykjovíkur
Frá uppsögn Kennaraskólans.
Kennaraskólanum bárust góöar
gjafir við skólauppsögn
KENKARASKÓLANUM var sagt
upp sl. mánudag. Skólaslitaræðu
flutti Broddi Jóhannesson, skóla-
etjóri. Úr 4. bekk útskrifuðust
46 nemendur með almennu kenn
araprófi, 3® úr stúdentadeild og
við það bætast svo 16 handa-
vinnukennarar kvenna og 10
piltar eða alls útskrifuðust 110
kennarar með kennararéttindi.
Er þetta fleira en nokkru sinni
fyrr. Einnig luku 21 kennari
prófi til fyrrihluta náms, en þeir
fá ekki réttindi fyrr en þeir hafa
lokið námi í íþróttum eða handa
vinnu.
Sagði skólastjóri að þrengsli
væru niú orðin mikil í skólanum
og aðsóknin orðin svo mikil að
Jíkur væru á að ekki verði kom-
Jzt hjá að synja mörgum um
skólavist. Einkum vantar æfinga
ekólann, en til hans hefur verið
veitt fé og verður byrjað á bygg
ingunni í sumar. 1 1. bekk skól-
ans settust sl. haust 96 nemendur
Oig luku 64 prófi og stóðust. Telj-
andi vanhöld eru ekki annars
staðar í skólanum.
Mikill mannfjöldi var við
skólauppsögnina, þar á meðal
fyrrverandi nemendur skólans
og voru Kennaraskólanum færð-
ar góðar gjafir, meiri en nokkru
sinni fyrr við skólaslit. Fyrir
hönd kennara frá 1947 og 1902
afhenti Stefán Ólafur Jónsson,
sandgræðsluráðunautur, skólan-
um stóra peningagjöf, Helgi
Elíasson færði honum einnig
peningagjöf frá 40 ára kennur-
um og Skúli Þorsteinsson fyrir
hönd Landssambands barna-
kennara. Námu þessar peninga-
gjafir nær 50 þús. kr., Þóroddur
Guðmundsson skáld flutti kvæði
og kveðjur frá 20 ára kennur-
um og Kristinn Gíslason kennari
kveðjur frá 2ö ára kennurum
ásamt gjöf, sem er vandaður
fáni með merki skólans, er Stefán
Jónsson, arkitekt, hefur teiknað
og Gerður Hjörleifsdóttir, vef-
kennari mun vefa. 10 ára kenn-
arar færðu skólanum ýmiskonar
tæki á ljósmyndavinnustofu og
hafði Óli Guðbjartsson, kennari
á Selfossi, orð fyrir þeim. Og
Margrét Sigþórsdóttir handa-
vinnukennari færði skólanum
fyrir hönd 10 ára handavinnu-
kennara forkunnar fagurt vegg-
teppi, ofið af Ásgerði Búadótt-
ur og var það gefið í minningu
um Brynju Guðmundsdóttur.
Sr. Ingólfur Guðmundsson til-
kynnti við skólauppsögnina, fyr-
ir sína hönd og systkina og móð-
ur sinnar, Ólafar Sigurðardóttur,
ekkju Guðmundar Ólafssonar
fyrrum kennara á Laugarvatni,
að Kennaraskólanum yrði fært
bókasafn Guðmundar heitins að
gjöf, en hann hefði átt 55 ára
kennaraafmæli og 80 ára afmæli
á þessu ári. Guðmundur átti
mikið og vandað bókasafn, eink-
um mikið af bókum um náttúru-
fræði.
UM þessar mundir er verið að
taka í notkun nýja pípuverk-
smiðju í Ártúnshöfða og er hún
staðsett í gamla grjótnámi
Reykjavíkurborgar norðan við
malbikunarstöðina. Er verk-
smdðjunni ætlað að framleiða
steinsteyptar pípur og holræsa-
brunna. í gær var bláðamönn-
um boðið að skoða hina nýju
verksmiðju.
Hin nýja verksmiðja heyrir
undir Gatnamálastjóra, sem er
Ingi Ú. Magnússon. Sýndi hann
fréttamönnum bygginguna. Bygg
ingaframkvæmdir við verksmiðj
una hófust í nóvember s.l.
Reistar voru tvær skemmur,
sem áður voru sunnan til i öskju
hlíðinni, auk þess steypt í síló
fyrir efni og reist hús fyrir af-
greiðslu og starfsmenn. Gólfflöt-
ur verksmiðjunnar er ca. 1000 m2
auk starfsmannahúss, um 80 m!
áð stœrð, fyrir verkstjóra, af-
greiðslumann kaffistofu, böð og
snyrtiklefa.
Keyptar voru pípugerðarvélar
frá fyrirtæíkinu Ringsted Jern-
stöberi & Maskinfabrik A/S
(RIMAS) í Danmörku. Voru
keyptar tvær vélar af gerðinni
306, sem framleiða pípur allt að
30 cm í þvermál og ein af gerð-
inni 1202, sem framleiðir pípur
allt að 120 cm. í Þvermál. Sjálf
steypuvélin er 500 lítra þving-
unarblandari af gerðinni Schloss
er. Þá voru einnig keyptir sjálf-
virkir skammtarar, sem mæla
efnið eftir rúmfangi í hverja
blöndu fyrir sig, steypuflutnings
vagn og ýms önnur tæki. Steypu
blöndunin stjórnast af rafeinda-
heilum, þannig að ekki þarf ann-
áð en að setja inn gataspjald,
til að fá ákveðna steypublöndu.
Steifnt hefur verið að því að
gera alla vinnutilhögun sem full-
komnasta og verður áfram unnið
að endurbótum, eftir að fram-
leiðisla er hafin.
Meðalafköst véla af sömu gerð
svara til þess, áð önnur litla
vélin framleiði um 300 stk. af 10
cm. pípum, hinn um 200 af 25
cm. pípum og stóra vélin um
120 stk. af 60 cm pípum á dag,
og er þá miðað við átta stunda
vinnu og tvo menn við hverja
vél. Hrærivélin framleiðir um
10 m* af steypu á klst.
Gert er ráð fyrir að um 15—20
manns muni starfa við verk-
smiðjuna.
Trésmíðameistari við þessar
byggingar hefur veri'ð Kristján
Pétursson, múrarameistari Svan-
þór Jónsson, pípulagningameisft-
ari, Benedikt Guðmundsson og
rafvirki Bjarni S. Jónsson. Hörð
ur Runólfsson sá um flutning á
skemmunum. Sjálfa uppsetningu
vélanna annaðist sérfræðingur
frá RIMAS í Danmörku.
Verkstjóri við hina nýju pípu
gerð er Sigurður E. Jónsson, sem
'jafnframt hefur haft eftirlit með
byggingarframkvæmdunum.
Framkvæmdir við Malbikunar-
stöð Reykjavíkur.
Á þessu vori voru tekin í notk
un tvö 50 rúmmetra síló fyrir
heitt malbik hjá Malbikunarstöð
Reykjavíkurborgar, en sú stöð
heyrir einnig undir Gatnamála-
stjóra.
Sílóin sjálf eru smfðuð af
Hamri h.f. eftir teikningum frá'
Via Nova í Danmörku, en sjálf
m.albikunarstöðin og öll tæki í
sambandi við þessi síló, svo sem
flutningsvagn og vagnbraut eru
frá þessu fyrirtækL
Þessi síló eru einangruð og
með rafmagnshitun í botnlok-
um, þannig að malbik helzt heitt
allt að einum sólarhring, og er
þá t.d. hægt að leggja út að
morgni matbik, sem framleitt
var kvöldið áður, án þesa að
þurfa að bfða eftir fyrstu fram-
leiðslu morgunsins. Einnig get-
ur nýbyggingaflokkur lagt úi
malbik úr sílóunum meðan fram
leitt er viðgerðarefni. Þá er það
einnig kostur að bílarnir fá á
sig full hlass malbiks samstund-
is, í stað þess að þurfa að taka
við framleiðslunni jafnóðum,
sem þýðir 10—15 mín. bið, en
malbikunarstöðin framleiðir um
eitt tonn á mínútu i þurru
veðri. Verður því hægt að fækka
bilum við flutning á malbiki um
ca. %.
Uppsetningu tækjanna annað-
ist sérfræðingur frá Via Nov*
en raflagnir allar Bræðurnir
Ormson.
Ferðahandbókin
Ferðahandbókin, 4. útgáfa er
nýkomin í bókabúðir. Ðókin er
aukin mjög og endurbætt og er
í henni að finna fjölda nýmæla,
enda er bókin sjálf 24 blaðsíð-
um stærri en í fyrra. Þá er til
viðbótar að telja 16 síðna fylgi-
rit, þannig að alls er stækkun
bókarinnar 40 síður að þessu
Binni. Fyrsta útgáfa bókarinnar
árið 1960 var 112 síður, en 4. út-
gáfa er alls 120 síðum stærri.
Bókinni fylgir einnig nýtt Shell-
vegakort. Gætir margra nýjunga
á vegakortinu. Ferðahandlbókin,
fylgiritið Gönguleiðir og Shell-
vegakortið eru í haganlega
gerðri, tveggja hólfa plast-
möppu.
Hinar öru framfarir valda því
að fastaefni bókarinnar tekur
miklum breytingum frá ári til
árs. Sumir kaflarnir krefjast svo
mikillar endurskoðunar, að með
sanni má segja að kaflaheitið
eitt standi óbreytt. Sem dæmi
má nefna kaflann Bifreiðaslóðir
á Miðhálendinu eftir Sigurjón
Rist. Sökum hinna miklu breyt-
inga, sem átt hafa sér stað í sam
göngumálum hálendisins og
þeirrar reynslu sem fengist hefir
í not'kun þessarar lýsingar á
undanfömum árum, varð Sigur-
jón að gjörbylta kaflanum og
teikna nýtt Miðhálendiskort.
Fylgiritið, sem nú er með
bókinni, nefnist Gönguleiðir, og
er eiwnig eftir Sigurjón Rist. Þar
«r lýst götvguleiðum í öllum
landahlutura. Að sjálfsögðu er
stiklað á stóru, ferðafólki gefn-
ar þýðingarmestu leiðbeiningar
varðandi val gönguleiða. Hið al-
menna vegakort frá Shell er nú
merkt bókstöfum lárétt, en tölu-
stöfum lóðrétt og eru þær merk-
ingar notaðar víða í bókinni
sem lyklar, til þess að auðvelda
fólki leit á kortinu.
Mörg nýmæli eru í bókinni,
svo sem áður segir, og yrði of
langt mál upp að telja, ef allt
yrði rakið. Nefna má t.d. leiðar-
lýsingu eftir Gísla Guðmundsson
sem nefnist Leiðir um Austur-
land.
í Ferðahandbókinni er, auk
þess sem á undan er talið, að
finna allar hugsanlegar upp-
lýsingar, sem koma fólki að
gagni, hvort heldur sem það er
að undirbúa ferðalag eða er á
ferðalagi, enda er kjörorð útgef-
enda: Farið með svarið í ferða-
lagið. ítarlegasti og stærsti
kafli bókarinnar ber heitið
Kauptún og kaupstaðir. í þessari
útgáfu fylgja teikningar nær
hverjum kaupstað og kauptúni,
gerðar af Ragnari Lárussyni. Er
það gert til þess að draga athygli
ferðafólks að ýmsu þvi mark-
verðu, sem hver staður hefur
upp á að bjóða. Kauptúna- og
kaupstaðakaflinn er saminn í
samráði við forráðamenn við-
komarvdi staða og er í honum að
finna flestar þær upplýsingar
sem ætla má að ferðafólk þurfi
á að halda.
Slysavarnadeildin Ingólfur i
Reykjavík bauð börnum þeim
sem duglegust voru við sölu
merkja á merkjasöludegi fé-
lagsins í sjóferð með varðskip
inu Máríu Júiiu. Var rennt
fyrir fisk hér í Flóanum, og
þótt aflinn væri ekki mikill
var ánægja hinna ungu sjófar
enda fölskvalaus. — „Ingólf-
ur“ færir skipstjóra og skips-
höfn Maríu Julíu og Land-
helgisgæzlunni beztu þakkir
fyrir skipslánið og fyrir-
greiðslu alla. — Myndin er
tekin um borð í varðskipinu.
Ljósm. Ilelgi Hallvarðasou