Morgunblaðið - 02.06.1965, Side 24
24
MORCU N BLAÐIÐ
Miðvikudagur 2. júní 1965
ANN PETRY:
STRÆTIÐ
sagðist þuría að finna hann. Það
væri áríðandi. Og hann sagði: —
Sjálfsagt blessuð vertu. Mig
hefur líka langað til að tala við
þig. Komdu beint upp. Það er
íbúð 3J.
Ég kem strax. Ég tek strætis-
vagn, sagði hún.
— Hvar ertu núna?
— Á horninu á Sjöundu og
116. stræti.
— Gott og vel. Ég bíð þín.
Það tók hana nokkrar mínút-
ur að leggja frá sér símann. Hún
reyndi hvað eftir annað en hitti
aldrei, því að hendurnar á henni
voru svo máttlausar og létu ekki
að stjórn.
Hún beið óþolinmóð eftir
strætisvagninum og þegar hann
loks kom, fannst henni eins og
hann rétt mjakaðist áfram, og
við hvert rautt ljós, fékk hún
krampa í alla vöðva. Hún reyndi
að þagga niður þessa von og
ótta, sem smugu inn í huga henn
ar, en það tókst ekki. Loksins
beygði vagninn við vog fór yfir
brúna og þá mundi hún, að hann
stanzaði ekki við Edgecombe-
götu. Ef hún gætti sín ekki, færi
hún alltof langt og yrði að ganga
langa leið til baiia.
En húsið þar sem Boots átti
heima, gat ekki framhjá neinum
farið. Það gnæfði upp yfir öll
önnur hús í nágrenninu og sást
langt að. Hún hringdi stöðvun-
arbjöllunni og fór út úr vagnin
um.
Á leiðinni að dyraskýlinu á
stóra húsinu, minntist hún sagn-
anna um hina gífurlegu húsa-
leigu, sem fólk greiddi í svona
húsum. Hún mundi þegar pabbi
hafði verið að lesa í blaðinu um
fyrstu negrana, sem fluttu í
■ svona hús, að þá hafði hann
sagt: — Þær hljóta að vera úr
gulli, kamarsseturnar í svona
* húsum.
En hún var nú ekki að hugsa
um annað en það, að ef Boots
hefði efni á að búa þarna, þá
gæti hann líka lánað henni tvö
hundruð dali. .
Þegar inn kom, tók við breið-
ur lofthár forsalur. Og þar var
lyfta með gylltum hurðum fyrir.
Lyftudrengurinn fór með hana
upp á þriðju hæð og sagði henni,
að þetta væru fjórðu dyr niður
eftir ganginum, og svo lokaði
hann lyftunni.
Hún þrýsti á bjölluhnappinn
fastar en hún hafði ætlað og
kippti snöggt að sér hendinni,
því að hún bjóst við að heyra
háan bjölluglym. Þess í stað
heyrði hún ekki nema daufa
hringingu og Boots opnaði dyrn
ar. Skyrtan á honum var opin
í hálsinn og ermarnár uppbrett-
ar.
— Gaman að sjá þig, elskan.
Komdu inn.
— Halló, sagði hún og gekk
inn í litla ganginn. Ábreiðan á
gólfinu var þykk, og gleypti skó
hljóð hennar.
Stofan var einn hrærigrautur
af standlömpum og fyrirferðar-
rniklum hægindastólum. Sams-
konar þykk og loðin gólfábreiða
og í ganginum var á gólfinu.
Viðarbútar í gerviarni lengst
burt í stofunni, gáfu sér gul-
rauða birtu frá földu rafmagns-
ljósi. Þetta ljós var eins og eitt-
hvað illilegt auga, og hún flýtti
sér að líta í hina áttina. Við
arininn voru útskornir járn-
stjakar.
En ekki mátti hún standa
þarna og virða það, sem þarna
var inni. Hún varð að segja hon-
um erindið. En nú þegar hún
var hingað komin, var erfitt að
koma orðum að því. Það var
ekkert uppörvandi í útliti hans
og hún hafði gleymt, hve sam-
vizkulaus og illmannlegur svip-
urinn á honum var.
— Láttu mig taka kápuna
þína, sagði hann.
— Nei, þakka þér fyrir. Ég
ætla ekkert að stanza.
— Jæja, fáðu þér að minnsta
kosti sætL Hann settist niður á
bríkina á iegubekknum, lét fæt-
urna dingla og krosslagði arma
á brjósti, en andlitið var gjör-
samlega sviplaust. — Guð minn
góður! sagði hann. — Ég var
næstum búinn að gleyma, hvað
þú varst girnilegur kvenmaður!
Hún settist á hinn endann á
legubekknum og velti því fyrir
sér, hverngi hún ætti að byrja.
— Hvað liggur þér á hjarta,
elskan sagði hann.
— Það er hann sonur minn . .
hann Bub . . .
— Áttu krakka? greip hann
fram í.
— Já. Hann er átta ára. Hún
bar óðan á, af því að hún óttað-
ist, að ef hún þagnaði, gæti hún
ekki lokið máli sínu. Hún leit
ekki á hann meðan hún sagði
honum alla söguna, og um tvö
hundruð dalina, sem lögfræðing
urinn þyrfti að fá.
— Haltu áfram, sagði hann
áfjáður, þegar hún þagnaðL
EMNBHM
52
Svipurinn á honum hafði
breytzt meðan hún var að tala.
Venjulega var hann óræður, en
nú var eins og hann hefði allt
í einu séð eitthvað, sem hann
hefði verið að bíða eftir, séð það
lagt á borð fyrir framan sig, og
þetta var nokkuð, sem hann
þráði mjög. Hún var að brjóta
heilann um þetta meðan hún
sagði honum, hvað lögfræðing-
urinn þyrfti að fá og fannst þá,
sem svipurinn á honum bæri
helzt vott um undrun. Hann
hafði ekki vitað um Bub. Hún
hafði sjálf gleymt, að hún hafði
aldrei sagt honum, að hún ætti
barn.
— Geturðu látið mig fá þessa
tvö hundruð dali? spurði hún.
— Já, alveg sjálfsagt, elskan,
sagði hann greiðlega. En ég er
ekki með svo mikið á mér núna,
en ef þú vilt koma annað kvöld
á sama tíma, skal ég hafa það
til reiðu handa þér. En komdu
heldur seinna en núna. Um
klukkan níu.
— Ég veit ekki, hvernig ég
get þakkað þér, sagði hún. —
Og ég skal borga þér það aftur.
Það tekur nokkurn tíma, en þú
færð það aftur til síðasta eyris.
— Það er allt í lagi. Mér þyk-
ir vænt um að geta gert þér
greiða. Hann sat enn kyrr á brík
inni. . — Þú ert ekki að fara
svo alveg strax?
— Jú, ég þarf að fara.
— En að fá eitt glas?
— Nei, þakka þér fyrir. Ég
verð að fara.
Hann gekk með henni út að
dyrunum og hélt uppi hurðinni
fyrir hana. — Ég sé þig þá annað
kvöld, elskan, sagði hann og lok
aði dyrunum hægt.
Alla leiðina heim, gat hún
ekki annað en hugsað um, hve
auðvelt þetta hefði verið. Henni
datt það ekki í hug fyrr en hún
var komin heim og var að þreifa
fyrir sér í myrkrinu, að það
hefði verið of auðvelt.
Hún kveikti á öllum Ijósum
í íbúðinni. Þessi mikla birta
hjálpaði henni til að hrinda frá
sér efanum, sem ásótti hana, en
hinsvegar gat það ekkert gert til
að eyða tómaleikanum hérna.
Því að nú lá Bub ekki á bedd-
anum; öll húsgögnin höfðu eins
og minnkað . . bæði beddinn,
stóri stóllinn og spilaborðið.
Og ljósin eyddu heldur ekki
þögninni, sem þarna var inni,
svo að hún opnaði útvarpið. Bub
var vanur að hlusta á alla elt-
ingaleiki við Indíána og hvetja
leikarana til dáða.
— Það er vitleysa að vera að
eyða svona miklu ljósi, hugsaði
hún. Þú varst vön að vera að
lesa yfir honum, að þá yrði
reikningurinn svo hár. Hann lét
þau loga af því að hann var
hræddur, alveg eins og þú ert
nú. Og hún tók að hugsa um,
hvort hann mundi vera hræddur
á þessum framandlega stað, þar
sem hann var nú, og vonaði, að
þar væru ljós, sem loguðu alla
nóttina, svo að ef hann vaknaðb
þá gæti hann séð hvar hann var.
Það var auðvelt að hugsa sér
hann á gangi í dimmunni og upp
götva, að hann var ekki þar sem
hann átti heima, og þá fyndist
honum eins hann hefði villzt,
eða þá, að herbergið þar sem
hann var vanur að sofa, hefði
breytzt meðan hann svaf.
Hún settist við útvarpið og
reyndi að hlusta á fréttirnar, en
allar hugsanir hennar snerust
um Bub 5 einni flækju. Hvað
yrði af honum, þegar þessu væri
lokið? Lögfræðingurinn hafði
fullvissað hana um, að hann
mundi geta fengið hann látinn
lausan ef hún tæki ábyrgð á
honum. En þá kæmist hann f
svörtu bókina hjá lögreglunni,
og ef hann skrópaði úr skólan-
um einu sinni eða tvisvar, eða
bryti rúðu með bolta, eða lenti
í áflogum, kæmist hann í vand-
ræðadrengjaskóla, hvort sem
væri.
Jafnvel kennararnir hans f
skólanum mundu verða með ein-
hverja fordóma gegn honum,
sem glæpamannsefni, og mundu
ekki 'vilja láta gott heita, ef
hann gerði eitthvað fyrir sér,
hversu óverulegt sem væri, af
því að í huga sínum litu þeir
á hann sem hugsanlégan glæpa-
mann. Og að sumu leyti höfðu
þeir þarna rétt fyrir sér, því að
hann hafði haft svo litla mögu-
leika í þessu stræti, sem var svo
fullt af krökkum og tartaralýð.
Og þá hafði hann ennþá minni
möguleika síðar.
Þau yrðu að komast burt héð-
an. Hún ætlaði að fá eldabusku-
starf hjá einhverri fjölskyldu,
sem byggi úti í sveit. En því
miður var hún ekkert hrifin af
þessari hugmynd. Hún vissi
alveg, hvernig þetta yrði. Hann
yrði „strákurinn eldabuskunn-
ar“ og af honum yrði krafizt
einhverrar ósanngjarnlega vand
aðrar hegðunar. Hann yrði að
þegja þegar hann væri- alveg að
springja af löngum til að tala
eða gera hávaða, af því að frúin
hefði gesti til kvöldverðar.
Hún vildi ekki láta hann alast
þannig upp . . þurfa að gleypa
í sig matinn við eldhúsborðið,
meðan „familían" borðaði í ró
og næði hinumegin við þilið, og
læra á unga aldri hinn sjálfsagða
mun á fordyrum og bakdyrum
og allri merkingu þessara
tveggja orða, og láta alltaf ýta
sér til hliðar, þegar hann kæmi
hlaupandi úr skólanum, fullur
athafnasemi og dugnaðar, en þá
var hún að strita í eldhúsinu og
varð að segja við hann: „Fáðu
þér mjólkurglas í ísskápnum og
hlauptu svo út og vertu stilltur".
Og svo var það alveg til, að
hann fengi ekki mikið tækifæri
til að leika sér. Lil hafði dregið
upp óhugnénlega mynd af því
sem byggð var á reynslu einnar
vinkonu hennar. — Hún Myrtie
auminginn sagði, að fólkið teldi
bókstaflega hvern bita, sem færi
ofan 1 þennan veslings krakka
hennar. Og léti hann auk þess
vinna. Smáviðvik, eins og
maddaman kallaði það, eins og
til dæmis að hreinsa bílinn og
slá blettinn. Og Lil hafði sopið
vel á bjórnum áður en hún hélt
áfram: — Og Myrtle veslingur-
inn og krakkinn urðu að sofa
saman, af því að maddaman
sagði, að hún gæti ekki farið
að kaupa nýtt rúm, og drengur-
inn væri svo lítill, að það færi
ekki mikið fyrir honum.
Og svo yrði kaupið vesældar-
legt, vegna Bubs og fólkið gæti
alveg eins verið þannig innrætt,
að það heimtaði, yfirvinnu af
henni fyrir þann greiða, sem það
gerði með því að lofa henni að
hafa krakkann hjá sér.
Kannski yrði það nú ekki
svona slæmt. En hvað sem því
leið, þá yrði þetta nú það skásta,
sem hún gæti gert fyrir hann.
Óviðkomandi eldhús var ekki
heppilegur staður fyrir barn að
alast upp á, en þar var þó að
minnsta kosti öryggi. Þá yrði
hún alltaf hjá honum, og hann
þurfti ekki að koma heim í
þögult og manntómt hús.
Hún slökkti á útvarpinu og
svo öll Ijósin nema í svefnher-
berginu, og hugsaði sér, að á
morgun skyldi hún ekki fara í
vinnu, heldur skyldi hún fara
í Barnaskýlið og finna Bub.
Meðan hún var að hátta, fór
hún að rifja upp fyrir sér, hvort
hún hefði verið myrkfælin þegar
hún var á Bubs aldri. Nei, það
hafði hún ekki verið af því að
amma var alltaf hjá henni, og
ruggustóllinn hennar var hluti
af skugganum og myrkrinu, svo
að það varð viðkunnanlegt.
Og hún hafði aldrei verið ein
eftir skólatímann, því að amma
var alltaf heima. Sama á hvaða
tíma hún kom heim, þá vissi hún
það með sjálfri sér, að amma
var alltaf á staðnum og þetta
veitti henni öryggi, sem Bub
hafði aldrei haft af að segja.
Þegar enginn var hjá manni í
húsinu, varð það svo einkenni-
lega tómt. Þetta svefnherbergi,
til dæmis að taka, var undar-
lega tómt. Húsgögnin tóku alltaf
jafnmikið rúm, því að hún rak
hnéð í hornið á rúminu. En loft-
ljósið náði ekki nema svo stutt
inn í stofuna. Hún starði á
skuggana, sem voru utan þess-
arar litlu birtu. Hún vissi ná-
kvæmlega stærðina á herberg-
inu, vissi stöðu hvers hlutar
þar inni. . . .
Þegar hún var komin upp i
og hafði slökkt, hlustaði hún
éftir hljóðum, og beið þess að
heyra einhverja hreyfingu i
skugganum, sem umlukti rúmið,
og sneri höfðinu til þess að
reyna að greina hlutina, sem
þarna voru innL
Hún vaknaði klukkan sjö og
stökk fram úr rúminu og seild-
ist eftir sloppnum sínum og
mundi um leið, að í dag var
samkoma í skólanum og hún
hafði gleymt að strauja hvíta
skyrtu handa Bub, og hún yrði
að flýta sér, svo að hann yrði
ekki of seinn.
Raufarhöfn
UMBOÐSMAÐUR Morgun-
blaðsins á Raufarhöfn er
Snæbjörn Einarsson og hef-
ur hann með höndum þjón-
ustu við fasta-kaupendur
Morgunblaðsins í kauptún-
inu. Aðkomumönnum skal á
það bent að blaðið er selt
í lausasölu í tveim helztu
söluturnunum.
Þórshöfn
Umboðsmaður Morgun-
blaðsins á Þórshöfn er Helgi
Þorsteinsson, kaupmaður og
í verzlun hans er blaðið selt
í lausasölu.
Reyöarfjöröur
KRISTINN Magnússon,
kaupmaður á Reyðarfirði, er
umboðsmaður Morgunblaðs-
ins þar í kauptúninu. Að-
komumönnum skal á það
bent að hjá Kristni er blað-
ið einnig selt í lausasölu.
Eskifjörður
t BÓKSÖLUNNI á Eskifirði
er umboð Morgunblaðsins á
Eskifirði.
Seyðisfjörður
UMBOÐ Morgunblaðsins í
Seyðisfjarðarbæ er í Verzl.
Dvergasteinn. Blaðið er þar
einnig í lausasölu fram til
kl. 11,30 á kvöldin. „Bar-
inn“, veitingastofa, hefur
blaðið í lausasölu.
Fáskrúðsfjörður
F R Ú Þórunn Pálsdóttir er
umboðsmaður Morgunblaðs-
ins á Fáskrúðsfirði og hefur
með höndum þjónustu við
kaupendur blaðsins í bæn-
um. í söluturni hjá Marteini
Þorsteinssyni er blaðið selt
í lausasölu.
vel snyrtar konur
og vandlátar velja
01
snyrtivörur
ValhOll Laugavegi 25 uppi