Morgunblaðið - 02.06.1965, Síða 26
26
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 2. júní 1965
Ovænlustu tlðindi í 1. deiid:
Fram vann Akur-
nesinga með 3:2
ÓVÆNTUSTU tíðindi 1. deildar
keppninnar 01 þessa gerðust á
Akranesi í fyrrakvöld er Fram
sótti þangað tvö stig. Þetta voru
fyrstu tvö stig Fram í mótinu —
en jafaframt töpuðu Akurnesing-
ar öðrum leik og eru stiglausir
eftir fyrstu tvo leiki sina. Hafa
þeir aldrei byrjað svo illa á Is-
landsmóti.
Leikurinn á Skaganum var
«kki mikiil að vöxtum knatt-
spyrnulega séð en á köflum var
hann skemmtilegur og í honum
mikil barátta og all'hörð á köfl-
um. Sigurmark Fram var ekki
skorað fyrr en fáum mínútum
fyrir leikslok.
Framarar byrjuðu vel og upp-
skáru fljótt mark. Skoraði Helgi
Númason með ágætu skoti á 7.
mín. Sóttu svo Framarar mun
meir allan hálfleikinn og mark
Skagámanna komst oft í haettu,
en hinn ungi en efnilegi mark-
vörður Skagamanna, Jón Ingi,
varði vel og bjargaði oft. Mark
Helga varð þvi eina mark hálf-
leiksins.
Fram jók forystu sína eftir 3
mín. leik í síðari hálfleik. Mynd-
aðist þá þvaga við mark Akra-
ness og Hreinn Elliðason skor-
aði af stuttu færL
En Akurnesingar voru ekki
kveðnir í kútinn. Þeir fengu
aukaspyrnu rétt utan vítateigs
og skoraði Ríkharður úr henni
með glæsilegu skoti efst í horn
(sjá mynd) Og stundarfjórðungi
síðar jafnar Skúli Hákonarson
leikinn með föstu skoti, sem hinn
ungi markvörður Fram hafði
hendur á, en hélt ekki.
Hófst nú mikil og hörð loka-
barátta um stigin tvö — en þrátt
fyrir allar tilraunir virtist hún
ætla að enda án árangurs og að
liðin yrðu að deila stigum.
En skömmu fyrir leikslok léku
Framarar inn í vítateig Akraness
MOLAR
UANDSUIÐ Tékka og Eng-
lendinga „undir 23 ára aldri“
léku marklausan landsleik í
Liberec í Tékkóslóvakíu á
laugardag. Þar var rigning og
eðjuvöllur.
og nýliði í 1. deild Hreinn Elliða-
son miðherji Fram skoraði annað
mark sitt í leiknum með ágætu
skoti — og tryggði þannig féiagi
sínu bæði stigin og heiðurinn af
því að knósetja Akurnesinga í
þetta sinn.
Eins og fyrr segir var leikur-
inn heldur lélegur þó skemmti-
legur væri fyrir baráttu sakir.
Hvorugt liðanna dró af sér þó
oft hefðu þau litla upp>skeru eftir
mikið erfiði.
Markið er Ríkharður skoraði úr aukaspyrnu utan vítateigs. Markvörður Fram hafði enga mögu-
leika til varnar. — Ljósm. Þráin n Þorvaldsson.
KR og Keflavík skildu jðfn 1:1
KR jafnabi 5 mín. fyrir leiksðok
VESTUR-ÞÝZKA knattspyrnu
liðið Stuttgart er á keppnis-
ferðalagi í Austurlöndum.
Þýzka liðið vann síðast úrvals
lið flughersins í S-Vietnam
með 15-0. 1 hálfleik stóð 8-0.
Núverandi og fyrrverandi Is-
landsmeistarar í knattspymu,
Keflavík og KR, mættust í fyrri
leik sínum í 1. deildarkeppninni
á -Njarðvíkurvelli í gærkvöldi.
SA hvassviðri og rigningarhragl-
andi spillti leiknum, en honum
lauk með jafntefli 1 mark gegn
1. Eftir marktækifærum og
samleik mega KR-ingar þakka
fyrir þessi úrslit. Keflvíkingarn-
ir sýndu mun betri knattspyrnu
en framherjar liðsins voru feimn
ir við að skjóta og misstu því
oft af góðum tækifærum.
Þrátt fyrir slæmt veður var
nMkill mannfjöldi að horfa á
leikinn 15-1600 manns.
KR lék undan vindi í fyrri
hálfleik en fyrstu minúturnar
síkiptust liðin á uppthlaupum.
Forysta ÍBK
Á 7. mínútu komst Baldvin
miðh. KR í gott færi en missti
knöttinn frá sér fyrir opnu'
rnarki. KR fær tvær hornsp. á
14. og 15. mín. en án árangurs.
Keflvíkingar herða sóknina og
skiptingar þeirra og stuttur sam-
leikur er oít skemmtilegux.
Sýndu þeir mun betri knatt-
spyrnu en KR. Einkum var á-
berandi hvað þeir voru mikið
fljótari á knöttinn.
Á 20 mín. skoraði Karl Her-
mannsson með föstu skoti eft-
ir góða fyrirgjöf Jóns Öiafs
hægri útherja.
Á 23. minútu tók Gunnar Guð-
mannsson aukaspyrnu utan víta
teigs sem Kjartan fékk varið í
horn. Úr hornspymunni fékk
Gunnar Felixsson knöttinn á
vítateig en spyrnti yfir.
Liðin skiptust síðan á um að
sækja og á 28. min. átti Gunnar
Fel. gott skot sem Kjartan fékk
varið með því að slá yfir 5 mín.
síðar brennir Jón Ólafur af þar
sem hann stóð á markteig KR.
KR-ingar áttu hættulegt tæki-
færi á síðustu mínútu hálfleiks-
ins er Guðmundur Haraldsson
átti fast skot undir þverslá —
en Sigui-vin tókst að bjarga á
línunni.
Síðari hálfleikur
Keflvíkingar hófu sókn í síðari
hálfleik og reyndu að ná stutt-
um samleik, en KR-ingar aftur á
móti notuðu langar spyrnur fram
völlinn, og náðu með því snögg-
um upphlaupum með miklum
hraða. Á 12. mín. bjargaði Högni
á marklínu, eftir harða sókn KR-
inga, en skömmu síðar varði
Heimir naumlega skot Rúnars.
Á 21. mín. voru þeir Jón Ól-
afur og Heimir í æðislegu kapp
hlaupi um knöttinn úti á víta-
teig og tókst Heimi að spyrna út
fyrir hliðarlínu.
Á 33. mín. misnotaði Karl Her
mannsson herfilega gott mark-
færi er hann reyndi að leika
framhjá Heimi, er lá fyrir utan
markteig, í stað þess að lyfta
knettinum yfir hann í markið.
KR jafnar
Á 36. mín. ver Kjartan skot
Gunnars Felixsonar í horn og á
40. min. tekur Gunnar Fel. horn
spyrnu frá vinstri og Ellert
skorar með skalla yfir varnar-
vegg Keflvíkinga og jafnaði leik
inn.
Keflvikingar hófu örvænting
arfulla sókn og á 43. mín. missir
Heimir knöttinn eftir skot Sig
urvins bakvarðar. Knötturinn
veltur á markteig og gerðu tveir
Keflvíkingar tilraun til að skjóta
en hvorugur hitti knöttinn.
Liðin
Keflavíkurliðið sýndi mun
betri knattspyrnu og betri knatt
meðferð.. Bezti maður í liðinu
var Karl Hermannsson, en auk
hans áttu góðan leik Rúnar Júl-
íusson og framverðirnir Sigurð-
ur, Högni og Grétar. Kjartan
markvörður átti mjög góðan
leik.
Ellert Schram var áberandi
bezti maður KR-liðsins. Hann
lék nú sem fyrr farmvörð og
var sterkur í vörn og skipulagði
sókn liðsins. Baldvin Baldvina-
son miðherji sýndi mikinn
hraða, en skortur hans á knatt-
meðferð og einleikstilraunir hans
skemmdu oft sóknartilraunir
liðsins í heild. Af öðrum KR-ing
um mætti minnast á þá nafn-
ana Gunnar Felixson og Gunnar
Guðmannsson, sem nú kom enn
á ný 'til leiks í 1. deild — hljóp
í skarðið fyrir slasaðan félaga.
Dómari var Hannes Þ. Sigurðs
son. — B. Þ.
Þróttur varm 12:0
Barna- og unglinganám-
skeiö að hefjast
Á MORGUN, fimmtudag, hefjast
á fjórum íþróttasvæðum í Reykja
vik námskeið í íþróttum og leikj-
um á vegum Æskulýðsráðs, Leik-
vallanefndar, íþróttabandalags og
íþróttavallanna. Verða námskeið
þessi fyrir börn óg unglinga á
aldrinum 5—13 ára.
Á þriðjudögum, fimmtudögum
Ármannssvæði, Þróttarsvæði
(Skipasundi), Golfvelli og Álf-
heimabletti
Á mánudögum, miðvikudögum
og föstudögum verður kennt á
þessum svæðum:
KR-svæði, Vals-svæði, Fram-
velli og Víkingsvelli.
Á hverjum stað verður nám-
og laugardögum verður kennt á I stkeiðunum tvískipt, fyrir hádegi
þessum stöðum: . kl. 9.30—11.30, verður tekið við
börnum 5—9 ára, en eftir hádegi
við eldri börnum, 9—13 ára, og
þá kl. 14—16. á hverjum stað
verða 2 íþróttakennarar, sem leið
beina börnunum.
Innheimt verður vægt þátttöku
gjald fyrir tímabilið, sem verður
4 vikur, gjaldið er kr. 25.00. —
Allar upplýsingar eru veittar í
símum 15937 (Æskulýðsráð) kl.
2—4 og 35850 (IBR) ki. 4—6 dag-
lega.
í FYRRAKVÖLD léku á Mela-
vellinum, í annarri deild, Þrótt-
ur og Skarphéðinn. Leikurinn
var í heild lélegur. Slæmt ástand
virðist vera með skipan dómara.
Tíu mínútum áður en leikurinn
átti að' hefjast var aðeins annar
línuvörðurinn mættur — enginn
dómari. Vallarverðir sáust ekki,
til að stugga æstum strákaskara
út fyrir leikvöllinn.
Þróttur tók leikinn strax í sín-
ar hendur,' og áður en margar
mínútur voru liðnar, er komið
1:0 fyrir Þrótt. Þetta fyrsta mark
setti Skarphéðinsmenn út af lag-
inu, markmaðurinn hafði hendur
á knettinum, missti hann inn,
frekar ódýrt mark. Þróttur sækir
nú stöðugt og kemst þeirra mark
aldrei í hættu. Líður nú fram
undir miðjan hálfleik, en þá er
eins og allt opnist fyrir Þrótt og
þeir skora hvert markið á fætur
öðru. í leikhléi er staðan orðin
5:0 fyrir Þrótt.
í síðari hálfleik verða yfirburð
ir Þróttar enn meiri. Þá var engu
líkara en Skarphéðinsmenn væru
hreinlega hættir. Ekki var lengur
um skipulag að ræða. Hver
þvældist fyrir öðrum, og í gegn-
um alla þessa þvögu skoruðu svo
Þróttarar eins og þeir ættu lífið
að leysa. Mörkin hefðu getað orð
ið mun fleiri, en þegar 21 leik-
maður er í einni kássu fyrir fram
an sama markið, er orðið erfitt
að koma knettinum í netið.
Lið H.S.K. vantar greinilega
allt sem til þarf, til að geta leikið
knattspyrnu, jafnvel á íslenzkan
mælikvarða. í liði þeirra eru ein-
staklingar sem eru mjög góð
efni, en vantar tilsögn og já-
kvæðari þjálfun.
Sigur Þróttar kom fáum á ó-
vart. Þó er ekki hægt að segja
að þessi leikur þeirra hafi verið
glansleikur, en það er alltaf erf-
itt að leika knattspyrnu þegar
allt er í einum hrærigraut.
Dómarinn
Rétt áður en leikurinn átti að
hefjast var dómarinn ekki mætt-
ur. Þá bar að garði mann sem
ætlaði að gera allt aðra hluti en
að dæma knattspyrnuleik þetta
kvöld og var hann þvingaður i
starfið. Annar línuvarða fékkst
og úr hópi áhorfenda. Það skal
tekið fram að þessir menn, sem
hlupu þarna í skarðið, hafa báð-
ir dómararéttindi.
Það er eins og sumum finnist
að önnur deildin sé eitthvert
aukamót. Hvort þeim á Melavell-
inum finnst þetta einnig veit ég
ekki, en enginn vallarstarfs-
maður var þó til staðar, til að
reka strákahópinn, sem alltaf
þrengir sér inn á sjálfan leik-
völlinn, út fyrir. Þetta er ekki f
verkahring dómarans, hann hef-
ur nægilegt að gera. Vel má vera
að þetta hafi stafað af því að
vallarstjórinn, Baldur Jónsson,-
var ekki til staðar þetta kvöld,
þá er ég þess fullviss að hann
kippir þessu í lag.
Dómari var Ragnar Magnús-
Næstu leikir í 2. deild em I
kvöld. Þá leika í Hafnarfirðl
Haukar og Þróttur og á Mel*-
velli Víkingur og BreiðabUk. ^