Morgunblaðið - 02.06.1965, Síða 27
Miðvikudagur 2. júní 1965
MORGUNBIAÐIÐ
27 ^
Ketill Ingólfs-
son ver doktors-
ritgerð í Zörich
Ketill Ingólfsson.
TJTVARPIÐ skýrði frá því í gær-
kvöldi, að Ketill Ingólfsson hefði
varið doktorsritgerð við háskól-
ann í Ziirich í Sviss í fyrradag.
Ritgerðin er um kjarnaeðlisfræði,
fjallar um svonefnda sviðskenn-
ingu og heitir á þýzku: „Beitráge
zu exakten Auswertungen in den
Quantitatstheorie der Bellenfeld-
er“.
Ketill Ingólfsson er fæddur í
Reykjavík árið 1936, sonur hjón-
anna Ingólfs Þorsteinssonar,
bankafulltrúa, og Vilborgar Vil-
hjálmsdóttur. Hann varð stúdent
við Menntaskólann í Reykjavík
1956, nam eitt ár við Háskóla ís-
lands, en hefur síðan stundað
nám í Ziirich. Auk náms í tækni-
legri eðlisfræði hefur Ketill lagt
stund á nám í píanóleik við tón-
listarháskólann í Zurich, en hann
hafði áður lokið prófi við Tón-
listarskólann hér í Reykjavík og
haldið hér píanótónleika.
Fádæma
fiskiBeysi
AÐ sögn fréttaritara blaðsins á
Stöðvarfirði og í Borgarfirði
eystra er fádæma fiskileysi á
þeim slóðum um þessar mundir.
Borgfirðingar hafa þó fengið tals
vert af hrognkelsum. Að sögn
fréttaritara á Stöðvarfirði muna
elztu menn ekki eftir öðru eins
sflaleysi.
Síldín enn
s*y99
EKKI frétlist mikið af síldveiði
eystra í gær, þótt bátar köst-
■uðu töluvert á þremur stöðum.
Lóðað var á stórar torfur á öll-
um svæðunum, sem voru allt að
40 faðma þykkar, en síldin er
stygg. Svæðin eru 80 mílur og
60 mílur undan Glettingi og rúm
léga 100 mílur austur frá Langa
nesi.
SLausasala j
vindlifiga
i bönnuð
I GÆR, 1, júnf, tók gildi
I reglugerð, sem fjármálaráðu-
Sneytið gaf út í s.l. mánuði og
felur í sér bann við sölu
vindlinga í lausasölu. Segir í
reglugerðinni, að ekki megi
selja vindlinga í áteknum um
búðum.
— Námuslys
Framhald af bls. 1
Um þúsund björgunármenn
unnu sleitulaust í allan dag við
að reyna að komast til innikró-
uðu mannanna. En þeir fundu
hvergi lífsmark, aðeins liðin lík.
AUt bendir því til þess að þetta
sé annað mesta námuslys, sem
orðið hefur í Japan. En í nóvem-
ber 1963 fórust 453 námumenn
við sprengingu í Omuta-nám-
unni skammt þarna frá.
Eftir sprenginguna gekk Yos-
hio Sakurauchi, iðnaðar- og verzl
unarmálaráðherra, á fund Eisako
Sato, forsætisráðherra, og lagði
fram lausnarbeiðni sína. Sagði
Sakurauchi við fréltamenn að
hann harmaði mjög þetta slys,
sem orðið hefði einmitt þegar
ríkisstjórnin var að ganga frá
nýjum ákvæðum til að tryggja
öryggi námumanna. Kvaðst hann
taka á sig fulla ábyrgð vegna
slyssins og því vilja láta af emb-
ætti.
Slysið i Yamano-námunni er
þriðja námuslysið í Japan á þessu
ári. 61 maður fórst í Yúbari-nám-
unni á Hokkaido 22. febrúar sl.
og 30 fórust við pprengingu í
kolanámu skammt frá Nagasaki
9. apríl.
— Norðlendingar
Eramhald af bls 28
og benti á að margt mætti af
þeim læra.
Fyrir rá'ðstefnunni lágu frá
undirbúningsnefnd greinargerðir
og tillögur varðandi atvinnu-
ástand og úrbætur frá kauptún-
um og kaupstöðum á Norður-
landi, auk annarra þingskjala.
Ráðstefnunni var skipað í
þrjár verkefnanefndir er skiptu
þannig með sér verkum: fram-
tíðarmál, atvinnumál og skyndi-
úrræðL
Á laugardagskvöld bauð bæjar
stjórn Akureyrar fulltrúum til
kvöldverðar í Skíðahótelinu.
Fundir á ráöstefnunni hófust
að nýju á sunnudag kl. 2 e.h. og
að lokum umræðum um tillögur
og nefndarálit var gengið til af-
greiðslu mála. Allar ályktanir
ráðstefnunnar vorú samþykktar
samhljóða. í þeim kemur m.a.
fram að nauðsynlegt sé að á
Norðurlandi fari fram svæðis-
skipulagning og kerfisbundin
byggðauppbygging. Lýst er
ánægju yfir fyrirhugaðri stofn-
un framkvæmdasjóðs strjálbýl-
isins. Lögð áherzla skipulagða
atvinnuuppbyggingu með auknu
fjármagni og verkaskiptingu í
atvinnugreinum á milli byggðar
laga.
Þá taldi ráðstefnan nauðsyn
að rikisstjórnin hlutaðist til um
að bæjar- og sveitarfélögum
verði lána'ð fé þegar í vor til
atvinnuaukningar. Atvinnuleysis
bætur verði hækkaðar og fjár-
magni atvinnuuppbyggingar í
þeim byggðarlögum er búa við
ónóg atvinnuskilyrði og verjast
þurfa atvinnuleysi. Aflatrygg-
ingasjóður bæti að mestu mismun
á aflahlut og kauptryggingu,
þeirra báta er leggja upp í heima
höfn. Stofnlán fiskibáta verði
lengd. Ríkið hafi forgöngu um
síldar og fiskflutninga til Norður
lands til atvinnuaukningar.
Þá fól ráöstefnan undirbúnings
nefndinni að starfa áfram og
fylgja eftir tillögum hennar og
kalla saman fulltrúafund kaup-
staða og kauptúna á Norðurlandi
til þess að ræða um atvinnu og
svæðismál Norðurlands.
Undirbúningsnefndina skipa:
Áskell Einarsson, bæjarstjóri,
Húsavík, formaður, Magnús E.
Guðjónsson, bæjarstjóri, Akur-
eyri, ritari, Ásgrímur Hartmanns
son, bæjarstjóri, Ólafsfirði,
Rögnvaldur Finnbogason, bæjar-
stjóri, Sauðárkróki, Stefán Frið-
bjarnarson, bæjarritari, Siglu-
fiiöi.
Formaður undirbúningsnefnd-
ar sleit ráðstéfnunni rétt fyrir
kl. 7 e.h. á sunnudag með ræðu.
(Frá Ráðstefnu um atvinnu-
tnál á Norðuriandi),
Geirlaugur Árnason, rakarameistari á Akranesi, lýkur við aö
kliþpa ítúnar.
Oddur skrifar:
Gdfnaljós með
hrísbugga
Á nú að fara að slá hausinn á
mér, þegar grasið grær sem óð-
ast um alla jörð? spurði Rúnar
bítill andvarpandi, nýkominn út
frá Njáli skólastjóra. „I>ú hefur
fengið ágætis einkunn, 9,29“,
hafði skólastjóri sagt, „og átt að
taka við tveimur bókaverðlaun-
um í kirkjunni, og nú verðurðu
að láta klippa þig“. Rúnar bítill
klóraði sér í höfðinu; hárið vildi
hann ekiki missa. Ókunnur mað-
ur hafði sagt: í>etta er gáfuleg-
ur hnakki. Hann gekk inn í
næstu búð, keypti sér þrjú glös
af All-Star-Drene shampoo og
tæmdi budduna. Hálfri annarri
klukkustund seinna bankaði
hann hjá Njáli skólastjóra á
Vallholti 23 og sagði: „Ég er bú-
inn að þvo mér þrisvar sinnum
um höfuðið, semsagt í einum
rykk. Þarf ég endilega....“.
„ — Ég hef aldrei sagt, að þú
værir lúsugur, væni minn“,
greip skólastjóri fram í. „Hann
er ólæknandi“, tautaði Rúnar
bítill í hálfum hljóðum — vildi
ekki missa hárið. — Þögn. Nú
var eins og eldingu slægi niður í
bítilinn. „Hefur guð ekki gefið
mér hárið, og er þá synd að bera
það, jafnvel þótt í kirkju sé?“
— Sikólastjóri sá sigurglampa í
augum bítilsins og dáðist að
stráknum. Samt þótti honum nú
nóg komið og var hvass á brún:
„Komdu nú ekki eins og tröll-
karl með hrísbagga á höfði til
Rúnar bítill i fullum skrúða
fyrir klippingu.
að veita viðtöku bókaverðlaun-
unum“. Rúnar bítill sá sitt ó-
vænna og lagði af stað til Geir-
laugs Árnasonar, rakarameistara,
en hafði á tilfinningunni, að
hann væri ósigraður.
— Oddur.
— Hvitra gisla
Framhald af bls. 1
um, en vitað af fimm mála-
liðar hafa fallið og átta særzt.
Leitinni að föngum upp-
reisnarmanna er haldið áfram.
Er talið sennilegt að þeir
hafi verið fluttir til trúboðs-
stöðvarinnar Banalia um 190
km. fyrir suð-austan Buta.
— S-Vietnam
Framhald af bls. 1
þyrmingar Viet Cong-manna. Lík
beggja Bandaríkjamannanna
höfðu bersýnilega verið notuð
sem skotskífur fyrir hríðskota-
byssur, en lík hinna innfæddu
mörg verið skorin í sundur. Báru
andlitin enn merki þeirrar skelf-
ingár, sem gripið hefur hermenn-
ina við pyntingar kommúnista.
Ein sveit bandarískra flugvéla
réðist í dag á brú eina um 110
kílómetrum fyrir sunnan Hanoi,
höfuðborg Norður-Vietnam. ’Er
þetta ekki í fyrsta sinn, sern loft-
árás er gerð á þessa brú, en ekki
hefur fyrr en nú tekizt að eyði-
leggja hana. Alls töku 48 flugvél-
ar þátt í órásunum í dag, og réð-
ist ein flugsveit á vopnabúr og
birgðastöð við Hoi An þriðja dag
inn í röð. Stóð sú árás yfir í tíu
mínútur og segja flugmennirnir
að gífurlegar sprengingar , hafi
orðið í birgðágéýmslunum.
— Bergristur
Framh. al bls. 15
hingað, ekki sízt þar seiri íslend-
ingar hugsa ekki að jafnaði aftur
íyrir fornöld og þessi. list væri
frá forfeðrum þeirra kotnin.
Sýningin verður opnuð í dag kl.
5 fyrir boðsgesti og síðan opnuð
almenningi, en hún verður opin
alla daga frá kl. 14-22 fram til
20. júní.
— Miinchen
Framhald af bls. 10
an kost og orðið að horfast all-
óþyrmilega í augu við hæfi-
leikaskort sinn á sviði málara
listarinnar. Var Hitler þá þeg-
ar orðinn gagnsýrður Gyðinga
hatari. 8. nóvember 1923 gerði
hann hina frægu — en enda-
sleppu — „bjórkjallaraupp-
reisn“ í Búrgerbráukjallaran-
um í Múnchen. Og eftir að
hann komst til valda lét hann
reisa í borginni margar bygg-
ingar nazismanum til dýrðar.
I styrjöldinni varð Múnchen
hart úti í árásum Banda-
manna.
Um það bil þriðji hluti borg
arinnar var lagður í rúst og
glötuðust þá mikil menning
arverðmæti eins og svo víða
annars staðar. En mörgu tókst
þó að bjarga, og mætti af því
nefna sérstaklega rokoko-
skreytmgár Cuvilliés-leikhúss
ins, sem rifnar voru niður og
faldar á öruggum stað. Um
það bil hálfum mánuði síðar
hafði húsið sjálft verið lagt
í rúst. Eftir styrjöldina var
leikhúsinu komið upp á ný
með hinum gömlu skreyting-
um og er nú mikið yndi þeirra
fjölmörgu, sem þangað sækja
til að hlýða á rokokomúsik
Mozarts og samtíma manoa
hans.
I Múnchen er eitt mesta safn málverka Rubens, sem til er í heiminum. Meðfylgjandi mynd er
úr einum Rubens-salnum í „Alte Pinakothek", en þar er. að finna mikla málverkafjársjóði, ui.a.
fjölda mynda hollenzku meistaranna.