Morgunblaðið - 17.11.1966, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.11.1966, Blaðsíða 4
4 MORCU N BLAÐIÐ Fimmtudagur 17. nóv. 196S BÍLALEIGAN FERÐ SÍMI 35135 OC 34406 SENDU M IMAGINIÚSAR SKIPHOLT'. 21 SÍMAR 21190 eftir lokun simi 40031 *.*S>SÍM11-44-44 \mm Hverflsgötu 103. Daggjald 300 og 3 kr. ekinn km. Benzín innifaliö. Síml eftir lokun 31160. LITLA bíloieigon fng-ólfsstræti 11. Sólarhringsgjald kr. 300,00 Kr. 2,50 ekinn kílómeter. Benzin innifalið í leigugjaldi Sími 14970 BÍIALEIGAIM VAKUR Sundlaugaveg 12. Sími 35135. BÍLALEIGA S/A CONSUL CORTINA Sími 10586. Kr. 2,50 á ekinn km. 300 kr. daggjald RAUOARÁRSTfS 31 SÍMI 22022' Fjaðlir, fjaðrablóð. hljóðkútar púströr o.fl. varahlutir í margar gerðir bifreiða. Bílavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegi 168. — Sími 24180. VEGG, BORÐ, GÓLF OG LOFTLAMPAR frá hinum heimsþekktu holienzku verksmiðjum raak Amsterdam. Br. Ormsson hf. Lágmúla 9. — Sími 3Ö820. Sjónvarpsgestir „Ein í vandraeðum" skrifar: „Kæri Velvakandi. Mig langar til þess að spyrja þig ráða í vandamáli sem ég á við að stríða, kannski geta les- endur þínir einnig gefið góð ráð. Áður en ég átti því láni að fagna að eignast sjónvarp, hugs aði ég ekki út í hve mikla plágu ég losnaði við, þ.e. „sjón- varpssýkisgesti". Stundum hafði ég að vísu lesið aðsend bréf „dönsku blaðanna“ um vand- ræði fólks í þessu efni en satt að segja datt mér í hug að þar kæmi til kasta sparsemi Dana, þeir hreinlega tímdu ekki að gefa fólki þessu kvöldkaffi. En nú er ég komin á aðra skoðun. Þetta er hreinasta plága, látum vera að gefa fólki kaffi (ég er löngu hætt að baka sérstaklega handa svona gest- um, þeir fá bara það sem til er), en bara það að geta aldrei vitað hvort maður fái að vera í friði með sinni eigin fjöJ- skyldu, húsið getur fyllst af fóLki, sem eingöngu er komið til tþess að „hór£a“, allir þurfa að fá stól, og oft er það svo, að hreinlega fer ég sjálf fratm úr stofunni, því það er ekki rúm fyrir mig inni. Hvers vegna kaupir þetta fólk sér ekki sjónvarp? Mér skilst a'ð greiðsiuskilmá'lar séu svo góðir að hver og einn geti átt tæki, sem kærir sig um. Ég spurði einu sinni mann nokk- um hvers vegna hann keypti sér ekki tæki, svaraði hann því til að hann ætlaði fyrst að sjá hvernig íslenzka stöðin yrði hjá mér, áður en hann festi kaup á tæki. Hugsa sér, hvílik frekja. Ég er ekki að halda því fram að sjónvarpseigendur vilji ekki gjarnan fá tii sín fólk stöku sinnum, bæði til þess að „hor£a“ og spjalia, en því þá ekki að gefa húsráðendum kost á að bjóða til sín því fólki, sem það gjarnan vilL fá í heimsókn. Hvað á að gera í svona til- felli, þegar ómögúlegt er að segja hreint út að maður vilji ekki fá fólk svona oft. Ég er satt að segja búin að fara í kringum efnið „eins og köttur í kringum heitan graut“, en annað hvort er það fólk, sem ég á í höggi við sérlega tor- næmt, eða þá svona tillitslaust. Annars mætti skrifa Langt mál um hve heimilum manna er lítil virðing sýnd oft og tíð- um, a.m.k. finnst mér ekki ná nokkurri átt að fólk geti ekki verfð óhnllt á sínum eigin heim iium í skauti sinnar eigin fjöl- skyldu. í>að minnsta sem fóLk getur gert, er að hringja á und- an sér til þess að vita hvernig stendur á, ef það getur ekki beðið eftir því að fá heim- boð. Og að lokum langar mig til þess að ljúka lofsorði á íslenzka sjónvarpið. Mér finnst það hafa farið fram úr öllum vonum mín um, satt að segja hafði ég enga trú á að þa'ð yrði skemmtilegt, en það er nú eitthvað annað. Og tæknilega hliðin (sem að almenningi snýr) virðist vera 100%, am.k. getur ekki venju- legur áhorfandi séð annað en þetta séu þaulvanir menn sem sjá um útsendingarnar. Maður er nú svo sem ýmsum vankönt- um kunnugur úr því banda- ríska, enda verður trúlega að gera ráð fyrir truflunum og alls kyns bilunum, sem mér finnst satt að segja ekkert að segja við. Ef ég gæti fundið a'ð ein- hverju, þá eru textarnir látnir hverfa of fljótt og eru heldur óskýrir, en að því hefur verið fundið á öðrum vettvangi og verður væntanlega lagfært við fyrstu hentugleika. Með vinsemd og virðin.gu. „Ein í vandræðum“. Meiri sóðaskapur Lesandi skrifar: „í þætti Velvakanda í Morg- unblaðinu 12. þm. er bréf með frásögninni „Burt með sóð- ana“. Bréfritari ásakar þar ung an mann, sem hann telur eiga heima í Kópavogi, fyrir að kasta tómri mjólkurhyrnu út um bilglugga „út á mitt Aust- urstræti". Ég hrökk við þegar ég las niðurlagið: „Það getur verið að umraeddir mannasiðir tíðkist í Kópavogi, en við líð- um þetta ekki í hjarta Reykja- vikur“. Er maðurinn að gera gys að veslings Reykvíkingum? Sóðaskapur af því tagi, sem hann réttilega fordæmir, hefur verið liðinn í „hjarta Reykja- víkur" óátalið að mestu um ára tugi. Hvernig er um áð lítast t.d. árla á mánudagsmorgni eft- ir góðviðrishelgi á nýlega end- urbættum götum borgarinnar? Bréfsneplar, eldspítur, sígar- ettu- og vindlastúfar, sælgætis- umbúðir, tómir vindlingapakk- ar, ávaxtahýði, hettur af gos- drykkjaflöskum, flöskubrot, tómar mjólkurhyrnur og jafn- vel matarleyfar, að ógleymd- um haugum af vindlingastúfum sem sýnilega hafa verið inni- hald öskubakka bifreiða. Umgengnds sóðaskapurinn á götum borgarinnar er svo of- boðslegur, að furðulegt er að herferð skuli ekki vera hafin fyrir löngu gegn þessum ó- sóma. Lakast er þetta einmitt í „hiarta Reykjavíkur", á Lækjartorgi og nágrenni þess. Það er eins og fólki finnist sjálf sagt að kasta allskonar drasli beint niður fyrir tæmar á sér hvar sem það er statt. Hér er ekki um að sakast við sérstakar manntegundir. Þessi ósiður er of almennur til þess. í hinum fjölmenna rusJakastarahópi get ur að líta fínar frúr og virðu- lega embættismenn, og við hverju er þá að búast t.d. af börnum, sem sjá fordæmin. Er bömum í skólunum og á heimiLunum bent á að það sé ekki háttur siðaðra manna að kasta bréfarusli o. þ. h. á al- mannafæri? Vafasamt. Og ekki bera kjörstaðir barnanna — sjoppunágrennin — þess vott. Þjóðhátíðardaginn 17. júní síðastliöinn átti ég leið um há- tíðarsvæðið. Það mun hafa ver- ið á milli nóns og miðaftans. Allt var þá með ró og spekt og fór vel fram, eins og blöðin orð- uðu það, en að líta yfir hátiðar- svæðið og nágrenni þess var bókstaflega eins og áð líta yfir sorphaug. Spjöldum hafði verið komið fyrir á svæðinu, sem á voru skráð mjög hógvær til- mæli um góða umgengni. Ár- angur: Enginn. Ég hef átt tal við nokkra þá, er göturnar hreinsa og töldu þeir að götu- sóðaskapur í borginni faeri mjög í vöxt. Má gera ráð fyrir að sá vöxtur stafi af fólksfjölg- un og bættum efnahag. Ég hefi þá trú að unnt sé að uppræta umgengnis-ómenning- una á götum Reykjavíkur, að mestu eða öllu leyti á skömm- um tíma, ef rösklega er að unn- ið, og er ég vi'óbúinn að ræða það nánar ef tilefni gefst Friðrik Stein&son". ★ Dráttarvélaslysin Hafnfirðingur skrifar; „Kæri Velvakandi! Enn einu sinni hefur orðið hörmulegt banaslys, er dráttar- vél valt út af veginum, og ung- ur piltur lét þar líf sitt. Þessi síendurteknu banaslys vekja mann til umhugsunar um hvort ekki sé mögulegt að draga úr eða afstýra með öllu, þessum geigvænlegu slysum. Mönnum hefur komið til hugar að láta útbúa stálgrindur á dráttarvél- arnar til varnar ökumanni. Hvart þetta kemur að gagni skal ósagt látið, en þó get ég fallizt á að slíkt sé til bóta. En það sem fékk mig til að senda þér þessar linur, eru þankar mínir um að orsaka tii þessara hörmulegu slysa sé e. t. v. að leita í stýrisútbúnaði drátt arvélanna. Ég á þar við, að svo sem allir vita er stýri dráttar- véla og bíla ólíkt að því leyti að stýri þeirra fyrrnefndu er mjög lítið (doblað) en bíla hina vegar mun meira, m. ö. o. stýri dráttarvéla þarf ekki að hreyfa nema mjög lítið til þess að hjói- i-in snúi mjög mikið tii þeirrar hliðar, sem stýrið er hreyft. Nú er það svo, að þeir er dráttar- vélum stjórna, þurfa oft að líta aftur fyrir sig, til að líta eftir kerru sem oft fylgir þessurn tækjum. Er þá nokkuð fráLeitt að láta sér til hugar koma, að ökumenn slikra véla taki í ó- gáti örlítið í stýrið um leið og þeir Mta aftur eða til hliðar. Hvað gerist þá á tæki með slíkt stýri? Það hlýtur að þjóta út til hliðar, og þá út af vegi, ef ekki eru sérstaklega snör hand- tök við höfð. Því vil ég biðja þá er láfa þessi mál til sín taka, að at- huga þetta atriði, kanna hvort úrbóta á framangreindurn stýrisútbúnaði er ekki þörf. Mér er ljóst að þessi útbúnað- ur á stýri dráttarvéla er til að auðvelda stjórn tækisins við jarðvinnslustörf, en ég held að það verði samt að breyta stýr- inu á þeim, ef það mætti verða iil að forða banaslysum. Með beztu kveðju. H. Á“. Ritarastarf Starf eins ritara við sakadóm Reykjavíkur er laust til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist fyrir 25. þ.m. tii skrif- stofu dómsins, Borgartúni 7, þar sem gefnar eru nánari upplýsingar um starfið. Sakadómur Reykjavíkur. Óskum eftír meðeiganda í Mtlu loftpressufyrirtæki, (hlutafélag) sem getur verið á loftpressubíl. Hluthafi þarf ekki að leggja fram nema ca. 50.000 kr. Tilboð sé skilað á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 20. þ.m. merkt: „Framtíð — 8280“. Ráðskona óskast til að sjá um mötuneyti stutt frá Reykjavík. Húsnæði á staðnum. Uppl. í símum 93-5115 og 93-5124. IXIýjung — Nýjung Grófir netsokkar og peysur. Munstraðir sokkar og peysur í sömu gerð. (Qcuéíta Austurstræti 7 — Sími 17201.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.