Morgunblaðið - 17.11.1966, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.11.1966, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 17. nóv. 1966 MORGU N BLAÐIÐ 21 Guðmundur Magnússon kaupmaður — Minning T. 16. maí 1903 — D. 8. nóv. 1966 GUÐMUNDUR Magnússon, kaup maður, anadaðlst 8. þ.m. í sjúkra húsi borgarinnar. Hann var íæddur að Dýrastöðum i Norður órdal 16. maí 1903. Foreldrar hans voru þau hjónin Magnús Erlingsson, bóndi þar og kona hans Ágústína Torfadóttir. Eftir að foreldrar hans brugðu búi var hann með þeim á ýmsum bæjum í Nobðurárdal til átján óra aldurs, en síðan þrettán ár vinnumaður í Hjarðarholti í Staf holtstungum, að undanskildum nokkrum vertíðum í Ytri-Njarð- vík. Að lokinni barnafræðslu var hann einn vetur í skólanum i Hvítárbakka og annan í skól- •num að Laugum í Þingeyjar- •ýslu. Stóð hugur hans jafnan mjög að búsýslu þótt annað yrði hlutskipti hans í lífinu. Systkini hans, sem enn eru á lífi eru Þór- arinn, skósmiður og íþrótta- frömuður, Torfi, bóndi í Hvamrni ( Hvítársíðu og Vigdís, húsfreyja ( Reykjavík. Ári'ð 1935 fluttist hann til Reykjavíkur' og sama ár kvænt- ist hann eftirlifandi eiginkonu •inni, Sveinbjörgu Klemenzdótt- ur, sem stofnað hafði prjóna- Btofunna Hlín hér í borg. Eign uðust þau hjó tvo syni, Hilmar «g Magnús. Ég kynntist fyrst Guðmundi eftir að hann kvæntist Svein- björgu, en hún var og hefir ver- ið einn af mínum tryggustu við- Bkiptavinum. Þau hjón ráku um óratugi prjónastofuna og nú síð- ustu árin verzlunina Hlín. Fyrir rúmum tuttugu árum eignuðust þau hjón jörðina Litla-Skarð í Stafholtstungum, og fyrir tilstilli Guðmundar eignaðist ég jörðina Grafarkot, en jarðir þessar liggja saman. Báðum jörðunum fylgir vei'ði- réttur í Norðurá. Fram að þeim tíma hafði ég óspart gert grín að þeim mönn- om, sem gátu dögum saman ver- 18 að dunda við laxveiði. Þó lét ég tilleiðast fyrir áeggjan Guð- mundar að reyna þetta undir handleiðslu hans og tilsögn. Og þar með var ég búinn að taka bakteríuna. Guðmundur var afbragðs veiðimaður, og hefi ég fáa menn séð jafnast á við hann ( leikni og sérstaklega í með- ferð hans með lax á línu, enda missti hann mjög sjaldan lax. Það að ég eignaðist jörðina, og hann fékk mig út í veiðidelluna, var fyrsti stóri greiðinn, sem Guðmundur gerði mér. Síðan höf um við verið vefðifélagar, og hef ir aldrei borið skugga á þann félagsskap. í litlum hvammi á lækjar- bakka í landi Grafarkots, stutt frá veiðihúsi mínu „Stekknum", byggðu þau hjón sér undurfagr- •n sumarbústað og nefndu hann „Lækjarhvamm“. Grasið fékk aldrei næði til að gróa í göt- unni milli þessara bústaða. Það, sem einkenndi Guðmund mest, var vinsemdin og glaðværð im. Allra vandræði vildi hann leysa svo fremi hann átti þess kost. Mér er ekki kunnugt um o’ð hann hafi nokkurn tíma troð- 16 illsakir við nokkurn mann, og vildi heldur sjálfur bíða tjón en að á aðra væri gengið. Gest- risni hans, og ekki síður konu hans, var svo mikil að nærri of- rausn stappaði. Aldrei var hann glaðari en þegar gest bar að garði, og ánægðastur var hann því fleiri sem kunningjarnir voru í kringum hann. Ekki bar hann það utan á sér þótt stundum væri erfitt og á móti blési. Síðastl. niu ár átti hann vfð vanheilsu að stríða, og mátti því búast við kallinu, sem enginn kemst undan, hvenær lem var. Samt kom mér fráfali hans nú á óvart, því að undan- förnu hafði hann verið sæmilega hress. Fyrir utan sökhuðinn verður mér þakklæti efst í huga. Þakk- læti fyrir langa og trygga vin- áttu. Þakklæti fyrir góðvild hans og hjálpsemi. Þakklæti fyrir margar ógleymanlegar samveru- stundir uppi við Norðurá, og ekki hvað sízt fyrir góðvild hans í garð barna okkar hjóna og barnabarna, enda tel ég að mannkostir hans hafi komið hvað skýrast i Ijós í samskiptum hans vfð börn og unglinga. Þegar dauðinn hrisstir hramm, hratt upp slítur rætur, fellur lauf við „Lækjarhvamm" lækurinn hljóðan grætur. Það verður dauflegra við „Stekkjar“-veiðarnar eftir að Guðmundur er horfinn, en þó er eitt víst, að hver steinn og hver blettur mun vekja hugljúfar end urminningar um liðnar samveru- stundir. Þessi orð skulu nú ekki höfð fleiri, en að endingu vil ég votta eftirlifandi eiginkonu og sonum og systkinum hins látna inni- lega samúð. Magnús Þorgeirsson. t LÍFIÐ er fyrirbrigði, sem enginn skilur. Menn koma og hverfa, og þannig heldur hringrásin áfram um aldir. Við spyrjum en fáum ekki svar, nema þau, sem trúin veitir. Og eins og skáldið sagði: En aldrei sá neinn þann sem augað gaf — og uppsprettur ljóssins ei fundnar né skýrðar. Með beygðum knjám og með bænastaf menn bíða við musteri allrar dýrðar. En autt er allt sviðið og harðlæst hvert hiið og hljóður sá andi, sem býr þar. (E. B.) Aldrei er mannlegur andi eins or’ðvana eins og þegar hann stendur andspænis dauðanum. Hvað er hægt að segja, — Þá er þögnin innfjálg. En þegar við kveðjum látinn vin, er margs að minnast og margs að þakka, þótt orðin' hljómi fátækleg í eyrum. En það er ljúfleg athöfn að leggja blómsveig á gröf látins vinar og minnast hans með þakk læti fyrir samfylgdina og vinátt- una á liðinni ævi. Þess vegna finn \ég mig knúðan til að rita nokkur fátækleg orð í þakklæt- is- og' kveðjuskyni vi'ð minn kæra vin, Guðmund Magnússon, sem nú hefur verið kvaddur á braut. Guðmundur sá dagsins ljós a‘ð Dýrastöðum í Norðurárdal þann 16. maí 1903. Hann var fimmta barn hjónanna Ágústínu Torfa- dóttur og Magnúsar Erlingssonar bónda, er þar bjuggu. Þegar Guð mundur fæddist var fátækt í landi. Hjónin á Dýrastöðum voru ekki áuðug af þessa heims gæðum, en þau áttu gnægð af góðleika hjartans til að bjóða alla velkomna, sem bar að gaiði. Magnús bóndi átti ekki jörðina, sem hann bjó á, og því gat ör- yggið brugðizt áður en varði. Eigi liðu mörg ár frá fæðingu Guðmundar, yngsta barnsins, er Magnús varð að hrekjast af jörð- inni og flytjast búferlum með barnahópinn. Eigi var um marga kosti að velja. Magnús flutti fjölskyldu sína á kostárýra jörð, sem Desey hét og er nú komin í eyði. Bær þessi bar nafn me'ð réttu, því að þegár Norð- urá flæddi yfir bakka í leys- ingum á vorin eða á vetrum, þá var bærinn umflotinn á alla vegu, og er vötnin frusu, stóð bærinn eins og þúfa upp úr frer- anum. Þarna komst Guðmundur og systkini hans í kynni við ein- angrun og allsleysi fátæktar á æskuárum sínum. Þarna dvöld- ustu þau í fjögur löng ár. Þá tók Magnús sig aftur upp með fjölskyldu sina, og næstu árin er hann á ýmsum stöðum í sveit- inni, heilsuveill eftir vosbúð og erfiði liðinna ára. Guðmundur var ávallt í föðurhúsum. Er hann hafði aldur til, var hann sendur í heimavistarskóla í sveit inni til að læra lestur og skrift og kristin fræði. Og svo líða ár- in. Nítján ára að aldri ræ'ðst hann sem vinnumaður að Hjarð- arholti. Það varð hver að bjarga sér sem bezt gegndi. Þar dvelst Guðmundur næstu þrettán árin. Má ætla að þar hafi farið sæmi- lega vel um hann, því að ávallt síðar bar hann hlýhug til þessa heimilis. En árslaunin á þeim tíma voru mögur og vinnu- mennskan því ekki arðvænleg. Leita varð því til fanga annars staðar. Guðmundur ré'ðist til út- róðra suður með sjó á vetrarver- tíðum. Til þess þurfti vissulega dugnað og hörku, en sjálfsbjarg- arviðleitnin var Guðmundi í blóð borin. Og sjórinn virtist eiga að ýmsu leyti vel við hann, þótt hann væri úr „moldu vaxinn.“ ÖU sin æviár var Guðmundur unnandi góðra bóka. Þetta átti djúpar rætur í eðli hans. Hann hafði ávallt langað til að læra, en tækifæri til þess voru lítil. Samt tókst Guðmundi að komast í Hvítárbakkaskólann, er var eins konar menningarmiðstöð Borgarfjarðar á þeim árum. Þar var hapn einn vetur. Síðar var hann einn vetur í alþýðuskólan- um að Laugum í Þingeyjarsýslu. Þetta' var öll hans skólaganga, en hún veitti honum þá undir- stöðu, sem gaf honum skilning og víðsýni í mannlegum sam- skiptum síðar á ævinni. En svo verða straumhvörf í lífi hans. Þrjátíu og tveggja ára kveður Guðmundur Borgarfjörð- inn og flyzt til Reykjavíkur. — Eigi vissi hann hvaða örlög biðu hans í höfuðborginni, nema það, að þar beið unnusta hans, sem hann gekk að eiga. Konan, sem hann valdi sér fyrir lífsförunaut var Sveinbjörg Klemenzdóttir frá Hvassafelli, sem sér nú á bak manni sínum. Það er óhætt að segja nú, að þetta hafi orðið þeim heillaspor þótt framtiðin væri óviss og lífsróðurinn erfiður. — Guðmundur var orðinn heilsu- veill og ekki ti.l þungra átaka: hafði hann fengið sjúkleika í höf uðið eftir mislinga, er olli hon- um þjáninga. En hann var nú ekki lengur einn. Hann hafði nú eignazt konu, sem hugsaði um hann, hlúði að honum og reynd- ist honum fórnfús og dyggur lífs förunautur til hinztu stundar. Atvikin höguðu því svo, að þau gátu komið sér upp smáverzlun með prjónles, sem Sveinbjörg framleiddi. Þetta var smátt í fyrstu, en svo er oft um nytsamt brautryðjendastarf, eins og þetta var. Þetta blessaðist vonum framar og með hjálp góðra og skilningsríkra manna. Guðmund ur studdi konu sína með ráðum og dáð, og á nokkrum árum varð þetta að arðvænlegu fyrirtæki: Prjónastofunni Hlín, sem margir kannast við. Hamingjan blessaði starf þeirra. Hagur þeirra hafði vænkazt, og gátu þau nú farið að njóta ávaxtanna af erfiði sínu. Þau sköpuðu sér fallegt heimili með þrautseigju og þol- inmæði. Og sá andi, sem ríkti þar, var andi gestrisni, gjafmild- ar og fórnfýsi. Berði maður þar að dyrum, komu sannir vinir til dyra. — Þessi ástríku hjón eign- Uðust einn sori barna, sem vegna heilsu sinnar krafðist þrotlausr- ar umhyggju elskandi móður. En þeim nægði ekki að elska einn dreng og eignuðust þau ann an efnisdreng, sem nú stendur við hlið móður sinnar í söknuði hennar. Og nú er Guðmundur vinur minn búinn að ljúka vegferð sinni í þessum reynsluheimi. Og þegar ég nú kveð hann í hinzta sinn, er mér ljósara en fyrr hversu mjög vinátta hans hefur auðgað tilveru mína í þau þrjá- tí-u ár, sem við höfum þekkzt. Á vináttu okkar bar aldrei skugga. Engum hef ég kynnzt, sem var traustari í vináttu sinni en hann. En þáð, sem var einn sterkasti þátturinn 1 eðlisfari hans, var gleðin. Þessi fölskva- lausa gleði var segullinn í per- sónuleika hans. Þessi gleði hans gladdi aðra; og ef hann gladdi þá ekki með brosi sínu, þá gladdi hann þá með gjöfulli hönd, því að hann vildi hvers manns vanda leysa, sem til hans leituðu. Og konan hans stóð við hlið hans og lagði blessun sina yfir oll hin góðu verkin. Hans vilji var hennar vilji og gagnkvæmt. Og er ég sá hann seinast á banabeði, komu mér í hug þessi spakvitru orð, sem höfð eru eft- ir andlegu mikilmenni: „Sá, er geymir í hjarta sinu ást á sann- leikanum, hann mun lifa en ekki deyja, því að hann hefur dreypt á veigum ódauðleikans." í brjósti Guðmundar barðist göfugt hjarta, hjarta, sem unni sannleik og réttlæti. Og ef þetta jarð- neska líf er reynsluskóli mann- legra sálna, sem ég trúi, þá er ég viss um, að Guðmundur vin- ur minn hefur útskrifast með beztu einkunn. Og ég get tekið undir með skáldinu, sem kvað: Vor andi, er vó og mældi him- inhjólin, á hæðum varir, þegar slokknar sólin. í eilifð drekkur sál vor Sunnu erfi. (E. B.) S. Sörenson. t „Floginn ertu sæll til sóla þá sortnar hið neðra.“ J. H. ÞESSAR ljó’ðlínur hafa leitað fast á huga minn, frá því ég frétti lát vinar okkar Guðmund- ar Magnússonar kaupmanns, því ekki efa ég það að til sóla og söngvalanda hefur leið hans leg- ið, hins glaða prúða drengskap- armanns. Hverjum þeim, sem honum kynntust varð hann hugljúfur og ógleymanlegur fyrir hjartahlýju og velvild til alls og allra, engan veit ég er bar kala til hans, enda væri sá hinn sami kalinn á hjarta. Ekki er það ætlun mín að rekja hér ætt eða æviferil Guðmund- ar, enda af öðrum gert, heldur er nú þakklætið efst í huga mín- um, hjartans þökk fyrir allt, hverja stund frá fyrstu kynnum, tryggð hans og vináttu í mina garð og fjölskyldu minnar um áratugi. Engum manni hef ég kynnzt um dagana, sem átti léttari lund e’ða glaðara og hlýrra viðmót. Það mátti segja um hann að gleðin geislaði frá honum, þó hafði hann við langvarandi van- heilsu að stríða og fékk sannar- lega sinn skerf mældan af and- streymi lífsins, en þeim, sem ekki voru því kunnugri gat dulist það, því þá var Guðmundur sárþjáð- ur ef hann átti ekki gleðibros og gamanyrði á vörum, en þess skal líka minnst að hann stóð ekki einn, við hli'ð hans stóð konan hans traust og örugg í hverri raun uns yfir lauk. Þau sneru bökum saman og studdu hvort annað í stormum lífsins, voru hvort öðru skjöldur og skjól. Guðmundur var frábær heim- ilisfaðir, ég vil raunar segja hús- faðir, því þeim, sem í húsi han» bjugggu var hann sannur vinur og hjálparhella. Fegurð unni Guðmundur hvort sem hún birtist í náttúrunni, fag- urri hljómlist eða fögru ljóði, heimili hans ber þess fagurt vitni, enda var hann framúrskar- andi snyrtimaður á öllum svið- um. Nú er hann horfinn sjónum okkar um sinn, en minningin um hann vakir í hugum ástvina han* og samferðamanna, hún er fögur og hlý og mild eins og vorblær- inn, sem leikur í laufi bjarkanna í hvamminum hans fagra. Ást- vinum þínum sendum við okkar hjartanlegustu samúðarkveðjur. Svo kveðjum vi’ð þig í þeiiri heilögu trú að sú sýn er þér birt- ist á siðustu lífsdögum þínum sé þér nú orðinn dásamlegur veruleiki. Hafðu þökk fyrir allt, já hjartans þökk. Guð blessi þig. R. J. M. Lögfræðingur með nokkurri reynslu óskar eftir starfi. Þeir sem áhuga hafa leggi uppl. inn á afgr. Mbl. fyrir 20. þ.m. merkt: „Áhugi—083 — 8282“. Srndisveinn óskast fyrir hádegi. S. Árnason & Co. Sími 222 1 4. Kókosdyramottur fyrirliggjandi Ó. V. JÓHANNSSON & COMPANY Hafnarstræti 19, símar 12363 og 17563.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.