Morgunblaðið - 17.11.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 17.11.1966, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 17. nóv. 1966 MORGUNBLAÐÍÐ 5 ■.f. -sr- ^'-'v •. UR ÖLLUM ÁTTUM Ágæt affsókn hefur veriff aff leikriti brezka höfundarins James Saunders í Lindarbæ „Næst skal ég syngja fyrir þig þig“. Leikurin er allnýstár- legur, eins og margir þeirra leikja sem færffir hafa veriff upp í Lindarbæ. Á Þjóðleik húsið lof skiliff fyrir ötult starf í þágu avantgarde leik- húsbókmenntanna. 1 leikriti Saunders, sem Oddur Björns- son islenzkaði, er fjallað um girti af, til aff verjast ásókn manna. Efnið verður höfundinum tilefni til margvíslegra hug- leiðinga og víst er um það að engum leiðist þá tvo tíma sem leikurinn stendur yfir. Fréttamaður Mbl. rædi fyr ir nokkru við leikstjórann Kevin Palmer, sem Þjóðleik húsið hefur góðu heilli ráðið til sín í vetur. Palmer er efnafræðingur að mennt, en uppgötvaði Þalíu í úraníuná- mu í Kanada, þar sem hann vann við efnarannsóknir. Hann snéri þegar í stað til Englands hóf að starfa í leik- húsi og hefur síðan helgað leikúsinu alla sína starfskraft.a og hyggst gera það enn um sinn a.m.k. „1 leikhúsinu er ég á réttri hillu“, sagði þessi fyrr verandi efnafræðingur og ævintýramaður í viðtalinu við blaðið. Við spyrjum hann hvernig búið sé að leikurum í Eng- landi og hvernig þeirra starfs skilyrðum sé háttað. „Það er litið á leikara í Eng landi eins og hverja aðra bit heima fá þeir greitt fyrir hverja sýningu og margir þeirra stunda aðra vinnu með leikhúsinu, sem er að sjálf- sögðu mjög óæskilegt og bein- línis skaðlegt“. „Hvert er næsta verkefni þitt hjá Þjóðleikhúsinu Palm er?“ „Það er leikrit með gífur- lega löngum titli, sem við lát um okkur nægja hér að kalla Kevin Palmer enton-geðveikrahælinu í ná- grenni Parísar. í leiknum leiða þeir saman hesta sína de Sade og Marat, sem flest- um mun kunnur úr mannkyns sögunni fyrir hroðalegar blóðs úthellingar í frönsku bylting- unni“. „Heillandi viðfangsefni?" „Ekki kannske heillandi, en áreiðanlega mjög lærdóms- ríkt frá leikrænu sjónarmiði". Við látum útrætt um Marat og de Sade í bili og snúum okkur á ný.að „Næst skal ég syngja fyrir þig“. Við leitum álits hins þrautreynda og gamalkunna leikara Gunnars Eyjólfssonar á þessu leikriti, en hann leikur í því eitt aðal- hlutverkið, ef unnt er að tala um aðalhlutverk í leiknum. Gunnar sagði m.a.: „Þetta leikrit er að mínum dómi nútíma helgileikur. Það fjallar um leit mannsins að guði og skort á bróðurkær- leika, sinnuleysið um náung- ann í þjáningum sínum. Við hendum gaman að honum, ef hann er sérkennilegur en gleymum honum, þegar hann þjáðist. Leikurinn fjallar þann Mikil gróska í leiklistarlífi Rvíkur Rætt við Kevin Palmer - sagt frá starfsemi leikhúsanna sannsögulega atburffi, er maff- ur einn í Englandi lokaffi sig inni frá umheiminum á ofan verffri 19. öld, en hann lézt í elli einn og yfirgefinn áriff 1945 í hreysi sínu, sem hann nikka og umrenninga. Kiör þeirra eru fremur léleg og þeir hafa enga atvinnutrygg ingu, eins og leikarar her á íslandi. Hér er leikarinn ráð- in til heils leikárs í senn en Marat. Höfundurinn er þegar heimskunnur af leikritum sín um, Peter Weiss heitir hann, þýzkur að uppruna en heim- ilisfastur í Stokkhólmi. Weiss þessi hefur komið á óvart hvað eftir annað með leikrit- um sínum og birtist í þeim ætíð ferskur og nýr. Leikur- inn fjallar um dvöl de Sade markgreifa ,þann sem sadism inn er kenndur við ef til vill ekki alveg með réttu, í Char- ig um vandamál samsemdar- innar. Það er vel farið um leikinn af höndum leikstjóra og það ber því greinilegt vitni að honum þykir vænt um það og ber virðingu fyrir því. Kevin Palmer hefur smitað okkur leikarana að sama skapi. Ég held að ég mæli fyrir munn allra leikaranna í þessu leikriti, þegar ég segi, að okkur þykir þeim mun vænna um það því lengur sem við leikum í því“. Frá Þjóðleikhúsinu hverf- um við til Leikfélagsins Grímu. Gríma hyggst taka til sýn- inga á næstunni tvo einþátt- unga eftir unga leikritahöf- unda, þá Birgi Engilberts og Magnús Jónsson. Leikrit eft- ir þá báða voru sett upp í fyrra, Loftbólurnar eftir Birgi í Lindarbæ og leikritið um frjálst framtak Steinars Ólafssonar í veröldinni eftir Magnús í Tjarnarbæ. Hlutu bæði verkin góða dóma og voru sýnd við ágæta aðsókn. Að þessu sinni sýnir Gríma einþáttungana Lífsneista eft- ir Birgi og „Ég er afi minn“ eftir Magnús. í fyrri' þættin- um ræðir gömul kona við leikfangakanínu, en í þeim seinni eru níu leikendur og þátturinn er saminn um leið og hann er æfður, nýstárleg aðferð við samningu leikrits, en á þann hátt gefst ungum leikritahöfundi mjög gott tækifæri til að kynnast leik- húsinu og möguleikum þess. Eins og nafn leiksins bendir til, er hann sérstæður að gerð og innihaldi, eins og einþátt ungur Birgis. Mikil grózka er í leiklistar- lífi borgarinnar og gáfaðir menningarvitar álíta að nú sé upprunnin gullöld íslenzkra leikhúsbókmennta. Leikfélag Reykjavíkur sýn- ir um þessar mundir hina bráð fyndnu gamanleiki „Þjófar, lík og falar konur“ „Dúfna- veizlu“ Laxness og „Tveggja þjónn". Þjóðleikhúsið sýnir Gullna hliðið", „Kæri lygari" og „Ó, þetta er indælt stríð“. Og leiklistaráhuginn í höfuð- borginni hefur smitað frá sér um lánd allt, en það skal ekki rakið hér að sinni. Afmæliskveðja til Ste'ngríms Daviðssonar EINN af mínum gömlu vinum úr Húnaþingi á merkisafmæli í dag, Steingrímur Davíðsson, fyrrver- andi skólastjóri á Blönduósi, verð ur 75 ára í dag. Steingrímur er fyrir nokkru fluttur hingað á tnölina, og á ekki illa við, þvi að vegagerð við malarvegi hefur hann fengizt við síðan 1910, og þar af í 47 ár vegaverkstjóri þeirra Húnvetninga. Steingrímur er þekktastur fyr- Ir farsæla skólastjórn sína á Blönduósi í 44 ár. Það yrði allt of langur listi að telja upp öll þau trúnaðarstörf, sem Stein- grimur hefur gegnt um ævina, því að maðurinn er traustvekj- ondi og var það að vonum, að fólk vildi treysta honum fyrir forsjá sinna mála. Hann var m.a. oddviti hreppsins í 18 ár. Hann hefu-r átt við að búa heimilislán. Eignaðist góða konu, Helgu Jónsdóttur frá Gunnfríð- arstöðum, og eignuðust þau 12 börn, sem upp komust. Mér er persónuleiki Stein- grims lang minnisstæðastur, og hlýjan í viðmóti hans. Kyttni Okkár eru máski ekki mikil, en nóg til þess, að manngildi Stein- gríms dylst mér ekki. Svo er hann auk þess skáld gott, og með skáldum er gott að vera. Vísurnar hans eru ekki ein- tómt rím og stuðlar, meiningin er ekki falin, og um það eru allir sammála, að Steingrímur hefur ákveðnar skoðanir á flestum hlutum og er óhræddur að láta þær í ljós. Hann var formaður í félagsskap Framsóknarmanna á Blönduósi hér fyrr á árum, en augu hans opnuðust brátt, góðu heilli, og síðan hefur hann fylgt Sjálfstæðisflokknum að máli af dugnaði, og það hefur alltaf munáð um Steingrím, að hverju máli, sem hann hefur gengið. Nú á Steingrknur heima á Hof teigi 18 í Reykjavík, en ekki verður hann heima á afmælisdag inn, og er það skaði, því að margan vin hans myndi langa að þrýsta hönd þessa heiðursmanns á hátíðisdeginum. Innilegustu hamingjuóskir fylgja þessum línum til þín, vin- ur minn Steingrímur, megi heilsa þín endast lengi enn, svo að þú getir fengið þér sprett á skálda- fáknum enn um skeið. Fr. S. Leðurvörur Mikið úrval nýkomið af kventöskum-, barnatöskum og loðfóðruðum skinn- hönzkum. Hljóðfærahúsid Hafnarstræti 1 — Sími 13656. Festingar fyrir alla bíla BLAUPUNKT ÍSETNING SAMDÆGURS. Radiover sf. SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8. RÚMENAR VARA VIÐ FUNDI ALLRA KOMMÚNISTAFLOKKA - um deilur Rússa og Kínverja Sofia, Bulgaiu, 15. nóv. AP - NTB. 0 Leonid Brezhnev, affalrltari s o v é z k a kommúnistaflokksins hélt i dag ræffu á fundi búig- arska kommúnistaflokksins og tók eindregiff undlr tillögu, sem Todar Zhivkov aðalritari búlg- arska flokksins hafði áffur borið fram, þess efnis að efnt verffi til ráðstefnu allra kommúnista- flokka heims til þess aff ræða ágreining rússneskra og kín- verskra kommúnista. • Gegn þessari tillögu lagffist hinsvegar næsti ræðumaffur Nic- olae Ceausescu, leiðtogi rúm- enskra kommúnista, og varaði eindregiff viff því aff nokkuff það væri gert er dýpkað gæti ágrein- inginn enn og valdið algerum klofningi innan kommúnista- hreyfingarinnar. Taldi Ceaus- escu, aff yrffi slíkur fundur hald- inn og úrslit knúin fram í deil- unni, yrffi ekki aftur snúiff og biliff aldrei framar brúað. Þing búlgarska flokksins sitja nú um fimmtán hundruð fulltrú- ar, þar á meðal margir erlendir gestir — og fögnuðu þeir Brezhnev mjög, er hann ræddi I hina óvinsamlegu afstöðu Kín- | verja í garð Rússa. Hann gagn- , rýndi Kínverja fyrir að hafa komið í veg fyrir samræmd átök kommúnistaríkjanna til aðstoðar N-Vietnam og fór hörðum orðum um framkomu Bandaríkjamanna í Vietnam. Ceausescu hefur undanfarin ár haft forystu fyrir þeim komm- únistum, sem vilja forðast alger vinslit Rússa og Kínverja og telja stjórnmálafréttaritarar, að löngu hefði dregið til úrslita, hefði hann ekki tekið þessa af- stöðu. Greinilegt var, að Ceaus- escu varaðist að gagnrýna Kín- verja, vék ekki einu sinni einu orði að menningarbyltingunni, sem margir leiðtogar annarra flokka hafa gagnrýnt á þinginu. ATHUGIÐ! Þegdi iHiuau er vio utoreidslu. ei langtum ódýrara aff auglýsa i Morgunblaðinu en öðrum blö^ — Aðstoðarstúlka óskast hálfan daginn í heilsugæzluna. Upplýsingar á skriístofunni. Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.