Morgunblaðið - 12.05.1967, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FöSTUDAGUR 12. MAÍ 1967.
Fförugur fundur Sfálf-
sfæðismanna á Isafirði
' Sjálfstæðisfélögin á ísafirði
cfndu til fundar í húsi sínu Upp-
sölum s.l. miðvikudagskvöld.
Guðfinnur Magnússon, form.
Sjálfstæðisfélags ísfirðinga setti
fundinn og stjórnaði honum. Til-
nefndi hann ?.{ ilbjörn Tryggva
son sem fundarritara.
Framsöguræður fluttu þrir
efstu menn framboðslista flokks-
Kjósendnfundur í Borgornesi
SJÁLFSTÆÐISMENN í Vestur-
landskjördæmi efna til almenns
kjósendafundar í Borgarnesi í
Borgarnesi í kvöld og hefst
fundurinn kl. 20.30. Ræðumenn
verða: Ingólfur Jónsson, land-
búnaðarráðherra, Jón Árnason
alþm., Friðjón Þórðarson, sýslu-
maður og Ásgeir Pétursson,
sýslumaður. Kjósendur í Borg-
axnesi og nærsveitum eru
hvattir til þess að fjölmenna.
Kjósendufundur í Hnífsdol í kvöld
SJÁLFSTÆÐISMENN á Vest-
fjörðum efna til almenns kjós-
endafundar í félagsheimilinu
Hnífsdal í kvöld kl. 21.00. Frum-
mælendur verða: Sigurður
Bjarnason, alþm. frá Vigur,
Matthías Bjarnason, alþm. og
Ásberg Sigurðsson, sýslumaður.
Kjósendur í Hnífsdal og ná-
grenni eru hvattir til þess að
fjölmenna á fundinn og er öllum
heimill aðgangur.
Svæðafundir atvinnustétlanna
i Reykjaneskjördæmi
Iðnaðarmál í Stapa, Njarðvíkum á
þriðjudaginn — Landbúnaðarmál í
Hlégarði fimmfudaginn 18. maí
SVÆÐAFUNDIR atvinnustétt-
annaí Reykjaneskjördæmi hafa
vakið verðskuldaða athygli í
kjördæminu og hafa fundirnir
verið framúrskarandi ved sótt-
ir.
Næstu tveir fundir verða um
Iðnaðarmál í Stapa, Njarðvík-
um kl. 8,30 á þriðjudagskvöid
og um Landbúnaðarmál í Hlé-
garði kl. 9 á fimmtudagskvöld-
ið.
Vestlfarðakjördæmi
AÐALKOSNINGASKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokksins á
Vestfjörðum er að Uppsölum, ísafirði, sími 232. Skrifstof-
an veitir allar upplýsingar í sambandi við utankjörstaða-
atkvæðagreiðslu og annað er að kosningunum lýtur.
VESTFIRÐINGAR
Hafið samband við kosningaskrifstofuna. Þeir. sem verða
fjarstaddir á kjördegi, eru beðnir að kjósa í tæka tíð, strax
og það er levfilegt, og senda atkvæði sín.
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN Á VESTFJÖRÐUM
Kðsningaskriístsfur
Kápavogur
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf-
stæðisflokksins er í Sjálfstæðis-
húsinu, Borgarholtsbraut 6,
Kópavogi. Simar 40708, 42576 og
42577. Skrifstofan er opin frá kl.
9—22. Sjálfstæðisfólk er hvatt
til þess að koma á skrifstofuna
og gefa upplýsingar varðandi
kosningarnar.
H afnartjörður
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf-
stæðisflokksins er í Sjálfstæðis-
húsinu, Strandgötu 29. Skrifstof-
an verður opin frá kl. 9—22.
Sjálfstæð’sfélk er hvatt til
þeíjs að koma þangað og gefa
upplýsingar varðandi kosning-
arnar.
Sími skrifstofunnar er 50228.
Suðurnes
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf-
stæðisfélaganna er að Hafnar-
götu 46, Keflavík, sími 2021.
Skrifstofan er opin kl. 2—6 og
8—10 síðdegis alla daga. Sjálf-
stæðisfólk vinsamlega gefið
skrifstofunni upplýsingar varð-
andi kosningarnar. Keflvíkingar,
vinsamlega gerið skil í Lands-
happdrættinu.
Vestmannaeyjar
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf-
stæðisflokksins í Vestmannaeyj-
um er í Samkomuhúsuiu, sími
1344. Afgreiðsla Landshapp
drættisins er á sama stað.
ins í kjördæminu. Fyrstur talaði
Matthías Bjarnason, alþm., þá
Ásberg Sigurðsson, sýslumaður,
og að lokum Sigurður Bjarna-
son alþm. frá Vigur. Ræddu þeir
bæði héraðsmál og landsmál.
Var ræðum þeirra ágætlega tek-
ið.
Síðan hófust frjálsar umræður
og tóku þessir til máls: Guð-
finnur Magnússon, kennari,
Kristján Tryggvason, klæðskera
meistari, Þórður Jónsson, múr-
ari, Brynjólfur Samúelsson, tré-
smíðameistari, Jökull Guðmunds
son, verkstjóri og Hallgrímur
Jónsson, fyrrum bóndi á Dynj-
anda. Voru umtæður hinar fjör-
ugustu. Frummælendur svör-
uðu síðan ýmsurn fyrirspurnum
sem fram höfðu komið.
Mikill áhugi kom fram á fund
inum fyrir að vinna sem ötul-
legast að sigri Sjálfstæðisflokks
ins í kosningunum 11. júní.
IComa strax I kjöS?ar ISrefa
Kaupmannahöfn, 11. maí.
—(NTB)—
DANSKA þjóðþingið sam-
þykkti í dag með 150 atkvæð-
um að taka upp að nýju við-
ræður í Briissel um þátttöku
Dana í Efnahagsbandalagi
Evrópu. Er að því stefnt, að
Danir geti gengið í bandalag-
ið um leið og Bretar. í kvöld
bar svo sendifulltrúi Dan-
merkur hjá Efnahagsbandalag
inu fram málaleitun Dana og
var það gert fáeinum minút-
um eftir að atkvæðagreiðslu
var lokið í þjóðþinginu.
Hinir tuttugu þingmenn
Sósíalistíska þjóðarflokksins
greiddu atkvæði gegn tillögu
stjórnarinnar, en Færeying-
urinn Poul Andreasen greiddi
ekki atkvæði. Grænlenzku
þingmennirnir greiddu hins
vegar tillögu ríkisstjórnarinn
ar atkvæði. Leiðtogar íhalds-
flokksins og Venstre lýstu yf-
ir stuðningi við stefnu ríkis-
stjórnarinnar.
Ágieiningiu um listabóksluli
AlþýðubandaUistannn tveggja
Ytirkjörstjórn kveður upp úrskurð í dag
YFIRKJÖRSTJÓRN í Reykja-
vík kom saman til fundar í gær
til þess ' að ákveða listabókstafi
framboðslistanna í Reykjavík.
Ágreiningur varð um listabók-
stafi hinna tveggja framboðs-
lista, sem fram eru komnir í
nafni Alþýðubandalagsins og
var aðilum gefinn kostur á að
skila greinargerðum um málið
og frestur veittur til þess þar
til í gærkvöldi en í dag mun
yfirkjörstjórn koma saman til
fundar og kveða upp úrskurð
sinn um þetta atriði.
Dregið í Lions-
happdrætli
DREGIÐ hefuT verið í happ-
drætti Lionsklúbbs Grindavíkur.
Vinningarnir komu á eftirtalin
númer: Nr. 1698 Kenwood hræri
vél kr. 5.900, nr. 843 Baby strau-
vél kr. 6.900. Allar upplýsingar
varðandi afhendingu vinning-
anna eru gefnar í síma 8185 í
I Grindavík.
Stjórnarandstæðinga r berjast
sín á milli og innbyrðis
Á NÆSTU vikum m-unu
kjósendur fá tækifæri til
að fyl'gjast með einkar
fróðlegu rifrildi milli
stjórnarandstöðuflokk-
anna, Framsóknarmanna
og Aiþbl., um það, hvor
þessara aðila hafi meiri
möguleika á að fella ríkis-
stjórnina ásamt tilheyr-
andi togstreitu kommún-
ista og Hannibalista um
þann bita sem fel'l-ur í hlut
Alþbl. Er greinilegt, að
kosningabaráttan af hálfu
st j órnarandstöðuflokkanna
mun í höfuðatriðum mót-
ast af innbyrðis baráttu
um kjósendur á vinstri
armi stjórnmálanna. Lands
menn geta því vart vænzt
þess, að stjórnarandstæð-
ingar hafi mikinn tíma eða
starfsorku til þess að skýra
fyrir þjóðinni stefnu sína í
þeim málum, sem þeir á
annað borð hafa nokkra
stefnu í.
Þeir mun-u gr-einlega hafa
öðru að sinna. Þeir verða
önnum kafnir við að bítast
um sinn hlut af sameigin-
legri köku.
Útvarpsumræðurnar
skömmu fyrir þinglok mót
uðust af hálfu stjórnarand
stæðinga mjög af þessari
innbyrðis togstreitu. —
Kommúnistar héldu því
þá fram, að Framsóknar-
menn hefðu enga mögu-
leika á að bæta við sig þing
sætum, en Ólafur Jóhann-
esson svaraði fyrir Fram-
sóknarflokkinn og sagði
m.a.:
„Hins vegar verður að
vara við þeim villandi og
varhugaverðu blekkingum
Alþýðubandalagsmanna
hér 1 fyrrakvöld, að at-
kvæðafjölgun Framsóknar
flokksins komi ekki að
fuillu gagn-i, þar sem hann
hafi ekki möguleika til
þess að bæta við sig þing-
sætum. Þetta er alrangt."
Og Tíminn segir í leið-
ara 15. apríl: „Nú fara
kommúnistar enn á stúf-
ana til að reyna að vinna
það óþurftarverk, sem eitt
gæti hjálpað stjórnarflokk
unum til að halda meiri-
hluta sín-um. Þeir segja
enn, að atkvæði verði ó-
nýt, falii þau á Framsókn-
arflokkinn. Sannleikurinn
er hins vegar sá, að það
eru engar líkur til, að
meirihluti stjórnarinnar
tapist, nema Framsóknar-
floltkurinn bæti við sig
einu eða fleiri þingsæt-
um.“
Þjóðviijinn svarar 19.
apríl m-eð útrei'kningum,
sem eiga að sanna, að
„Framsókn geti hvergi
unnið sæti frá stjórnar-
floklkunum“ og segir:
„Eins og hér verður sýnt
fram á hefur Framsóknar-
fl. hvergi möguleika til að
vinna þingsæti af stuðn-
ing-sflokkum ríkisstjórnar-
innar. Ef ríkisstjórnin á
að falla í kosningunum nú
í vor, verður Alþýðubanda
lagið að vinna uppbótar-
sæti af stjórnarflokkun-
um....“
Og Þjóðviljinn segir í
leiðara daginn eftir:
„Það kom greinilega
fram í útvarpsumræðun-
um, að Framsóknarþing-
mönnum var sú staðreynd
mikið viðkvæmnismál, að
Framsóknárflokkurinn hef
ur hvergi möguleika á að
vinna þingsæti frá stjórnar
flokkunum. En viðkvæmn-
in stoðar lítið andspænis
raunsæju mati.“
Þjóðviljinn hefur bó í
fleiri horn að 1-íta. Hann
segir sl. þriðjudag um lista
Hannibals: „Þessi klofn-
ingslisti verður að sjálf-
sögðu ekki viðurkenndur
af Aiþýðubandalagin-u, at-
kvæði þau, sem hann kann
að fá, falla dauð og ógild
og koma engum að gagni
nema ríkiss-tjórninni....“
Hannibal Vald-emarsson
segir hins vegar í grein í
blaði sínu: „Öll atkvæði
greidd slíkum lista, hvort
sem fleiri eru eða færri,
koma flok'knum í heild til
góða við ákvörðun á tölu
uppbótarþingsæta hans.“
Það logar því glatt í glóð
um sundurlyndis og tog-
streitu í herbúðum stjórn-
arandstæðinga. Og það
verður að ýmsu leyti
slkemmtilegt millispil fyrir
kjósendur að fylgjast með
rifrildinu í þessum her-
b’iðum, jafnframt því, sem
þeir ganga til þess verks
að tryggja þjóðinni áfram
trausta og samhenta ríkis-
stjórn en hafna glundroða-
öflu-num, s-em eru upptek-
in við sína innbyrðis rif-
rildisiðju.