Morgunblaðið - 12.05.1967, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MAl 1967.
Sigríður Frímannsdóttir - KveSjn
Fædd 20. júní 1926.
Dáin 2. maí 1967.
ELSKU frænka og vinkona, ég
get ekki látið hjá líða að skrifa
til þín nokkur orð, því minning-
srnar eru svo margar, svo ljúf-
*r og fagrar.
Ég man fyrst eftir er fund-
um okkar bar saman þá kom-
um við báðar til Grímseyjar til
að dvelja sumarlangt hjá afa
okkar og ömmu, þú 8 ára og ég
11. ára. Því sumri gleymum við
aldrei því þá bundumst við þeim
tryggðarböndum sem aldrei rofn
uðu, þú lítil hlédræg telpa með
6org í augum því þú varst ný-
búin að missa föður þinn sem
þér þótti svo undur vænt um.
Og ég skildi þig svo vel því ég
hafði orðið fyrir því áfalli sjálf
að missa móður mína á sama
aldri. Á daginn lékum við okk-
ur saman eins og títt er um litl
ar telpur en á kvöldin er við
vorum háttaðar ofan í sama rúm
sótti sorgin að, og þá varð ég
líka að vera sú sterka og hvísla
hughreystingarorðum og svo
kom líka fyrir að tár okkar
runnu saman 1 eitt.
Svo skildu leiðir okkar unz
við aftur hittumst hér í Reykja-
vík, þá báðar að leggja út á líf-
ið sem húsmæður og mér er
ljúft að mynnast þeirra fjöl-
mörgu ánægjustunda er við átt-
um saman heima hjá hvorri ann
ari. .
Altaf dáðist ég að þinni ein-
stöku verklægni og snyrti-
mennsku sem einkenndi svo
mjög þitt heimili að til fyrir-
myndar var og eins dáðist ég
að þinni einstöku glaðværð og
kímnigáfu sem þú áttir í svo
ríkum mæli og þarf ég ekki að
lýsa henni, því hana þekktu all-
ir þínir vinir. Ég er þakklát for
sjóninni fyrir að hafa fengið að
kynnast þér svo náið, því að það
er svo margt sem maður getur
lært af góðri og göfugri mann-
eskju. Ég þakka þér elsku
frænka mín fyrir allt sem þú
gerðir fyrir mig og mína og ég
þakka guði fyrir fyrst svona átti
að fara að það skyldi koma í
mitt hlutskipti að fá að hagræða
kodda þínum í binsta sinn.
Svafar minn, þér og börnun-
um ykkar færi ég mínar dýpstu
samúðarkveðjur og ég bið góð-
an guð að vaka yfir heimilimr
að Njörvasundi 11 þar sem 18
ára dóttir ykkar Hrafnhildur
gegnir nú því göfuga hlutverki
að ganga systkinum sínum í móð
urstað.
Vertu sæl elsku frænka og
þökk fyrir allt og allt.
G. A.
t
Útför elskulegrar eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Lilju Helgadóttur,
Hallveigarstíg 9,
verður gerð frá Fossvogs-
kirkju, laugardaginn 13. maí
kl. 10.30 árdegis. Athöfninni
í kirkjunni verður útvarpað.
Blóm vinsamlega afþökkuð,
en þeim sem vildu minnast
hinnar látnu, er bent á
Krabbameinsfélag fslands eða
aðrar Mknarstofnanir.
Jón Kjartansson,
Guðrún Jónsdóttir,
Viðar Jónsson,
Katrín Karlsdóttir,
Gylfi Jónsson,
Elin J. Gnðmnndsdóttir,
barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Minningarathöfn um
Margréti Benediktsdóttur,
frá Staðarbakka,
fer fram frá Dóinkirkjunni
laugardaginn 13. maí n.k. kl.
10.30.
Jarðsett verður frá Staðar-
bakka miðvikudaginn 17.
maí kl. 2 e.h.
Vandamenn.
__
t
Alúðarþakkir fyrir hlýhug
og hjálpsemi vegna smdláts
og útfarar
Böðvars Böðvarssonar,
Voðmúlastöðum.
Gróa Bjamadóttir,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir færum' við
öllum þeim er auðsýndu sam-
úð og vináttu við andlát og
jarðarför
Jóns Sigurðssonar,
Stapa, Hornafirði.
Sigurlaug Sigurðardóttir,
og aðrir vandamenn.
hersýningu (til vinstri) og við opinbera mottoku.
Kristín Tómasdóttir
iró Stokkseyri - Kveðfa
Ky og kona hans við b
- KY MARSKÁLKUR
Framh. af bls. 16.
nam, þann dag, er kommún-
istar taka vÖIdin, mun ég láta
líí mitt. Ég mun ekki gera það,
sem aðrir landar mínir hafa
áður gert. Þeir og fjölskyldur
þeirra hafa farið til Frakklands
og Bandaríkjanna og lifa þar
góðu lífi. Þegar land mitt deyr,
mun ég deyja með því.“
Enginn vafi leikur á, að
þegar Ky sneri aftur til Víet-
nam, fór þar maður, sem reikna
verður með í framtíðinni, jafn-
vel þótt hann yrði að flýta för
sinni um einn dag til að reisa
rönd við enn einni byltingar-
tilraun. En þeirri byltingartil-
raun olli hin skyndilega
ákvörðun Kys um að reka
varaforsætis- og varnarmála-
ráðherra sinn, Nguyen Huu
Co hershöfðingja, vegna mútu-
þægni, en Nguyen Huu Co er
fæddur í Suður-Víetnam.
Ky, sem er norðanmaður,
slapp óskaddaður úr þeirri
úlfakreppu, rétt eins og hann
hefur áður síaðið af sér stjórn-
arkreppu, vopnaða uppreisn
Búddatrúarmanna, yfirvof-
andi borgarastyrjöld, brott-
rekstur tveggja annarra mikil-
vægra hershöfðingja og hina
næstum óskoruðu yfirstjórn
Bandaríkjamanna á gangi
stríðsins á þeim 23 mánuðum,
sem liðnir eru frá því hann
tók við embætti forsætisráð-
herra.
Það er ekkert launungarmál,
að Bandaríkjaménn voru ekki
ánægðir yfir því, að Ky var
valinn til að veita forsæti
hinni tíu-manna stjórnarnefnd
herforingjg, sem tók við af
borgaralegri stjórn Dr. Phan
Huy Quats í júní 1965. Þeir
hefðu heldur kosið meira hæg-
fara mann.
Forsætisráðherrann hefur
reynzt vera raunsær að því,
er viðvíkur spillingu, sem er
stöðugt vandapiál í Víetnam.
„Ég er stöðugt að segja við
hershöfðingjana: ,Ef þið eruð
spilltir, mun þjóðin hvorki
bera traust til ykkar né stjórn-
arinnar og henni mun standa
á sama um hvor aðilinn sigrar,
við eða kommúnistarnir." Ég
segi við hvern hershöfðingja,
líttu fyrst á konu þína, og þá
Fædd 4. júní 1888
Dáin 12. febrúar 1967
Hinzta kveðja frá systur.
Ég sé hvar sólin nemur
við sæ, á lífsins strönd.
Nú þegar kall þitt kemur,
ég kærleiks hnýti bönd.
Ég á svo margs að minnast,
sú mynd er skýr og hrein.
Við fáum seinna að finnast,
mér finnst ég vera ein.
Mig setur hrygga og hljóða
og hugsa um liðna stund.
Þú gafst mér, systir góða,
gleði af þinni lund.
Þitt bros var eins og birta,
t
Eginkona mín og móðir
okkar,
Ástríður Bárðardóttir,
frá Ljótarstöðum,
lézt að heimili dóttur sinnar
að Hvassaleiti 9, 10. maí.
Sigurður Sverrisson og börn.
sem breytir nótt í dag,
er sástu í álinn syrta
um systir þinnar hag.
Ég bið þann bezta og eina,
sem bætir hverja raun,
bænum mínum beina
til blessunar sem laun.
Hjá guði gefs.t þér kraftur,
góða systir mín.
Ég veit hann vísar aftur
veginn heim til þín.
M. Ó.
munt þú vita hvört þú ert
spilltur. Ég var sífellt að segja
einum hershöfðingjanum, að
hann gæti ekki haldið áfrain
að taka bjór hermannanna og
selja hann óbreyttúm borgur-
um. Hann hló. Hj=inn vildi ekki
hlusta. Hann varð að fara.“
Þrátt fyrir að aldrei hafi
borizt alvarlegar ákærur um
mútuþægni á hendur Ky, fylgj
ast mótstöðumennirnir með
hinni fögru eiginkonu hans,
Tuyet Mai, sem er 25 ára að
aldri, og utanlandsferðum
hennar, franska hárgreiðslu-
meistaranum í þjónustuliði
hennar og aðgerðinni, sem hún
lét framkvæma í Tókýó til að
gera augu sín vestrænni.
Þegar frá er talinn þessi
munaður, lifir Ky óbrotnu lífi
í gömlu, fjöldaframleiddu húsi
í hverfinu við Tan Son Nhut
flugvöllinn. Þar ríkir austur-
lenz'k rósemi mitt í hávaðan-
um, sem stafar af sex börn-
um (fimm þeirra átti hann með
fyrri konu sinni, sem var
frönsk), fjórum hundum, þrem
ur hestum, fjórum dádýrum og
36 áflogahönum.
Ky heldur ekki dagbók, og
hann er sennilega eini maður-
inn í Víetnam, sem ekki er að
skrifa bók. „Ég trúi á forlög
mín og forlög lands míns. Þess
gerist ekki þörf að skrifa neitt
niður, ef maður er að upplifa
þau,“ segir hann til skýringar.
Ky hefur frá barnæsku verið
Búddatrúar, hann talar með
norður-víetnömskum mál-
hreim, hann hneigist til
franskra áhrifa, og er stundum
furðulega vestrænn vegna
stöðu sinnar. Öll þessi áhrif
lita daglegt líf hans.
Þar eð hann fæddist í Son
Tay í úthverfi Hanoi, dreymir
Ky eins og alla úlæga norðan-
menn um að sameina einhvern
tíma norður og suður í eitt
land, laust undart áþján komm-
únista. Hann álítur, að innrás
I Norður-Víetnam sé eina leið-
in til þess. En hann veit, að álit
manna í heiminum myndi ekki
styðja slíkar aðgerðir.
Upp á síðkastið hefur Ky
verið fúsari til friðarviðræðna
en áður, en hann óttast, að
áhrif andstöðumanna stríðsins
I Bandaríkjunum kunni að
veita kommúnistum meiri sig-
ur við samningaborðið en þeir
gætu nokkurn tíma unnið á
orustuvöllunum.
Að loknu skólanámi í Hanoi
var Ky kallaður í franska her-
inn og sendur á þjálfunar-
skóla liðsforingja. Hann lærði
BMW1800
árgerð 1966. Vel með farin
'bifreið. Góðir greiðsluskilmál-
ar.
Kristinn Guðnason hf,
Klapparstíg 27, sími 22675.
að fljúga í flugskólanum f
Marrakesh í Marokkó, og f
nokkur ár flaug hann með her-
menn frá Senegal í flutninga-
vélum, síðan fór hann tii
Frakklands til frekari þjálfun-
ar. Hann mótmælir því, að
hann háfi nokkru sinni varp-
að sprengjum á alsírska her-
menn í franska stríðinu, en
það hefur oft verið borið á
brýn í ritum kommúnista.
Á eigin spýtur lærði Ky að
stjórna þrýstiloftvélum. Hann
hefur flugstjórnarrttindi á
þyrilvængjur, og hann hefur
tekið þátt í hverskonar bar-
dagaaðferðum.
Þegar loftárásirnar á Norð-
ur-Vietnam hófust í febrúaiT,
1965, hafðí Ky bjargað stjórn
Nguyen Khan hershöfðingja
tvívegis undan yfirvofandi
byltingu, svo að ekki var
nema eðlilegt, að honum var
in þátttaka í stjórnarnfnd her-
foringjanna. Kjör hans í stöðu
formanns framkvæmdanefnd-
arinnar með embætti forsæt-
isráðherra kom dálítið á óvart,
en Ky hafði persónuleika til
að koma fram sem andlit hinna
tíu littáberandi hershöfðingja
án þess að nokkur þeirra missti
andlitið.
Á 20 mánuðum tókst stjórn
Kys að koma ýmsu í fram-
kvæmd til að vega á móti
óeirðum Búddatrúarmanna og
hættunni á bofgarastyrjöld.
Hún stjórnaði kosningum til
fulltrúaþings, en í þeim tók
þátt meira en helmingur full-
orðinna borgara, hún skar upp
herör gegn spillingu með
ýmsum árangri, benni heppn,-
aðist vonum framar að koma
jafnvægi á gengi og efnahag,
hún lét heilbrigðis- og mennt-
unarmál tii sín taka, hún
reyndi að útkljá vandamál
þjóðabrota og kom fram sem
traust þjóðartákn í augum
heimsins á ráðstefnunni f
Manila og í Ástralíu, en það
er mest að þakka stjórnmála-
mannseiginleikum Kys og
persónutöfrum.
Þrátt fyrir velgengni sína er
Ky hvorki vinsælasti né fræg-
asti stjórnmálamaðurinn í Víet-
nam. Þjóðhöfðinginn, Nguen
Van Thieu, hefur vissulega
meira persónulegt fylgi, en sem
kaþóliki myndi hann sennilega
kljúfa kjósendahópinn meira
en Búddatrúarmaður eins og
Ky. En hvað sem því líður
munu þeir ekki fara í fram-
boð hvor á móti öðrum. Ef
Ky býður sig fram, þarf hann
samkvæmt ákvæðum stjórnar-
skrárinnar að segja sig úr
flughernum.
Ky hefur heitið stuðningl
sínum án tillits til hver ber
sigur út býtum: „Víetnam
hefur ekki lengur tíma til að
veita sér þann munað að eiga
í innanlandserjum. Við verð-
uom að styðja stjórn, sem er
kjörin á lýðræðislegan hátt.“