Morgunblaðið - 12.05.1967, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1967.
Þorbergur vann loks
24 ára gamlan bikar
Sögufrægur bikar horfinn úr umferð
INNANFÉLAGSMÓT IR á skíð
um var haldið 29. apríl sl. og
þar gerðist það, að svigbikar
sem gefinn var til keppni árið
1943 og vinnast átti með því
gamla fyrirkomulagi að „sigra
þrisvar í röð eða fimm sinnum
alls“ gekk loksins út. Hafa þó
um bikarinn keppt margir af
fræknustu skíðamönnum lands-
ins. Það var Þorbergur Eysteins
son sem bikarinn vann til eign-
ar eftir að hafa unnið hann þrisv
ar í röð.
Þessi frægi bikar var gefinn
1943 af • manni sem ekki vildi
láta nafns síns getið. Var keppt
um hann óslitið frá 1943—1954,
en síðan féll keppni niður vegna
snjóleysis þar til 1958, að keppt
var um hann og síðan árlega til
og með 1963. Þá féll keppni nið
ur eitt ár (vegna snjóleysis), en
síðan hefur Þorbergur unnið
hann 65, 66 og 1967.
Þessi bikar er því orðinn einna
frægastur allra bikara sem um
er keppt í skíðaíþróttinni.
Af mörgum frægum mönnum
sem unnið hafa bikarinn má
nefna Guðna Sigfússon sem
vann hann 1947 og einu sinni síð
ar en varð nú — 20 árum eftir
að hann fy'rst vann hann — í
2. sæti. Talar þetta sínu máli
um einstakan keppnisferil og af
rek Guðna. Þá vann Eysteinn
Þórðarson bikarinn þrívegis en
ekki í röð. Svanberg, bróðir
Eysteins, vann bikarinn tvíveg-
is og sama gerði Valdimar Örn-
ólfsson.
Úrslit á mótinu urðu þessi:
f Drengjaflokkur:
1. Eyþór Haraldsson,
25,5 — 25,8 = 51,3
2. Haraldur Haraldsson,
\ 29,5 — 29,4 = 58,9
Hver vill æ.a
frjólsíþrótirf?
f DAG efnir frjálsíþróttadeild
ÍR til tímatöku í 100 m hlaupi
á Melavellinum og stendur hún
frá kl. 5—7.
Til hennar eru allir velkomn-
ir og einkum þó yngra fólk,
unglingar á ölum aldri. Getur
það þar innritazt í deildina og
fengið tilsögn í frjálsum íþrótt-
um. Væntir stjórn deildarinnar
að sjá sem flesta unglinga, pilta
og stúlkur.
3. Þórarinn Harðarson,
34.5 — 34,4 = 68,9
Stúlknaflokkur:
1. Guðbjörg Haraldsdóttir,
36.9 — 43,5 = 80,4
2. Margrét Eyfells
41.5 — 50,4 = 91,9
3. Anthie Óladó.ttir,
59.9 — 59,5 =119,4
Karlaflokkur:
1. Þorbergur Eysteinsson,
43,3 — 41,9 = 85,2
2. Guðni Sigfússon,
43,2 — 42,2 = 85,4
3. Helgi Axelsson,
43,0 — 43,0 = 86,0
Guðmundur Hermannson, se m varpað hefur kúlu lengst allra íslendinga
ásamt syni sínum Arnari.
17.20 m
„Ég hef náð þeim árangri utanhúss
sem ég náði inna nhúss - 17.20m."
— segir Guðmundur Hermannsson, sem er ánægðari
með framför sonar sins, en sjálf sins
HINN glæsilegi árangur Guð-
mundar Hermannssonar KR
í kúluvarpi á innanhússmót-
um vetrarins hefur vakið
verðskuldaða athygli. Á þeim
mótum hefur Guðmundur,
sem nú er á fimmtugsaldri,
bætt árangur sinn stórkost-
lega og náð lengsta kúlu-
varpi sem nokkur íslending-
ur hefur náð. 17.20 m er
mjög góður árangur með leð-
urkúlu, sem allir eiga erfið-
ara með að varpa en blý-
kúlu sem notuð er úti. ís-
landsmet Gunnar Husebys,
sett 1950, 16.74 m var yfir-
burðaárangur í þá daga enda
bar Gunnar höfuð og herðar
yfir keppinauta sína á vel-
flestum mótum.
Tveim árum eftir að Gunn-
ar setti sitt íslandsmet, 16.74
sem þá var jafnframt Evrópu
met, fluttist Guðmundur
Hermannsson sem nú er lög-
regluvarðstjúri í Reykjavík
frá ísafirði til Reykjavíkur.
Bezti árangur hans flutnings-
árið var 14.75 m. Síðan hefur
Guðmundur verið dyggur
keppandi KR og fyrirliði
landsliðs frjálsíþróttamanna
á stundum.
Á þessum árum hefur hann
bætt árangur sinn þar til
hann náði bezt utanhúss
16.41 m árið 1965 og svo nú
í vetur að hann margsló met-
ið og náði bezt 17.20 m inn-
anhúss.
— Ég er mjög ánægður
með þennan árangur, sagði
Guðmundur er við ræddum
við hann í gær. Ég vona að
afrekið sé engin tilviljun
heldur byggist árangurinn á
mjög auknum styrk í baki og
allt annari og betri vetrar-
þjálfun en ég hef áður haft.
— Gaf bandaríski kúlu-
varparinn Steinhauer þér
einhver góð ráð?
— Já. Hann sagði mér frá
veilu í bakinu og að ég þyrfti
að gera sérstakar æfingar til
að styrkja mig. Ég fór að
hans ráðum og æfði lyfting-
ar betur en áður og vetrar
æfingin er grundvöllur ár-
angursins.
— Heldurðu að þú getir
ekki náð sama árangri úti
og þú hefur náð innanhúss?
— Eg tel það fullvíst nú.
Ég hef reynt mig á æfingum
og hef náð þeim árangri úti
sem ég náði inni í vetur.
— Hvað hefurðu varpað
lengst úti?
— Ja, það hefur ekki verið
nákvæmlega mælt og um það
vil ég ekkert segja. Ég get
hins vegar sagt að ég hef náð
þeim árangri sem ég hef bezt
náð inni þ. e. 17.20 m. Og ég
hef fundið á æfingum að und
anförnu að ég get náð þeim
árangri úti líka. Enda telja
allir kúluvarparar verra að
varpa leðurkúlu inni en blý-
kúlu úti.
— En hvað er af veilunni
í baki þínu að segja?
— Ég var skorinn við
iskias í baki 1957. Eftir það
hlífði ég alltaf bakinu og
reyndi að haga æfingum mín
um eftir því. í kúluvarpi
er hins vegar ekki hægt að
ná góðum árangri nema hafa
'sterkt bak. En sérstakar lyft-
ingaæfingar geta komið að
gagni og ráð Steinhauers
dugðu mér vel í því sam-
bandi. Að hans ráði breytti
ég vertrarþjálfuninni og ég
tel árangur minn nú þeim
breyttu æfingum að þakka.
— En svo er það sonur
þinn, Arnar. Hann hefur náð
glæsilegum árangri á mótum
vetrarins og verið í senti-
metrastríði við Erlend Valdi-
marsson sem nú á drengja-
metið. Hvað viltu um hann
segja.
— Ég er eiginlega miklu
ánægðari með árangur hans
en minn árangur. Arnar er
20 ára og hefur æft mjög vel.
Hann hefur bætt árangur
sinn innanliúss í vetur um 2
metra.
Arnar varpaði í fyrra 13.32
m úti en náði nú inni bezt
14.49 og setti þá Erlendur
drengjamet með 4 sm betri
árangri, 14.53.
— Hvað varst þú gamall
þegar þú byrjaðir?
— Ég var 18 ára.
— Hefurðu haft samband
við Steinhauer í vetur?
— Eftir að ég setti síðasta
metið skrifaði ég honum og
þakkaði honum fyrir ráðlegg-
ingarnar og óskaði honum til
hamingju með hans glæsilega
árangur á mótum í Bandarí j
unum. Það er eina bréfið sem
ég hef sent honum og ég hef
ekki fengið svar við því,
sagði Guðmundur að lokum.
Golfvöllur verður skipu-
lagður á Hvaleyrarlandi
Golfklúbburinn Keilir, sem
nær yfir Hafnarfjörð, Garða-
hrepp og Kópavog, er nú að
hefjá sumarstarfið. Innan klúbbs
ins bíður mikið starf því klúbb
urinn hefur fengið til umráða
allt Hvaleyrarlandið sem er ein-
staklega vel fallið til golfvallar-
gerðar vegna þess hvað það er
þurrt. Segja kunnáttumenn að
þar muni í framtíð'nni verða
hægt að iðka golf lengri tíma
árs en á öðrum núverandi golf-
völlum.
Land hins nýstofnaða golf-
klúbbs er 27 hektarar að stærð
og mun Magnús Guðmundsson
hinn kunni golfkappi skipu-
leggja svæðið sem golfvöll.
Hafnarfjarðarbær hefur látið
Golfklúbbnum Keili landið í té
fyrst um sinn.
f Golfklúbbnum Keili eru nú
um 100 félagar. Félagsgjöld eru
með inntökugjaldi kr. 3000 en
einnig eru teknir aukafélagar,
búsettir á svæðum annara
klúbba og greiða þeir kr 3,500
á ári.
Æfingar Golfklúbbsins eru
hafnar og eru enn sem komið
er innanhúss en fljótlega verður
farið út á hið nýja svæði.
Ráðgert er í framtíðinni að
þarna verði 9 holu völlur en auk
þess æfingabrautir og æfinga-
flatir.
Stjórn Golfklúbbsins skipa nú
Jónas Aðalsteinsson formaður,
Sigurbergur Sveinsson og Sig-
urður Helgason. í varastjóm eru
Rúnar Guðmundsson og Haf-
steinn Hallsson.
Nýir félagar geta látið skrá
sig með því að tala við einhvern
stjórnarmanna.
Sumorbúðir í
Skololelli
Sumarbúðir verða starfrækt-
ar í surnar í skíðaskála KR í
Skálafelli eins og að undanförnu
og verður Hannes Ingibergsson
íþróttakennari umisjónarmaður
og kennari eins og fyrr.
Námskeið eru fyrir 7—11 ára
börn. Hefst námskeið drengja
19. júní og stendur til 3. júlí og
telpnanámskeið hefst 3. júlí og
stendur til 19. júlí.
Innritunargjald er 100 kr. en
allar aðrar upplýsingar um
námskeiðið eru veittar í símum
24523 og 13025.
Volur vunn
Þrótt 5-1
f GÆRKVÖLDI fór fram fjórSI
leikur Reykjavíkurmótsins i
knattspyrnu. Valsmenn léku við
Þrótt. Leiknum lauk með sigri
Vlas 5—1. í hálfleik var staðan
2—0 fyrir VaL
Á MÁNUDAGSKVÖLDIÐ urðu
þessi úrslit í ensku knattspyrn-
unni:
Manch. City — Leeds 2-1
Og í gærkvöldi:
Lelcester — Chelsea 3-2
West Ham — Tottenham 0-2