Morgunblaðið - 22.12.1973, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.12.1973, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESBMBER 1973 7 ferðir en enginn póstur Siglufirði,21. desember. EFTIR alllangan óveðurskafla gerði blankalogn og bliðu í gær, sem Flugfélagið Vængir notaði sér til hins ítrasta og flaug alls 7 ferðir hingað með alls 105 farþega, sem mun vera met á einum degi — að ótöldum miklum vöru- sendingum. Það sem Siglufirð- ingum þykir einkennilegt, bæði við þessar ferðir og undanfarn- ar ferðir á síðastliðnu ári, er, að póstþjónusta virðist ekki treysta þeim fyrir pósti hingað. — Steingrímur. Þjónar áfram í verkfalli SÁTTAFUNDUR var haldinn með deiluaðilum í þjónadeil- unni. Samkvæmt upplýsingum Torfa Hjartarsonar, sáttasemj- ara, miðaði ekkert í samkomu- lagsátt og hefur nýr fundur ekki verið boðaður. Lúðrasveitir bregða á leik LUÐRASVEITIR fara á stúfana I dag og hyggjast skemmta vegfarendum á ber- angri miðborgarinnar — auð- vitað með þeim fyrirvara að Kári Frosti og Eljagrlmur leyfi músfkalskan blástur. Þannig verður Lúðrasveit verkalýðsins á Austurvelli og ætlar að leika jólalög frá klukkan 17. Og Lúðrasveitin Svanur verður f Austurstræti f kvöld kl. 8.30 og ætlar að blása borgarbúa í jóla- stemmingu með léttum lögum og jólalögum. Fjöldakaup á leigubílum LEIGUBÍLSTJÓRAR hafa undirritað samning við Datsun- umboðið um kaup á 34 leigubíl- um og með þvf að kaupa bílana svo marga í einu fá þeir 60 til 70 þúsund króna afslátt á hverjum bfl. Bflar þessir eru væntanlegir nú til landsins með Langá 20 og aðrir 20 með Langá í byrjun janúar. Ingvar Helgason, umboðs- maður Datsun á Islandi, sagði í viðtali við Mbl. í gær, að nú væru í notkun yfir 200 leigubíl- ar af Datsun-gerð og væri það um 25% af öllum leigubílum. Fjórir þessara bíla, sem keyptir hafa verið nú, fara til Akra- ness. Ljóðabók Indriða G. VEGNA fyrirspurnar til blaðsins skal það tekið fram, að Ijóðabók Indriða G. Þorsteins- sonar, Dagbók um veginn, er ekki seld f bókabúðum al- mennt. Hins vegar er unnt að fá fá- ein tölusett og árituð eintök í bókabúðum Lárusar Blöndal og Sigfúsar Eymundssonar. Stálvík með spænskuveikina Siglufirði — 20. desember. NÝI skuttogarinn Stálvík, smíðaður hjá samnefndri skipasmfðastöð f Garðahreppi, kom hingað til hafnar á þriðju- dag með um 70 tonn eftir 5 daga veiðiferð, sem verður að teljast gott. Togarinn fór út aftur um sjö leytið í gærkvöldi, en kom inn aftur þremur tímum seinna, og segja gárungarnir, að ástæðan sé sú, að hann hafi fengið „spænsku veikina". Víst er, að vatnsleiðslur sprungu um borð i skipinu svo að flæddi inn í íbúðir og eldhús. Voru leiðslur þessar algerlega óeinangraðar og er engu líkara en skipið hafi verið smiðað fyrir suðurhöf fremur en norðurhjara veraldar. Ljóst er, að viðgerð mun taka töluverðan tima. Fréttaritari. Norræn iðnaðaráætl- un samvinnufélaga STJÓRN SAMVINNUSAM- BANDS Norðurlanda sam- þykkti á fundi sfnum í Kaup- mannahöfn 14. desember, að gerð skyldi áætlun um upp- byggingu norræns iðnaðar á vegum samvinnufélaganna á Norðurlöndum. A slík áætlun að liggja fyrir á næsta aðal- fundi Samvinnusambands Norðurlanda, sem haldinn verður f Stokkhólmi f júnf næstkomandi. Erlendur Einarsson, forstjóri Sambands íslenzkra samvinnu- félaga sat fundinn í Kaup- mannahöfn og-gerði þar grein fyrir orkuforða Islendinga í vatnsafli og jarðhita. Að hinni norrænu iðnaðaráætlun á Islandi mun Sigurður Markússon framkvæmdastjóri vinna fyrir hönd Sambandsins. Athugasemd vegna fjár- dráttarmáls VEGNA fréttar f Morgun- blaðinu 9. þ.m. um fjárdráttar- mál f Eyrarsparisjóði, Patreks- firði, og að gefnu tilefni, vill stjórn sparisjóðsins taka fram, að mál þetta kom upp f byrjun aprfl s.l. f sambandi við árlegt eftirlit bankakerfisins. Var þá- verandi sparisjóðsstjóra þegar í stað vikið frá störfum, fyrst um stundarsakir og sfðan fyrir fullt og allt. Var þá fenginn starfsmaður frá annarri banka- stofnun til að gegna sparisjóðs- stjóra til bráðabirgða eða til 1. september s.l., að nýr spari- sjóðsstjóri, Hilmar Jónsson, var ráðinn. Tekið er fram, að mál þetta er tveim hinum sfðastnefndu starfsmönnum stofnunarinnar með öllu óviðkomandi. Stjórn Eyrarsparisjóðs, Patreksfirði. Friðrik kennir skák FRÆÐSLURAÐ Reykjavíkur- borgar hefur samþykkt að ráða Friðrik ÓÍafsson í hálfa stöðu sem leiðbeinanda um iðkun skák- íþróttar í skólum frá 1. janúar 1974 að telja. Sovétrfkin standa nú f miklum flutningum milli Kúbu og Rússlands. Hafa sovézk yfirvöld farið fram á 22 lendingarleyfi á Keflavfkurflugvelli og fengið samþykki rfkisstjórnarinnar. Myndin er tekin f gær af tveimur risaflugvélum sovézka flugfélagsins Aeroflot, þegar þær höfðu viðstöðu á Keflavfkurflugvelli. — Ljósm.: Steindór. 23ja stiga frost á Egilsstöðum Egilsstöðum, 21. desember — TlÐARFAR hefur verið rysjótt á Héraði undanfarið. Hefur gengið á með éljum eða stórhrfð. Sam- göngur hafa verið mjög erfiðar um Héraðið, þvf að þótt vegagerð- in hafi reynt að opna vegi, hafa þeir lokazt jafnharðan aftur. UNG stúlka hefur haft samband við rannsóknarlögregluna og beð- ið hana um að koma eftirfarandi á framfæri: Föstudaginn 14. desember um kl. 23 var ég stödd við Festi i Grindavík.f mannskaðaveðri á rauðri Volkswagen-bifreið og voru piltur og stúlka ásamt mér f bifreíðinni. Þung færð var við húsið og var lögregla og veghefill að aðstoða bifreiðarnar, þ.á m. dökkbláan Chervolett Nova, sem ungur og myndarlegur maður ók. Dr. Sigmundur Guðbjarnason hlaut NATO-styrk VlSINDADEILD Atlantshafs- bandalagsins hefur nýlega sam- þykkt að veita dr. Sigmundi Guð- bjartssyni prófessor rannsóknar- styrk að upphæð 560 þúsund belg ískir frankar til þess að vinna að rannsóknarverkefni er nefnist: „Lifefnafræðilegar breytingar i VIÐ lokaafgreiðslu fjárlagafrum- varpsins samþykkti Alþingi til- lögu frá nokkrum þingmönnum um, að varið yrði 2,1 milljón kr. | af fjárlögum næsta árs til byggingar sögualdarbæjar f Þjórsárdal. Er upphæð þessi við það miðuð, að framlögum til bygginar bæjarins vcrði jafnað niður á 5 ár. Allgóð samstaða náðist á þinginu um þessa tillögu og greiddu 32 þingmenn henni at- kvæði en 16 voru á móti. Flutningsmenn tillögunnar voru Læknislaust hefur verið á Seyðis- firði frá þvf er héraðslæknirinn féll frá og hefur héraðslæknir Austur-Egilsstaðahéraðs sinnt Seyðisfirði undanfarna daga. Fjarðarheiði er ófær að vanda og hefur þurft að flytja lækninn á snjóbfl fram og til baka svo til Hafði Chervolettinn samflot með okkur til Keflavíkur og fór stór rauður trukkur á undan. ökumað- urinn ungi og myndarlegi er nú beðinn um að hafa samband við rannsóknarlögreglu, því að ég tel að bifreið hans hafi rekizt utan f mína, þegar hún var að brjótast um í ófærðinni fyrir utan Festi. Virtist hann verða þess var, því að hann opnaði bílhurðina eins og að hann hygðist gæta að skemmdum, en veðurofsinn var slíkur að hann varð að láta þar við sitja. hjartavöðva, sem leiða til aukinna hjartaskemmda.“ Einnig samþykkti vfsindadeild- in að veita Sigurði Steinþórssyni jarðfræðingi rannsóknarstyrk að upphæð 400 þúsund belgískir frankar til tveggja verkefna, þ.e. annars vegar til rannsókna á vökvabólum í bergkristöllum, og hins vegar til bergfræðitilrauna við ákveðinn súrefnis- og vatns- þrýsting. Báðir þessir vísindamenn starfa við Raunvísindastofnun Háskóla Islands. Ingólfur Jónsson (S), Ágúst Þor- valdsson (F), Gylfi Þ. Gislason (A), Guðlaugur Gíslason (S), Björn Fr. Björnsson (F) og Steinþór Gestsson (S). Eru þetta allir þingmennirnir úr Suður- landskjördæmis og einum undan- skildum, Garðari Sigurðssyni (Ab). Auk Suðurlandsþingmann- anna er svo Gylfi Þ. Gíslason. Morgunblaðið hafði samband við forráðamenn þjóðhátíðarinn- ar 1974 og fögnuðu þeir mjög þessum málalyktum. daglega. I þessum veðrum hafa bílar iðulega festst úti á vegum vegna þess, hve veður hafa skollið skyndilega á. Hefur þá þurft að fara á snjóbílum til þess að leita að fólki, en allt hefur gengið giftusamlega samt. Nú hefur stór- hriðinni slotað, vegir innan Hér- aðs eru flestir að verða færir, en frostið er hér nú 23 stig. Flugsam- göngur eru komnar i eðlilegt horf og fljúga þrjár flugvélar hingað til Egilsstaða í dag. Eins hefur Flugfélag Austurlands haldið áætlun með póst- og farþegaflug til áætlunarstaða. — ha. Pósturinn gleymdist Fáskrúðsfirði, 21. desemb- er.— UM LANGAN tfma hefur hér verið óveður og frost og síðast- liðna 10 daga hefur nánast ver- ið linnulaus stórhríð, svo að allir vegir frá þorpinu hafa verið ófærir og því samgöngur engar á landi. I gær og í dag hefur þó brugðið til betra veð- urs og var þá hafizt handa um að ryðja snjó af veginum til Stöðvarfjarðar og norður á Reyðarfjörð. Erum við þvi komnir í samband við umheim- inn á ný. Veðri þessu fylgdu geysi- miklar frosthörkur yfirleitt. Mest heyrði ég talað um 18 gráður. Samgönguleysi þetta hefur harðast lagzt á bændur, sem hafa verið með mjólkur- framleiðslu, því að mjólk frá bændum hér um slóðir er ekið til Egiisstaða, en þaðan kemur hún aftur unnin. Á þessu tímabili var tvisvar sinnum sendur bátur til Reyðarfjarðar til þess að sækja póst og mjólk og fara með farþega. Ein slík póstferð var farin í gærmorgun, þar sem margir farþegar voru með, en svo ó- heppilega vildi til að pósturinn gleymdist, sem þó var orð- inn meira en vikugamall. Póstferð var farin landleið- ina í dag. Heldur Iftill jóla- bragur er orðinn hér fyrir ut- an snjóinn, en vegna raf- magnsskorts hafa menn ekki hengt upp nein útiljós eins og venja er. Vonandi rætist þó úr þeim efnum, þar sem íilýnað hefur i veðri. — Albert. Lýst eftir ungum, mynd- arlegum (öku)manni Bygging sögu- aldarbæjar ráðin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.