Morgunblaðið - 27.08.1976, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. AGÚST 1976
Nordli, forsætisráöherra Noregs:
Yfirvegaður og
rólegur
stjórnmálamaður
en mála-
fylgjumaður
hinn mesti og
hefur yndi af
kröftugum
kappræðum.
ODVAR Nordli, for-
sætisráöherra Nor-
egs, sem kemur í dag
í opinbera heimsókn
til íslands er hinn
mesti aufúsugestur,
enda löngum verið
mikil og náin tengsl
milii íslendinga og
Norðmanna.
Odvar Nordli er 48
ára að aldri. Ilann er
a'ttaður frá Stöng í
Heiðmerkurfylki og
á unglingsaldri gekk
hann í æskulýðssam-
tök Verkamanna-
Oddvar Nordli or Trygvo Bratteli. Myndin var tekin þegar Nordli
hafdi tekið við forsætisráðherraembætti af Bratteli.
úo
' *" C) ••
* . W i
r , WmÆmmmmtSk
wmmmmmm
Nordli fór í sumar í heimsókn
til Svalbarða og fór þar um
námurnar. Hann lét f Ijós furðu
sína á því að verkamennirnir
skvldu ekki hafa kvartað undan
vinnuaðstöðu sinni. Er hann
var spurður um hvort hann
styddi kröfu námumannanna
um að eftirlaunaaldur þeirra
yrði færður úr 67 í 60 ár svaraði
Nordli að bragði: „Eg færi
fram á eftirlaunin strax."
Tove, sem eru 23ja ára og 19
ára. Eldri dóltirin er gift, en
Tove er við nám.
Það kom ekki á óvart, þegar
Odvar Nordli var skipaður ráð-
herra sveitarstjórnarmála í
minnihlutastjórn Trygve
Brattelis í marz 1971. Nordli
hafði öðlazt verulega reynslu
og þekkingu á þeim málum og
hafði að baki alllanga þingsetu
og hafði aflað sér traust sam-
herja sinna og virðingu margra
andstæðinga.
Þegar Verkamannaflokkur-
inn myndaði minnihlutastjórn
sína að loknum kosningum 1973
fékk Nordli það erfiða verkefni
að vera þingflokksleiðtogi
minnihlutastjórnarflokks. Víð
embætti forsætisráðherra tók
hann síðan þann 14. jan. sl.
Staða Nordlís sem forsætis-
ráðherra er ekki auðveld, þar
eð minnihlutastjórn hlýtur
jafnan að eiga í vök að verjast.
Auk þess bendir nú ýmislegt til
að borgaraflokkarnir þrír á
Stórþinginu ætli að treysta
samvinnu sin í millum meira en
áður og mynda eins konar
„blokk“. Um þetta sagði Nordli
nýlega í viðtali að minnihluta-
stjórn hefði vissar skyldur og
yrði að taka ákveðið tillit til
aðstæðna þegar svona væri mál-
um háttað. „Þetta hefur þó
gengið vonum framar," sagði
hann „en með vorinu hefur
ýmislegt farið að koma i ljós
sem gefur visbendingu um að
st jórnarandstöðuflokkarnir
ætla að færa sig upp á skaftið.
Það er mikilvægt að menn skilji
að ríkisstjórnin verður að fá að
ráða stefnunni — þó svo að hún
sé i minnihluta — og takmörk
eru fyrir því hversu langt hún
getur gengið til að halda frið-
inn. Ákveðnar leikreglur gilda i
þessu sem öðru og þær verður
stjórnarandstaðan að virða,"
sagði Nordli.
Forsætisráðherrann á hús i
Tanga i Heiðmörk og dvelur
þar löngum. Hann hefur þó að
sjálfsögðu lengst af búsetu i
forsætisráðherrabústaðnum i
Osló. 1 leyfum sínum dvelur
hann til skiptis í Heiðmörk eða
i sumarhýsi sínu i Eystridal.
Draumur allra Norðmanna er
að eiga sér sumarbústað annað-
hvort uppi í fjöllunum eða við
sjávarsíðuna og er Nordli þar
engin undantekning.
Þá er til þess tekið að Nordli
hafi ákaflega gaman að renna
fyrir fisk og finnst fátt áriægju-
legra til hvíldar og hressingar
frá argaþrasi hvunndagsins en
að renna fyrir fisk i ám og
vötnum.
Odvar Nordli dvelur sér til hressingar á heimaslóðum í Heiðmörk,
þegar hann fær því við komið. Myndin var tekin nú nýlega.
flokksins og „sleit
þar barnsskónum“
eins og hann orðar
það.
Nordli er fæddur 3. nóvem-
ber 1927, lauk verzlunarprófi
og síðan stúdentsprófi. Árið
1951 hóf hann þátttöku i stjórn-
málum, er hann var kjörinn í
ba’jarstjórn Stangar og voru
honum fljótlega falin mörg og
margvísleg trúnaðarstörf, þótti
ráðsnjall, -athugull og tillögu-
góður. Hann varð einnig for-
maður i félagi Verkamanna-
flokksins í Stöng um svipað
leyti.
I fjölda ára starfaði hann við
endurskoðun, fyrst í Heiðmörk
og síðan varð hann héraðsend-
urskoðandi í Vang og Löten.
Eftir að Nordli hóf afskipti af
stjórnmálum lét hann verulega
efnahagsmál til sin taka. Hann
var meðal annars formaður
skattanefndar flokks sins árin
1967—1969.
Nordli var kjörinn á Stór-
þingið fyrir Heiðmörk árið
1961, en hafði verið varaþing-
maður kjörtímabilið á undan.
Hann tók þá sæti í ýmsum
nefndum þingsins, m.a. er fjöll-
uðu um sveitarstjórnarmál, fé-
lagsmál og hann var skipaður
formaður varnarmálanefndar
fyrir nokkrum árum.
Nordli hefur orð fyrir að vera
rólegur og yfirvegaður þing-
maður. Honum hefur verið leg-
ið á hálsi fyrir að vera heldur
þurr og fáskiptinn en sannleik-
urinn er sá að hann er mála-
fylgjumaður góður, hefur gam-
an af kröftugum kappræðum og
getur þá verið kaldhæðinn og
er oft grunnt á napurri kímni
hans.
Nordli kva>ntist árið 1953
Margit Haraseth og eiga þau
hjónin tvær dætur, Aud og
Odvar Nordli í ræðustól í Stórþinginu er hann lagði fram stefnuskrá stjórnar sinnar um miðjan janúar
sl.