Morgunblaðið - 10.12.1978, Blaðsíða 4
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1978
Matthías Jóhannsson kaupmaður á Siglufirði hcfur flutt verzlun sína,
Tröð, í nýtt húsnæði við Aðalgötu 5 í gömlu húsi sem endurnýjað hefur
verið töluvert. í verzluninni eru á boðstólum sælgæti og tóbak auk
ýmiss annars varnings, og er eigandinn Matthías Jóhannsson auk þess
umhoðsmaður fyrir Morgunblaðið og Vísi. A myndinni er hann f
verzluninni ásamt konu sinni Jónu Pétursdóttur. Ljósm. Steingrímur.
Brynjólfur Bjarnason for-
maður Félags viðskipta-
fræðinga og hagfræðinga
AÐALFUNDUR Félags við-
skiptafræðinga og hagfræðinga
var haldinn nýlega í Reykjavík.
Ólafur Davíðsson hagfræðingur
sem vcrið hefur formaður félags-
ins undanfarin ár lét af störfum
að þessu sinni en í hans stað var
Brynjólfur Ðjarnason rekstrar-
hagfræðingur kosinn formaður.
Aðrir í stjórn félagsins nú eru
Ilörður Sigurgestsson varafor-
maður, Ólafur Karlsson gjald-
keri, Geir H. Haarde ritari.
Tryggvi Pálsson formaður
fræðslunefndar, 1‘órður Friðjóns-
son formaður kjaranefndar og
Ásmundur Stefánsson meðstjórn-
andi.
Tilgangur félagsins er m.a, að
því er segir í tilkynningu frá því,
að auka þekkingu félagsmanna á
fræðigreinum sínum. Félagsmenn
geta allir þeir orðið sem lokið hafa
prófi í viðskipta- og hagfræði frá
viðurkenndum háskóla. Félagið á
aðild að Bandalagi háskólamanna.
Þetta gerðist
1976 — Rússar stækka fisk-
veiðilögsögu sína í 200 mílur.
1972 — Flokkur Tanaka heldur
velli í kosningum í Japan.
1948 — Mannréttindayfirlýsing
SÞ samþykkt.
1941 — „Prince of Wales“ og
„Repulse“ sökkt við Malaya.
1936 — Játvarður VIII leggur
niður völd og verður hertogi af
Windsor.
1899 — Bretar sigraðir við
Stormberg í Suður-Afríku.
1898 — Parísar-sáttmálinn
bindur enda á styrjöld Spán-
verja og Bandaríkjamanna sem
fá Kúbu, Puerto Rico, Guam og
Filippseyjar fyrir 20 milljónir
dollara.
1896 — Alfred Nóbel andast.
1884 — Porfirio Diaz verður
forseti Mexíkó.
1877 — Rússar taka Plevna i
Búigáríu eftir umsátur.
1848 — Louis Napoleon kosinn
forseti Frakka.
1825 — Brazilía segir Argentinu
stríð á hendur.
1810 — Napoleon innlimar
Norður-Hannover, Bremen,
Hamborg, Lauenburg og Lubeck.
1607 — John Smith fer frá
Jamestown, Virginíu, í land-
könnunarferð.
1520 — Lúther brennir páfa-
bréf.
Afmæli dagsins. Giovanni B.
Guarini, ítalskt skáld
(1537—1612) — Cesar Franck,
belgískt tónskáld (1822—1895)
— Dorothy Lamour, bandarísk
leikkona (1914— —) — Emily
Dickinson, bandrískt skáld
(1830-1886)
Innlent. Halldór Laxness tekur
við bókmenntaverðlaunum
Nóbels 1955 - F. Jón Guð-
mundsson ritstjóri 1802 —
Magnús Kristjánsson fjármála-
ráðherra andast í Kaupmanna-
höfn 1928 — Bandarískir her-
menn fluttir frá Keflavík og
skipulagi varnarliðsins breytt
1959 — D. Ólafur Hallsson
prófastur 1681.
Orð dagsins. Nánast hver ein-
asti maður veit hvernig hann á
að vinna sér inn peninga, en
ekki einn maður af hverri
milljón veit hvernig hann á að
eyða þeim — Henry David
Thoreau, bandarískur rithöf-
undur (1817-1862).
Þetta gerðist
1976 — Baskar ræna forseta
spænska ríkisráðsins.
1972 — Geimfararnir í Apollo
17 lenda á tunglinu.
1963 — Nkrumah rekur forseta
hæstaréttar í Ghana.
1944 — Þjóðverjar hrörfa yfir
ána Rör.
1941 — Bandaríkjamenn segja
Þjóðverjum og ítöium stríð á
hendur.
1937 — ítalir fara úr Þjóða-
bandalaginu.
1936 — Georg VI verður kon-
ungur Englands.
1899 — Bretar sigraðir við
Magersfontein í Óraníu-frírík-
inu — Búlow hafnar málaleitun
Breta um bandalag við Þjóð-
verja.
1848 — Louis Napoleon kosinn
forseti Frakka.
1845 — Síkhar sækja yfir ána
Sutlej á Indlandi og Síkhastríð
hefst.
1806 — Saxland verður kon-
ungsríki og gengur í Rínarsam-
bandið með Posen-friðnum við
Frakka.
1718 - Karl XII fellur við
Frederikshall í herförinni gegn
Norðmönnum.
1543 — Skozka þingið riftir
Greenwich-sáttmálanum um
giftingu Maríu Skotadrottning-
ar og Játvarðar Túdors prins.
1515 — Leo páfi lætur Parma og
Piacenza af hendi við Frakka.
1317 — Birgir Magnússon Svía-
konungur lætur handtaka bræð-
ur sína, hertogana Eirík og
Valdimar, í Nyköbinghöll.
Afmæli dagsins. Hector Berlioz,
franskt tónskáld (1803—1869) —
Alfred de Musset, franskur
höfundur (1810—1857).
Innlent. Tveir brezkir dráttar-
bátar sigla á „Þór“ 1975 —
Hannes Jóiisson og Jón í Stóra-
dal reknir úr Framsóknar-
flokknum 1933 — Hörð átök
lögreglu og verkfallsmanna við
Garnastöðina 1930 — Laxveiði í
Elliðaám afsöluð Ditlev Thom-
sen kaupmanni 1853 — Vatns-
flóð í Mosfellsdal 1967.
Orð dagsinst Við eigum miðöld-
um tvær verstu uppfinningar
mannkynsins að þakka — púðr-
ið og rómantíska ást — André
Maurois, franskur rithöfundur
(1885-1967).
t
, jafnt
HUSB/EMDUR
- SEM VIÐ HIN -
KUnMA AD META
RETT BAKADAR
PIPARKÖKUR.STt>KKAR
OQ BRAQÐMIKLAR
KEXVERKSMIÐJAN FRÓN