Morgunblaðið - 10.12.1978, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1978
55
Oftast nær er nú aðeins einn drepinn en öðru hverju
fer allt úr böndum og af hljótast fjöldavíg..
(SJÁ: Blóðhefndir)
Þeir hafa vinnu
og eru allt um
Það iðjulausir!
umleikis. Af þessum sökum er
atvinnuleysi nú meira í Japan en
nokkurn tíma frá því 1959. Og
raunverulegir atvinnuleysingjar
eru langtum færri en hinir sem
haida launum sínum, og starfi að
nafninu til, þótt þeir hafi ekkert
að gera. Æviráðningar eru hefð-
bundnar í Japan, og reyna fyrir-
tæki hvað þau geta að halda
starfsmönnum sínum fram að
eftirlaunaaldri og segja þeim helzt
ekki upp þótt þau hafi engin
verkefni handa þeim.
Þau fimm hundruð þúsund
manns, sem nú eru atvinnulaus og
þó ekki, eru kölluð „stólhitarar" í
daglegu tali og þykir ekki sérlega
virðuleg nafnbót. Það er vitanlega
ekki stólhiturum að kenna að þeir
hafa ekkert að gera. En það getur
varla hjá því farið að félagar
þeirra á vinnustað taki að líta þá
hornauga þegar fram í sækir fyrir
það, að þeir hafast ekkert að. Enda
erú stólhitarar margir orðnir
þunglyndir og sumir hafa jafnvel
kiknað undir fyrirlitningu vinnu-
félaganna og ráðið sér bana.
Japanir eru kunnir að mikilli iðni,
svo og að taumlausri hollustu við
húsbændur og yfirvöld og þess
gjalda nú umræddir atvinnuleys-
ingjar, eða verkefnaleysingjar öllu
heldur, að þeir vinna fyrirtækjum
sínum ekkert. Það er hámark
vesældóms í Japan.
KRABBAVALDAR
Alltaf er verið að leita
krabbameinsvalda í fæðu
manna og umhverfi og
fyrir stuttu bárust stórtíðindi
af þeim vettvangi. Það kom sem
sé út í Bandaríkjunum opinber
skýrsla þar sem segir, að
rannsóknir hafi leitt í ljós, að
sakkarín sé hugsanlegur
krabbavaldur og auk þess hugs-
anlegur „krabbahvati“, sem svo
er kallaður, þ.e. hvati á aðra
krabbavalda.
Vitnað er í ýmsar rannsóknir
þessu til stuðnings, m.a. rann-
sóknir á rottum, sem fram fóru
í London. Þar eru rottur aldar á
„vanalegu" fæði en þeim gefið
sakkarín að auki. Öðrum var
gefið sama fóður en auk þess
skammtur af öðrum krabba-
valdi. Breiddist blöðrukrabbi þá
fljótlega út í síðartalda hópn-
um, og miklu meira en ætla
mátti eftir skammtinum af
aukaefninu, en í fyrrnefnda
hópnum gætti blöðrukrabba
lítið sem ekki.
Þetta virðist koma heim og
saman við niðurstöður rann-
sókna sem fram fóru fyrir
einum tveim áratugum en hefur
verið lítill gaumur gefinn fram
að þessu, og enn fremur hníga
ýmsar niðurstöður nýlegri
rannsókna í sömu átt.
Verður nú væntanlega farið
að leita annarra hugsanlegra
krabbahvata, efna sem verka
kunna á önnur efni er valda
algengari tegundum krabba.
M.a. standa vonir til að skýrist
tengsl þau sem virðast vera með
fituríkum mat og ristilkrabba.
Líkaminn framleiðir sýrur til
þess að vinna á fitunni. Er
hugsanlegt, að sýrurnar séu
hvatar á krabbavaldana í fæð-
unni. Enn fremur má telja
tengslin milli tóbaksreykinga
og lungnakrabba. Það er ljóst af
margendurteknum rannsókn-
um, að hættan á lungnakrabba
LANGRÆKNI: 90,000 vegnir á
fjórum áratugum
aðeíns einn drepinn en öðru
hverju fer allt úr böndum og af
hljótast fjöldavíg. Eitt sinn voru
27 drepnir og fjölmargir særðir,
allt út af einni stúlku; en „sök“
hennar var sú, að maður úr
næsta porpi hafði beðið
hennar...
Öðru sinni féllu 17 manns í
skotbardaga og var petta
mannfall sprottið af pví að
maður hafði beðið stúlku sem
búið var að heita öðrum.
Biðlarnir buðu hver út sínum
„her“ og skutust menn svo á
par til 17 lágu dauðir og par á
meðal foringjarnir báðir...
Loks er hér ein álíka, pótt
ekki væri par kvennamálum til
að dreifa: pað gerðist í mat-
vöruverzlun í Kaíró. Verzlunin
var full af fólki. Allt í einu veður
inn maöur vopnaður vélbyssu,
hefur að skjóta og hættir ekki
fyrr en 11 liggja í valnum.
Maðurinn hafði átt eitthvað
sökótt viö kaupmanninn. Kaup-
manninn sakaöi ekki...
- IRENE BEESON.
minnkar smám saman eftir að
maður hættir að reykja og eftir
15 ár er honum aðeins örlitlu
hættara við krabba en manni
sem aldrei hefur reykt. í
tóbaksreyk eru bæði beinir
krabbavaldar og krabbahvatar.
Er hugsanlegt að krabbavald-
arnir séu þá hættulegastir er
krabbahvatarnir berast jafnt og
þétt í líkamann en hættan
minnki svo aftur smám saman
er hvatarnir eru ekki lengur
fyrir hendi.
I stuttu máli sagt er hugsan-
legt að margar tegundir
krabbameins hefjist þannig, að
fyrst hleypur eitthvað í litning-
ana en síðar koma til hvatar í
mat eða öðru sem berst í
líkamann, og þeir leysa krabba-
valdana úr læðingi. Sumir
vísindamenn telja að hvatarnir
stuðli að myndun efnakljúfa í
líkamanum en kljúfarnir hvetji
hins vegar skaddaðar frumur.
Þær taka þá að margfaldast unz
þær bera heilbrigðu frumurnar
ofurliði ...
- TIIE ECONOMIST.
Detta gerðist líke ....
Sjá roöann í austri!
Andófsmenn í Moskvu skýra svo frá að enn hafi sovésk
stjórnvöld látið til skarar skríða gegn einstaklingi sem mælti fyrír
stofnun frjálsrar verkalýðshreyfingar. í petta sinn var pað kona að
nafni Valeria Novodvorskaya, sem var tekin í vörslu lögregiunnar,
en hún er meðlimur í hópi sem í síðastliönum mánuði kunngerði
stofnun stéttarfélags sem væri óháð ríkisvaldinu. Novodvorskaya
var úrskurðuð í varðhald eftir að lögreglumenn höfðu leitað á
henni og fundiö í tösku hennar eintak af fréttabréfi, sem
andófsmenn par eystra gefa út í trássi viö yfirvöld.
Gestaþrautir
Að lokinni níu mánaða rannsókn á vandamálinu hafa læknar og
hjúkrunarfólk við nýjasta sjúkrahús Breta í York samið eínskonar
siðalögmál fyrir fólk sem heimsækir sjúklinga. Hinar sundurliöuöu
leiðbeiningar hafa meira að segja
veriö prentaðar, og er hverjum
gesti, sem kemur í sjúkrahúsið,
afhenK eintak. Markverðustu
ábendingar: 1) Fólk er hvatt til að
foröast að sitja sitt hvoru megin
við rúm sjúklingsins, pegar gest-
kvæmt er hjá honum. Það hlífir
honum við pví að purfa sífellt að
vera að sveifla til höfðinu („eins og hann væri staddur á
tenniskeppni"), sem lyktar iðulega með slæmum hálsríg. 2) Heitið
er á menn að peir færi hinum sjúka ekkert matarkyns án leyfis
hjúkrunarliðsins. 3) Gestum er eindregið ráðið frá pví að tala
fjálglega um „uppskuröinn minn“. 4) Og svo eru menn beðnir að
sitja ekki yfir sjúklingnum lengur en hálfa klukkustund.
Það stóra
Sotheby’s, hiö fræga breska uppboðsfyrirtæki, tilkynnti í
síðastliðinni viku að pað heföi slegið rétt eitt metið. Það var samt
ekki metverð, sem fyrirtækið gat státað af í petta skiptið, heldur
sló fyrirferð málverksins, sem pví var faliö að bjóða upp, öil met.
Það var sjö metrar á lengd og fimm á hæð og seldist fyrir tæpar
5.8 milljónir. Franskur listamaður að nafni Charles Giron málaði
báknið fyrir tæpum hundrað árum og er viðfangsefnið götulífið í
París. Talsmaður Sotheby’s tjáði fréttamönnum: „Við porðum
engu aö spá um pað hve mikið fengist fyrir málverkið. Allir voru
stórhrifnir af pví, en nánast enginn virtist ráða yfir nægilegu
veggplássi. Það hefði fariö fyrir mun hærri upphæð ef stærðin hefi
verið svolítið hóflegri.“
Hœðarmet
Hu Chun-Chang, 17 ára
gömul kínversk stúlka, er
hæsta kona veraldar, ef marka
má tímaritið „China
Reconstructs", sem gefið er út
á ensku. Það vantar ekki nema
13 millimetra uppá aö hún sé
fullir 2.30 metrar. í „The
Guinnes Book of Records" er
Bandaríkjakonan Sandy Allen
talin hæst allra kvenna. En
samkvæmt pví sem par er
skráð vantar samt liðlega
sentimetra uppá að hún gnæfi
jafn hátt og sú kínverska.
Sitt litið af hverju
Bandaríska stórfyrírtækið Westinghouse Electric Corporation,
sem fyrir skemmstu viöurkenndi aö hafa greitt egypskum
aðstoðar-forsætisráðherra á fjórða hundraö púsundir dala í mútur
var í vikunni leið sektað um 300.000 dollara fyrir tiltækið ...
Rúmenskum aöstoðarráðherra, sem var staðinn að pví í fyrra að
ráðast með barsmíð á rithöfundinn og andófsmanninn Paul Goma,
hefur verið vikið úr stjórninni ... Ævisaga Brigitte Bardot eftir
Willi Frischauer hefur verið bönn-
uð í Suður Afríku. Engin ástæða er
gefin. ... Fornleifafræöingum á
Sikiley hefur í bráð að minnsta
kosti tekist að fá yfirvöld til pess
að hefta jarðýturnar sem voru
byrjaðar að bylta viö bæjarrústum
skammt frá Palermo til undir-
búnings lóðaúthlutunar undir rán-
dýr einbýlishús. Þessi „Bernhöfts-
torfa" peirra Sikileyinga er 2,500
ára gömul. ... Lögreglan í París
bannaði á dögunum fyrirhugað
uppboð par í borg á ýmiskonar
dóti úr fórum Hitlers sáluga. Háværar raddir hafa verið uppi um
pað í Frakklandi upp á síðkastið að nasistar par séu að færa sig
upp á skaftiö ... Dómari í knattspyrnuleik í Júgóslavíu borgaði
fyrir pað meö lífi sínu um næstliðna helgi pegar hann vísaöi
tveimur leikmönnum af leikvelli. Áhorfandi, sem réðst að honum
með hníf, særði hann til ólífis. ... Farpegar í strætisvagni í
Karachi, sem ók á mótorhjól og banaöi báðum sem á pví voru,
urðu svo æfir að peir báru eld aö bílnum og brenndu hann til ösku.