Morgunblaðið - 10.12.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1978
63
Frygðarleg-
ir fletir
í sýningarsölum Norræna
hússins heldur um þessar mund-
ir ungur maður, Guðmundur
Björgvinsson að nafni, sýningu
á 50 pastel- og kolteikningum.
Þetta mun vera önnuf einkasýn-
ing Guðmundar hér í borg en ég
kem því ekki fyrir mig á
augnablikinu að hafa séð verk
eftir hann áður og ekki þekki ég
neitt til mannsins né listferils
hans. Upplýsingar þær er ég
hefi séð í fjölmiðlum um Guð-
mund hafa verið af skornum
urslega unnar, skuggar klesstir
og lokaðir (lífvana) og er þetta
sú tegund vinnubragða sem
helst ber að forðast er unnið er í
svart-hvítu.
Inntak myndanna er súrrea-
listískt, ósjaldan hugleiðingar
um kvenlíkamann í stellingum
er ættu að vekja upp ástarfýsn
hjá skoðendum en gera það
sjaldnast hvað mig áhrærir. Hér
skortir að mínum dómi tækni og
blæbrigði ásamt öruggri út-
færslu er sannfærði, að hér sé
Myndllst
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
skammti og engin sýningarskrá
fylgir þessari sýningu, sem er
mjög til baga. Eigi það að vera
frumlegt missir það marks að
mínu mati, gerir enda gagnrýn-
endum erfiðara um vik í starfi
og er að auk lítið spennandi að
þurfa að rýna á miða við neðri
hliðarjaðar hverrar myndar til
að komast að nafni hennar og
númeri. Jafnvel fjöl- eða ljósrit-
aður snepill hefði verið hér
betra en ekkert. Er mikið
spursmál hvort þessi hroðvirkn-
islegi umbúnaður sé ekki van-
virða við hin virðulegu salar-
kynni er hýsa sýninguna.
Máski hefur tímahrak verið
hér á ferð og vissulega virðast
myndirnar gerðar í miklum
flýti, — flestar hverjar á þessu
ári, með hraða, sem hinn ungi
maður ræður enn sem komið er
ekki við sem skyldi. Þá eru
myndirnar mjög misjafnar að
gæðum og sumar raunar flaust-
um ástþrungið konuhold að
ræða, brúsandi blóð og brenn-
andi fýsnir ...
Þetta virkar einhvern veginn
svo ungæðislegt á mig — auðséð
er a.m.k. á öllu að listamaðurinn
er enn á gelgjuskeiði í fang-
brögðum sínum við listgyðjuna
þótt ekki skorti vilja til karl-
mannlegra tilburða. Hægt er að
framkalla stórum sterkari
kenndir án þess að taka jafn
gróf vinnubrögð í þjónustu sina
og bendi ég t.d. á Kaliforníu-
manninn Mel Ramos og ýmsa
raunsæismenn í nýlistum.
Þrátt fyrir augljóst tímahrak,
hefur tekist að prenta veglegt
veggspjald (plakat) sem lýsir
sýningunni vel, — er myndin á
veggspjaldinu með betri mynd-
um á sýningunni.
Engar spár verða settar fram
hér um framtíðina og síður
ráðleggingar aðrar en hin klass-
íska, „festina lente“ — flýttu þér
hægt.
Hæfileika hefur Guðmundur
Björgvinsson vissulega, það
kemur t.d. fram í myndum svo
sem nr. 6 og 18, sem eru unnar
af meiri natni, formrænni
kennd og alúð en flestar aðrar
myndir á sýningunni.
Ellefta bindi í Alfræði Menningarsjóðs:
Læknisfræði
Þetta er ellefta bindi í Alfræði
Menningarsjóðs og samið af Guð-
steini Þengilssyni lækni (og Magn-
úsi Blöndal Bjarnasyni lækni að
hluta). Fjallar bókin um læknis-
fræði og lyfjafræði undir upp-
liHðbarn
hefur
lítið sjónsvíð
flettiorðum í stafrófsröð líkt og
önnur rit í þessum flokki. Er
megináhersla lögð á skýrgreining-
ar, tilraun til útskýringar á því
hvað uppflettiorðið merki, hvað
við sé átt. Efni ritsins er sótt í
ýmsar áttir, þýtt, endursagt, eða
frumsamið eftir atvikum.
Læknisfræði er 159 blaðsíður að
stærð. Bókin er prentuð í Odda en
bundin í Sveinabókbandinu.
Önnur rit í bókaflokki þessum
eru: Hannes Pétursson: Bók-
menntir, Ólafur Björnsson: Hag-
fræði, Einar Laxness: Islandssaga
I—II, Hannes Pétursson og Helgi
Sæmundsson: íslenskt skáldatal
I—II, Ingimar Jónsson: íþróttir
I—II, Þorsteinn Sæmundsson:
Stjörnufræði — Rímfræði, Hall-
grímur Helgason: Tónmenntir I.
Öll ritin í Alfræði Menningar-
sjóðs eru myndskreytt.
A Stjórnunarfélag íslands Ék,
leitar eftir kaupum á um 100 fm. skrifstofuhúsnæði á
góöum stað í Reykjavík. Ákjósanlegt er ef hægt væri
að koma viö sameiginlegum rekstri á fundarsal og fl.
með félagasamtökum, fyrirtækjum eða stofnunum
sem hefðu aðstöðu í sama húsi.
Þeir aöilar, sem hafa húsnæöi í boði eöa þeir sem
gætu verið í samstarfi við félagið um kaup á
skrifstofuhúsnæði vinsamlegast hafið sem fyrst
samband við framkvæmdastjóra félagsins.
Stjórnunarfélag íslands,
Skipholti 37, sími 82930.