Morgunblaðið - 10.12.1978, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1978
71
félk í
fréttum
+ KAFBÁTUR. Hinn heimsfrægi könnuður undir-
djúpanna, Svisslendingurinn Jacques Piccard, situr
hér undir stefni nýs kafbáts, sem hann hefur látið
smíða fyrir sig og hann kallar PX-28. Hann ætlar að
vígja hann núna í þessum mánuði og fara í
könnunarleiðangur í einhverju af vötnum Sviss. Kúlan
eða kafbáturinn er 7,5x2,2 m og rúmar alls þrjá menn.
+ GIORGIO de Chirico, sem
blöð á Ítalíu telja fremsta
listmálara þar í landi á þessari
öld, er nýlega látinn, níræður
að aldri. Svo sem við er að
búast þegar um slíka lista-
menn er um að ræða, þá eru
verk þeirra eðlilega á flestum
ef ekki öllum listasöfnum í
heimalöndum þeirra. Þessu er
einnig svo farið með listasöfn-
in á Ítalíu. Ekki var hann
innfæddur ítali, heldur fæddist
hann í Grikklandi. Hann var
ungur að árum er hann kom til
Rómar. Var þar síðan að heita
má öllum stundum og fór
sjaldan úr bænum. Hann var
mjög afkastamikill listmálari.
Hafði látið þau orð falla um
nútíma myndlist að sér þætti
hún hryllileg. Hann lætur eftir
sig konu sfna. Hundruð
málverka, sem hann hafði
heima hjá sér, munu nægja til
að ekkjan hafi nægan lífeyri,
má lesa í einu Rómarblaðanna.
• WATERGATE-hneykslið mikla, sem olli því að Richard Nixon varð að segja af sér
forsetaembættinu í Bandaríkjunum, er nú í kvikmyndun. — Það er útvarps- og
sjónvarpsfélagið bandaríska, CBS, sem er að láta gera kvikmynd um þetta mikla
hneykslismál. Fer gerð myndarinnar fram í borginni Los Angeles. Myndin mun verða
fullgerð næsta vor og frumsýnd í maímánuði. Myndin heitir á ensku „Blind
Ambition“. Á myndinni er einn af fyrrum starfsmönnum Nixons, John Dean (í ljósa
jakkanum). Að baki hans með báða handleggi á lofti og V-táknið (sigurtákn Nixons)
er leikarinn Rip Torn, sem leikur Richard Nixon. — Myndin er tekin í hléi á
myndaupptökunni.
Orð Krossins
Fagnaöarerindiö Veröur flutt á íslenzku frá Trans
World Radio, Monte Carlo, á hverju mánudagskvöldi
kl. 23.15—22.30.
Sent veröur á miöbylgju 205 (1466 KHz)
Orö Krossins, pósthólf 4187, Reykjavík.
Undursamlega jörð,
Jf mynd þína hefur mig lengi
I langað til að mála.
Þannig kemst Jón úr Vör að orði
í Þessari nýju bók, sem er
tíunda Ijóðabókin hans. Og þó að hann segi af sínu alkunna
yfirlætísleysi að sín fátæklegu orð dugi ekki í myndina, Þá er
Það hans dómur en ekki okkar. Þvi að Þeir fletir jarðar og
mannlífs sem hann hefur dregiö upp í Ijóðum sínum
gegnum árin eru ekki einungis skýrir og fagrir,
_____________heldur einnig svo sérstæðir og
persónulegir að ekkert annað
(JD
Almenna bókafélagið
Austurstrætí 16 — Sími 19707
Skemmuvegi 36, Kópavogi — Sími 73055
Glœsilegt kápuúrval
Laugalæk