Morgunblaðið - 27.03.1979, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.03.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979 19 Þórdís Bachmann skýrir gestum Óðals frá árangri söfnunarinnar „Gleynmd börn ’79“. Til vinstri við hana er nýi plötusnúðurinn á óðali John Anthony en Mickie Gee þreyttur en ánægður snýr síðustu plötunum. Mickie yfirgefur plötuspilar- ana eftir 1500 klukkustundir „Mér líður stórkostlega og það er þungu fargi af mér létt,“ sagði breski plötusnúðurinn Mickie Gee er hann yfirgaf plötuspilarana á Óðali kl 3 aðfaranótt s.l. mánudags. Mickie settist við plötuspilarana 22. janúar s.l. með þeim ásetningi að setja heimsmet f plötusnýningi. Það tókst 12. mars s.l. er hann hafði spilað plötur í 1176 klukkustundir. Micki e hélt hins vegar áfram iðju sinni og hætti er hann hafði 1500 klukkustundir eða 9 vikur að baki. Jafnhliða heimsmetatilrauninni fór fram söfnunin „Gleymd börn ’79“ og tilkynnti Þórdís Bachmann, for- stöðumaður söfnunarinnar, í hófi sem haldið var á Óðali er Mickie hætti, að um 6 milljónir hefðu safnast, þar af 3 milljónir á mál- verkauppboðinu sem fram fór til styrktar söfnunni á Hótel Loft- leiðum s.l. sunnudag. Þar voru boðin upp um 40 málverk auk nokkurra bóka. Mickie mun fara af landi brott í næstu viku en hyggst nota tímann þangað til að sjá sig um á íslandi og einnig sagðist hann ætla að heim- sækja nokkur fyrirtæki og stofnanir og reyna að safna meiri peningum í „Gleynd börn ’79“. Næstkomandi föstudag verður Mickie gestur á diskóteki í Garðaskóla. Ný skoðanakönnun: Sj álfstæðisflokkur og Framsókn í sókn Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag tapi fylgi í SKOÐANAKÖNNUN. sem dag- blaðið Vísir hefur látið fram- kvæma x>g birt var í gær urðu niðurstöður þær að Sjálfstæðis- flokkurinn og Framsóknarflokk- urinn hafa unnið á frá kosning- unum í júní í fyrra en bæði Alþýðuflokkur og Alþýðubanda- lag hafa tapað talsverðu fylgi. Könnun Vísis náði til 1642 kosn- ingabærra manna og var svörun 78.9%. Samkvæmt skoðanakönnuninni fengi Alþýðuflokkurinn nú 16,7% greiddra atkvæða ef nú væri geng- ið til kosninga, Framsóknarflokk- urinn fengi 20,7% atkvæða, Sjálf- stæðisflokkurinn 44,3% atkvæða, Alþýðubandalagið 17,3% atkvæða, Samtök frjálslyndra og vinstri manna 0,9% atkvæða og framboð Karvels Pálmasonar á Vestfjörð- um fengi 0,1% atkvæða. Undanfarna mánuði hafa verið framkvæmdar fjórar kannanir á fylgi stjórnmálaflokkanna, Dag- blaðið hefur framkvæmt tvær, þá fyrri í desember 1978 og þá síðari í marzbyrjun s.l., nemendur MR gengust fyrir skoðanakönnun í skólanum í janúar s.l. og loks Vísir núna. Samkvæmt öllum könnunum er Sjálfstæðisflokkurinn í sókn. Framsóknarflokkurinn tapaði fylgi samkvæmt fyrri könnunum en er í sókn samkvæmt könnun Vísis. Alþýðuflokkurinn virðist hafa tapað fylgi samkvæmt þrem- ur af fjórum könnunum. Alþýðu- bandalagið hélt nokkurn veginn sínu í báðum könnunum Dagblaðs- ins en hefur tapað fylgi samkvæmt könnun Vísis. Að öðru leyti vísast til meðfylgjandi töflu, þar sem fylgi flokkanna er sýnt i hverri einstakri könnun og til saman- burðar eru birtar hlutfallstölur flokkanna fjögurra í aiþingiskosn- ingunum í júní 1978. =•: 11 1 5 ■=.5 Alþýðutlokkur 22.0% F ramsóknartlokkur 16.9% SjálfstÆðisflokkur 32,7% AlþýðubandalaK 22.9% «© ■*© 00 OC í- s *2 oí ■*© r- 05 r— _2 t'* •S2. -| c 1 í X ^ OS * 5 « E Í"E S > E 21,1% 15.3% 15.1% 16,7% 15.6% 5.1% 13.5% 20.7% 42,2% 44.2% 49.2% 44.3% 21.1% 28.4% 22.2% 17.3% „Súper markaður „Súper“-markaöurinn heldur áfram í sýningahöll- inni (Ársalir) 2. hæö v. Bíldshöföa. Dömufatnaður Kjólar frá 4000—14.000. Dömujakkar frá kr. 8.900. Dömuúlpur frá kr. 11.900. Dömupils frá kr. 7.000. Dömuskyrtur frá kr. 1.900. Ótrúlegt úrval af frábærum hljómplötum RtÓ-FÓlK t ? Herrafatnaður Herraúlpur frá kr. 10.500. Herrablússur frá kr. 4.900. Herragallabuxur frá kr. 6.900. Herraflauelsbuxur frá kr. 6. Barna- og unglinga- fatnaður frá 1-14 ára T.d. barnaúlpur frá kr. 6.900- Barnabuxur frá kr. 2.900- Barnapeysur frá kr 2.900 - o.fl. o.*" Ódýr og falleg leikföng 500 original mál verk. Verö frá kr. 11.000.- Opið frá 1-10 í dag. Opið miðvikudag frá kl. 1-6. Opið fimmtudag frá kl. 1-6. Gjafavörur og búsáhöld allskonar frá Glit keramik og fleira og fleira af úrvals vörum sem vert er aö sjá. Sláiö til og gerið „Súper“-kaup á „Súper<(-markaöi Kaffiveitingar á staðnum. Nýjar vörur teknar upp daglega. Súpermarkaöurinn, Sýningahöllinni (Ársalir) v/Bíldshöföa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.