Morgunblaðið - 27.03.1979, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 27.03.1979, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979 . 47 Anwar Sadat og Menachem Begin klappa Jimmy Carter lof í lófa eftir ávarp hans við hina hátiðlegu athöfn í Washington í gær. (AP-símamynd) 64% ánægðir með Carter New York, 26. marz. AP. BANDARÍKJAMENN hafa ekki trú á því að friðarsamningurinn sem undirritaður er í dag, leiði til þess að ísraelar geri sams konar samninga við önnur Arabaríki, að því er kemur fram í niðurstöðum skoðanakönnunar NBC sem birt var í dag. Þó eru menn einkar jákvæðir í eða friði og 26% kváðust ekki garð leiðtoga landanna þriggja sem þarna koma við sögu. 43% spurðra töidu ekki að ísrael gæti gert friðarsamninga við aðr- ar Arabaþjóðir, en 38% töldu það líklegt. Fjórtán prósent voru á báðum áttum. Svo virðist sem Bandaríkjamenn geri sér grein fyrir því að ekki sé fullkominn friður tryggður í þessum heims- hluta þótt gengið sé frá þessum samningi, því að 32% sögðu að friður þarna væri ekki óhugsandi, 39% að jafnar væru líkur á stríði búast við varanlegum friði þarna. Sextíu og fjögur prósent spurðra létu í ljós aðdáun og ánægju með þann hlut sem Carter Bandaríkja- forseti á í þessu máli, 25% sögðu frammistöðu hans skikkanlega og 7% að hún væri afleit. 59 prósent sögðu að frammistaða Sadats væri mjög góð, 26% að hún væri bæri- leg og 6% að hún væri afleit. Hvað Begin varðar sögðu 48% að frammistaða hans væri góð, 33% að hún væri skikkanleg og 11% að hann hefði staðið sig afleitlega. Sadat og Begin innsigla sáttargjörðina með handtaki í útbreiddum faðmi Carters, en enginn hefur lagt sig jafnmikið fram um að koma á friðarsamningum ísraelsmanna og Egypta en Bandaríkjaforseti. (AP-símamynd) Neikvœð viðbrögð í A rabaheiminum Israel — Egyptaland: 30 ára ófriðar- ástandi lokið Wasnington, 26. marz. AP. í SVALRI vorgolunni á flötinni fyrir framan Hvfta húslð ritudu þeir Anwar Sadat forseti Egyptalands og Menachem Begin forsætisráð- herra ísraels í kvöld nöfn sín undir samninginn, sem kveður á um gagnkvæma viðurkenningu, virðingu og frið. Er þar með lokið 30 ára ófriðarástandi milli rfkjanna. Jimmy Carter forseti Bandarfkjanna vottfesti friðarsamninginn með undirritun sinni. en samningsskjöl eru á arabfsku, hebresku og ensku. Það var ekki fyrr en á sunnu- dagskvöld að síðustu ágreinings- atriði varðandi samninginn voru útkljáð, en þá áttu Sadat og Begin með sér fund í Washington. Síð- asta hindrunin í vegi fyrir undir- ritun friðarsamnings varðaði að- gang ísraelsmanna að olíulindum á svæðum, sem Egyptar munu nú endurheimta. Þá hefur Begin fallið frá þeirri kröfu sinni að auk undirritunar í Washington skuli samningurinn undirritaður við hátíðlegar athafnir bæði í Jerúsal- em og Kaíró. Varð að ráði að frekari undirritun samninga færi aðeins fram í Kaíró, og kemur Begin þangað í eins dags heimsókn á mánudaginn kemur. Verður sú för til að endurgjalda heimsókn Sadats til Jerúsalem hinn 19. nóvember 1977, en það frumkvæði Sadats markaði upphafið að sátta- umleitunum þeim, sem nú hafa leitt til friðarsamninga ísraels- manna og Egypta. Begin féllst á að skila Egyptum aftur olíulindunum á Sínaískaga, en þaðan hafa ísraelsmenn að undanförnu fengið um 20% allrar olíu sinnar. Þessi tímamörk hafa á undanförnum mánuðum verið eitt helzta deiluefnið, en Egyptar hafa nú heitið því að selja ísraelsmönn- um olíu á heimsmarkaðsverði. Kjarni friðarsamnings Egypta og Israelsmanna er í fáum orðum sá að Israelsmenn skuldbinda sig til þess að verða á brott með allt herlið sitt úr Sínaí-eyðimörkinni á þremur árum, auk þess sem ísra- elsmenn munu yfirgefa landnáms- svæði sín þar. Þá munu herflug- vellir ísraelsmanna verða afhentir Egyptum, en þá má aðeins nota í borgaralega þágu hér eftir. Samn- ingurinn felur í sér fulla viður- kenningu Egypta á ísrael, og munu ríkin skiptast á sendiherr- um innan tíu mánaða frá því að samningurinn gengur í gildi. Aðrar greinar samningsins kveða á um aukin samskipti ríkj- anna, ákveðna tilhögun á brott- flutningi herliðs og kortagerð. Ennfremur er þar að finna sam- eiginlega yfirlýsingu þjóðarleið- toganna um túlkun ýmissa flók- inna samningsákvæða, m.a. hvað viðkemur varnarsamningum Eg- ypta við önnur Arabaríki. Þá felur samningurinn í sér ákvæði, sem skuldbinda Bandaríkin til að fylgj- ast með því að samningnum verði framfylgt, auk þess sem þau eiga að tryggja ísraelsmönnum aðgang að nægri olíu næstu fimmtán ár. Loks er í samningnum yfirlýsing um viðræður, sem hefjast innan sex vikna, um hvernig haga skuli sjálfstjórn Palestínuaraba á svæð- um, sem eru undir yfirráðum Israelsmanna, en þeir eru um 1,1 milljón að tölu. VIÐBRÖGÐ ARABALEIÐTOGA vegna undirritunar friðarsamnings Egypta og ísraela hafa öll verið mjög á eina lund, eins og við hafði verið búizt — það er sérstaklega neikvæð og illyrt. Assad Sýrlands- forseti sagði í dag að með þessari gjörð hefði Anwar Sadat skrifað undir sinn pólitíska dauðadóm. Á því léki enginn vafi að sögn Assads og það myndi skjótlega koma greinilega í ljós. „Hann hefur selt virðingu, hagsmuni og hugsjónir egypsku þjóðarinnar og Araba. Við munum láta hann svara til saka fyrir þessa viðurstyggilegu glæpi,“ sagði Assad. Hann sagði að Bandaríkjamenn reyndu allt til að reka fleyg milli Araba og með stuðningi við ísraela ykju þeir á hina gríðarlegu spennu í þessum heimshluta og beittu þar hinum lævíslegustu brögðum til að koma fram vilja sínum. Assad forseti, sem er í forystu- sveit fjenda Egyptalandsforseta, hefur undanfarna daga átt fundi með Gromyko utanríkisráðherra Sovétríkjanna og mun hann væntanlega lýsa eindreginni sam- stöðu með Aröbum. Hussein Jórdaníukonungur sagði í dag að þessi samningur væri fullkomlega núll og nix fyrir Araba og gæti aðeins orðið til þess að auka spennuna í Miðausturlöndum. Hann kvaðst sannfærður um jákvæðan vilja Carters, en hann hefði hreinlega látið villa sér sýn í þessu máli. Hussein sagðist telja það efalaust að Saudi-Arabia myndi hætta samstundis bæði hernaðarlegri og efnahagslegri aðstoð við Egypta og það gæti vitanlega leitt til stirðnandi sam- skipta Bandaríkjanna við Saudi Arabíu og önnur Arabaríki. Khomeini er hvass Teheran. 26. marz. AP. AYATOLLAH Khomeini, leiðtogi byltingarinnar í íran, sagði í meiriháttar ræðu sem hann flutti um utanríkismál um helgina að hann myndi fordæma harðlega friðar- samninginn milli Egypta- lands og ísraels. Hann sagði að hann myndi leiða til þess eins að enn ykist sú hætta sem alltaf hefði stafað frá ísrael í þessum heimshluta. „Við hverju öðru er svo sem að búast af vinaþjóð hins fallna keisara", sagði Khomeini. Hann sagði að íranir myndu skipa sér á bekk með þeim þjóðum sem ætluðu að berjast gegn þess- um samningi. Stundu eftir að Khomeini hafði flutt þennan boðskap sinn kom Árafat, forystumaður PLO, í óvænta heimsókn til írans. Saudi Arabar hafa ekki enn sent frá sér formlega fordæmingu á friðarsamnings.undirrituninni, en hvarvetna í Árabaríkjum er því spáð að þeir muni ekki hika við að ganga til liðs við harðlínu Araba- þjóðir og beita Egypta refsi- aðgerðum. Utanríkisráðherra Sýr- lands sem er staddur í Kuwait sagði í dag að leiðtogar Saudi-Ara- bíu hefðu skýrt frá þessu og myndu ekki hlaupa undan merkjum Arabaþjóða heldur for- dæma þau svik sem Sadat hefði gerzt sekur um. Utanríkisráðherrar Arabaríkja svo og efnahagsmálaráðherrar munu koma saman til fundar í Bagdad á morgun, þriðjudag, og fjórtán af 22 fulltrúum Araba- bandalagsins munu hafa þekkzt boð Iraka um að koma til þessa fundar. Khaddam, utanríkisráð- herra Sýrlands, sagði að engin miskunn yrði sýnd þeim Araba- ríkjum sem héldu áfram skiptum við egypsku stjórnina. Ekki hefur hreyfing Yassers Arafats hedlur skafið utan af gagnrýni sinni og segir í yfir- lýsingu PLO að Carter Banda- ríkjaforseti hafi komið fólskulega fram er hann hafi byrjað sitt svínaríismakk við Israela en neiti samtímis að viðurkenna rétt þjóðar sem rænd hafi verið landi sínu. í yfirlýsingu PLO segir að það sé augljóslega að verða tíma- bært að Sovétmenn, Sýrlendingar, Palestínumenn írakar og Libíu- menn byndist samtökum. Þá sendi Arafat einnig frá sér sérstaka orðsendingu um helgina þar sem hann skoraði á Brezhnev, forseta Sovétríkjanna, að berjast hat- rammlega gegn þessari samkomu- lagsgerð ísraela, Egypta og Bandaríkj amanna. o INNLENT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.