Morgunblaðið - 27.03.1979, Side 40

Morgunblaðið - 27.03.1979, Side 40
AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 JH«r0unbI«bit> ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1979 Hekla í erfið- leikum í ísnum STRANDFERÐASKIPIÐ Hekla var í nótt á siglingaleið um 3 sjómflur út aí Svínalækjartanga. Hríð var þá á þessum slóðum og ætlaði Tryggvi Biöndal skipstjóri á Heklu ekki að hugsa sér til hreyfings fyrr en með morgninum. Þær breytingar urðu helztar á fsnum í gær að hann færðist nær Raufarhöfn og Siglufjörð fyllti af ís á nýjan leik. — Hekla lagði af stað frá Raufarhöfn um klukkan 16 og hélt áleiðis austur um, en hún er nú nokkrum dögum á eftir áætlun á hringferð sinni, sagði Guðmundur Einarsson forstjóri Skipaútgerðar- innar í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. — Þegar skipið var um 3 sjómílur frá Svínalækjartanga kom hún í nokkuð þéttan ís og þegar dimmt var Sektaður um milljón fyrir land- helgisbrot VARÐSKIP stóð Fjölni GK 17 að meintum ólöglegum veiðum á alfriðuðu svæði á Selvogs- banka sl. laugardag og var skipið fært til hafnar í Grinda- vík þar sem mál skipstjórans var tekið fyrir á sunnudaginn. Við yfirheyrslur viðurkenndi hann mælingar varðskipsmanna og brot sitt, en báturinn var 3 sjómílur inni á friðaða svæðinu með 8 netalagnir. Við rannsókn kom í ljós að skipstjórinn hafði ekki haldið lögboðna dagbók. Dómur í máli hans var kveðinn upp í gærmorgun í Sakadómi Grindavíkur og hlaut skipstjór- inn 1 m.kr. sekt til Landhelgis- sjóðs íslands auk málskostnaðar og afli og veiðarfæri voru gerð upptæk, einnig til Landhelgis- sjóðs, en þau eru metin á kr. 5.210.000. Sigurður Hallur Stefánsson héraðsdómari kvað upp dóminn ásamt Árna Þorsteinssyni og Ólafi Björnssyni meðdómend- orðið, var ákveðið að skipið héldi kyrru fyrir þarna í nótt. Því miðaði lítið og ekki var talið ráðlegt að Hekla héldi áfram í myrkri. Við munum síðan athuga í fyrramálið hvort nauðsynlegt verður að fá flugvél til að leiðbeina skipinu út úr ísnum, sagði Guðmundur Einarsson. Rauðinúpur landaði í gær um 140 tonnum af fiski á Húsavík og í gærkvöldi voru 14 vörubifreiðar á leið með aflann til Raufarhafnar. Vegurinn milli Raufarhafnar og Húsavíkur var ruddur í gær, en í gærkvöldi var veðurútlitið orðið slæmt á Raufarhöfn að sögn Helga Ólafssonar, fréttaritara Morgun- blaðsins þar. Sagðist Helgi ekki reikna með að allir bílarnir næðu til Raufarhafnar án aðstoðar Vega- gerðarinnar. Is er nú orðinn land- fastur fyrir sunnan Raufarhöfn og allar víkur fullar af ís. Sjá blaðsíðu 2: Sjómenn misstu grásleppunet undir ísinn. Helgafell er hér á leið frá Húsavíkurhöfn gegnum ísinn og út á auðan sjó á Skjálfanda. Hekla hefur tafist veru- lega vegna hafíssins fyrir Norðurlandi og á leið skipsins frá Mánáreyjym til Raufarhafnar í gær var útlitið þannig fyrir stafni. (Ljósmynd Jón Friðgeirsson). Lúðvík leitar eftir samkomulagi: Ráðherrar Alþýðubandalags og Lúðvik fá umboð tíl samninga Á SAMEIGINLEGUM fundi þingflokks, framkvæmdastjórnar og stjórnar verkalýðsmálaráðs Alþýðu- bandalagsins í gær var samþykkt ályktun, þar sem Alþýðubandalagið lýsir sig reiðubúið til samkomulags um efnisatriði frumvarps Olafs Jóhannessonar á grundvelli ályktunar Verkamannasambands íslands. í ályktun Alþýðubandalagsins er tekið undir hugmyndir Verkamannasambandsins um láglaunabætur. í framhaldi af samþykkt þessarar ályktunar var ráðherrum flokksins og formanni, Lúðvík Jósepssyni, veitt fullt umboð til þess að ganga frá samningum við hina stjórnar- flokkana á þessum grundvelli. Fyrr um helgina kannaði Lúðvík Jósepsson óformlega hvort grundvöllur væri til samkomulags á þann hátt að Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur kæmu til móts við sjónarmið Alþýðubandalags um verðbótakafla frumvarpsins gegn því að Alþýðubandalagið félli frá kröfu sinni um verðlagsákvæði frumvarpsins og samþykkti að tekin yrði upp heimild í frumvarpið fyrir frekari innlánsbindingu, en með því er komið til móts við sjónarmið hinna stjórnarflokkanna. Þessi könnun Lúðvíks vakti upp gagnrýni innan Alþýðubandalagsins á vinnubrögð hans og ýmsir sam- starfsmanna hans, þ.á m. ráðherrar flokksins töldu að hann hefði ekki umboð til þess að gera samstarfs- flokkunum slíkt tilboð. Þessar óformlegu viðræður Lúðvíks komu í kjölfar fundar milli hans, Ólafs Jóhannessonar og Benedikts Gröndals á laugardag. Ólafur Jóhannesson forsætisráð- herra staðfesti við Morgunblaðið að þessi fundur hefði verið haldinn og þar hefði verið leitað lausnar á ágreiningi stjórnarflokkanna. Ekki vildi Ólafur skýra frá þeim hug- myndum, sem þar hefðu verið reifaðar en sagði að það myndi koma í ljós hvort einhver árangur yrði af þessum fundi. Einn af áhrifamönnum í Alþýðu- bandalaginu sagði Morgunblaðinu í gærkvöldi að mikið samningahljóð væri komið í flokkinn og að forystu- lið hans hefði orðið fyrir miklu áfalli við birtingu skoðanakönnunar Vísis í gær, en niðurstaða hennar er m.a. sú að Alþýðubandalagið hafi tapað verulega fylgi eða úr 22,9% í 17,3%. Innan Alþýðuflokks liggur Karl Steinar Guðnason alþingismaður og varaformaður Verkamannasam- bandsins undir gagnrýni vegna aðildar hans að ályktun Verka- mannasambandsins og er hann talinn hafa veikt stöðu Alþýðu- flokksins með því að samþykkja hana. Karl Steinar Guðnason mætti ekki á þingflokksfundi Alþýðu- flokksins á sunnudag, þar sem fjallað var um viðhorfin í þessum málum. ir , j % »* , • ~ ■ '■ Tvær ær bornar á Svalbarðsströnd Akureyri, 25. marz. TVÆR tvævetlur báru þremur lömbum á föstudaginn á bænum Túnsbergi á Svalbarðsströnd, önnur tveim lömbum, hin einu. Lömbin eru fullburða og hin hraustustu, þó að þau kæmu í þennan kalda heim a.m.k. mánuði fyrr en eigandi þeirra, Sveinberg Laxdal bóndi, hafði búist við. Varð hann ekki lítið undrandi, þegar hann fann ærnar tvær bornar í fjárhúsinu er hann kom þangað til gegninga í fyrradag. Hér á mynd- inni má sjá hina nýju borgara ásamt mæðrum sínum í góðu yfirlæti í fjárhúsinu á Túnsbergi, enda njóta þeir hinnar bestu um- hyggju heimilisfólksins. Guðbjörgin með um 840 tonn á 6 vikum ÞAÐ ER ekki ný bóla að skuttogarinn Guöbjörg frá ísafirði afli vel og í aflahrotunni að undanförnu hafa þeir á Guðbjörginni síður en svo verið eftirbátar annarra. Síðustu sex vikurnar hefur Guðbjörgin komið að landi með um 840 tonn úr 5 veiðiferðum og þar af þrívegis með fullfermi eða 180 tonn og aldrei undir 150 tonnum. Hásetahluturinn á Guðbjörginni eftir þessa törn er því um 2,2 milljónir króna. Skipstjórar á Guðbjörginni eru þeir feðgar Guðbjartur og Ásgeir Guðbjartsson og var Guðbjartur með skipið fjórar fyrstu veiðiferðir fyrrnefnds tímabils. Morgunblaðið rabbaði við Ás- geir í gær, en hann kom inn til Isafjarðar í gærmorgun með 150 tonn. — Jú, þetta hefur gengið vel hjá okkur að undanförnu og sér- staklega hjá stráknum, sem kom þrívegis inn með fullfermi, sagði Ásgeir. — Þetta hefur verið stór og fallegur fiskur og þá einkum framan af, en smáfisk höfum við ekki séð að undanförnu. — Ég þakka þennan góða afla hjá flotanum að undanförnu hag- stæðum skilyrðum fyrst og fremst. Straumarnir og skilin í sjónum hafa verið heppileg þannig að fiskurinn hefur gengið vel í kantana, veðráttan hefur verið mjög góð fyrir fiskinn til að ganga á miðin og loks fór loðnan rétta leið með Vestfjörðunum. — Við köllum það a.m.k. rétta leið sjó- menn hérna fyrir vestan, þó aðrir geri það kannski ekki, sagði Ás- geir Guðbjartsson. Aðspurður um hvort leyfi hefði verið veitt fyrir smíði og kaupum á nýjum skuttogara frá Noregi sagði hann svo ekki vera, enn væri beðið eftir ákvörðun stjórnvalda þar um. Það skip á að verða, að sögn Ásgeirs, búið ýmsum nýjung- um í slíkum skipum. Lestarrými verður meira en í „gömlu" Guð- björginni, 4000 kassar á móti 2600, og í skipinu verður þykkara stál, „þannig að við ættum að geta nuddað okkur eitthvað meira utan í ísinn en nú er hægt,“ eins og Ásgeir orðaði það. Síðustu dagana var Guðbjörgin að veiðum í góðu veðri í ísnum fyrir Norðurlandi og sagði Ásgeir að góðan afla hefði verið að fá fram að helgi í vökum í ísnum, en nú væri eitthvert lát á því, þannig að togararnir væru flestir komnir vestur fyrir. Sv.P.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.