Morgunblaðið - 15.04.1981, Qupperneq 1
32 SIÐUR
88. tbl. 69. árg.
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Þrír myrt-
ir á Spáni
Madríd. 14. april. AP.
ÞRÍR mcnn voru skotnir til bana
á Spáni í dag ok er talið að ETA.
aðskilnaðarsamtok Baska, hafi
staðið að baki morðunum. 18
manns hafa nú verið myrtir á
Spáni það sem af er árinu.
Hinn fyrsti, sem var myrtur í
dag, var fyrrum þjóðvarðliði. Hann
var skotinn til bana í San Sebasti-
an. Þremur klukkustundum síðar
var fyrrum ofursti í hernum skot-
inn til bana í Bilbao. Hann var að
koma frá rakara sínum og hafði
haft á orði í umræðum um morðið í
San Sebastian, að „feigum yrði ekki
forðað, né ófeigum í hel komið“.
Skömmu síðar var hann liðið lík.
Þriðji maðurinn, verksmiðjustjóri,
var skömmu síðar skotinn til bana
í San Sebastian.
Símamynd AP.
Tímamótaför Kólumbíu
er gif tusamlega lokið
EdwardH-fluKNtöðinni. Kaliforniu.
14. april. AP.
VELHEPPNAÐRI för geim-
ferjunnar Kólumbíu lauk kl.
18.22 að islenzkum tima i
kvöld. Flugið gegnum gufu-
hvolf jarðar gekk að óskum
og lendingin i Edwards-
flugstöðinni i Kaliforniu
tókst vel í alla staði. Þar með
lauk 54 klukkustunda og
liðlega tuttugu mínútna för
geimferjunnar og hún mark-
ar upphaf nýs tímabils i
geimferðum.
„Svona á að koma til Kali-
forníu,“ sagði Crippen. „Verðum
við að fara með hana í flugskýlið?"
spurði Young þegar geimferján
hafði numið staðar. „Við verðum
að dusta rykið af henni fyrst,"
svaraði stjórnstöðin.
í fimmtán mínútur var sam-
bandsslaust við geimferjuna og
mikil spenna fylgdi þessari mestu
hættustund ferðarinnar, en
spennunni lauk þegar Young kall-
aði í stjórnstöðina og sagði: „Halló
Houston, Kólumbía hér.“
Geimfararnir urðu að dveljast
liðlega þrjá stundarfjórðunga inni
í Kólumbíu meðan það sem eftir
var af hættulegu eldsneyti geim-
ferjunnar var hreinsað burtu.
Gífurlegur mannfjöldi, líklega
um 170.000 manns, var saman-
kominn í flugstöðinni þegar geim-
ferjan lenti.
Kólumbía hóf för sína á hádegi
á sunnudaginn og fór alls 36
hringi umhverfis jörðu. Fyrirfram
höfðu menn mestar áhyggjur af
ferðinni inn í gufuhvolf jarðar
vegna þess gífurlega hita sem þá
myndaðist. Geimferjan fór með
25-földum hraða hljóðsins gegnum
gufuhvolfið og hitinn sem mynd-
aðist mældist 1482 gráður á cel-
síus.
Kísilflísar þær, sem áttu að
verja geimferjuna gegn hitanum,
stóðust eldraunina fullkomlega.
Hinn flókni tölvubúnaður geim-
ferjunnar stjórnaði fluginu mest-
an hluta ferðarinnar til jarðar, en
í 12 km hæð tók Young við
stjórninni og stýrði geimferjunni
síðasta spottann.
Geimferjan kom með hraða
hljóðsins niður að strönd Kali-
forníu og lenti með 346 km hraða í
Edwards-flugstöðinni. „Fyrir ykk-
ar tilstilli líður okkur sem risum á
ný,“ sagði Ronald Reagan, forseti
Bandaríkjanna þegar hann óskaði
þeim félögum, Young og Crippen,
til hamingju með velheppnaða för.
Sjá fréttir: Giftusamleitri för Kól-
umblu lokið — Nýtt timabil iteim-
frrAa. á miðopnu blaAsins.
Rússar
minnka
viðbúnað
Varsjá, WashinKton. 14. april. AP.
BANDARÍSKAR leyniþjónustu-
hcimildir herma, að Sovétmenn
hafi nú minnkað viðbúnað herja
sinna í og við landamæri Póllands
og að sovéskar og a-þýzkar her-
sveitir hafi snúið til stöðva sinna.
Málgagn Samstöðu, hinna óháðu
verkalýðsfélaga í Póllandi, skýrði í
dag frá því, að Jozef Wieniacz,
aðstoðarutanríkisráðherra Pól-
lands, hefði að frumkvæði stjórn-
valda komið til fundar við landsráð
samtakanna og þar hefði hann
skýrt frá því, að „ábyrgir og
hugsandi“ stjórnmálamenn í
A-Evrópu myndu setja sig gegn
innrás herja Varsjárbandalagsins í
Pólland. En það gæti leitt til
innrásar ef Pólland segði sig úr
Varsjárbandalaginu eða breytti
þjóöskipulagi sínu, að sögn Wieni-
acz.
Pólska fréttastofan PAP skýrði í
dag frá því, að frá og með 1. maí
komi til skömmtunar á smjöri,
hveiti, hrísgrjónum og kornflögum.
Kjöt hefur verið skammtað um
langt skeið í Póllandi og sykur
hefur verið skammtaður í rúmt ár
en 1. apríl síðastliðinn var dag-
skammtur sykurs minnkaður um
helming.
Förtil fjarlægra reikistjarna
ekki lengur dramnsýn ein
Edwards—fluKstoðinni. Kalifornlu,
14. april. AP.
„Þetta var stórkostleg ferð,“ sagði
John Young, flugstjóri geimferj-
unnar Kólumbíu þegar hann kom
út úr geimferjunni i Edwards —
flugstöðinni í Kaliforniu i kvöld
og hann bætti við: „Geimferjan
markar upphaf nýs tímabils — för
til fjarlægra reikistjarna er ekki
lengur draumsýn ein. Við Bob
erum stoltir að eiga þátt i þessu
ævintýri.“
„Hín langa bið, — 12 ára bið var
fyllilega þess virði. Þó ég þyrfti að
bíða önnur 12 ár eftir för sem
þessari, þá myndi ég ekki telja það
eftir mér. Geimöld er gengin í
garð,“ sagði Robert Crippen.
Þeir félagar komu út úr geim-
ferjunni klukkustund eftir lend-
ingu. Young gekk hring umhverfis
geimferjuna, skoðaði hana gaum-
gæfilega, lyfti síðan höndum í
sigurvímu. Robert Crippen stóð
brosandi að baki honum og tók í
hendur starfsmönnum geimferju-
áætlunarinnar.
„För ykkar markar upphaf nýs
tímabils í geimferðum," sagði Ron-
ald Reagan, forseti Bandarikjanna
þegar hann óskaði geimförunum til
hamingju með velheppnaða för.
Heillaóskaskeyti bárust til Banda-
ríkjanna víðs vegar að úr heimin-
um. „Ég er sannfærður um, að þessi
för mun verða öllu mannkyni til
framdráttar," sagði Kurt Wald-
heim, aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna. Heillaóskaskeyti bárust frá
Kanada, Ítalíu, Bretlandi,
V—Þýzkalandi og víðar. Tassfrétt-
astofan sovéska skýrði frá för
Kolumbíu en þaðan bárust ekki
heillaóskir, heldur var því haldið
fram að meginmarkmið geimferju-
áætlunarinnar væri hernaðarlegs
eðlis.
Þeir John Young og Robert Crippen ásamt konum sinum eftir
velheppnaða för. Símamynd AP.