Morgunblaðið - 15.04.1981, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1981
Otto Wathne af-
hentur á Seyðisfirði
UM SÍÐUSTU helgi afhenti Vélsmiðja Seyðisfjarðar Gylli hf.
togbátinn Otto Wathne NS 90. Mb Otto Wathne er 149 tonna stálbátur
með 565 hestafla Caterpillar-vél. Ganghraði reyndist rúmar 11 mílur i
reynsluferð ok oliueyðsla 91 1 á klukkustund. togkraftur er 9,6 tonn.
Báturinn er útbúinn á togveiðar með skuttogi, ennfremur fyrir línu-
(>K netaveiðar. Báturinn er útbúinn með stýrishring, þannig að hann
la-tur betur að stjórn á toginu. Þetta ku vera nýjung i útbúnaði báta af
þessari stærð.
Otto Wathne er annar báturinn
sem VS smíðar fyrir Gylli hf.
Hann er auk þess sjöundi bátur-
inn sem vélsmiðjan smíðar með
Caterpillar-vél, en þessi vélarteg-
und hefur lukkast mjög vel í
bátum þeirra að sögn Stefáns
Jóhannssonar framkvæmdastjóra.
Skipstjórar eru tveir af eigend-
um bátsins, þeir Trausti Magnús-
son og Páll Agústsson.
Sveinn
Talsverðar breytingar á
Heklugosinu í gærmorgun
- en dró úr því undir kvöldið
„GREINÍLEGAR breytingar urðu á gosinu í Heklu i gærmorgun, en
þá voru í henni meiri drunur en áður í þessu gosi. Hraun sýnist
nokkuð meira en áður norðan við Litlu-Heklu og eru nú 3 gigar virkir.
Ég held að í dag hafi opnast nýr gigur um miðja norðausturöxlina,“
sagði Sigurjón Pálsson, bóndi á Galtalæk, er blaðamaður ræddi við
hann í gær.
Otto Wathne á siglingu á Seyðisfirði.
I.júsmynd Mbl. Alhrrt Kcmp.
Sigurjón sagði ennfremur, að
illa hefði sést til Heklu meirihluta
dagsins, en þó hefði rofað lítillega
til um miðjan dag . „Mér virðist
nokkur breyting hafa orðið um
miðja Litlu-Heklu í dag,“ sagði
Sigurjón," en hvort þar hefur
myndast gígur eða hvort þar er
um gervigíg að ræða skal ég ekki
segja, en þetta hefur verið þó
nokkuð gos í dag, en dregið hefur
heldur úr því undir kvöldið.
Það er nokkuð undarlegt við
þetta gos, sem ekki hefur verið
BUR:
Marteinn
Jónasson
lætur af störf-
um 1. okt.
A FUNDI í stjórn Bæjarútgerðar
Reykjavikur í gær óskaði Mart-
einn Jónasson. annar fram-
kvæmdastjóri BÚR. þess að verða
leystur frá störfum frá og með 1.
október og síðan að verða ráð-
gjafi Bæjarútgerðarinnar frá og
með sama degi.
Stjórn Bæjarútgerðarinnar
samþykkti þessar óskir Marteins
með 7 samhljóða atkvæðum, en
ekki mun hafa verið rætt um þessi
mál frekar á fundinum og ekkert
var rætt um það hver tæki við af
Marteini.
MORGUNBLAÐIÐ gefur að
venju út stórt páskablað. Það
verður prentað i þrennu lagi
og verður fyrsta hlaðið borið
til kaupenda í dag en seinni
tvö bloðin verða borin út á
morgun. skírdag. Fyrsta blað
eftir páska kemur út miðviku-
daginn 22. april.
Enn felld flugstöðvartillaga:
áður í þeim gosum, sem ég hef
fylgzt með, að nú virðist allt
hraunið koma upp úr toppgígnum.
Að öðru leyti er þetta fremur
venjulegt gos og í mörgu líkt
gosinu 1947, eins og það var þegar
gosið hafði í 2 mánuði. Það getur
ekki nokkur lifandi maður spáð
um framvindu gossins, en ef
maður lítur á það sem framhald
gossins í sumar, sem það væntan-
lega er og tekur tillit til fyrri gosa,
mætti búast við því, að það stæði
nokkurn tíma,“ sagði Sigurjón.
Eggert Haukdal með
- Jóhann Einvarðsson móti
AÐ LOKINNI þriðju umræðu um
lánsfjárlög 1981 i neðri deild
Alþingis í gær var enn felld
breytingartillaga sem fól i sér
heimild til allt að 5 milljón króna
lántöku vegna byrjunarkostnað-
ar við byggingu nýrrar flug-
stöðvar á Keflavíkurflugvelli.
Tillagan var felld með 18 atkvæð-
um gegn 17, 1 sat hjá en fjórir
vóru f jarverandi. Allir viðstaddir
þingmenn Sjálfstæðisflokks
greiddu tillögunni atkvæði. þar á
meðal Eggert Haukdal. ef undan
eru skildir ráðherrarnir Friðjón
Þórðarson og Pálmi Jónsson. sem
greiddu tillögunni mótatkvæði
og Albert Guðmundsson, sem sat
hjá. Gegn tillogunni greiddu at-
kva"ði allir þingmenn Alþýðu-
handalags og Framsóknarflokks,
þar á meðal Jóhann Einvarðsson.
auk áður talinna ráðherra.
Matthías Á Mathiesen (S) gerði
eftirfarandi grein fyrir atkvæði
sínu: „Það er löngu orðin venju-
bundin afgreiðsla á Alþingi að
ákvarða lántökur ríkissjóðs með
heimildarákvæðum, eins og því
sem hér er lagt til að samþykkt
verði. — í slíku ákvæði felst vilji
Alþingis, sem ríkisstjórnir hafa
virt hingað til.“
Flutningsmenn tillögunnar, sem
er sama efnis og tillaga sem felld
var með jöfnum atkvæðum í efri
deild Alþingis, vóru: Matthías
Bjarnason (S), Matthías Á Mathi-
esen (S) og Sighvatur Björgvins-
son (A). Þá var einnig við aðra
umræðu í neðri deild felld tillaga
frá framangreindum flutnings-
mönnum og Alberti Guðmunds-
syni (S), þess efnis, að ríkisstjórn-
inni var gert skylt að taka lán til
byrjunarframkvæmda við flug-
stöðvarbyggingu 1981.
Kirkjukvöld Bræðra-
félags Dómkirkjunn-
ar verður annað kvöld
Litlar hreyf ingar í
flugmannadeilunni
SAMNINGAVIÐR/EÐUR í flug-
mannadeilunni standa yfir þessa
dagana. en að sögn Guðlaugs
Þorvaldssonar, ríkissáttasemjara
munu ekki vera miklar hreyf-
ingar á þeim málum.
I gær voru þó haldnir fundir,
bæði vegna kjaramála og í starfs-
aldurslistamálinu. I dag verða
haldnir fundir á báðum vígstöðv-
unum þar sem málin verða könnuð
og skýrslur frá öllum aðiljum
lagðar fram.
KIRKJUKVÖLD Bræðra-
félags Dómkirkjunnar
verður í Dómkirkjunni
annað kvöld, skírdag,
klukkan 20.30, ok er það í
umsjá OddfelIowreKÍunn-
ar á Islandi.
Marteinn Hunger Friðriksson,
dómorganisti, mun flytja ávarp.
Söngsveit Oddfellowa mun syngja
undir stjórn Snæbjargar Snæ-
bjarnardóttur.
Jón Sigtryggsson mun flytja
ræðu, sem fjalla mun um trú og
menningu. Steinn Guðmundsson
mun syngja einsöng við undirleik
Marteins Hunger Friðrikssonar.
Þá mun séra Árelíus Níelsson,
fyrrverandi sóknarprestur, flytja
ræðu. Bæn mun flytja séra Hjalti
Guðmundsson, dómkirkjuprestur.
Ingólfur Guðbrandsson forstjóri Útsýnar:
„Á að þegja málið í hel“
Hefur ekki fengið svar frá ríkisstjórn
um að gera Útsýn að sjálfseignarstofnun
„ÉG TEL að islenskt þjóðfélag hafi ekki efni á þvi að hundsa þetta
framlag til lista og menningar i landinu," sagði Ingólfur
Guðbrandsson á blaðamannafundi í gærdag er hann skýrði frá því
að ríkisstjórn tslands hefði enn ekki haft fyrir því að svara
hugmynd hans um að ferðaskrifstofan Útsýn verði rekin sem
sjálfseignarstofnun og allur hagitaður hennar rynni óskiptur til
lista og menningar i landinu.
Það kom fram á fundinum að
Ingólfur átti á sínum tíma tvo
óformlega fundi með forsætis-
ráðherra, sem tók mjög vel í
málaleitanir hans. Síðan eru
fjórtán mánuðir liðnir og ekkert
hefur gerst í málinu. „Það er
engu líkara en það eigi að þegja
málið í hel,“ sagði Ingólfur.
Ingólfur telur því rétt að málið
komi fyrir almenningssjónir þar
sem hann er að verða úrkula
vonar um að ríkisstjórnin svari
málaleitan hans. Ingólfur hefur
rætt við marga framámenn í
listum bæði hér á landi og
erlendis og hafa þeir sýnt mik-
inn áhuga á hugmyndum hans
um stofnun Lista- og menninga-
félags, sem hefði það að höfuð-
Ingólfur Guðbrandsson
markmiði að reisa tónleikahöll.
Ingólfur Guðbrandsson hefur
um langt árabil stuðlað að út-
breiðslu og eflingu tónlistar i
landinu og eytt til þess veru-
legum hluta starfsævi sinnar án
launa. Þá hefur hann tekið á sig
miklar fjárhagslegar skuldbind-
ingar í ljósi þeirrar ákvörðunar
sinnar að gera Ferðaskrifstof-
una Útsýn að sjálfseignarstofn-
un. Uppfærslan á verki Pólý-
fónkórsins nú um páskana kost-
ar um 150 þúsund krónur, og
reikna má með 70 þúsund króna
beinu tapi. Þessu er mætt með
beinum greiðslum úr eigin vasa.
En Ingólfur hefur haldið starf-
semi kórsins gangandi í 24 ár
samfleytt.
Flugleiöir:
Mikið annríki
í páskavikunni
MIKIÐ annríki hefur verið und-
anfarna daga i innanlandsflugi
Flugleiða og að sögn Svcins
Sæmundssonar, blaðafulltrúa
komust allir farþegar á áfanga-
stað i gær og fyrradag. Þó að
margir flugstjórar væru á nám-
skeiðum tókst að koma nokkrum
aukaferðum á vegna góðrar
skipulagningar.
I gær voru farnar alls tæplega
20 ferðir innanlands, þar af 6 til
Akureyrar, 4 til ísafjarðar og 2 til
Egilsstaða. Til annarra viðkomu-
staða Flugleiða var flogið einu
sinni í gær. Sveinn sagði, að
miklar annir yrðu væntanlega í
innanlandsfluginu í dag og væru
meðal annars áætlaðar 1 til 2
þotuferðir til Akureyrar. Á föstu-
daginn langa verður ekkert flogið
og á páskadag verður aðeins flogið
til Bandaríkjanna. Flogið verður
samkvæmt áætlun á laugardag, en
Sveinn sagði að mánudagurinn,
annar páskadagur, yrði anzi
þröngt setinn og væru þá einnig
fyrirhugaðar einhverjar þotuferð-
ir. Hann sagði ennfremur, að
farþegafjöldi virtist svipaður og
um síðustu páska, en að ekki væri
enn hægt að gera sér grein fyrir
endanlegum fjölda.