Morgunblaðið - 15.04.1981, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1981
3
Þorvaldur Garðar Krístjánsson:
Vinnubrögð orkuráð-
herra eru ámælisverð
Stjórnarskipun Orkustofnunar án laga-
ákvæða, deildarskipting án reglugerðar
I>orvaldur Garðar Kdstjáns-
son (S) veittist hart að Hjörleifi
Guttormssyni. orkuráðhcrra.
fyrir vinnubröKð við skipun
stjórnar Orkustofnunar með
SLIPPSTÖÐIN á Akureyri hefur
nú undirritað samninga um
smíði á 5 vertíðarbátum o« fleiri
slíkir munu vera á döfinni. Enn
er þó beðið tilskilinna leyfa og
smíði þeirra þvi ekki hafin.
þeim hætti að orkaði tvimælis,
lagaleKa séð. I»á taldi Þorvaldur
að ráðhcrra hcfði heldur ekki
staðið rétt að verki varðandi
deildaskiptinKU stofnunarinnar.
Bátarnir eru tvenns konar, 160
lesta og 230 og verða búnir
tækjum til neta-, línu- og botn-
vörpuveiða, en Slippstöðin telur
sig geta smíðað nokkur slík skip á
2 til 3 árum.
Þorvaldur Garðar vitnaði til
Orkulaga nr. 58/1976, sem m.a.
fjölluðu um tvær stofnanir á sviði
orkumála: Orkustofnun og Raf-
magnsveitur ríkisins. Lögin hefðu
ekki kveðið á um sérstaka stjórn
fyrir þessar stofnanir, sem heyrðu
undir orkuráðuneytið, en heimil-
uðu deildaskiptingu að undan-
genginni setningu reglugerðar þar
um. Þegar RARIK var sett sérstök
stjórn 1974 var það gert með
sérstökum lögum, sagði Þorvald-
ur, og þannig hefði einnigt átt að
standa að verki nú. í þessu tilfelli
stendur ráðherra hinsvegar að
deildaskiptingu Orkustofnunar,
án þess að gefa fyrst út reglugerð
þar um, svo sem orkulögin kveða á
um, og skipar stofnuninni auk
þess sérstaka stjórn án lagasetn-
ingar þar um, vitandi um frum-
varp sem er í umfjöllun Alþingis
og kveður á um þingkjörna stjórn
hennar. Alþingi hefur ekki verið
svo mikið sem kunngjört um hina
bréfskipuðu stjórn Orkustofnun-
ar, sem ráðherra stendur að.
Vitnaði Þorvaldur Garðar til
Stjórnarfarsréttar Ólafs Jóhann-
essonar, varðandi stjórnarathafn-
ir af þessu tagi, sem og vinnu-
bragða í orkuráðuneyti og á Al-
þingi er RARIK var sett stjórn
með sérstakri löggjöf Alþingis.
Taldi Þorvaldur Garðar vinnu-
brögð ráðherra í hæsta máta
ámælisverð þó hann vildi ekki
staðhæfa að þau vörðuðu ógild-
ingu.
Hjörleifur Guttormsson, orku-
ráðherra, sagði m.a. að ríkisend-
urskoðun hefði hafið könnun á
stjórnsýslukerfi og innra skipu-
lagi Orkustofnunar 1979, sam-
kvæmt heimild í Ólafslögum, en
starfshópur á vegum ráðuneytis-
ins, sem fjallað hafi áframhald-
andi um málefni stofnunarinnar,
hefði m.a. lagt til að henni væri
sett stjórn með þeim hætti sem nú
væri orðið. Alþingi gæti að sjálf-
sögðu mælt fyrir um aðra skipan
eftir sem áður.
Nánar verður sagt frá þessu
máli á þingsíðu Mbl. síðar.
Páskafrí
Alþingis til
27. apríl nk.
Þingmenn héldu í Páska-
frí síðdegis í gær eftir að
hafa sett tvenn lög: 1) um
olíugjald til fiskiskipa og 2)
lánsfjárhcimildir rikisstjórn-
ar 1981, borið fram fyrir-
spurnir til forsætisráðherra
um „hjöðnun verðbólgu“
(Lárus Jónsson) og til land-
húnaðarráðherra um fram-
kvæmd þingsályktunar frá
1978 um visindalega rann-
sókn á lifnaðarháttum æðar-
fugls (Sigurlaug Bjarnadótt-
ir). hlýtt á svör ráðherranna
og fjallað um þau í umræðu.
I>á fór og fram utandag-
skrárumræða um skipan iðn-
aðarráðherra á sérstakri
stjórn yfir Orkustofnun (sjá
frétt þar um í Mbl. i dag).
Ráðgert er að Alþingi komi
saman á ný til starfa mánu-
daginn 27. apríl nk.
Slippstöðin hefur gert samn-
inga um smíði 5 vertíðarbáta
Að sögn Gunnars Ragnars, for-
stjóra Slippstöðvarinnar hefur
verið samið um smíði þriggja báta
fyrir Vestmanneyinga, einn mun
fara til Friðþjófs hf. á Eskifirði og
annar til Kaldbaks á Grenivík.
Friðjón Þórðarson
um Sementsverð-
hækkunarmálið:
Gef engar
yfirlýs-
ingar
„ÉG GEF engar yfirlýsingar í
því máli. það er allt i athug-
un,“ sagði Friðjón Þórðarson.
er Mbl. spurði hann um gang
sementsverðshækkunarmals-
ins, en eins og komið hefur
fram i fréttum bar Friðjón
skilaboð um leyfisveitingu
ríkisstjórnarinnar til hækk-
unar sements, þrátt fyrir að
lögboðið leyfi frá Verðlags-
ráði væri ekki fyrir hendi.
Ekki vildi Friðjón tjá sig að
neinu öðru leyti um málið og er
Mbl. spurði hann hvað gerst
hefði ef málið hefði verið kært
af hendi Verðlagsráðs sagði
hann: „Þeir eiga það við viðsk-
iptaráðherra. Hann er þeirra
yfirmaður."
— Er ágreiningur innan rík-
isstjórnarinnar um málið?
„Nei. Það er það ekki beint.
Málið er bara þannig vaxið,"
sagði hann að lokum.
Tilboð opnuð
í viðgerð Sig-
urbárunnar
Lægsta tilboðið
frá Slippstöðinni
TILBOÐ i viðgerð Sigurbárunnar
VE. sem strandaði á Skógarfjöru
fyrir skömmu. voru opnuð i gær og
átti SlippstfWiin á Akureyri lægsta
tilboðið, en enn hefur ekki verið
ákveðið hvaða tilboði verður tekið.
Það er Björgun hf. sem býður
verkið út, en fyrirtækið keypti skipið
á strandstað og kom því til hafnar í
Reykjavík. 4 tilboð bárust i verkið og
eins og áður segir var tilboð Slipp-
stöðvarinnar lægst, 320 þúsund doll-
arar, eða rétt rúmlega 2,1 milljón.
Önnur tilboð sem bárust voru frá
Stálvík hf., rúmlega 2,2 milljónir,
Stálsmiðjunni, tæpar 2,8 milljónir og
frá skipasmíðastöðinni Herði, rúm-
lega 3.1 millión.
Dagleg notkun Palmolive með olivuolíu
heldurhúðinni mjúkri og ferskri.
Olivuolían gengur inn í húðina og
kemur í veg fyrir að hún þorni.
Palmolive með ljúfri angan er
svo mild, að hún hæfir jafnvel
viðkvæmustu barnshúð.
Láttu Palmolive verða hluta
af daglegri snyrtingu þinni.
Paimolive er annað og meira
en venjuleg sápa.
Ný óþekkt tilfinning.