Morgunblaðið - 15.04.1981, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1981
Samkór Self oss
heldur tónleika
UM ÞESSAR mundir er að hefjast lokaátak vetrarstarfs Samkórs
Seifoss, eftir þrotlausar æfingar, allt frá 20. okt. sl. en æfingar hafa
verið tvisvar i viku frá þeim tíma.
Fyrsti konsert kórsins verður á annan dag páska kl. 16 i íþróttahöll
Gagnfræðaskólans á Selfossi. Þá verður konsert að Flúðum i
Hrunamannahreppi 24. april og að Félagslundi i Gaulverjabæjar-
hreppi 30. april. # ....
Efmsskrá er fjölbreytt. M.a.
óperukórar, t.d. Sigurkórinn úr
óperunni Aida og Fangakórinn úr
óperunni Nabucco, eftir G. Verdi.
Einnig verða flutt lög eftir
stjórnandann, Björgvin Þ. Valdi-
marsson og lög eftir tvo kórfé-
laga.
Undirleikari kórsins er Geir-
þrúður Bogadóttir, en auk hennar
leika undir fjórir blásarar úr
Tónlistarskóla Selfoss.
Alr<a.VslNCiASIMI\N ER: £7^.
22480
JlUrgunblabib
Gagnrýnin í blaðinu í gær um
einþáttungana, sem sýndir eru á
Litla sviði Þjóðleikhússins, er eftir
Ólaf M. Jóhannesson en ekki Jó-
hann Hjálmarsson eins og missagt
var. Biðst blaðið velvirðingar á
þeim mistökum.
mz
1 * ' 1
... r.*
,Þegar þú þarft að kippa í gang hjá vini þínum'
Olían
LLSUPERPUUS
,sem er eins og sniðin fyrir
íslenskar aðstæður!
Nýja fjölþykktarolían frá Shell tekur langt
fram þeim kröfum, sem bifreiöaframleiö-
endur hafa sett um gæöi og endingu olíu
fyrir nýjustu gerðir bílvéla.
Shell Super Plus myndar níðsterka húö,
sem verndar slitfleti vélarinnar allan eðli-
legan notkunartíma olíunnar. Vél varin
með Super Plus endist lengur og þarfn-
ast síður viöhalds.
Eiginleikar Shell Super Plus hæfa tíðum
hitasveiflum íslenskrar veðráttu. Fjöl-
þykktareiginleikar Super Plus gera
gangsetningu auðvelda í kulda, og veita
hámarksvernd við mesta álag, t.d. þegar
kippa þarf í gang hjá kunningja.
Sérstök bætiefni Shell Super Plus gefa
olíunni styrk og þol til þess að standast
mikinn þrýsting og hita, sem myndast í
nýjustu bílvélum. Super Plus vinnur verk
sitt betur og lengur en nokkur önnur
Shell olía hefur áður gert.
Olíufélagið Skeljungur h.f.
Einkaumboð fyrir ,,SHELL“ vörur