Morgunblaðið - 18.11.1984, Síða 38

Morgunblaðið - 18.11.1984, Síða 38
38 MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984 bói ms eftir 10 dm samfelldan tjónlausan akstur Enn bœtir Sjóuá uið, fyrst er 55% bónus eftir 5 ára samfelldan tjónlausan akstur og þegar náð er 10 ára áfanganum hœkkar bónusinn í 65%. Peim bónus heldur bifreiðareigandi áfram, meða ekið er tjóniaust. Það munar um minna. Allar uppfysingargefnarhjáSjóuá í síma82500oghjá umboðsmönnum. SJÓVÁ TRYGGT ER VELTRYGGT SUÐURIANDSBRAUT 4 SÍMI 82500 Umboðsmenn um allt land Góðan daginn! - ■" , : X KENNSLUBðKUM \ ÁVANA- OG FÍKNIEFNI Kennslubók um ávana- og í íkniefni KOMIN er út kennslubók um ávana- og fíkniefni fyrir skóla og al- menning eftir Vilhjálm G. Skúlason prófessor. Höfundur segir í formál að á sl. ári hafi bæjarstjórn Hafnarfjarð- ar kosið nefnd til þess að undirbúa og gera tillögur og fræðslustarf- semi fyrir bæjarbúa um ávana- og fíkniefni. Meðal verkefna nefndar- innar var að semja kennsluefni, er hentaði til kennslu i skólum bæj- arins. „Var formanni nefndarinnar (Vilhjálmi G. Skúlasyni) falið það verkefni," segir í formála. „Til liðs við hann voru fengnir auk Ellerts Borgars Þorvaldssonar (sem var einn nefndarmanna) tveir kennar- ar og einn leikmaður. Var það gert til þess að freista þess að semja námsefni, er hentaði bæði nem- endum og almenningi. Fyrir val- inu urðu kennararnir Erna Björnsdóttir og Einar Guðmunds- son og Hólmfríður Finnbogadóttir húsmóðir. Hefur þessi hópur reynst einstaklega samhentur og áhugasamur og þess vegna hefur tekist að vinna námsefnið og gefa það út til notkunar, þegar skólar bæjarins hefja starfsemi sína haustið 1984. Jón Þór Gíslason myndlistar- maður hefur myndskreytt bókina af mikilli smekkvísi." Kennslubókinni, sem er til- raunaútgáfa, er skipt í tíu kafla: Nokkur almenn atriði um lyf, Flokkun ávana- og fíkniefna (vimugjafa) og lýsing á eiginleik- um þeirra, Sterk verkjastillandi lyf, Róandi lyf, örvandi lyf, Efni, sem valda ofskynjunum, Kannab- isefni, Lífræn leysiefni, Etanól (alkóhól, vínandi) og Tóbak. Útgefandi er Hafnarfjarðarbær. Ný stjörn í Kristi- legum skóla- samtökum ÞANN 29. september síðastliðinn var haldinn aðalfundur Kristilegra skólasamtaka (skammstafað KSS). A fundinum var kosin ný stjórn. Hana skipa: ólafur Sverrisson MS, formaður, Kristbjörg Gísla- dóttir VI, ritari, Magnús R. Guð- mundsson MR, gjaldkeri, Stein- unn Ásgeirsdóttir MH, söng-, bæna- & samfélagsfulltr. og Tóm- as Torfason VI, spjaldskrár- og kynningarfulltr. í KSS eru um 300 manns á skrá, þar af um helmingur virkur. KSS-fundir eru vikulega á laug- ardagskvöldum, kl. 20.30, og eru allir unglingar 13—20 ára vel- komnir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.