Morgunblaðið - 18.11.1984, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 18.11.1984, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984 41 Smáskammtalækningar Myndbönd Árni Þórarinsson Linda Evans og John Forsythe — formúlan hefur fleiri hliðar. Sjöundi skammturinn af Dyn- astydópinu kom í vídeóapótekin nú fyrir helgina. Ljóst má vera að í þetta skipti hefur tekist að valda farsótt hjá fjölda myndbandanot- enda sem aðeins er til eitt mótefni við, — meira Dynasty. Syrpan er komin efst á vinsældalista mynd- bandaleiganna og einatt langir bið- listar eftir spólunum. Fyrri tilraun til að flytja am- eríska sápuóperusyrpu úr sínum rétta miðli, sjónvarpinu, þ.e. dreifing á Dallas á myndböndum gegnum bensínstöðvar OLÍS, mun ekki hafa gefið jafn góða raun. Kannski var ástæðan rangur dreifingarstaður, kannski sú að þegar allt kom til alls þótti fólki ekki þess virði að fara út úr húsi til að nálgast þætti sem það var innst inni orð- ið leitt á. Og nú mun von á þriðju syrpunni, Falcon’s Crest. Allar þrjár fjalla um ástir og valda- baráttu í auðugum og spilltum amerískum stórfjölskyldum. Dallas og Dynasty gerast báðar meðal olíukónga, annars vegar í Dallas, Texas, hins vegar i Den- ver, Colorado; Falcon’s Crest reynir að vera frumleg með kali- fornískt áfengisauðvald að uppi- stöðu. Dynasty byrjar meira að segja eins og Dallas með titlum og tónlistarþema yfir loftmyndum af umhverfi sögunnar, stórhýs- um í borg og sveit, olíuborpöllum og svo framvegis. En þegar haf- ist er handa við að kynna sögu- persónurnar í fyrstu þáttunum kemur blæbrigðamunur í Ijós sem reyndar gerir gæfumuninn hvað varðar afþreyingargildi Dynasty umfram Dallas. Form- úlan er að visu sú sama: Jákvæð- ar, góðar persónur gegn nei- kvæðum, vondum persónum og fimm eða sex átakaþræðir verða að einni fléttu i hverjum þætti. En skilin milli góðra og vondra, hvítra og svartra eru ekki jafn skörp i Dynasty; þættirnir hafa upp á að bjóða fjölbreyttari og flóknari persónur innan tak- marka sápuóperuformsins en hið einhliða og fyrirsjáanlega per- sónusafn Dallas. Þetta tekst bæði með betri handritum og ekki síður betri leikurum. Blake Carrington, höf- uð ættarveldisins, er í meðförum John Forsythe ekki aðeins reffi- legt illmenni, gráhærð flau- elsmjúk blóðsugutýpa, heldur maður með ekta tilfinningar bak við kænskuna og kaldlyndið, maður sem hefur allt og óttast að missa allt. Börn hans tvö, hin brókarsjúka Fallon og homminn móralski Steven, verða í túlkun Pamela Sue Martin og A1 Corley áhugverðar persónur með ýmsar hliðar. Af einhverjum ástæðum er skipt um leikara i hlutverki Stevens á seinni stigum og tekur einhver Jack Coleman við af Corley. Linda Evans leikur voða sæta og viðkvæma og góða seinni konu Blakes, Krystle, og gerir það vel, en greinilegt af þróun hennar í þessum fyrstu þáttum að persónan á eftir að taka tals- verðum breytingum eftir því sem auður og taugastríð á Carr- ingtonheimilinu ná tökum á henni. Gamalt viðhald hennar og nú keppinaut Carringtons, jarðfræðinginn Matthew Blais- del, leikur sá velþekkti karakter- leikari Bo Hopkins og er hann eiginlega eini leikarinn sem ekki fellur inn í hlutverk sitt. Og besta leik þáttanna fram til þessa sýna Pamela Bellman og Kathy Kurtzman sem tauga- veikluð eiginkona og dóttir Blaisdels. í fjórtánda þætti held- ur svo innreið sína Joan Collins sem Alexis, fyrri kona Carring- tons, og mun hún, að sögn, slá JR Ewing við í undirferli og alhliða skepnuskap. Enn er ógetið fjölda persóna sem sveima í kringum Carring- tonplánetuna og leggja til nýjar áherslur og nýja leikþræði. Ég tek fram að staðlaðar syrpur á borð við þessar amerísku sápur eru ekki mín uppáhalds afþrey- ing, en fyrir þá sem eru háðir þeim á annað borð er Dynasty greinilega hvalreki. Eftir frekar hægan upptakt fer formúlan að ná tökum á áhorfanda í svona fjórða eða fimmta þætti og upp úr því verður erfitt að nema staðar. Spólurnar með Dynasty eru með auglýsingum í nokkrar mínútur fyrir og eftir hvern þátt og í kaupbæti eru að jafnaði fjögur Skonrokksinnslög. Myndgæði þessara spóla eru mun betri en gengur og gerist í hérlendri myndbandafram- leiðslu. Og Dynastydópistarnir bíða spenntir fram á flmmtudag eftir áttunda skammtinum sín- um. Bikarmót TR hefst á morgun BIKARMÓT Taflfélags Reykjavíkur 1984 befst á sunnudaginn 18. nóv- ember kl. 14. Mótið er opið öllum og fara umferðir fram í félagsheimili TR á Grensásvegi 44—46. Teflt er eftir útsláttarfyrirkomulagi og falla keppendur úr eftir fimm töp (jafn- tefli = Vz tap). Umhugsunartími er 30 mín. á skák fyrir hvorn kepp- anda. Umferðir verða á sunnudög- um kl. 14 og á miðvikudögum kl. 20. Bikarmót TR fór fyrst fram árið 1965. Jóhann Hjartarson hefur oftast borið sigur úr býtum eða þrívegis. Núverandi bikarmeistari TR er dr. Kristján Guðmundsson. (Fréttatilkynning frá Taflfélagi Reykjavikur.) Fimmtánda jafnteflið í röð MoNkvu, 16. mór. AP. ANATOLY Karpov, heimsmeist- ari í skák og áskorandinn, Garri Kasparov, gerðu í dag jafntefli í 24. skákinni í einvígi þeirra um heimsmeistaratitilinn í skák. Var þetta 15. jafnteflið í röð í einvíg- inu, en skákinni lauk, eftir að Kasparov, sem hafði hvítt, hafði leikið 17. leik. Karpov hefur því áfram forystu í einvíginu með 4 vinninga en Kasparov er með eng- an vinning. „Fiskiðn“ komið út í BYRJUN september kom út 6. tbl. Ki.skvinnslunnar. Útlit þessa blaðs er breytt frá fyrri blöðum. AA þessu sinni var upplag blaðs- ins 7000 eintök og var því dreift 2 Sjávarútvegssýningunni sem var í Rcykjavík nýlega. Meðal efnis i blaðinu er viðtal við Höskuld Ásgeirsson sölustjóra hjá Marel. Grein eftir Aðalstein Gottskálksson sem heitir „Gæða- stýring á Dalvík". Tvær greinar eru eftir Braga Bergsveinsson tæknifræðing, önnur fjallar um myndbandatæknina í fiskiðnaðin- um og hin nefnist: „Bónusinn bæt- ir fleira en launin". Einnig er grein eftir Sverri Guðmundsson um gæðamál í frystihúsum. Grein eftir Erling Hauksson um hring- orma í fiski. Að lokum skrifar Jón Bragi Bjarnason lífefnafræðingur um lífefnatækni. Fiskvinnslan er gefin út af Fiskiðn sem er fagfélag fiskiðnaðarins. Skrifstofan er til húsa í Skipholti 3, Reykjavík. Bökunartílboö verð Ljóma smjörlíki 5 kr. 29.90 Strásykur 1 kg. kr. 12.40 Flórsykur 500 gr. kr. 9.90 Púðursykur dökkur 500 gr. kr. 11.80 Sýróp 500 gr. kr. 49.90 Sýróp 1000 gr. kr. 89.90 Finax hveiti 2 kg. kr. 23.80 Kakó 200 gr. kr. 29.70 Tertuhjúpur 500 gr. kr. 62.00 Mikið úrval af kökuskrauti HAGKAUP !
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.