Morgunblaðið - 18.11.1984, Page 71

Morgunblaðið - 18.11.1984, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984 71 hljómsveitin (stofnuð 1973) á nýja plötu á leiðinni. Hljómleikaupp- tökur frá 1975. ★ ★ * Nýjasta lag Divine heitir I’m So Beautiful og svar til þeirra sem segja hann of feitan til að vera fyndinn. ★ ★ ★ Heaven 17 er tilbúin með nýja plötu sem heitir How Men Are. * ★ ★ Það er nærri ár siðan Kim Wilde sendi frá sér nýtt lag. Stúlkan er að bæta úr þessu. Nýtt lag og ný plata sem heitir Teases And Dares. ★ ★ ★ Boney M. er ennþá til og er búin að senda frá sér nýja smáskífu. Lagið heitir Kalimba De Luna og þykir mjög gott. * ★ ★ Meatloaf er búinn að gefa út nýja plötu. Hún heitir Bad Atti- tude og inniheldur eitthvað af lög- um eftir Jim Steinman. ★ ★ ★ Jimmy Page fyrrverandi gítar- leikari Led Zeppelin er víst búinn að stofna nýja hljómsveit. Með sér hefur hann fengið þrjá drengi og mun það ekki vera ófrægari mað- ur en Paul Rogers sem ætlar að þenja raddböndin með honum. Drengur þessi hefur vanist því í gegnum árin að vera kallaður besti poppsöngvari Breta og segja gárungar að allir amerískir iðnað- arrokksöngvarar séu að reyna að líkjast Paul Rogers. ★ ★ ★ Ramones heitir hljómsveitin. Kemur frá Ameríku og hefur spil- að gott en mjög hrátt og mjög hratt rokk. Nýjasta plata þeirra heitir Too Tough To Die og er sögð hraðari og hrárri en nokkur af fyrri plötum þeirra. Við héldum að það væri ekki hægt. ★ ★ ★ Daryl Hall og John Oates eru með nýja plötu. Hún heitir Big Bam Boom og sá Sounds ekki ástæðu til að gefa henni meira en eina og hálfa stjörnu af fimm mögulegum. * ★ ★ The Alarm er að verða tilbúin með nýja plötu. Út er komið nýtt lag sem heitir The Chant Has Just Begun og er ekkert nema jákvætt um það að segja. * ★ ★ Einu sinni var það takmark þeirra að verða alveg hreyfingar- lausir á tónleikum. Sennilega hafa þeir ekki enn náð takmarkinu því enn eru þeir að. Devo heitir flokk- urinn og nvjasta plata þeirra heit- ir Shout. A henni flytja þeir eitt gamalt lag sem mun heita Are You Experienced og upphaflega flutt af Jimi Hendrix. ★ ★ ★ Bacman Turner Overdrive sem iagði upp laupana fyrir um það bil fímm árum hefur verið endurreist. ★ ★ ★ Peargal Sharkey fyrrum söngv- ari The Undertones hefur sent frá sér sína fyrstu smáskifu. Lagið heitir Listen To Your Father og er það fyrsta sem kemur út á nýju merki sem heitir Zar Jazz. Þeir 8em það eiga eru sprelligosarnir í Madness. Deep Purple endurreist plata komin út og flokkurinn á leið í heimsreisu jóðsagan er orðin að veru- leika. Deep Purple er komin saman eftir átta ára hlé. Fyrir suma er þetta mikil gleðifrétt á meðan aðrir iáta sér eflaust fátt um finnast. En hvað er að gerast og hver er bakgrunnur þessara drengja? Deep Purple var stofnuð í mars 1968. Rúmu ári seinna var flokkurinn búinn að taka á sig þá mynd sem sló í gegn árið 1970 með smáskífunni Black Knight/ Speed King. Mennirnir sem skipuðu sveitina á þessum tíma voru Ian Gillan söngur, Ritchie Blackmore gitar, Roger Giover bassi, Ian Paice trommur og Jon Lord hljómborð. Og það eru einmitt þessir sömu menn sem standa á bak við endurreisn Deep Purple í dag. í júní 1973 hættu Gillan og Glover og í þeirra stað komu David Cover- daie og Gienn Hughes. 1976 hætti Biackmore og var Tommy Bolin fenginn til liðs við piitana. En það gekk ekki eins vel og áð- ur og í mars 1976, átta árum eftir stofnunina, var hljómsveit in hætt. En allar götur síðan hafa plötur þeirra selst vel og alitaf hafa menn verið tii sem vonast hafa eftir endurkomu þeirra. Nú hafa þeir fengið ósk sína uppfyllta. Hljómsveitin er komin saman og fyrsta plata þeirra komin út. Hún heitir Perfect Strangers og geymir átta ný lög. Tónlistin er ekkert frábrugðin því sem þeir gerðu best á sínum tíma. Einhver hefði alla tið verið það sem þeir hefðu viljað gera og þeir væru mjög ánægðir yfir að vera komnir saman aftur. Skrifað hefur verið undir iangtíma- samning við Polydor og telur hann átta plötur og eru þá safnplötur ekki inn f þvi dæmi! Lögin á plðtunni heita Knock- ing at Your Back Door, Under the Gun, Nobody’s Home, Mean Streak, Perfect Strangers, A Gypsy’s Kiss, Wasted Sunset og Hungry Daze. skrifaði að þetta væri besta plata þeirra hingað til og er það ekki fjarri lagi. En hversu lengi hljómsveitin heldur sér gangandi er ekki gott að segja. „Þeir áttu við vanda- mál að strfða hér áður og þeir koma tii með að þurfa að taka á þeim aftur," sagði Ronnie James Dio í viðtali þegar hann frétti af endurkomu þeirra. Skömmu seinna iét Giilan hafa það eftir sér að endurreisn Deep Purple I lljomsvoitin Kikk eins og hún kemur fram á vamtanle^um tónleikum, frá hæjjri til vinstri Sigurgeir SigmundsMon gítar, Sigríóur María sónj;- ur, Nikulás Kobertsson hljómhoró, Sveinn Kjartansson bassi og Majjn- ús Stefánsson trommur. Magnús til liös viö Kikk Loksins niun vera kominn ör- uggur útgáfudagur á fyrstu plötu hljómsveitarinnar Kikk. lindanfarna mánuði hefur öðru hvoru skotið upp kollinum orð- rómur um að plata hafi verið að koma en hingað til hefur ekkert gerst. En samkvæmt síðustu upplýsingum mun platan eiga að koma út 22. nóvember. Þetta ber upp á fimmtudag og á föstudeg- inum er ætlunin að hljómsveitin spili á Lækjartorgi. Þungamiðj- an leit inn á æfingu hjá sveitinni og kynnti sér væntanlegt efni. Eftir því sem best mátti heyra verður á ferðinni hin áhugaverð- asta plata. Tónlistin er mjög vandað rokk í ætt við það sem kemur að vestan. Sex lög verða á plötunni en ekkert varð úr að fjórum bæri bætt við eins og stóð til á tímabili. Engu að síður snýst hún á 33 snúningum og kemur til með að bera nafn sveitarinnar, Kikk. Ætlunin er að fylgja plötunni eftir með tónleikum og verður uppákoman á Lækjartorgi b.vrj- unin. Þar mun verða með í spil- inu óvænt uppákoma og verður spennandi að fvlgjast með Kikk á næstunni. Magnús Stefánsson fyrrum Utangarðstrommari hef- ur gengið til liðs við Kikk og mun berja þar húðir um óákveð- inn tima. Eurythmics og 1984 á er búið að frumsýna nýja mynd eftir hinni umtöluðu sögu George Orweli 1984. Þetta var síðasta mynd Richard Burtons en í myndinni leikur hann á móti John Hurt sem frægur varð fyrir myndina Fílamaðurinn. En það eru ekki bara þeir kapparnir sem leika i myndinni. Breski dúettinn Eurythmics sem samanstendur af önnu Lennox og Dave Stewart var fenginn tii að annast tónlistina við myndina og það eftir dálítið brölt. Upphaflega var Dominic Muldowney (?) fenginn til að hljóðrita tóniista fyrir myndina. Það gerði drengurinn og var búið að setja hana inná myndina þegar Richard Branson yfirmaður Virg- in Films, sem framleiðir myndina, heimtaði einnig upptökur frá Eurythmics! Eitthvað setti þetta strik í reikninginn en komið var á sáttum og samanstendur tónlistin i myndinni af efni frá fyrrgreind- um listamönnum. Búið er að frumsýna myndina í London og ekki er fyrsta gagnrýn- in jákvæð. Ian Penman hjá NME finnst myndin yfirdrifin og ýkt. „Að fyigjast með lifi Winstons f hálftima var nóg en eftir tvo tfma var þetta orðið hundleiðinlegt." Síðan lokar hann umsögn sinni með því segja söguna óhæfa til kvikmyndunar! En nóg með það. Eurythmics er búin að senda frá sér smáskífuna Sexcrime (Nineteen eighty-four). Lagið er tekið af væntaniegri breiðskffu sem mun innihalda tónlistina við 1984. t kvikmyndinni er tónlistin undirspil við áhrifamikla kvik- mynd. Þegar í hljóðver var komið til að undirbúa breiðskifuna bættu þau við hljóðfærum til að reyna að ná fram sama andrúms- lofti og þegar þau horfðu á mynd- ina. Þungamiðjan er búin að heyra smáskifuna og hljómaði hún vel. Verður spennandi að sjá og heyra myndina hvað svo sem einhver neikvæður breskur gagn- rýnandi segir um hana. Seafunkið hætt! vert ofan í það sem maður átti von á er The Icelandic Sea- funk Corporation hætt störfum. Eftir því sem best verður komist áttu þeir félagarnir ekki lengur samleið svo Seafunkið var lagt niður. Félagar hljómsveitarinnar eru samt ekki hættir að spila. Ein- ar Bragi saxafónleikari spilar á fullu með kraftmikilli danshljóm- sveit auk þess sem hann ásamt Sigurgeiri gítarleikara Kikk, Eiði Árnasyni bassa, Jóni Borgari trommur og Styrmi Sigurðssyni hljómborð eru að bræða saman „alvöru“ hljómsveit. Hún mun enn vera nafnlaus en vonandi rætist úr því. Gitarleikarinn Hákon Möller hefur alfarið snúið sér að kristi- legri tónlist ásamt hljómborðs- leikaranum Birgi Jóhanni. Þor- steinn Gunnarsson lemur tromm- ur með Pax Vobis og Einar Sig- urðsson plokkar bassann með Jazzgaukunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.