Morgunblaðið - 27.01.1985, Page 7

Morgunblaðið - 27.01.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JANÚAR 1985 7 Um okkur Þrír peyjar sem umsjónarmaður þáttarins rakst á, á ferð sinni um Kulu- suk á Graenlandi. Fjallað um Grænland og rætt við innfædda ■ Jón Gústafsson er 00 umsjónarmaður ungl- — ingaþáttarins Um okkur sem er á dagskrá útvarps í kvöld kl. 20. Að þessu sinni fjallar þáttur- inn um Grænland, sem liggur ekki svo fjarri Islandi, en er þó mörgum íslendingum afar fram- andi. Jón Gústafsson skrapp í dags- ferð til Grænlands sl. haust í boði Flugleiða og spjallaði við heimafólk í þorpinu Kap Dan á eyjunni Kulusuk, um lífið og til- veruna. Við fáum að heyra af- rakstur ferðarinnar í kvöld og ræðir Jón við tvær grænlenskar stúlkur um námstilhögun í Grænlandi, og möguleika fyrir ungt fólk á framhaldsnámi og starfi að loknu námi. Þá ræðir Jón við Baldur Sig- urðsson, fararstjóra Flugleiða á Grænlandi, en hann mun vænt- anlega vera fróður orðinn um lífshætti þar nyrða. Loks verður spjallað við krakka í Þelamerk- urskóla sem er heimavistarskóli skammt fyrir utan Akureyri. Þá verða hinir hefðbundnu dag- skrárliðir, framhaldssagan, lesendabréfin lesin og spurning þáttarins lögð fyrir hlustendur. Fjárhagsáætlun Stykkishólms- hrepps ’85 lögð fram og samþykkt Stjkkisbólmi, 22. janiutr. Fjárhagsáætlun Stykkishólms- hrepps var samþykkt á fundi hrepps- nefndar Stykkishólms sem haldinn var í gær. Fjárhagsáætlun sveitarsjóðs er rúmar 70 milljónir, þar eru tekjur hæstar af útsvari, 24,5 millj., að- stöðugjald 5 millj., fasteignaskatt- ur 4,5 millj. Helstu útgjöld: fræðslumál, um 8 millj., æsku- lýðsmál 2,5 millj., götur, holræsi o.s.frv. rúmar 13 millj. Til skóla- byggingar 20 millj., stjórnar sveit- ar rúmar 5 millj., almannatrygg- ingar og félagshjálp 4 millj. Fjár- nagsáætlun vatnsveitu er upp á 2,8 millj., hafnarsjóður 4 millj. Þá veitir hreppurinn í lista- og menningarsjóð 240 þús. kr. á þessu ári. Til brunavarna o.fl. 450 þús. kr. Stjórn sveitarfélagsins hefir verið traust og örugg undanfarin ár og miklar framkvæmdir hafa verið í bænum, fólkinu til hags- bóta. Nú heyrast ekki almennar raddir um of há útsvör, enda veit fólkið að öllu er varið því til góða og bænum til vegsauka. Árni. Keflavík: Góð veiðiferð hjá Búrfellinu Vojrum, 25. janúar. SAMKVÆMT upplýsingum sem Mbl. fékk á hafnarvaktinni í Keflavík hefur afli netabáta verið lélegur það sem af er árinu, en afli línubáta verið skárri. Það er þó ein undantekning hjá netabátum því að á miðvikudagskvöldið land- aði Búrfell 73 tonnum af ufsa, en það er langmesti afli sem landað hefur verið úr einni veiðiferð í Keflavík í ár. E.G. ^ ovi iciu á einstöku vetði í tengslum við ferð hestaáhugamanna til Essen getum við nú boðið vikudvöl í Amsterdam 5.-12. mars á afar hagstæðu verði, eða aðeins kr. 14.250. Gisting á fyrsta flokks hóteli í 7 nætur innifalin. Equitana ’85 Þessi sýning í Essen í Þýskalandi er ein hin stærsta í heiminum á hestum og varningi tengdum hestum. Ótrúlegur fjöldi glæsilegra hesta af fjölda kynstofna og mikið úrval af öllu sem tengist t.d. hirðingu hesta og fóðrun, reiðtygjum, fatnaði og fleiru og fleiru. Gist í Essen í 4 nætur, í Amsterdam í 3 nætur. Fararstjóri: Hjalti Jón Sveinsson. Verð aðeins kr. 16.600! Heigarferðir til Amsterdam — verð frá 13.050 Við bendum tónlistaráhugamönnum sérstaklega á mikinn fjölda tónleika í Hollandi um þessar mundir, t.d. Leonard Cohen 11/2, Nick Kershaw 19/2, Phil Collins 27/2 og Joan Armatrading 29/2. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.