Morgunblaðið - 27.01.1985, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 27.01.1985, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JANÚAR 1985 31 Við bjuggum til vinsældalista — lögðum lista á borð á dansleikjum og báðum gesti að skrifa niður eft- irlætislög sín. Næsta sunnudag á eftir spiluðum við svo þessi tíu lög — svo Topp tíu hjá rás 2 er engin nýjung, það er bara í öðru formi." — Það var alltaf heilmikið til- stand á dansleikjum í þá daga. „Já, allskonar uppátæki. Skemmtiatriði, danskeppnir, hæfileikakeppnir, spurninga- keppnir og fleira." bræðrum. Tage var þá að hætta með útgáfuna, en sagðist gjarnan vilja kenna mér hvernig ætti að gefa út plötu. Það gerði hann og gekk allt ágætlega — platan seld- ist mjög vel.“ Starði hugfanginn á hljómsveitina Svavar Gests fæddist og er upp- alinn í Reykjavík. „Við vorum sex systkinin og öll nema ég fæddust á Hljómsveitarstjórinn Svavar Gests með hljómsveitinni, sem lék í útvarpsþáttunum vinsælu á árunum 1962 og ’63. Frá vinstri: Gunnar Pálsson, Ragnar Bjarnason, Magnús Ingimarsson, Svavar Gests, Reynir Jónasson og Örn Armanns- son. Lionsmaðurinn Svavar Gests við gerð vatnstanks að Sólheimum í Grímsnesi í félagi við annan Lionsfélaga og tvo vistmenn. ára gamall hér í Reykjavík. Þessi fyrsta útsending var náttúrlega beint eins og alltaf var á þeim ár- um og ég man að Magnús Bjarn- freðsson var þulur. Eftir þáttinn hringdi til útvarpsins kona, sem vildi fá að tala við mig. „Þetta var ágætt hjá þér góði,“ sagði hún, „en þú bara talaðir helmingi of hratt.“ Og það finnst mér hafa loðað við mig alla tíð — ég held að þetta sé einhver taugaspenna ..." — Ertu alltaf nervös fyrir þætti eða skemmtanir? „Já, alltaf pínulítið — og ég vildi ekki hafa það neitt öðruvísi." — Og síðan eru liðnir 500 þættir? „Já, og 35 ár. Að því er varðar starfsaldur er ég líklega elsti lausráðni dagskrárgerðarmaður- inn. Dagskrá útvarpsins er að verulegu leyti unnin af þessu lausráðna fólki, sem útvarpið flokkar ekki undir starfsfólk sitt. Laun eru reyndar viðunanleg en orlof, lífeyrissjóður, að ekki sé nú talað um eftirlaun, er ekki í því dæmi. Þetta verður að leysa af sanngirni, því ella helst útvarpinu ekki á því unga fólki, sem hefur byggt upp hina líflegu dagskrá á rás 2 að ógleymdum öllum hinum. Sunnudagskyöld meö Svavari Gests —Hvaða útvarpsþáttum fannst þér sjálfum mest gaman að? „Það voru þættirnir „Sunnu- dagskvöld með Svavari Gests“ vet- urna ’62 og ’63. Þá var hljómsveit- in upp á sitt besta, það var mikil og góð músík, mikið samið af grín- og skemmtiþáttum, sem góðir leikarar fluttu. Þa var mjög skemmtilegur tími.“ — Svo hefurðu verið undanfarið að flytja okkur úrval úr þessum þátt- um og fleiri spurninga- og skemmti- þáttum í útvarpi. Eitthvað hefur nú þurft að liggja yfír því. „Já, blessaður vertu, ég var í allt sumar að vinna þetta. Það fóru 12—14 vinnuvikur í að hlusta á hundruð þátta. Svo hef ég verið í 8—10 tíma að setja saman hvern 50 mínútna þátt. Sá fimmtándi og síðasti verður fluttur 17. febrúar." — Koma fleiri þættir um sögu ís- lenskrar dægurtónlistar í framhaldi af þeim, sem þú varst með fyrir 2—3 árum? „Ég hef verið að hvíla mig á því á milli, svo ég verði ekki leiður á efninu. Ég held nefnilega að það sé þannig, að um leið og maður verður þreyttur, þá heyra útvarps- hlustendur það. Alveg um leið. Núna er ég á fullu á rás 2, byrjaði Jazzgeggjarinn Svavar Gests kynntur fyrir Louis Armstrong í hófí, sem James Penfíeld, þáverandi sendiherra Bandaríkjanna hér, hélt itl heiðurs meistaranum, þegar hann lék hér 1965. þar sl. vor að gera þætti um ís- lenska dægurtónlist, ekki þó bein- línis söguna, og svo hef ég verið með kvöldþætti á rás 2 frá miðjum desember, þar sem spiluð er er- lend tónlist. Þegar þáttunum á rás 1 verður lokið hafa þeir beðið um nýja þætti um íslenska dægurtón- list. Ég er að bræða það með mér því útvarpsvinnan er mitt aðal- starf í bili. Plötuútgáfan hefur dregist mikið saman." Stöðnun í dægurtónlist — Þú ert þó ekki hættur að gefa út? „Nei, nei. Ég mun gefa út eitt- hvað af plötum eins og fyrr og fer svo aftur af stað af fullum krafti þegar ástandið lagast og plötusala tekur við sér.“ — Ertu viss um að hún geri það? „Nei, raunar tel ég alveg óvíst að plötur fari að seljast aftur eins og áður var. Þegar þrjátíu þúsund manns eru að horfa á myndbönd og önnur fimmtán þúsund eru á skíðum eru færri eftir til að hlusta á plötur. Enda hefur dægurtón- listin staðnað. Það vantar þann ferskleika, sem Hljómar færðu með sér á sínum tíma og Bubbi Morthens síðar. Hann var jafnvel enn meiri sprengja en Hljómar. En það skiptir ekki síður máli í sambandi við plötusöluna, að nú eru náttúrlega miklu meira fram- boð af músík — rás 2, aukin dæg- urtónlist á rás 1 og svo framveg- is.“ - Annaðhvort að spila eða ekki — Hlustarðu sjálfur mikið á rokk? „Það get ég ekki sagt en ég þekki þessa tónlist mjög vel. Þú mátt ekki gleyma því, að þegar Hljómsveit Svavars Gests byrjaði í Sjálfstæðishúsinu 1957 var spil- að mikið rokk. Þá var þessi tónlist að ryðja sér til rúms hérlendis. — Það eru að verða 20 ár síðan þú hættir að spila — hvers vegna voru kjuðarnir lagðir á hilluna? „Æ, ég var búinn að gefa út nokkrar plötur og sýndist, 1965 þegar ég lagði niður hljómsveit- ina, að útgáfa gæti hentað mér vel. Þá var annaðhvort að sinna því af einhverri alúð eða halda áfram að spila. Hvort tveggja gat það ekki orðið, fannst mér. Ann- ars var nú undarlegt hvernig það vildi til að ég gaf út fyrstu plöt- una, Fjórtán fóstbræður. Ég hafði fengið þá hugmynd að setja saman svona lítinn sönghóp til að syngja í útvarpsþáttum, einskonar stæl- ing á Mitch Miller — og þá vildi svo til, að Magnús Ingimarsson, sem var píanóleikari í hljómsveit- inni, þekkti til í karlakórnum Fóstbræðrum. Fjórtán fóstbræður urðu mjög vinsælir í útvarpinu svo ég fór til Tage Ammendrup, sem þá rak hljómplötuútgáfu íslenskra tóna, og vildi fá hann til að gefa út nokkur lög með Fjórtán fóst- Snæfellsnesi. Þá fluttist fjölskyld- an til Reykjavíkur en leystist upp fljótlega eftir að ég fæddist. Þá veiktist móðir mín og við systkin- in fórum hvert í sína áttina. Ég kynntist þeim ekki fyrr en ég var kominn á fullorðinsár. Sú harð- duglega stjórnmálakona, Vilborg Harðardóttir, er bróðurdóttir mín — hvar sem hún er nú annars í pólitík." Hann segist hafa átt mjög ánægjulega æsku og alltaf liðið vel á heimili fósturforeldra sinna. „Ég þekkti ekki aðra foreldra. Þau voru gott fólk og kostuðu mig til náms eins og sinn eigin son.“ — Tónlistarnámið í Juilliard í New York já. Þetta nám ykkar KK er eitthvert frægasta nám í saman- lagðri tónlistarsögu íslands. Hvernig stendur á því? „Ég veit það varla. Þetta hefur borið á góma í ýmsum samtölum og frásögnum af hljómsveitum á þessum tíma. Það var svo sem ekkert sérstaklega merkilegt og í þessum skóla höfðu áður verið Is- lendingar við nám. Að minnsta kosti tveir. Ég var latur að drösl- ast hér á milli skóla áður en þetta var — hafði alltaf verið mjög áhugasamur fyrir músík. Ég man að ef ég komst á skemmtanir eða dansleiki, til dæmis jólaböll sem barn, þá stóð ég og starði hug- fanginn á hljómsveitina allt kvöldið. Það fannst mér alveg stórfenglegt." — Svo er 500. þátturinn þinn í útvarpinu í dag. Minnistu tímamót- anna? „Nei, reyndar ekki, því ég setti þessa fimmtán þætti með gömlu útvarpsefni saman sl. sumar og haust og skilaði þeim af mér í byrjun nóvember. Tilviljun ræður því, að í þessum þætti koma Vest- mannaeyjar talsvert við sögu. Það er skemmtileg tilviljun, því Vest- mannaeyingar eru eitthvert traustasta fólk, sem ég hef kynnst." — Aður en við hættum Svavar: Það fer af þér það orð að þú hafír bíssnessvit. Hvað heldurðu um það sjálfur? „Bíssnessvit? Nei, það held ég ekki. Það má segja að ég hafi þvælst út í viðskipti. Ég gaf út fyrstu plötuna með Fjórtán fóstbræðrum af illri nauðsyn. Plötuútgáfan átti aldrei að verða nema þessi eina plata en þær eru orðnar tæplega 300 á þessum tutt- ugu árum. Við eigum eftir að sjá hvað þær verða margar á næstu tuttugu árum.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.