Morgunblaðið - 05.12.1985, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.12.1985, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985 37 Svíþjóð: Reginhneyksli í kjötiðnaðinum Katta- og hundamaturinn reynd- ist vera af köttum og hundum Stokkhólmi, 4. desember. Frá Erik Liden, fréttaritara Morpinbladsins. UPPVÍST hefur orðið um heilmikið hneyksli í kjötiðnaðinum í Svíþjóð, hjá þeim fyrirtækjum, sem framleiða hunda- og kattamat. Komið hefur í Ijós, aö það, sem þessi dýr leggja sér helst til munns, er að stórum hluta kjöt af föllnum félögum þeirra. Það var neytendamál sænska ríkisútvarpsins, sem upplýsti að þegar kjöt skorti til vinnslunnar hjá fyrirtækjunum var ekki skirrst við að nota hræ af köttum og hundum, sem höfðu verið aflífaðir eða jafnvel fundist sjálfdauðir. Þetta hráefni fengu fyrirtækin fyrir lítið verð og hafa því grætt á því milljónir s.kr. á liðnum árum. í gær var fyrirtækjunum bannað að taka við dauðum dýrum og framvegis verður fylgst með því, að aðeins viðurkennt kjöt af slát- urdýrum verði notað við fram- leiðsluna. Sænskir hunda- og kattavinir eru að sjálfsögðu ævareiðir yfir þessari forsmán og finnst þeim hryllilegt til þess að hugsa, að hundurinn eða kötturinn þeirra hafi e.t.v. étið fyrrverandi heimil- isvin fjölskyldunnar. 5% afsláttur til 10. desember Skólavörðustíg 6. Union Carbide greiðir bætur Danbury, Connecticut, 4. desember. AP. UNION Carbide hefur ákveðið að greiða starfsmönnum verk- smiðju sinnar í Bhopal á Ind- landi skaðabætur vegna lokunar verksmiðjunnar. Alls nema skaðabæturnar, sem starfsmönnunum verða greiddar, um einni milljón doll- ara, eða 40 milljónum íslenzkra króna. Starfsmennirnir fyrr- verandi eru 672. Samkomulag tókst í gær milli stéttarfélags starfsmann- anna og Union Carbide um skaðabótagreiðslurnar. í stað- inn hætta starfsmennirnir öll- um málaferlum á hendur fyrir- tækinu, yfirgefa verksmiðju- lóðina og efna ekki til neinna' mótmæla gegn fyrirtækinu. Áður hafði Union Carbide greitt starfsmönnunum rúma milljón dollara sem laun á tímabilinu frá því gasleki varð í verksmiðjunni 3. desember í fyrra og þar til 11. júlí að verk- smiðjunni var lokað. Það slys varð í verksmiðju Union Carbide í Bhopal í fyrra að eiturgas slapp út í andrúms- loftið og varð á þriðja þúsund manns að bana. Chile: Sprengjutil- ræðum fer fjölgandi Santiago, Chile. 4. desember. AP. 19 SPRENGJUR hafa sprungid í Chile í vikunni og hefur einn maður látið lífið en 9 slasast. Tuttugu og fimm ára gamall járnbrautastarfsmaður lét lífið er sprengja sprakk undir járnbraut- arteinum um 1900 km norðvestur af Santiago. Atburðurinn varð er járnbrautaverkamenn voru að kanna járnbrautarteinana og urðu þrír þeirra fyrir meiðslum. Að sögn lögreglunnar sprungu 14 sprengjur í Santiago á mánu- dagskvöld. í sprengingunum slös- uðust sex manns og töluverðar skemmdir urðu á mannvirkjum og farartækjum. Þjóðernishreyfing Manuels Rodriguez og Borgar- skæruliðahópur vinstrisinna hafa lýst ábyrgð á hendur sér af um 70 sprengingum sem orðið hafa í Chile á undanförnum vikum. Gjöfin sem Toshiba örbylgjuofnarnir eru með fullkominni bylgjudreifingu Deltawave, sem er einkaleyfis- vernduð. Rafknúinn snúningsdiskur tryggir besta árangur. Þú getur valið milli 5 gerða heimilisofna. Fullkomin þjónusta. DEUAWAVE TOSHIBA Pu getur ekki gefidfj gagnlegrí gjöf EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTADASTRÆTI I0A - SlMI 16995 Með Toshiba örbylgjuofni sparar þú minnst 60% af raf- magnsnotkun við matseld, þú sparar uppþvott, þú nýtir alla matarafganga miklu betur og lækkar þannig matarútgjöld fjöl- skyldunnar. Og síðast en ekki síst, þú styttir þann tíma sem áður fór í matseld, niður í hér um bil ekki neitt. Þér er boðið á matreiðslunámskeið hjá Dröfn Farestveit án endurgjalds, þar sem þú færð íslenskan bækling með matar- uppskriftum. Litprentuð 192 bls. matreiðslubók fylgireinnig. Allar leiðbeiningar á íslensku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.