Morgunblaðið - 04.02.1986, Page 25
GENCI
GJALDMIÐLA
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRHXJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1986
25
London, 3. febrúar. AP.
GÓÐAR fréttir af bandarískum
efnahagsmálum ollu því i dag,
að dollarinn hækkaði nokkuð í
verði gagnvart öllum helstu
gjaldmiðlum. Breska pundið elti
hins vegar olíuverðið og lækkaði
gengi þess dálítið.
Bandaríkjadollar hækkaði all-
verulega gagnvart kanadíska doll-
araum en hann hefur staðið mjög
höllum fæti að undanfömu. Gagn-
vart pundinu hækkaði dollarinn
einnig allmikið en það á nú mjög í
vök að veijast vegna nýrrar hættu
á olíuverðstríði. Gagnvart japanska
jeninu lækkaði dollarínn hins vegar
enn og fengust nú 1,3855 dollarar
en 1,4125 ígær.
Það, sem olli gengishækkun doll-
arans, vom fréttir um 2,8% vöxt í
bandarískum byggingariðnaði í
desember og 2,7% fleiri verksmiðju-
pantanir í sama mánuði. Falli
pundsins olli aftur á móti sú yfirlýs-
ing Yamanis, olíumálaráðherra
Saudi-Arabíu, að engin von væri
til, að samkomulag næðist milli
OPEC og þeirra olíuframleiðslu-
þjóða, sem utan þess væm.
Gengi dollarans gagnvart öðmm
gjaldmiðlum var þetta í kvöld:
2,3960 v-þýsk mörk (2,3892),
2,0330, svissneskir frankar
(2,0297), 7,3375 franskir frankar
(7,3200), 2,7070 hollensk gyllini
(2,7030), 1,629,50 ítalskar límr
(1,628,00), 1,4340 kanadískir doll-
arar (1,4250).
Gullverðið féll aðeins í dag og
fást nú fyrir únsuna 347,50 dollar-
AP/Símamynd
Snjóplógur ryður veginn fyrir bíla á hraðbrautinni milli Bordeaux
og Montepillier i Suður-Frakklandi. Þar og víðar í Evrópu er nú
fannfergi meira en elstu menn muna.
Fannfergi og
flóð í Evrópu
London, Marseille, Innsbruck, Feneyjum, 3. febrúar. AP.
HIÐ VERSTA vetrarveður hefur verið í Evrópu um helgina og
snjókoman víða meiri en áður þekkjast dæmi um, t.d. í Miðjarðar-
hafslöndunum. Veðrinu hafa fylgt skriðuföll og stórflóð, eins og í
Feneyjum, og verulegar rafmagnstruflanir.
A Norður-Englandi lokuðust
vegir vegna snjóa í gær, sunnudag,
og um 5.000 heimili vora án hita
og rafmagns. Höfðu rafmagnslínur
slitnað vegna ísingar en óvanalega
miklir kuldar em nú á Bretlandseyj-
um og vindasamt. Gamall maður
varð úti í veðrinu og björgunarmenn
hafa átt erilsama helgi.
í Frakklandi era enn á annað
höndrað þúsund heimili rafmagns-
Iaus, fjómm dögum eftir hríðarveð-
ur, sem varð níu manns að íjörtjóni.
Er ástandið nokkuð farið að skána
en þó verður enn að flytja fólki víða
í Pýreneafjöllum allar vistir með
þyrlum. Á Ítalíu em snjóar sums
staðar meiri en elstu menn muna
en annars staðar hafa stórrigningar
valdið flóðum. í Feneyjum er vatns-
borðið hálfum öðmm metra hærra
en vera ber og hefur það aðeins
tvisvar á öldinni verið hærra.
í Sviss og Austurríki hefur kyngt
niður miklum snjó og er af þeim
sökum mikil hætta á skriðufjöllum.
Sl. laugardag féll snjóskriða á hótel
skammt frá Innsbmck og lést þá
einn maður og fjórir slösuðust.
Nærri 40 manns vom í hótelinu
þegar skriðan féll og þykir það
mikil mildi, að ekki fór verr.
í Rúmeníu er ástandið slæmt og
herma fréttir að samgöngur í
landinu hafi að mestu farið úr
skorðum um helgina vegna mikillar
snjókomu. Á sunnudag var umferð
einkabOa bönnuð um óákveðinn
tíma.
ATHU6IÐ/
Nýtt símanúmer
Frá og meö 1. febrúar bættist:
framan við símanúmer okkar, sem eru að öðru
leyti óbreytt. Númer í skiptiborði er nú 681299
Beinn sími á verkstæði er 6 81225
í varahlutaverslun 6 81265
og hjólbarðadeild 6 81923
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23
Mjög auðvelt er að setja moppurnar á
festiplötuna, og taka þær af. Hakarnir á
neðra borði festiplötunnar (franskur renni-
lás) tryggja að moppurnar eru alltaf vel
fastar á meðan á hreingerningu stendur.
Nýju moppukerin eru fáanleg fyrir allar
þrjár moppubreiddirnar (33, 40, 57 cm).
Þau eru á hjólavögnum, með vindipressu
og grind, auk margs konar aukahluta.
Mjög auðvelt er að vinda moppumar með
vindipressunni. Það er stórmerk nýjung.
Með frauðplastsvampi í pressunni
verður vindingin jöfn og þétt.
Þegar moppan er orðin -Æ
óhrein fer hún í hliðar- |h
körfuna og þaðan í I
þvottavélina.
Því hreinni sem
moppurnar eru, því
betri árangur næst! $
GERÐIN
Smiðsbúð 10 - Garðabæ - sími (91)41630, (91)41930