Morgunblaðið - 09.02.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.02.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988 Vaktavinnubaim við höfnina tók gildi í gær: Líklegt að það valdi röskun á flutningum Almennur félagsfundur Dagsbrúnar á f immtudag BANN verkamannafélagsins aDagsbrúnar á vaktavinnu við höfnina tók gildi í gær og þar var vinnu hætt klukkan 17.00 hjá Eimskipafélaginu. Vaktavinnu- bannið tekur ekki til eftirvinnu. „Það er ekki hægt að segja um það í bili hvaða áhrif þetta hef- ur, en það er líklegt að vakta- vinnubannið valdi einhveijum töfum og röskun á flutningum," sagði Hörður Sigurgestsson, for- stjóri Eimskipafélags íslands, í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að það myndi skýr- ast í vikunni hversu mikil þessi röskun yrði, en flutningar væru nú minni en þeir hefðu verið að undan- fömu. Um 220 Dagsbrúnarmenn vinna hjá Eimskip og hafa lang- flestir þeirra unnið í vaktavinnu við lestun og losun skipa og önnur verk- efni í Sundahöfn. Vegna vakta- vinnubannsins missa þeir álag vegna vaktavinnu. Alls vinna um 350 Dagsbrúnarmenn við höfnina, hjá Eimskip, skipadeild Sambands- ins og Ríkisskip. Almennur félagsfundur verður í Dagsbrún á fímmtudaginn kemur í Austurbæjarbíói, þar sem leitað verður eftir verkfallsheimild. Boðað hefur verið til formanna- ráðstefnu Verkamannasambands íslands á morgun, miðvikudag, og er þess vænst að samningaviðræður við vinnuveitendur geti hafist á nýjan leik á fimmtudag eða föstu- dag. Dagsbrúnarmenn halda heim að lokinni dagvinnu i gær. Morgunblaðið/RAX VEÐUR * v ÍDAGkl. 12.00: * V Heimild: Veöurstofa Islands (Byggt á veöurspá kl. 16.15 I gær) j I/EÐURHORFUR í DAG, 9.2.88 YFIRLIT í g»r: Búist er við stormi á suð-austurdjúpi. Um 200 km suö-austur af Jan Mayen er 974 mb lægð sem hreyfist lítið og önnur hægfara 978 mb lægð er á sunnanverðu Grænlandshafi. Yfir Grænlandi er 1012 mb hæð. Frost verður áfram um allt land. SPÁ: Á morgun verður norðan- eða norö-austan kaldi víðast hvar á Vestfjörðum, á annesjum norðanlands og austan- og ef til vill við suðurströndina en úrkomulítið annars staðar og víða bjart veð- ur. Frost 4—11 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Norðlæg átt og frost um allt land. Él á Norður- og Norö-austurlandi, en léttskýjað sunn- an- og vestanlands. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akurayri Reykjavfk hltl +6 +9 vaóur snjókoma léttskýjað Bergen 3 skýjað Helsinki 1 þokumóða Jan Mayen +1 skýjað Kaupmannah. 1 slydda Narssarssuaq +7 snjókoma Nuuk +4 snjókoma Osló +1 skýjað Stokkhólmur 2 skýjað Þórshöfn 1 skýjað Algarve 1S léttskýjað Amsterdam S skýjað Aþena vantar Barcelona 10 skýjað Beriln 1 slydda Chicago +14 alskýjað Feneyjar 7 þokumóða Frankfurt 6 alskýjað Glasgow 4 skúr Hamborg 2 slydda Las Palmas 18 skýjað Lxmdon 6 léttskýjað Los Angeles 11 helðsk/rt Lúxemborg 0 snjókoma Madrld 11 skýjað Malaga 16 láttskýjað Mallorca 14 skýjað Montreal +7 snjókoma NawYork +3 léttskýjað Parla 6 rlgnlng Róm 13 léttskýjað Vln > akýjað Washington +2 léttskýjað Winnlpeg +24 alskýjað Valencla 16 skýjað Siðanefnd Blaðamannaf élags íslands um fréttir hljóðvarps af „Tangen-máli“: Alvarlegt brot á siðareglum SIÐANEFND Blaðamannafélags íslands hefur úrskurðað, að fréttaflutningur Ríkisútvarpsins af meintum tengslum Stefán Jó- hanns Stefánssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, og bandarísku leyniþjónustunnar CIA, hafi ver- ið alvarlegt brot á siðareglum blaðamanna. Fréttir þessar voru byggðar á upplýsingum norska sagnfræðingsins Dags Tangens. I kvöldfréttum Ríkisútvarpsins 9. nóvember á síðasta ári var sagt frá því að norskur sagnfræðingur, Dag Tangen, héldi því fram að bandaríska leyniþjónustan CIA hafí haft náið samband við Stefán Jó- hann Stefánsson, sem var forsætis- ráðherra 1947-1949. Sagt var að Tangen hefði komist yfír leyni- skýrslur um vamir íslands, sem CIA gerði fyrir Truman Bandaríkjafor- seta undir lok fímmta áratugarins. Næstu daga voru frekari fréttir, þar sem því sama var haldið fram. Þann 19. nóvember var hins vegar sagt í fréttatíma útvarps að fréttir þessar hefðu reynst úr lausu lofti gripnar og sagnfræðingurinn norski segði nú, að hann hefði aldrei séð skjöl sem styddu þá fullyrðingu að forsætisráðherrann íslenski hefði haft náin samskipti við CIA. Þann 24. nóvember óskaði út- varpsstjóri Markús Öm Antonsson eftir umsögn siðanefndar Blaða- mannafélagsins um fréttaflutning í útvarpi, dægurmáladeild Rásar 2 og sjónvarpi af málinu. í niðurstöðum siðanefndar kemur fram, að Dag Tangen hafí orðið tvísaga í viðtölum og sé, eftir á að hyggja, vafasamur heimildarmaður. Ekki hafí fréttaritari RÚV í Noregi eða fréttastofa útvarps vitað það fyrirfram. Varðandi það, hvort fréttastofa eigi að birta frétt sem þessa án þess að hafa beinharða skjalfesta heimild, segir siðanefnd, að ógerlegt sé að hafa algilda reglu þar um, en skynsamlegt sé að við- hafa ýtmstu varúð, jafnvel gagn- vart viðurkenndum sérfræðingum. Fréttastofa útvarps hafí hins vegar ekki séð ástæðu til að ætla annað en umrætt skjal um tengsl forsætis- ráðherrans og CLA myndi berast til hennar daginn eftir að fýrsta frétt var sögð. Hins vegar hafi fréttarit- arinn og fréttastofa útvarps bmgð- ist með því að minnast ekki á það einu orði að umrætt skjal fýndist ekki, þrátt fýrir mikla leit. Þá kem- ur einnig fram, að ekki virðist sem fullyrðingar Norðmannsins hafi verið skoðaðar í sögulegu samhengi og hafí ekki hvarflað að frétta- manninum eða fréttastofu að „tíðir fundir" eða „reglulegir fundir“ íslenskra ráðherra og bandarískra sendiráðsmanna hafí verið eðlilegir og jafnvel sjálfsagðir á þeim tímum sem um ræðir. Úrskurður siðanefndar var sá, að Ríkisútvarpið hafí í fréttatímum útvarps og þætti dægurmáladeildar á rás 2 brotið 3. grein siðareglna, þar sem segir: „Blaðamaður vandar upplýsingaöflun sína svo sem kost- ur er og sýnir fyllstu tillitssemi í vandasömum málum." Siðanefndin telur brotið vera alvarlegt. í úrskurði nefndarinnar eru ekki gerðar athugasemdir við fréttir sjónvarps af málinu. Tvistur, Breki og Magni bestu nautin AFKVÆMARANNSÓKNUM er nú lokið á þeim rúmlega 20 nautum sem fædd eru 1981 og tekin voru til af- kvæmaprófunar. Út úr þessu komu 6 góð naut og verður sæðið sem tekið var úr þeim notað næstu árin en sæðinu úr þeini nautum sem lakar reyndust verður hent. Þijú naut af ’81 árgerðinni reyndust best, þau eru: Tvistur 81026 frá Læk í Hraungerðis- hreppi, Breki 81010 frá Brekkukoti í Reykholtsdal og Magni 81005 frá Hjarðafelli á Snæfellsnesi. Nautin voru öll felld eftir að búið var að taka úr þeim hæfílega mikið af sæði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.