Morgunblaðið - 09.02.1988, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 09.02.1988, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 1988 45 Leikandi létt- ar saumakonur Hvolsvöllur: Selfossi. HÚSFYLLIR hefur vérið á hverri sýningu hjá Leikfélagi Rangæ- inga og greinilegt að fólk kann vel að meta uppfærslu félagsins á Saumastofunni, eftir Kjartan Ragnarsson. Sýningar fara fram í aflagðri saumastofu, Sunnu, á Hvolsvelli sem leikfélagið fékk til afnota. Leikfélagið varð nýlega 10 ára og er Saumastofan sett upp í tilefni þess. Það eina sem minnir gesti á að þeir eru staddir í leikhúsi en ekki í þann mund að verða vitni að nætur- vinnu nokkurra saumakvenna eru áhorfendastólamir. Sex saumavélar eru á gólfínu og það sem ber fyrir augu er ósköp venjuleg og hvers- dagsleg saumastofa, hvergi er ljós- kastara að sjá. Starfsfólk saumastof- unnar stimplar sig inn og síðan hefst venjulegur vinnudagur, með mánu- degi í sumum og nöldri í öðrum. Ahorfendur eru vel með á nótun- um á leiksýningunum og margir fara heim með stórar upphrópanir á vör um frábæra sýningu og sérlega skemmtilegt kvöld. Þessi upplifun kemur ekki síst til af því að auðséð er að leikaramir hafa sérlega gaman af því að leika og virðast skemmta sér konunglega þessa stund sem tek- ur að flytja verkið. Ingunni Jensdóttur tekst mjög vel upp og það fer vel á því að hafa umgjörðina hversdagslega og grófa því verði einhveijum á í messunni er slíkt ekki áberandi. Leikurinn gengur vel og hvergi eru hnökrar. Tveir hljóðfæraleikarar annast undir- leik, á gítar og hljómborð. Ingunn er vön leikstjóm hjá áhugaleikfélög- um, hefur sett á svið um 20 leikverk með þeim. Hún er nú búsett á Hvols- velli og er strax þátttakandi í leiklist- arlífínu í Rangárvallasýslu, setti upp leikritið Jóa með Ungmennafélaginu Þórsmörk í Fljótshiíð. Flestir leikaranna koma fram í fyrsta sinn og á þeim er ekkert hik og tekst vel í einsöngsatriðum og túlkun á saumakonunum og aðstæð- um þeirra. Söngurinn er kraftmikill og sannfærandi og ekkert hik að fínna enda er á ferðinni fólk sem er vant að taka til hendinni og þá er sama hvað er, það skal ganga sem gengið er að. Leikfélag Rangæinga er 10 ára og Saumastofan sett upp af því til- efni. Þessi uppfærsla er viðburður fyrir leiklistarunnendur á Suðurlandi að því leyti að þettá er fyrsta upp- færsla áhugaleikfélaga á árinu en sjálfsagt eiga fleiri eftir að fylgja í kjölfarið. Nokkrar sýningar em eftir en for- svarsmenn leikfélagsins lofuðu auka- sýningum ef aðsókn yrði mikil. Til þess að drýgja tekjur félagsins hafa leikaramir komið fram með einstök meiri háttar OSH- TILBOÐ stendur tíl 12. febrúar á ca. 450 g stykkjum af brauðostinum góða. Verð áður: kr. 503/kílóið Tilboðsverð: kr.39 kílóið Rúmlega 20% lækkun! ■ ■— I ■ IT ____ atriði á skemmtikvöldum og þorra- blótum í Rangárvallasýslu og gert lukku. — Sig.Jóns. Leikuruxn og leikstjóra vel fagn- að í lok sýningar. Morgunblaðið/Sijrurður Jðnsson. Öll heimilistækin í glæsilegu mjúku línunni Blomberg Vestu r-þýskt gæðamerki \ \ Einar Farestveit&Co.hf. ■onoARTUN aa. símari (•«) «•••» oo unoo - n»o
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.